Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 ✝ Heiðdís Norð-fjörð fæddist á Akureyri 21. desem- ber 1940. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð 7. janúar 2021. Foreldrar hennar voru Jón Aðalsteinn Norðfjörð, bæjar- gjaldkeri og leikari, f. 30.10. 1904, d. 22.3. 1957 og Anna Guðrún Helgadótt- ir, f. 24.7. 1920, d. 15.6. 2000. Heiðdís ólst upp fyrst hjá föður sínum og stjúpmóður, Jónu Jóns- dóttur, sem lést ári eftir að Heið- dís kom til hennar. Þá fór hún í fóstur til Gróu Hertervig og Hjör- leifs Árnasonar þar sem hún var til 4 ára aldurs. Þá giftist faðir hennar aftur, Jóhönnu Ingv- arsdóttur kjólameistara, f. 10.6. 1911, d. 30.12. 2008, sem gekk Heiðdísi í móðurstað og ættleiddi hana síðar. Heiðdís giftist 1.12. 1959 Gunn- ari Jóhannssyni bifvélavirkja, f. 20.4. 1935. Foreldrar Gunnars voru Jóhann Valdemarsson, bóndi á Möðruvöllum í Eyjafirði, f. 22.6. 1911, d. 3.9. 2004 og Helga Magn- ea Kristinsdóttur frá Sam- komugerði í Eyjafirði, f. 13.2. 1911, d. 18.1. 1965. Synir Heiðdísar og Gunnars eru: a) Gunnar Gunnarsson Norð- fjörð, organisti Fríkirkjunnar í Reykjavík, f. 26.7. 1961. Kona hans er Gréta Matthíasdóttir, forstöðumaður námsráðgjafar hjá HR, og eru börn þeirra Heiðdís forstöðu í allmörg ár. Hún starf- aði síðan sem læknafulltrúi við embætti héraðslæknis Norður- lands eystra og var síðar lækna- ritari á heilsugæslustöðinni á Ak- ureyri um langt árabil. Meðfram störfum sínum skrif- aði Heiðdís sögur fyrir börn og unglinga og út komu nokkrar barnabækur eftir hana. Hún var dagskrárgerðarmaður hjá RÚV og var þá m.a. með morgunstund barnanna. Til eru margar hljóð- upptökur með upplestri hennar. Hún orti einnig ljóð og samdi tónlist enda liðtækur píanisti. Þekktust eru lög Heiðdísar við ævintýrið um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk. Þau komu út á hljómplötu árið 1980. Seinna skrifaði Heiðdís leikrit við sög- una um Pílu pínu sem var svið- sett af Leikfélagi Akureyrar 2016 í samstarfi við Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands og Menningarhúsið Hof. Heiðdís var um árabil meðhjálpari við Akureyrarkirkju og hún var lengi þátttakandi í kórstarfi. Ár- ið 2007 fékk hún viðurkenningu frá Beta-deild Alfa Kappa Gamma á Akureyri fyrir framlag til menningar og menntunarmála barna. Einnig fékk hún við- urkenningu Menningarsjóðs Akureyrar 2010 fyrir mikilvægt framlag til menningarlífs á Akureyri. Útförin fer fram frá Akureyr- arkirkju 21. janúar 2021 klukkan 13.30. Streymt verður frá athöfn- inni: https://tinyurl.com/y37qr6ay/. Virkan hlekk á streymið má finna á: https://www.mbl.is/andlat/. Norðfjörð, f. 1983, Birta, f. 1987 og Katrín Sól, f. 2001. Þau eiga 3 barna- börn. b) Jón Norð- fjörð rekstrarstjóri, f. 19.3. 1966. Kona hans er Ragnheiður Björg Svavarsdóttir og eru börn þeirra Jón Heiðar, f. 1991, Svavar Árni, f. 2005, Eva María, f. 2010 og Helga Lind, f. 2017. Þau eiga 1 barnabarn. c) Jóhann V. Norðfjörð framkvæmdastjóri, f. 18.8. 