Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS
andi hugmynd sem gaman var að
spreyta sig á,“ segir Björn og tekur
fram að efniviðurinn henti nýjum
aðstæðum vel. „Um tíma stóð til að
frumsýna verkið á jólunum, ef sam-
komutakmarkanir leyfðu. Það þýddi
að sex vikum fyrir áætlaðan frum-
sýningardag þurfti að henda allri
þeirri vinnu sem búið var að vinna
og byrja upp á nýtt í nýju rými,“
segir Björn og viðurkennir að það
hafi krafist mikils æðruleysis allra
sem að sýningunni koma.
Nálgast efnið af auðmýkt
„Við höfum reynt að nálgast efni-
viðinn af mikilli auðmýkt, enda aðal-
atriðið að þjóna verkefninu,“ segir
Björn og tekur fram að það sé engin
tilviljun að Vertu úlfur er fyrsta
sýningin sem sýnd er á Stóra sviði
Þjóðleikhússins eftir að gildandi
samkomutakmarkanir voru rýmk-
aðar. „Verkið kallast sterklega á við
ákall samtímans um að við hugsum
vel hvert um annað á þessum erfiðu
tímum,“ segir Björn.
„Mér finnst svo gaman að vinna
með Unni,“ segir Björn um sam-
starfið við eiginkonu sína sem leik-
stýrir honum. „Það er ekkert sjálf-
gefið að hjón geti unnið náið saman,
en það hentar okkur vel. Það hefur
alltaf verið bæði gefandi og
skemmtilegt,“ segir Björn og tekur
fram að vissulega felist nýbreytni í
því að annað þeirra sé að leikstýra
hinu því hingað til hafi þau aðeins
unnið saman sem leikarar.
Áhorfendur mótleikarinn
Björn er ekki ókunnugur ein-
leiknum sem sviðslistaformi því árið
2014 frumsýndi hann í Borgarleik-
húsinu einleikinn Kenneth Máni
sem Bergur Þór Ingólfsson leik-
stýrði. Uppfærslan naut gríðarlegra
vinsælda og gekk fyrir fullu húsi
mánuðum saman. „Mín reynsla af
því að vinna einleik er sú að sam-
bandið við leikstjórann verður öðru-
vísi en þegar maður hefur mótleik-
ara á sviði,“ segir Björn og tekur
fram að í grunninn snúist leikhúsið
alltaf um samtal. „Þegar leikari hef-
ur ekki mótleikara á sviðinu verður
salurinn með sínum áhorfendum í
raun eini mótleikarinn í rýminu,“
segir Björn og bendir á að Vertu
úlfur sé í eðli sínu einfalt frásagnar-
leikhús. „Þetta er í raun tært leik-
hús þar sem umgjörðin er fremur
einföld. Það er þannig ekkert milli
mín og áhorfenda nema sagan sem
hangir í loftinu og hlustunin. Hlut-
verk mitt er síðan að magna þennan
galdur sem í loftinu er.“
Næst víkur samtalinu að tækni
leikarans við að læra leiktextann.
„Upphaflega stóð ekki til að hefja
æfingar fyrr en í febrúar,“ segir
Björn þegar hann er spurður hvern-
ig hann takist á við það að læra um
30 blaðsíður af texta utan að fyrir
einleikinn. „Þar sem frumsýning-
unni var flýtt var ekki annað í boði
en að læra textann jafnóðum í
æfingaferlinu,“ segir Björn og upp-
lýsir að undir venjulegum kringum-
stæðum reyni hann yfirleitt að
kunna megnið af textanum áður en
fyrsta æfing hefst.
Taka handbremsuna af
„Þegar maður þarf að læra svona
textabálk hjálpar alltaf að brjóta
textann niður í smærri einingar. Oft
er gott að grófvinna einhverja búta
og hvíla áður en maður kemur aftur
að þeim, því það er eins og undir-
meðvitundin hjálpi til við að setja
hlutina á rétta staði. Suma parta
verður að læra mjög nákvæmlega
frá fyrstu yfirferð en aðra kafla lær-
ir maður innihaldslega séð og leið-
réttir síðan hægt og rólega orðalag-
ið. Við hverja yfirferð kemstu nær
kjarnanum og þá er auðveldara að
læra textann utan að,“ segir Björn
og tekur fram að hreyfimynstur
sena hjálpi líka minninu.
„Sumum leikurunum finnst betra
að koma ferskir að verkum og vilja
helst ekki læra textann áður en æf-
ingar byrja. Ég skil vel þá hug-
mynd, en hún hentar ekki mér. Í
mínum huga er það fremur hindrun
að kunna ekki textann fyrir hlut-
verk sem ég er að fara að vinna. Það
er svolítið eins og að maður ætli að
bruna af stað með handbremsuna á.
Þegar maður er búinn að læra text-
ann og taka handbremsuna af getur
maður beygt og sveigt í hvaða átt
sem er án þess að það verði til vand-
ræða. Um leið og maður er búinn að
grunna verkið veit maður hvert
maður ætlar að fara og getur farið
að leika sér til dæmis með tempó-
skipti, hlustun og fókus,“ segir
Björn og líkir þessu við píanóleikara
sem ekki þarf lengur að lesa nótur
heldur hefur tónlistina í fingrunum
og getur einbeitt sér að túlkuninni.
