Morgunblaðið - 21.01.2021, Síða 64

Morgunblaðið - 21.01.2021, Síða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Eins og fjallað hefur verið um ítrekað, í Morgun- blaðinu og víðar, var bíófrumsýningum margra kvikmynda frestað í fyrra og fram á þetta ár vegna Covid-19 farsóttarinnar. Með bóluefnum fer vonandi brátt að rofa til og eru margar áhugaverðar kvikmyndir væntanlegar þegar líða tekur á árið. Vonandi. Hér verða nokkrar spenn- andi nefndar sem nauðsynlegt er að sjá á stóru tjaldi og með dúndrandi hljóðkerfi. Dansað með Spielberg Einn af meisturum kvikmyndasögunnar, Stev- en Spielberg, frumsýnir kvikmynd á árinu, að vísu ekki fyrr en 9. desember. Er það dans- og söngvamynd, West Side Story, byggð á hinum dáða söngleik Bernstein og Sondheim. Spenn- andi verður að sjá hvaða tökum Spielberg tekur þá klassík en Ansel Elgort, sá sem steig fimlega dans í Baby Driver, verður meðal aðalleikara. Þetta er fyrsta dans- og söngvamynd Spielbergs. Ekki dauður enn James Bond hefur látið bíða eftir sér lengi og er loksins væntanlegur 2. apríl. Upphaflega átti að sýna 25. Bond-myndina, No Time To Die, í kringum páska í fyrra og Bond því heilu ári of seinn. Bond-unnendur munu varla erfa það við hann enda allt saman Covid-19 að kenna. Daniel Craig leikur Bond í síðasta sinn og leikstjóri er Cary Joji Fukunaga en hann á m.a. að baki Beasts of No Nation og þættina True Detective. Þetta er því langdýrasta verkefni hans til þessa og vonandi klikkar Bond ekki eftir alla þessa bið. Rami Malek leikur illmenni myndarinnar og Christoph Waltz snýr aftur sem Blofeld. Gæti orðið hasarmynd ársins. Nú eða ekki. Hanks og vélmenni Bios nefnist kvikmynd sem frumsýna á 15. apríl og er með Tom Hanks í aðalhlutverki. Hanks leikur verkfræðing sem hannar vél- menni og hefur búið í tíu ár í neðanjarðarbyrgi eftir að mestallt mannkyn hefur verið þurrkað út í ónefndum hamförum. Hanks býr til vél- menni sem á að hugsa um hundinn hans að hon- um látnum og heldur þríeykið af stað í leiðang- ur um vesturhluta Bandaríkjanna. Hanks hefur oftar en ekki brillerað í sínum hlutverkum og allt stefnir í að hann geri það enn eina ferðina. Luca og Cruise-tvenna Teiknimyndafyrirtækið Pixar hefur gert marga klassíkina og heldur nú til Ítalíu með Luca. Segir af drengnum Luca sem skemmtir sér í sumarfríi með sæskrímsli í dulargervi. Stórskrítið vissulega, líkt og stjarna Top Gun: Maverick, Tom gamli Cruise. En þó Cruise sé skrítinn utan vinnunnar gæti myndin orðið fín- asta skemmtun enda hefur brellum fleygt fram frá því Cruise þaut um loftin blá í hinni heldur hallærislegu Top Gun. Framhaldið skal frum- sýnt 2. júlí. Og Cruise snýr svo aftur í enn einni Mission: Impossible-myndinni í nóvember, þeirri sjöundu. Það verður góður hasar. Enski leikstjórinn Edgar Wright hefur gert bráðskemmtilegar grínhasar- og hryllings- myndir, þ.e. Shaun of the Dead, Hot Fuzz og Baby Driver og má ætla að sú næsta, Last Night in Soho, verði það líka. Er henni lýst sem sálfræðihryllingsdrama, í úttekt BBC á mynd- um ársins 2021. Anya Taylor-Joy úr þáttunum Queen’s Gambit fer með eitt af aðalhlutverk- unum en lítið er vitað um myndina enn sem komið er. Frumsýning 23. júlí ef veiran lofar. Hrollur og vísindaskáldskapur Bandaríski leikstjórinn Jordan Peele er einn sá allra heitasti í heimalandi sínu og víðar eftir að hafa gert Get Out og Us, hvor tveggja hroll- vekjandi og bráðfínar myndir. Búast má við gæsahúð á árinu því nú tekur hann fyrir hinn hryllilega Candyman, Sælgætiskarlinn. Sá sem segir nafn Candyman fimm sinnum kallar hann fram og þá er ekki von á góðu. Þetta verður nú eitthvað, eins og sagt er. Mexíkóski leikstjórinn