Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Frammistaða íslenska karla- landsliðsins í handknattleik á HM í Egyptalandi er ákveðið áhyggjuefni. Liðið hefur leikið fjóra leiki, tapað tveimur og unn- ið tvo. Eftir tap í fyrsta leik gegn Portúgal vann liðið nokkuð þægilega og örugga sigra gegn Alsír og Marokkó. Í gær þurfti liðið svo að sætta sig við tap í fyrsta leik sínum í milliriðli gegn Sviss. Ef horft er til styrkleika lið- anna sem Ísland hefur mætt á mótinu til þess er það ekki orð- um aukið að segja að liðið hafi fallið á prófinu. Að vinna Alsír og Marokkó á að vera formsatriði fyrir landslið eins og Ísland. Að tapa gegn Portúgal og Sviss er ekki eitthvað sem íslenskt lands- lið í handbolta á að sætta sig við, jafnvel þótt Portúgal hafi hafnað í sjötta sæti á EM 2020, því Ísland er einfaldlega mun meiri handboltaþjóð en Portúgal. Ljósu punktarnir úr leik liðsins í gær voru klárlega varn- arleikurinn sem og frammistaða Ýmis Arnar Gíslasonar og Elliða Snæs Viðarssonar. Sóknarleik- urinn var hins vegar afleitur, líkt og gegn Portúgal og íslenska lið- ið skorti alvörusvör við sterkri vörn Sviss. Sóknarleikurinn er ákveðið áhyggjuefni og það er ekki laust við að maður spyrji hvort liðið hafi verið nægilega undirbúið fyrir brotthvarf fyr- irliðans Arons Pálmarssonar. Á sama tíma er liðið ansi ungt og flestir sem hafa verið í aðal- hlutverki á mótinu í ár eiga nóg eftir. Enn sem komið er, er HM í Egyptalandi langt frá því að vera mót íslenska liðsins en það eru enn þá tveir leikir eftir í það minnsta og það skal aldrei af- skrifa handboltalandsliðið. Það geta hins vegar flestir verið sammála um það að töp gegn Portúgal og sérstaklega Sviss sé ekki ásættanlegur árangur. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is með dauðafærin í nokkrum tilfellum. Bjarki Már Elísson er þekktur fyrir að nýta færin sín vel en var illa upp- lagður og Nikola Portner, mark- vörður Sviss, varði nokkrum sinnum frá honum í dauðafærum. Bjarki og Viggó Kristjánsson brenndu báðir af vítaköstum í leiknum. Framan af fóru dauðafærin for- görðum en síðasta kortérið eða svo seig enn á ógæfuhliðina þegar vörn Sviss varð öflugri. Þá varð erfitt fyr- ir íslenska liðið að búa til góð færi. Eins og nefnt hefur verið í greinum í blaðinu að undanförnu er leik- mannahópurinn þannig samansettur að fáir í liðinu geta ógnað með skot- um af löngu færi á móti heimsklassa- liðum. Þar hefur fjarvera Arons Pálmarssonar mikil áhrif á ógnunina í sóknum Íslands. Þegar Svisslend- ingar spiluðu aftarlega áttu okkar menn erfitt með að opna vörnina. Eins og íslenska liðið er skipað á liðið auðveldara með að sækja þegar liðin koma lengra fram á völlinn. Ólafur Guðmundsson og Kristján Örn Kristjánsson geta skotið fyrir utan punktalínu og reyndu það í gær. Í fyrri hálfleik skoraði Ísland sex mörk úr uppstilltum sóknum og þá skoraði Ólafur þrjú þeirra. Er spennan of mikil? Baráttuandinn er fyrir hendi og okkar menn leggja sig fram. En það virðast vera þyngsli yfir leik- mönnum og langt er í brosið. Búa þarf þannig um hnútana að menn geti notið þess að spila leikina. Í því felast forréttindi að spila á stórmót- um en menn virðast ekki njóta þess í þetta skiptið. Léttleikann virðist vanta og spennan gæti verið of mikil. Utan frá líta leikmennirnir út fyrir að bera byrðar á bakinu. Ef