Frelsi til að hreyfa textann
Ekki er hægt að sleppa Birni án
þess að forvitnast um hvernig það
sé að setja sig á sviðinu í spor raun-
verulegrar manneskju úr samtím-
anum. „Eðli málsins samkvæmt er
leiksýning bundin öðrum lögmálum
en bók og við í leikhúsinu verðum að
hafa ákveðið frelsi til að hreyfa text-
ann og sannleika bókarinnar og búa
til senur sem eru kannski ekki alveg
samkvæmt bókinni,“ segir Björn og
rifjar upp að hann hafi hitt Héðin
nokkrum sinnum yfir kaffibolla í
undirbúningsferlinu.
Við höfum öll á einn eða annan
hátt staðið fyrir utan hringinn
„Það skipti mig mjög miklu máli
að Héðinn vissi að við ætluðum okk-
ur að fjalla um hans líf og þetta mál-
efni af virðingu. Hugmyndin var
ekki að gera krassandi sögu um
geðveiki heldur er þetta bara saga
um mann og ákveðið tímabil í hans
lífi. Í raun er þetta verk um okkur
öll. Héðinn tileinkar bókina öllum
þeim sem staðið hafa fyrir utan
hringinn. Þótt fólk hafi ekki gengið í
gegnum það sem hann lýsir í þess-
ari bók þá höfum við öll á einn eða
annan hátt staðið fyrir utan hring-
inn á einhverjum tímapunkti í okkar
lífi. Fyrir vikið á sagan mjög ríkt
erindi til okkar allra. Þetta er mikil-
væg áminning um það hvernig það
er að vera manneskja. Þetta er
hjartnæm saga sem sögð er á einum
og hálfum tíma. Hún fjallar um það
hvað lífið getur verið ófyrirsjáan-
legt, hvað skiptir okkur máli og
hvernig við getum orðið að betri
manneskjum. Þetta er ævisaga í
stóru samhengi,“ segir Björn að
lokum.
Ljósmyndir/Jorri
Tært „Þetta er í raun tært leikhús þar sem umgjörðin er fremur einföld. Það er þannig ekkert milli mín og áhorf-
enda nema sagan sem hangir í loftinu og hlustunin. Hlutverk mitt er síðan að magna þennan galdur sem í loftinu er.“
„Ögrandi og spennandi hugmynd“
Þjóðleikhúsið frumsýnir einleikinn Vertu úlfur á Stóra sviðinu í leikstjórn Unnar Aspar Stefáns-
dóttur „Þetta er ævisaga í stóru samhengi,“ segir Björn Thors sem fer með hlutverk úlfsins
Hringur „Þótt fólk hafi ekki gengið í gegnum það sem hann lýsir í þessari
bók þá höfum við öll á einn eða annan hátt staðið fyrir utan hringinn á ein-
hverjum tímapunkti í okkar lífi,“ segir Björn Thors um Vertu úlfur.
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er brjálæðislega flott bók,
mjög leikrænn texti og á sama tíma
lýrískur. Þetta er sterkt efni og
hlutverk úlfsins er bæði skemmti-
legt og krefjandi. Það er alltaf gam-
an að takast á við hlutverk sem hafa
ríkt erindi við samtímann,“ segir
Björn Thors leikari um einleikinn
Vertu úlfur sem hann frumsýnir á
Stóra sviði Þjóðleikhússins annað
kvöld. Leikstjóri uppfærslunnar er
Unnur Ösp Stefánsdóttir sem jafn-
framt skrifar leikgerðina sem bygg-
ist á samnefndri bók Héðins Unn-
steinssonar sem út kom árið 2015. Í
bókinni fjallar Héðinn á opinskáan
hátt um baráttu sína við geðrænar
áskoranir eftir að hafa greinst með
geðhvörf sem ungur maður. Héðinn
hefur um árabil starfað við stefnu-
mótun í geðheilbrigðismálum og er í
dag formaður Geðhjálpar.
Kallast á við ákall samtímas
Upphaflega stóð til að frumsýna
verkið í Kassanum í mars, en meðan
harðar samkomutakmarkanir vegna
heimsfaraldursins giltu síðustu
mánuði var ákveðið að færa sýn-
inguna yfir á Stóra sviðið og flýta
frumsýningunni. „Við í leikhúsinu,
eins og allir aðrir í samfélaginu, höf-
um þurft að þróa með okkur ákveðið
æðruleysi meðan þessi heimsfar-
aldur gengur yfir. Við höfum þannig
sætt lagi þegar það hefur verið
hægt og þurft að bíða þess á milli,“
segir Björn og bætir við: „Þegar sú
hugmynd kom upp að flýta frum-
sýningunni og færa verkið yfir á
Stóra sviðið fannst okkur öllum sem
að sýningunni komum það spenn-
andi hugmynd og vorum til í að laga
verkefnið að breyttum aðstæðum.
Við það opnuðust líka nýir mögu-
leikar við sviðsetninguna,“ segir
Björn og bendir á að það sé ekki
hverjum degi sem einleikir séu sett-
ir upp á Stóra sviðinu.
„Þetta var því ögrandi og spenn-