Morgunblaðið - 21.01.2021, Síða 45

Morgunblaðið - 21.01.2021, Síða 45
minnst á Sverri í bréfunum, hann var hetjan, góði frændinn sem börnin litu upp til. Það var 10 ára aldursmunur á Sverri, sem gekk undir gælunafn- inu Dússi, og Jóhannesi elsta syni Sigurveigar. Í bréfum kemur fram að Sverr- ir var mjög þolinmóður við litla frænda sinn. Í bréfi frá 27. maí 1942 segir: „Dússi er Jóa minn- isstæðastur af öllum. Hann kallar alla drengi Dússa ef þeir eru stærri en hann sjálfur. Þegar drengir ganga framhjá þar sem hann stendur við hliðið, kallar hann alltaf Dússi til þeirra. Hann segir að ég heiti Dússi sagði einn mjög hneykslaður um daginn. Berðu Dússa kveðju frá honum. Hann myndi áreiðanlega skila henni sjálfur ef hann kynni.“ Sex- tánda janúar 1944 segir Sigurveig í bréfi til Sverris: „Góði Sverrir minn það var verulega fallegt af þér að hugsa um hann Jóa. Hann hefir alltaf farið í rúmið þegjandi með sítrónið sitt frá Dússa segir hann. Flugvélina geymi ég enn þá, til þess að hafa hana til taks, ef mikið gengur á.“ Í sama bréfi segir Sigurveig: „Ég vona að þú ætlir að koma til okkar í sumar.“ Ég kynntist Sverri og Mar- gréti konu hans þegar ég var ung- lingur og passaði stundum fyrir þau elstu börnin þegar þau brugðu sér af bæ. Þá sá ég glöggt hvað Sverrir og Margrét voru góð við börnin sín og alla tíð hreykin af þeim. Enda máttu þau vel vera það. Börnin eru öll mesta myndarfólk, vel menntuð og góðir einstaklingar. Við Sverrir og Margrét hitt- umst oftast í seinni tíð í afmælum Sigurveigar. Það var alltaf gaman að tala við Sverri, hann sagði margt frá æsku sinni og Hólm- fríði ömmu sem ég hitti aldrei. Ég heimsótti þau Sverri og Margréti á Kleppsveginn þegar þau voru um það bil að flytja í þægilegri íbúð á Dalbraut. Þá dá- sömuðu þau börn sín fyrir að hafa séð um allt fyrir þau, kaupa og selja íbúð og sjá um flutningana. Við hittumst svo síðast á Bessastöðum árið 2017 í tilefni af endurútkomu Tvennra tíma, ævi- sögu Hólmfríðar Björnsdóttur ömmu okkar og langömmu. Guðni Th. Jóhannesson forseti skrifaði formála að bókinni. Sverrir var eini afkomandinn sem mundi Hólmfríði sem lést 1947. Þetta var mjög notaleg stund þar sem við ræddum um sameig- inlegar rætur okkar. Sverrir frændi minn var ekki ríkur að veraldlegum auði frekar en móðursystir hans, en hann skilur eftir sig mikinn auð í börn- um sínum. Blessuð sé minning Sverris frænda míns, hann lifði langa og góða ævi. Margrét H. Sæmundsdóttir Afi var alveg einstakur og frá- bær fyrirmynd. Ég var svo hepp- in að hafa átt margar samveru- stundir með afa. Að heimsækja ömmu og afa á Kleppsveginn var vikulegur atburður alla mína æsku. Afi var mikil barnagæla og var duglegur að leika við barna- börnin sín og síðar langafabörnin sín. Hann var snillingur að skapa úr pappa og bjó til alls konar skemmtilegt handa okkur, skutl- ur, pappahús og hatta. Hann fór með okkur í Kola- portið, keypti handa okkur lukku- pakka og við gáfum öndunum brauð. Hann kynnti mig fyrir bleikum snúði og kenndi mér kap- al. Hann var duglegur að finna upp á alls konar leikjum og keppnum. Ég var svo heppin að afi vann alla mína skólagöngu í íþrótta- húsinu í Grafarvoginum. Þar lá leið mín oft að hitta afa, skemmti- legast var þegar ég fékk rúnt með afa á bónvélinni. Ef við afi vorum ein í húsinu þá spiluðum við tennis, badminton, handbolta og fótbolta. Samveru- stundir sem ég mun aldrei gleyma. Afi naut sín best í