1971. Sambýliskona hans er Linda Björk Rögnvaldsdóttir við- skiptafræðingur, f. 1989 og eru börn þeirra Gunnar Ögri, f. 2000 og Nína Rut, f. 2018. Bræður Heiðdísar, synir Jóns og Jó- hönnu, voru Jón H. Norðfjörð, f. 1947 og Ásgeir Heiðar Norð- fjörð, f. 1951, d. 1951. Fóst- ursystkini Heiðdísar, börn Jó- hönnu, eru Ingibjörg Skarphéð- insdóttir, f. 1931, og Sverrir Steinar Skarphéðinsson, f. 1935. Systkini Heiðdísar, börn Önnu, voru Sigurrós Svavarsdóttir, f. 1945, d. 1945, Svavar Svav- arsson, f. 1952, Helga Kristín Jónsdóttir, f. 1955, d. 1996 og Hulda Jónsdóttir, f. 1963. Heiðdís lauk prófi frá Gagn- fræðaskólanum á Akureyri og stundaði síðan nám við Hús- mæðraskólann á Laugalandi. Hún útskrifaðist sem sjúkraliði 1975 og starfaði við Elliheimilið í Skjaldarvík sem hún veitti síðan Elsku amma mín! Það er langt síðan ég byrjaði að sakna þín, en núna er komið að kveðjustund. Veikindi þín voru ósanngjörn og erfið. Þau rændu þig svo miklu. Sögunum og ljóðunum. Dýrmætum tíma. Þau rændu því að þú fengir að kynnast drengjunum mínum og ó, hvað þú hefðir haft gaman af þeim! Það var óskaplega sárt að sjá þig lokast inni og verða loks að skugganum af því sem þú eitt sinn varst. En núna ertu laus úr þessum fjötrum. Og á undraverðan hátt er eins og reiðin yfir þessum ómaklegu örlögum dofni líka. Það skapast rúm fyrir dásamlegar minning- ar að stíga aftur fram og kveðja sér hljóðs. Í hvert sinn sem ég kom í Hraungerðið fann ég hvað ég var velkomin og elskuð. Þú mættir mér með breiðu brosi og opnum faðmi, eins og ég væri sólin sjálf að heiðra þig með nærveru minni. Sjáaldur augna þinna, eins og þú sagðir. Allar minningar um þig eru lit- aðar af þessari gleði og birtu, sem vafalaust hafði mótandi áhrif á litla skottu. Ég kom stundum með heimalexíurnar og vann þær við eldhúsborðið hjá þér. Mér gekk ekki vel að leggja marg- földunartöflurnar á minnið fyrr en þú sagðir að ég ætti bara að syngja þær! Ég hélt nú ekki! Glætan! „Jú! Þú getur meira að segja rappað þær!“ sagðir þú og gerðir þér lítið fyrir og rappaðir sex-sinnum-töfluna. Auðvitað hafðirðu rétt fyrir þér. Töflurnar lögðust á minn- ið, og alltaf sé ég ömmu gömlu fyrir mér að rappa þegar ég þarf að margfalda með sex. Þegar ég gisti hjá þér um helgar varstu alltaf vöknuð fyr- ir allar aldir. Svo var heilög stund hjá okkur þegar þú vakt- ir mig til að horfa á barnatím- ann. Eftir hádegið skottaðist ég með þér í öll erindi. Við fórum í kaffi til Kristjáns frá Djúpalæk og Unnar. Ég sat í fanginu á þér, bruddi kandís, og þú sagðir mér að Kristján hefði samið söguna um Pílu pínu. Hann hlaut að vera heimsfrægur fannst mér. Samt fannst mér þú eiga ansi mikið í sögunni líka, sem gæddir hana lífi með lögunum þínum. Við fórum stundum í leik- húsið, klæddar í okkar fínasta púss. Þú bentir á málverkið af langafa sem hékk þar. „Hann var leikari,“ sagðirðu, og ég fann að hann hafði verið merki- legur karl. Stundum fórum við í ísbíltúr um Oddeyrina og þú sagðir mér sögur af þér þegar þú varst lítil stelpa. Það sem við hlógum í þessum