Morgunblaðið - 21.01.2021, Side 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
„DNA-PRÓF. EN HUGULSAMT. NÚ GET
ÉG KOMIST AÐ ÞVÍ HVORT ÉG ER
EFTIRLÝST.”
„ÉG ÞARF AÐ FÁ FIMMTÍUKALLINN SEM ÞÚ
ÆTLAR AÐ NOTA Í NEYÐ LÁNAÐAN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda sér í formi,
jafnvel innandyra.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VIÐ ÞURFUM ÖLL AÐ MUNA
AÐ BORÐA GRÆNMETI
ÉG MUN
GERA ÞAÐ
ÞEGAR ÉG HEF KLÁRAÐ ALLA
KLEINUHRINGI HEIMSINS
VIÐ ÞURFUM
AÐ AFVOPNA
VERÐINA Í
KASTALANUM!
SKELLTU
ÞESSUM KASSA Í
VALSLÖNGVUNA!
ÞETTA VIRKAÐI!
HVAÐ VAR Í
KASSANUM?
FRUMSAMIN
LJÓÐ EFTIR
MIG!
maður, býr á Selfossi, unnusta hans
er Dagmar Ósk Héðinsdóttir,
starfskona á vinnustofu Viss á Sel-
fossi, búsett á Eyrarbakka; 3) María
Sól, f. 26.8. 1991, sópransöngkona,
dvelur í London. Fósturdóttir er
Steingerður Sunna Hrafnsdóttir, f.
25.4. 2002, nemi í Reykjavík.
Systkini Sigrúnar eru 1) Halldór
Már Reynisson, f. 8.12. 1962, vinnur
hjá Marel og býr í Reykjavík, maki
hans er María Aletta Margeirs-
dóttir; 2) Hulda Rún Reynisdóttir, f.
30.3. 1973, leikskólakennari og býr í
Svíþjóð, maki hennar er Sverrir
Halldórsson.
Foreldrar Sigrúnar: Faðir hennar
er Reynir Björnsson, f. 18.10. 1940,
d. 8.1. 2018, lærði húsgagnasmíði og
vann við smíðar í 25 ár en síðustu 20
árin vann hann í SPRON. Móðir
Sigrúnar og eiginkona Reynis er
Arndís Halldórsdóttir, f. 30.6. 1938,
húsmóðir og vann líka ýmiss konar
þjónustustörf. Hún er búsett í
Reykjavík.
Sigrún Elfa
Reynisdóttir
Arndís Jónsdóttir
húskona á Oddsstöðum í Lundarreykjadal
Árni Sveinbjarnarson
hreppstjóri og bóndi á
Oddsstöðum
Áslaug Lilja Árnadóttir
húsfreyja á Krossi
Halldór Bjarni Benónýsson
bóndi á Krossi í Lundarreykjadal
Arndís Sigþrúður Halldórsdóttir
húsfreyja í Reykjavík og vann ýmis störf
Guðný Magnsúdóttir
húsfreyja í Bakkakoti
og Háafelli
Benóný Helgason
bóndi í Bakkakoti og Háafelli í Skorradal
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Göngustaðakoti og á Sandá í Svarfaðardal
Björn Björnsson
bóndi í Göngustaðakoti
og á Sandá
Sigrún Eggertína Björnsdóttir
húsfreyja í Göngustaðakoti, á
Drangsnesi og Akranesi
Björn Guðmundsson
búfræðingur og bóndi í Göngustaðakoti,
bjó síðan á Drangsnesi og Akranesi
Ragnheiður Halldórsdóttir
húsfreyja á Bæ á Selströnd
Guðmundur Guðmundsson
bóndi, bátasmiður og útgerðarmaður á Bæ á Selströnd
Úr frændgarði Sigrúnar Elfu Reynisdóttur
Björgvin Reynir Björnsson
húsgagnasmiður í Reykjavík
Kórfélaginn Sigrún í Skálholti.
Hallmundur Guðmundsson yrkirá Boðnarmiði og kallar Raun-
orðaleik:
Það langt til var liðin nóttin
er lamaði Tóta óttinn.
Þá var sem þá,
það mætti sjá;
að að honum sótti sóttin.
Það má lengi spyrja, – Ólafur
Stefánsson kveður „Allra veðra
von“:
Er loftvogin low eða high,
er logn eða stórviðri’á sæ?
Er frost nú á Fróni,
er fært austr’að Lóni,
eða bið þar til batnar í maí?
Það er skemmtilegur orðaleikur í
Handboltahugleiðingu Kára Eriks
Halldórssonar:
Alsíringar ybba görn
og á fólsku þrífast.
„Olnboga“ þeir eru börn,
einskis virðast svífast.
Jón Gissurarson býður góðan
dag með þessum notalegu vísum:
Enn er risinn upp við dogg
andi bragsins
best er því að brýna gogg
í byrjun dagsins.
Nú til hliðar víkja vil
vetrarkvíða
síst þó veiti sálaryl
sól og blíða.
Víða þó að veki ugg
veirupesti
brestur ekki bóndakugg
bögu nesti.
Jón gerir veðrið að umtalsefni:
„Hér er nú norðanhríðargarg og
þriggja gráðu frost. Vindur um 10
m sek.“:
Vart mun blíða verma lýð
verður níð á landi.
Veldur kvíða kuldatíð
komin hríðar fjandi.
Það kemur Halldóri Guðlaugs-
syni ekki á óvart:
Vond er tíð hjá Varmahlíð
veldur kvíða sumum
en úlpan víða, ökklasíð
ornar tíðum gumum
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson
gefur hér góða lífsreglu en það er
vandinn meiri að fara eftir henni:
Kærleikur er kæru vinir,
kenndur við allt gott.
Ekki vera eins og hinir,
sem elska háð og spott.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Raunorðaleikur
og olnbogabörn