útlöndum. Sérstaklega í þeim ferðum sem voru með öllu inniföldu, setið fyr- ir aurinn og drukkið fyrir afgang- inn. Þjóðhátíð átti séns í þessa gleði. Það var dásamlegt að fylgjast hvernig afi hélt í höndina á ömmu og passaði svo vel upp á konuna sína. Þau algjörlega mállaus í framandi landi, en afi var með nafnspjald af hótelinu og þá voru allir vegir færir. Hann elskaði að prútta við götusölumennina og var amma eina ferðina hlaðin skartgripum sem hún hafði engin not fyrir. Þegar við fórum út að borða og afi pantaði eitthvað sem enginn vissi hvað var, algjörlega óætt. Ég og afi hlógum svo mikið að amma var farin skamma okkur, svöng en samt svo sátt. Afi var brandarakarl og sagði við Orra Hrafn son minn í sumar, þú ert bara 6 ára. Ertu ekki til í að gefa mér svona 7 ár af þínu lífi, þú átt svo mikið eftir. Orri: Glætan afi, þú ert orðinn allt of gamall fyrir það. Svo hlógu þeir báðir. Ég á ekkert nema góðar minn- ingar og hugsa með þakklæti til þín. Ég hefði ekki getað óskað mér betri afa. Þú gafst mér allt það besta, tíma þinn, kærleika og ást. Takk fyrir allt, elsku afi. Sara Kristín Arnardóttir. Afi sagði einu sinni að hann skildi ekkert í því hvað það væru alltaf mörg börn í kringum hann og ömmu, að hann væri alltaf með börn í fanginu. Hann var aðeins undrandi á þessu en mjög ánægð- ur með lítið barn í fanginu. Á þeim tímapunkti voru börn í gömlu blokkinni þeirra farin að koma í reglulegar heimsóknir til ömmu og afa sem bættust við heimsóknir barna og barnabarna sem fjölgaði stöðugt. Mér fannst þetta rökrétt staða að smáfólk og hvaða fólk sem er gerði sér ferð til þeirra á Kleppsveginn, heimili ömmu og afa var griðastaður sem togaði fólk til sín. Það var alltaf heitt á könnunni og maður var alltaf velkominn. Afi taldi gullin sín í fjölskyld- unni, hann var stoltur af fjöl- skyldunni sinni og hafði gaman af að umgangast börnin og barna- börnin, hann naut þess að deila lífinu með þeim og sinnti þeim af mikilli alúð og áhuga. Afi var ein- staklega skemmtilegur og uppá- tækjasamur maður. Hann bjó til heilu ævintýraheimana við eld- húsborðið á Kleppsveginum rétt eins galdrakarl, vopnaður Coco Puffs-pakka, lími, skærum og eld- spýtum. Hann var líka alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt. Hann hikaði hins vegar ekki við að forða sér ef fólk var með ein- hver leiðindi, hann bara nennti ekki svoleiðis. Hann var mjög hreinn og beinn í háttum og kom til dyranna eins og hann var klæddur. Afi elskaði að segja sög- ur og hann var góður sögumaður, einstakir frásagnarhæfileikar hans gæddu sögur lífi og oftar en ekki voru þær bráðfyndnar, afi var nefnilega fyndinn grallari sem tók sjálfan sig ekkert of al- varlega. Margir merkisdagar í lífi afa voru í kringum jól og áramót. Það er því dálítið táknrænt að elsku afi hafi kvatt þennan heim á síð- asta degi jóla þegar álfar og tröll fara á kreik og dýrin fá rödd ef eitthvað er að marka þjóðsögurn- ar, mikli dýravinurinn sem hann var. Við sem eftir stöndum kveðj- um elsku afa með miklu þakklæti og yljum okkur við endalausar fallegar minningar. Við kveðjum einstakan mann sem átti gott og fallegt líf með elsku ömmu sem þau sköpuðu með einstakri elju, dugnaði og gleði. Góða ferð í sumarlandið elsku afi með kærri þökk fyrir allt. Margrét, Ólafur, Aron og Viðar Örn. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 ✝ Kristín Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 26. september 1934. Hún lést á Hjúkrunarheimili Hrafnistu Sléttunni 10. janúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Guð- mundsson, látinn 1986, og Guðrún Ólafsdóttir, látin 1977. Kristín átti eina systur, Öldu Guðmundsdóttur, látna 2016. Kristín giftist Björgvini Jóns- syni 31 ágúst 1957. Björgvin lést 2008. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau í Reykjavík en fluttu í Kópa- vog 1963 og frá 1964 í Holta- gerði 48 þar í bæ. En Kristín flytur síðan á Sléttuveg 31 árið 2011 og síðar á Sléttuveg 25 þegar hún flyst á Hjúkr- unarheimili Hrafnistu Sléttuna 3. mars 2020 og lést þar. Börn þeirra voru 6 þau eru: Stúlka andvana, fædd 1956. Guð- mundur, fæddur 1959, maki Karen Valdimarsdóttir. Hrafnhildur, fædd 1960, maki Davíð Friðriksson. Þor- geir, fæddur 1964, látinn 2013, maki Klara Guðrún Haf- steinsdóttir. Jón Óttar, fæddur 1964, látinn 1986. Kolbeinn, fæddur 1967, maki Unnur Þóra Proppé Valsdóttir. Barnabörnin eru 11 og barna- barnabörnin eru 9. Kristín ólst upp í Vest- urbænum í Reykjavík. Lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Starfaði hjá borg- ardómara í Reykjavík og síðar við hin ýmsu verslunarstörf en lengst af starfaði hún í Bóka- safni Kópavogs eða til starfs- loka. Útför Kristínar fór fram 19. janúar 2021. Elsku besta amma mín, það er mjög óraunverulegt að þú skulir vera farin úr þessu jarðneska lífi. Ég mun sakna þess að geta faðm- að þig eða átt spjall við þig eins og við höfum gert svo mikið af í gegnum árin. Ég elskaði þig mik- ið og þú varst svo sterkur stólpi í lífi mínu og þú sýndir mér hvað það er að vera sterk og mikil bar- áttukona. Ég á óteljandi minningar alveg frá því ég var lítil stelpa, allar heimsóknirnar til þín og afa í Holtagerðið, í vinnuna til þín á bókasafnið, sumarbústaðarferð- irnar og öll aðfangadagskvöldin sem við eyddum saman fjölskyld- an, sem var árleg hefð mestalla æskuna mína og á fullorðinsárun- um mínum. Ég er þakklát fyrir hverja minningu og mun alltaf geyma þær í hjarta mér elsku amma. Ég þakka þér fyrir að vera alltaf þú, hrein og bein en ég elskaði það við þig hvað þú varst alltaf hrein- skilin. Þér gat ég sagt nánast allt og aldrei dæmdir þú mig, heldur varstu alltaf stolt af mér. Takk fyrir tímann sem ég bjó hjá þér. Ég fékk að kynnast þér svo vel þá og það var dýrmætur tími. Ég er svo þakklát fyrir hvað þú varst stór þáttur í lífi Nadíu og Emelíu og hvað þér þótti vænt um þær. Við eigum það sameiginlegt að elska jólin og það var svo gaman að heyra allar frásagnirnar af jólaferðunum sem þú fórst í er- lendis þegar þú áttir heima í Holtagerðinu. Eins á ég fullt af minningum eftir að þú fluttir á Sléttuveginn, t.d. þegar við hjálp- uðumst að við að setja upp jóla- tréð og skreyta fyrstu árin þín þar. Þú áttir nokkur jól með mér og Nadíu í Grindavík og tvenn jól með okkur í Grýtubakkanum, m.a. fyrstu jólin hennar Emelíu Vonar. Við áttum samtal núna fyrir jól sem þú varst einmitt að rifja upp þegar þú varst hjá okk- ur og hvað það hefði verið góður tími. Minningarnar væru nóg í heila bók. Síðasta ár var sérstaklega erf- itt vegna takmarkana í samfélag- inu og mér þykir það svo leitt hversu lítið ég gat hitt þig og stelpurnar fengu ekki að heim- sækja þig neitt. En á sama tíma er ég þakklát fyrir tæknina og að stelpurnar gátu talað við þig fyrir jólin í myndsímtali sem er þeim ákaflega dýrmætt. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að hitta þig þann 9. janúar síðastliðinn og fengið að tala við þig og kveðja. Ég mun aldrei gleyma því kvöldi. Það snjóaði svo fallega og það var kalt úti og þú hafðir orð á því hversu kalt mér væri á höndunum og hélst fast í höndina mína og spurðir hvort mér væri ekki að hlýna og jú þrátt fyrir að þú værir brátt að kveðja þá var þér umhugað um mig og það er einmitt svo mikið þú. Það var erfitt en gott að fá að vera hjá þér en ég er svo þakklát fyrir þessa stund og að geta skil- að til þín kveðju frá stelpunum. Elsku amm, það er alltaf sagt að ömmur séu englar í dulargervi og þú ert það svo sannarlega. Ég veit að þú hefur fengið hvíld þar sem þú getur andað áreynslu- laust og fengið frið. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Prestshólum) Hvíldu í friði elsku amma. Þínar Eva María, Nadía Mist og Emelía Von. Kristín Guðmundsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA ÁSGEIRSDÓTTIR, til heimilis að Breiðvangi 28, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Land- spítalanum mánudaginn 11. janúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22. janúar klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á https://youtu.be/B4pbyUKAOOU Sjöfn Arnbjörnsdóttir Gerhard Ball Edda Arnbjörnsdóttir Kristinn Arnbjörnsson Ivanka Sljivic Ásgeir Arnbjörnsson Oddný Gunnarsdóttir Guðjón Arnbjörnsson Ingibjörg Á. Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn PÁLL HELGI JÓNSSON BUCH frá Einarsstöðum í Reykjahverfi lést föstudaginn 23. október. Bálför hefur farið fram. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 22. janúar klukkan 10.30. Streymt verður frá athöfninni á facebook-síðunni jarðarfarir í Akureyrarkirkju/beinar útsendingar. Guðrún Benediktsdóttir Kristján Heimir Buch Helena Ýr P. Maitsland Benedikt Smári Þórólfsson Mille Toft Sørensen Halldór Fannar Þórólfsson Kristín Jóhanna Stefánsdóttir Sigríður Drífa Þórólfsdóttir Birkir Þór Stefánsson Kristófer Leó Smárason Árný Helga Birkisdóttir Stefán Þór Birkisson Ástkær faðir okkar, sonur, afi og bróðir HARALDUR KRISTJÁNSSON, lést á heimili sínu í Los Angeles 12. janúar eftir erfiða baráttu við krabbamein. Útför verður tilkynnt síðar. Kristján Haraldsson Davíð Örn Kristínarson Erla Hjartardóttir Kristján Dór Clarke Bjartmar Logi Clarke Benedikt Björn Davíðsson Kristján Ragnar Kristjánsson Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÁRNASON viðskiptafræðingur, frá Litla-Hvammi, Mýrdal, lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn 11. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir en athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/M2bfuBCMPbs. Guðlaug Ragnarsdóttir Helga Sigurðardóttir Gunnar Sigurðsson Rósa Hrönn Árnadóttir Bryngeir Sigurðsson Jóhanna Arnþórsdóttir Ragnar Steinar Bentsson Fjóla Jensen Anný Elín Bentsdóttir Jóhannes Hauksson Róbert M. O´Neill afa- og langafabörn Elsku pabbi okkar, tengdafaðir og afi, KRISTINN HELGI ELDJÁRNSSON frá Siglufirði, Borgarbraut 2, Borgarnesi, lést á Brákarhlíð fimmtudaginn 14. janúar eftir erfið veikindi. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Brákarhlíðar, sáramiðstöðvar B3 í Fossvogi og sjúkrahótels LSH fyrir einstaka hlýju og góða umönnun. Lára Bjarney Kristinsdóttir Sigurlínus Gunnarsson Helgi Örn Kristinsson Hrafnhildur Gísladóttir Elfa Sif Kristinsdóttir Steinar Hannes Kristinsson Anzhela Klimets og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.