bíltúrum, enda varstu algjör óþekktar- ormur og sögurnar fyndnar eft- ir því. Stundum þurftum við að stoppa bílinn til að geta hlegið almennilega. Eftir því sem ég set fleiri minningar á blað, þeim mun fleiri koma upp í hugann. Þær hlýja mér allar. Stundum velti ég því fyrir mér hvaða braut þú hefðir valið þinni litríku ævi ef þú hefðir fæðst kynslóð síðar. Ef þú hefðir ekki misst pabba þinn 15 ára gömul eða verið ættleidd í tvígang. Ekki farið í húsmæðraskóla heldur listahá- skóla. Þú varst svo mikill listamað- ur og hafðir stórkostlega sýn á lífið. Þú fannst náðargáfunni þinni farveg í sögum þínum og söngvum sem munu lifa áfram. Þú gafst mér svo mikið og þú gerðir það af öllu hjarta. Elsku amma mín! Góða ferð inn í ljósið. Það mun skína bjartar vegna þín. Þín sonardóttir, Meira á mbl.is/andlat Heiðdís Norðfjörð yngri. Það er mikil gæfa að geta vaknað heilbrigður hvern morgun og haldið glaður út í daginn. Elsku Heiðdís systir mín átti ekki því láni að fagna hin síðari ár. Það var erfitt að sjá þessa góðu konu hverfa inn í tómleika hugar og athafna. Við áttum bernskuárin okkar saman með mömmu og pabba á Ægisgötunni á Akureyri og ég á góðar minningar frá þeim tíma er hún passaði mig. Mamma kenndi okkur kvæði og vísur sem við lásum og sung- um. Í uppáhaldi voru Gutta- og Aravísur og kvæðið „En hvað það var skrýtið“. Heiðdís sagði mér sögur um allt mögulegt sem hún bjó til, stundum jafn- óðum og það var sagt. Skálda- og leikhæfileikar hennar komu snemma fram og söngur átti hug hennar alla tíð. Pabbi okk- ar féll frá árið 1957 og í fram- haldi fluttum við mamma til Reykjavíkur, en Heiðdís var þá trúlofuð Gunnari sínum og varð eftir á Akureyri. Við hittumst oft og alltaf voru það fagnaðar- fundir. Sumarið eftir að pabbi lést fór ég í sveit að Háagerði í Eyjafirði og þá kom Heiðdís reglulega til mín og við fórum í bíltúr. Þegar sveitardvöl minni lauk sótti hún mig og sagði: „Nú skulum við kaupa eitthvað fallegt handa mömmu.“ Heiðdís vildi alltaf gleðja aðra. Við fór- um í KEA-búð og fundum þar fallega Jesúmynd sem ég fór með suður og gaf mömmu. Heiðdísi var margt til lista lagt. Hún samdi vinsælar barnabækur og falleg ljóð og hún sá um dagskrárgerð hjá RÚV og ávallt þegar ég heyrði hana lesa upp, komu upp í huga minn upphafsorð ljóðsins um Sólskríkjuna, „Sú rödd var svo fögur, svo hugljúf og hrein“, en rödd Heiðdísar var einmitt svo hugljúf og hrein. Hún las einn- ig sögur inn á fjölmargar snældur og samdi lög við eigin texta og annarra. Þekktust eru lög Heiðdísar við ævintýrið um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk. Þau komu út á hljómplötu árið 1980 og seinna skrifaði hún leikrit eftir sög- unni og það var gleðiefni þegar leikritið um Pílu pínu var flutt hjá LA árið 2016. Heiðdís hefur hlotið viðurkenningar fyrir rit- störf sín, meðal annars frá Menningarsjóði Akureyrar árið 2010 fyrir mikilvægt framlag til menningarlífs á Akureyri. Heiðdís var alla tíð einlægt trú- uð og var lengi meðhjálpari í Akureyrarkirkju. Hún spilaði