Guillermo del Toro frumsýnir 3. desember rökkurmynd sem nefn- ist Nightmare Alley og er með Bradley Cooper og Cate Blanchett í aðalhlutverkum. Segir í henni af svikahrappi sem fær sálfræðing til liðs við sig. Spennandi mjög og góðir leikarar. Enn einn frábær leikstjóri, Denis Villeneuve, frumsýnir kvikmynd á árinu, Dune, sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu. Líkt og kvikmynd Davids Lynch frá árinu 1984 er mynd Villeneuve byggð á vísindaskáldsögu Franks Herbert um ungan mann sem treyst er fyrir mikilvægasta efni alheimsins, hvorki meira né minna, sem er aðeins að finna á plánetu sem kölluð er Dune, Sandauðnin. Villeneuve hefur ekki klikkað hingað til og talið að hans útgáfa verði langtum betri en útgáfa Lynch. Anderson og ofurhetjur Og veislan heldur áfram því Wes Anderson frumsýnir einhvern tíma á árinu (vonandi) gamanmyndina The French Dispatch með Bill Murray í einu aðalhlutverkanna. Myndina átti að frumsýna á Cannes í fyrra en ekkert varð af því. Af öðrum leikurum má nefna Owen Wilson, Tildu Swinton, Adrien Brody, Benicio del Toro og Frances McDormand. Mikil leikaraveisla og Anderson bregst varla bogalistin frekar en fyrri daginn. Unnendur ofurhetjumynda eiga líka von á glaðningi á árinu því Black Widow verður frum- sýnd í maí og The Suicide Squad í ágúst. Þá er óþokkinn Morbius væntanlegur í október og sitthvað fleira á hinu vonandi ágæta bíóári 2021. helgisnaer@mbl.is Vesturbæjarsaga Úr West Side Story eftir leikstjórann Steven Spielberg. Hetja Scarlett Johansson í hlutverki Svörtu ekkjunnar. Njósnari Daniel Craig í hlutverki Bond í No Time To Die. Flugmaður Tom Cruise í háloftunum í Top Gun: Maverick.  Litið yfir kvikmyndaárið 2021 og það sem væntanlegt er í bíó ef Covid-19 lofar  Hasar, grín, hrollur og vísindaskáldskapur og þungavigtarleikstjórar sem beðið hafa lengi eftir frumsýningum Bíóið snýr aftur … vonandi Á dagskrá tónleika Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld, fimmtudag, kl. 20 eru Kon- sert fyrir kontrabassa nr. 2 eftir Giovanni Bottesini – einleikari er Jacek Karwan, einn af bassaleik- urum hljómsveitarinnar, og Sin- fónía nr. 3 eftir Johannes Brahms. Stjórnandi er Bjarni Frímann Bjarnason, staðarhljómsveitarstjóri Sínfóníuhljómsveitarinnar. Tónleikarnir eru um klukku- stundarlangir án hlés og í samræmi við sóttvarnalög er sætaframboð á tónleikana tak- markað við 100 tónleikagesti í fjór- um sóttvarnarhólfum. Í það minnsta tvö auð sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber einnig skylda til að vera með grímu á tónleikunum. Þeim er út- varpað beint á Rás 1. Kontrabassakonsert og Brahms í kvöld Einleikarinn Jacek Karwan með bassann. Samsýningin Jarðsögur verður opn- uð í dag kl. 14 í Galleríi Gróttu á Eiðistorgi, Seltjarnarnesi. Koma þar saman verk Auðar Vésteinsdóttur, Elísabetar Haraldsdóttur og Sigríðar Ágústsdóttur sem eiga sameiginlegt að nýta sér miðla handverks og nytja- listar við sköpun einstakra listaverka með aðferðum leirlistar og listvefn- aðar, eins og segir í tilkynningu. „Listakonurnar segja sögur með nátt- úrulegum efnivið eins og ull, hör, jarðleir og postulíni, sem hefur vísun í jörð, náttúru og landslag. Líkt og í náttúrunni geta óvæntir hlutir gerst í vinnuferlinu og útkoman er ekki allt- af fyrirséð. Fyrirbæri náttúrunnar samlagast efninu í myndvefnaði Auð- ar og leirverkum Elísabetar og Sig- ríðar þar til fullkomið samband næst milli hugar og handar,“ segir þar en sýningarstjóri er Aðalheiður Val- geirsdóttir. Jarðsögur opnaðar í Galleríi Gróttu Steinleir Verk eftir Elísabetu Haralds- dóttur, glerungur með Hekluvikri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.