til vill er það ein skýringin á því að menn nýta færin illa. Kári Kristján Kristjánsson og aðrir skemmtilegir menn í leik- mannahópnum ættu að skapa létta stemningu fyrir leikinn gegn Frakk- landi. Sóknarleikurinn gæti batnað ef menn ná að slaka aðeins á. Léttleikann vantaði í sáru tapi gegn Sviss  Ísland skoraði aðeins 18 mörk  Vörnin er á réttri leið hjá ungum mönnum AFP Vonbrigði Íslensku leikmennirnir svekktir í leikslok enda ætluðu þeir sér tvö stig gegn Sviss. Höll Hassan Moustafa í 6. október, milliriðill HM, miðvikudag 20. jan- úar. Gangur leiksins: 2:1, 4:3, 6:4, 7:5, 7:7, 9:9, 10:9, 12:11, 13:12, 14:15, 16:15, 16:17, 19:17, 19:18, 20:18. Mörk Sviss: Andy Schmid 6/1, Roman Sidorowicz 4, Cedrie Ty- nowski 3, Nicolas Raemy 3, Lenny Rubin 1, Marvin Lier 1, Alen Milosev- ic 1, Jonas Schelker 1. Varin skot: Nikola Portner 14/1, Au- rel Bringolf 1/1. Utan vallar: 10 mínútur. SVISS – ÍSLAND 20:18 Mörk Íslands: Ólafur Guðmundsson 4, Viggó Kristjánsson 2/1, Bjarki Már Elísson 2/1, Elvar Örn Jónsson 2, Gísli Þorgeir Kristjánsson 2, Björgvin Páll Gústavsson 2, Kristján Örn Kristjánsson 1, Sigvaldi Björn Guðjónsson 1, Alexander Petersson 1, Oddur Gretarsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gúst- avsson 11, Ágúst Elí Björgvinsson 3. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Robert Shulze og Tobias Tonnies, Þýskalandi. Áhorfendur: Ekki leyfðir. Ísland var yfir 17:16 þegar skammt var eftir gegn Sviss á HM en mátti sætta sig við sárt tap 20:18. „Úr því sem komið var er þetta rosalega leiðinlegt. Við vorum komn- ir í góða stöðu og að ákveðnu leyti þróaðist leikurinn eins og við vildum. Við vildum stjórna leiknum með vörninni og ef við hefðum fengið 1-2 hraðaupphlaup þá hefði þetta getað farið allt öðruvísi. Það er sorglegt að fá ekkert út úr þessum leik þegar við vorum þannig séð komnir með hann í okkar hendur,“ sagði markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson þegar Morgunblaðið ræddi við hann. Þrátt fyrir góða markvörslu og varnarleik skoraði íslenska liðið ekki eitt einasta mark úr hraðaupphlaupi. „Það er ráðgáta sem við verðum að leysa. Við verðum að leggjast yfir þetta núna því ef við fáum ekki ódýr mörk á móti Frökkum verður það mjög löng kvöldstund,“ sagði Björgvin einnig en lengra viðtal er að finna á HM-vef mbl.is frá því í gær. johanningi@mbl.is Sorglegt að fá ekkert Björgvin Páll Gústavsson „Þetta var erfiður leikur, sérstaklega í sókninni þar sem við skorum 18 mörk sem er alls ekki nógu gott. Það var hundleiðinlegt að klúðra öllum þessum færum. Við fór- um með ótrúlega mikið af dauðafærum og ég hef varla séð aðra eins markvörslu. Hann varði allt,“ sagði hægri hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson í samtali við Morgunblaðið eftir tapið gegn Sviss. „Vörnin var glæsileg og Bjöggi var stórkostlegur og við vorum að spila leikinn eins og við vildum í vörninni. Mér fannst sóknin okkar stundum deyja þegar fyrsta árás gekk ekki upp og það var vesen að ná upp flæði. Svo komu tapaðir boltar og þá fór að koma meira stress í sóknina. Við náðum ekki að opna vörnina nægilega mikið og svo voru þeir fljótir til baka og komu í veg fyrir hraðaupphlaupin hjá okkur. Það er eitt- hvað sem við þurfum að bæta því við þurfum þessi auðveldu mörk,“ sagði Sigvaldi en lengra viðtal er að finna á HM-vef