marga fallega sálma á píanóið heima og í uppáhaldi var sálm- urinn Amazing Grace sem hún gerði eftirfarandi íslenskan texta við sem hún nefndi Vor- koma. Nú birta fer í bæ og sveit því bráðum kemur vor, þá vermir okkur vorsól heit og veitir kraft og þor. Og vorið nýja vekur sýn þá vaknar allt og grær, og blærinn ilminn ber til þín sem bjó hann til í gær. Þá hjörtun ungu örar slá því ástin tekur völd, með blik í augum blíð er þrá hin björtu fögru kvöld. Margar góðar minningar rifjast upp og það voru alltaf gleðistundir þegar við fjöl- skyldurnar hittumst og sam- band okkar hefur einkennst af mikilli einlægni og væntum- þykju. Heiðdís varð áttræð hinn 21. desember sl. Við héldum upp á þennan dag sem markar bjart- ari tíma og vorkomu innan tíð- ar. Síðustu ár hefur hún notið góðrar umönnunar á dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri þar sem eiginmaður hennar til rúmlega sextíu ára, Gunnar Jó- hannsson, dvelur einnig. „Sárt er að missa sína“ segir í sakn- aðarljóði Gínu mömmu í sög- unni um Pílu pínu og í dag tök- um við undir þau orð. Við Lóa vottum elsku Gunnari og son- um þeirra og fjölskyldum inni- lega samúð og Guðsblessunar. Blessuð sé minning elsku Heið- dísar. Meira á mbl.is/andlat Jón Norðfjörð (Nonni litli bróðir). Elskuleg svilkona mín, Heið- dís Norðfjörð, er látin eftir nokkurra ára erfið veikindi. Það eru komin hartnær fimm- tíu ár síðan við nýtrúlofað kær- ustuparið, blaut á bak við eyr- un, hófum búskap á neðri hæðinni hjá Heiðdísi og Gunna í Hamarstíg 3. Frá fyrsta degi tóku þau okkur opnum örmum og vildu allt fyrir okkur gera. Og þegar frumburður okkar fæddist fékk ég margar þarfar kennslustundir í umönnun þar sem ég einbirnið vissi vart hvað sneri fram eða aftur á ung- barni. Heiðdís var konan með reynsluna, búin að eignast þrjá stráka. Þegar ég svo byrjaði aftur að vinna hálfan daginn bauðst hún til þess að passa, „af því að hún hvort sem var heima“ sagði hún. Auðvitað tók hún ekki í mál að taka greiðslu fyrir og þetta lýsir Heiðdísi svo vel, endalaust að reyna að gera öðrum lífið léttara. Í minning- unni var alltaf sól og logn, gleði og gaman þau þrjú ár sem við bjuggum í Hamarstígnum. Upp úr þrítugu lærði Heið- dís til sjúkraliða og vann um tíma sem forstöðukona elli- heimilisins í Skjaldarvík. Seinna gerðist hún ritari hjá héraðslæknisembættinu og þegar það embætti var lagt nið- ur færði hún sig yfir á Heilsu- gæslustöðina á Akureyri (HAK) og vann þar sem lækna- ritari til starfsloka. Þar vorum við vinnufélagar í yfir 20 ár. Heiðdís naut sín vel í öflugu fé- lagsstarfi á HAK, var sjálfskip- aður forsetaritari hjá forseta starfsmannafélagsins og gaf út ein og óstudd Hökuna sem var fyrir margar sakir hið merki- legasta blað. Um tíma gaf hún einnig út Undirhökuna þar sem birtist eingöngu kveðskapur eftir starfsmenn en óvenju- margir snjallir hagyrðingar voru á HAK á þessum árum. Útgáfa var nefnd Heiðprent. Meðfram fullu starfi var Heiðdís meðhjálpari í Akureyr- arkirkju í fjöldamörg ár og stýrði um tíma barnastund hjá RÚVAK, svæðisútvarpi og söng lengi með Kvennakór Ak- ureyrar. Heiðdís var einkar fjölhæf og hugmyndarík. Hún spilaði á pí- anó, samdi bækur, sögur, ljóð og lög. Einnig las hún inn á snældur „Sögur fyrir svefninn“ sem voru bæði hennar eigin sögur og annarra. Þau eru ófá börnin sem hafa í gegnum tíð- ina sofnað út frá röddinni henn- ar fallegu. Platan með lögum og söng Heiðdísar og textum Kristjáns frá Djúpalæk um Pílu pínu músastelpu er löngu orðin klassík og mörg börn hafa grát- ið fögrum tárum yfir Saknaðar- ljóði Gínu mömmu. Það gladdi Heiðdísi mjög þegar Leikfélag Akureyrar setti upp fyrir nokkrum árum söngleik byggð- an á þessari sögu og söngvum. Heiðdís var árrisul, fór á fætur við fyrsta hanagal til að semja áður en dagsins amstur hófst. Það voru hennar helgi- stundir. Ég kveð þig nú, mín kæra Heiðdís, með þökk fyrir sam- fylgdina. Þú gerðir veröldina einfaldlega betri með tilvist þinni. Þín Anna María (Anna Maja). Horfin er nú til feðra sinna eftir langvinna vanheilsu Heið- dís Norðfjörð, sem um áratuga skeið var náinn samstarfsmað- ur minn á Heilsugæzlustöðinni á Akureyri og sérleg vinkona fjölskyldu minnar. Heiðdís var einstök kona fyrir mannkosta sakir og margvíslegra hæfi- leika. Hún hafði afar jákvæða sýn á lífið og samferðamenn sína og sýndi það látlaust í verki. Sið- fágun hennar og eðliskurteisi var við brugðið, en þó var hæfnin til samlíðunar og hjálp- semi hennar þeir eðliskostir, sem mér eru minnisstæðastir. Hún sýndi stöðugt í dagfari sínu og verki áreynslulausa þrá eftir því að auðvelda samferða- fólki sínu lífið og bæta og létta andrúmsloft hvers þess hóps, sem hún blandaði geði við. Auk þessara eðliskosta var Heiðdís ágætum gáfum gædd og af þeim sökum eftirsótt til flestra starfa, sem hún jafnan sinnti af sömu samvizkusemi og auðmýkt, hvort heldur um að- hlynningu sjúkra eða aldraðra, stjórnunarstörf, þjónustustörf eða félagsstörf var að ræða. Sjaldnast þurfti að kalla eftir aðstoð hennar ef á lá, því hún var jafnan fyrri til að bjóða fram hjálp sína. Hlutur hennar við að styrkja félagslega innviði vinnustaða hennar var ómeta- legur, því auk glaðværðar og gjörhygli var henni afar margt til lista lagt. Sköpunargáfa hennar fékk m.a. útrás í hljóð- færaleik og tónsmíðum, ljóða- gerð og ritlist. Hún var frábær upplesari og söngvin að auki. Það var einkar auðvelt að vekja áhuga hennar á nánast hverju sem var, svo lengi sem það samrýmdist siðferðiskennd hennar og lífssýn. Hún var hvers manns hugljúfi og dreng- ur góður. Minningin um hógværa hug- sjónakonu og viðleitni hennar til að bæta heiminn mun lifa með öllum þeim sem þekktu hana. Ég votta aðstandendum og fjölmörgum syrgjendum samúð mína. Pétur Ingvi Pétursson. Heiðdís Norðfjörð Ég heyrði þrjár villur. Þetta voru orðin sem ég fékk að heyra eftir að ég kláraði að spila á fiðluna fyrir elsku afa minn. Þessar þrjár vill- ur höfðu hins vegar ekki farið framhjá mér. Því eins og afi væri rannsóknarlögregla sem hafði gómað sökudólg í miðri