mbl.is. johanningi @mbl.is Erfitt að ná upp flæði Sigvaldi Björn Guðjónsson Manchester City vann í gærkvöld sinn níunda leik í röð í öllum mótum þegar liðið lagði Aston Villa, 2:0, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið hélt markinu hreinu fimmta leikinn í röð og hef- ur aðeins fengið á sig tvö mörk í þessum níu leikjum. Bernardo Silva og Ilkay Gündog- an skoruðu mörkin á lokakafla leiksins en Dean Smith stjóri Villa fékk rauða spjaldið fyrir að mót- mæla fyrra markinu. City komst með sigrinum í efsta sætið í fyrsta skipti á þessu keppn- istímabili en liðið fór fram úr Leic- ester og Manchester United. Leik Fulham og Manchester United var hins vegar ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld en United gat endurheimt forystuna. Sjá mbl.is/sport/enski. Níundi sigur City í röð Etihad Jack Grealish og Raheem Sterling í leiknum í gærkvöld. AFP HM 2021 Kristján Jónsson kris@mbl.is Ísland mátti sætta sig við tap gegn Sviss á HM karla í Egyptalandi þrátt fyrir að fá einungis á sig 20 mörk. Sviss hafði betur 20:18 og keppni í milliriðli 3 fór því afar illa af stað fyrir íslenska liðið sem á eftir að mæta Frakklandi og Noregi; lið- unum sem fengu silfur og brons á HM fyrir tveimur árum. Tapið er vægast sagt svekkjandi og nú er útlit fyrir að liðið hafni neð- arlega í mótinu á íslenskan hand- boltamælikvarða. Ísland hefur nú tapað fyrir bæði Portúgal og Sviss en í báðum tilfellum mætti segja að þar séu andstæðingarnir svipaðir að getu og Íslendingar um þessar mundir. Sigrar í þessum leikjum hefðu þýtt að stemningin hefði verið mikil hjá liðinu þegar komið væri í erfiðu leikina gegn Frakklandi og Noregi þar sem Ísland er án vafa litla liðið í ljósi þess hvernig liðunum hefur gengið á síðustu árum. Leikurinn í gær var einkennilegur á margan hátt. Þrátt fyrir að ís- lenska liðið væri í miklu basli með að koma boltanum í netið hjá Sviss var möguleikinn á sigri samt fyrir hendi þar til á lokamínútunni. Íslenska lið- ið fór oft illa með marktækifærin þegar liðið átti þess kost að jafna. En það hafðist þó og Ísland var yfir 15:14 á 46. mínútu og 17:16 á 55. mínútu. Þrátt fyrir að frammistaðan í sókninni væri slök gerði gangur leiksins það að verkum að maður bjóst alveg eins við íslenskum sigri. Gamla góða íslenska seiglan var ekki til staðar á lokakaflanum þótt bar- áttuviljinn væri fyrir hendi. Tvö víti fóru forgörðum Í handknattleik nútímans, þar sem liðin kjósa gjarna að keyra upp hraðann og spila stuttar sóknir, eru lokatölur sem þessar sjaldgæfar. Tapið er enn súrara fyrir íslensku leikmennina í ljósi þess að liðið fékk aðeins á sig 20 mörk. Alla jafna ætti slíkt að duga til sigurs. Vörnin var því góð og Björgvin Páll Gústavsson stóð fyrir sínu fyrir aftan hana. Mér finnst liðið hafa tekið fram- förum í vörninni ef miðað er við síð- ustu tvö stórmót. Arnar Freyr Arn- arsson er 24 ára gamall, Ýmir Örn Gíslason 23 ára og Elliði Snær Við- arsson er 22 ára. Ég efast um að nokkurt annað landslið tefli fram eins ungum mönnum í hjarta varn- arinnar. Á þeim grunni má byggja. Um leið og hægt er að fjalla um vörnina á jákvæðum nótum eftir leikinn í gær er ekki hægt að skrifa á sömu nótum um sóknina. Í fyrri hálf- leik gekk betur að búa til góð færi en íslensku landsliðsmennirnir fóru illa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.