lygi, þá heyrði ég „AAA“ í hvert skipti sem fingurnir mínir villtust á strengjunum. Það var alltaf skemmtilegast að spila fyrir hann afa. Á meðan aðrir ættingj- ar myndu hrósa mér, sama Sigurður Helgi Valgarðsson ✝ Sigurður HelgiValgarðsson, (Siggi) fæddist 11. ágúst 1933. Hann lést 10. janúar 2021. Útförin fór fram 18. janúar 2021. hversu illa mér gekk, þá var afi ekki að fara að gera það sama ef það átti ekki rétt á sér. Það sem ég sóttist eftir var æðsti heiður sem afi gat gefið mér: „Þetta var skítsæmilegt.“ Ég elskaði hvað afi gat alltaf verið heiðar- legur. Það var nefnilega honum að þakka að ég gat spilað á fiðluna mína, þar sem hann átti hlut í þeim kaupum. Einu sinni spilaði ég á fiðluna á hjúkrunarheimili þar sem afi horfði á, ásamt hópi af eldri borgurum. Þar minntist ég á að afi hefði hjálpað með kaupin og að þetta fiðluspil væri að vissu leyti honum að þakka. En afi var ekki manneskja sem vildi láta setja sig á háan hest, þannig að hann þóttist ekki kannast við það. Ekkert við- fangsefni virtist vera afa óáhuga- vert og bækurnar sem hann var búinn að lesa voru óteljanlegar. Hann afi hafði líka mikinn áhuga á að deila þessari visku með öðr- um, á mörgum heimilum má finna áhugaverðar bækur sem afi ákvað að gefa, eftir að hafa fund- ið þær í Kolaportinu. Á minni hillu má til dæmis finna allskonar sögubækur, hjá bróður mínum má finna bækur um bíla og hjá pabba bók um smíðar. Húmorinn var alltaf til staðar hjá honum afa. Þegar pabbi fékk sína bók, þá sagði afi að hún væri fullkomin fyrir hann, það voru nefnilega svo margar myndir í henni. Það var æðisleg gjöf fyrir bæði mig og bróður minn að fá að alast upp með honum afa. Það skipti engu máli hvað ég var bú- inn að kynna mér eða skoða, hann afi vissi alltaf eitthvað um það og gat spjallað um það tím- um saman. Þegar ég var búinn að ræða við hann um daginn og veg- inn, þá gat bróðir minn tekið við af mér og talað um eitthvert allt annað viðfangsefni sem ég hafði ekkert vit á, en afi, hann var rétt að byrja. Það þurfti nefnilega stundum fullt heimili til þess að komast í gegnum allt það sem afi gat talað um. Þetta var eitthvað sem fór ekki með aldrinum, og hann afi hélt áfram að vera dýr- mætur viskubrunnur. Einu sinni lét afi mig lofa sér því að láta sig vita þegar honum væri farið að förlast. Það var eitthvað sem ég upplifði nær aldrei, þó að ég hafi nú einu sinni látið þau orð falla. En þá taldi ég að Útvarp Saga hefði eitrað smá brunninn. Hann afi hafði þann einstaka eiginleika að njóta þess fé- lagsskapar sem mörg okkar eiga í erfiðleikum með, okkar eigin. Alltaf fann afi leið til þess að halda sér uppteknum og skemmta sér með sjálfum sér. Afi stressaði sig nefnilega ekki yfir hlutum sem hann skorti, heldur virtist hann alltaf vera sáttur með það sem hann átti. Elsku afi, takk kærlega fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Við munum sakna þín og ávallt bera minningu þína með okkur. Hinrik Snær Guðmundsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.