Morgunblaðið - 04.03.2021, Side 1
ALLT AÐ
Í KVÖLD KL. 19:00Á MBL.IS/BINGO TAKTU ÞÁTT
VERTU MEÐ ÍBINGÓGLEÐINNI
F I M M T U D A G U R 4. M A R S 2 0 2 1
Stofnað 1913 53. tölublað 109. árgangur
ALLT TIL ALLS Í NÆSTU NETTÓ!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 4.— 7. mars
Nautastrimlar
Fajitas
1.799KR/KG
ÁÐUR: 2.999 KR/KG
-40%
-30%
Lambahryggur
Fylltur
3.149KR/KG
ÁÐUR: 4.499 KR/KG
Kiwi
275KR/KG
ÁÐUR: 549 KR/KG
-50%
HEFUR ALDREI
GERT NEITT
SVONA ÁÐUR
GUÐBJÖRG
ÆTLAR SÉR Á
ÓLYMPÍULEIKA
19 ÁRA GÖMUL 657 TÓNLEIKAR Á 11 DÖGUM 68
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Óróapúls mældist skömmu eftir
klukkan fjögur í gær á Reykja-
nesskaga og var það talið merki
um að eldgos væri í þann mund að
hefjast. Þegar Morgunblaðið fór í
prentun var gos þó ekki hafið og
ekki hafði greinst annar óróapúls.
Rögnvaldur Ólafsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn sagði við Morg-
unblaðið seint í gærkvöldi að óvíst
væri hvort annar óróapúls kæmi í
aðdraganda goss eða hvort gysi
alveg fyrirvaralaust. Hann sagði
að áhyggjur viðbragðsaðila væru
ekki miklar og ekki væri talin mik-
il hætta á ferðum, hvorki fyrir
byggð né innviði á Reykjanes-
skaga.
Skjálftavirkni hélt áfram á
svæðinu í gær að sögn veðurfræð-
ings Veðurstofu Íslands. Óróinn
hafði minnkað örlítið frá kl. 17.
Um 1.700 jarðskjálftar höfðu
mælst frá miðnætti á miðvikudag,
sá stærsti 4,1 að stærð kl. 02:12.
ENN UMBROT VIÐ KEILI
Óróapúls mældist í gær, réttri viku eftir að skjálftahrinan hófst Engin hætta á ferðum
fyrir innviði og byggð Skjálftar mælast enn á svæðinu Meinlaust hraungos líklegast
M Skjálftar á … »2, 4, 34
Kefl avík
Njarðvík Vogar
Grindavík
Keilir
Kleifarvatn
Krýsuvík
Fagradalsfjall
Mögulegt
hraunrennsli
Ko
rt
: V
eð
ur
st
of
a
Ís
la
nd
s
Litli-Hrútur
Umbrot á
Reykjanes-
skaga
Hraunfl æðilíkan miðað
við gos á tveggja kíló metra
langri sprungu milli Keil is
og Litla-Hrúts
Morgunblaðið/Eggert
Órói Ásdís Marín björgunarsveitarkona les af gasmæli á miðjum Reykjanesskaganum í gær. Blaðamenn og ljósmyndarar Morgunblaðsins voru á vettvangi.
Ungur maður særði a.m.k. 8 veg-
farendur með hnífi í bænum Vet-
landa í Smálöndunum í Svíþjóð síð-
degis í gær, en tveir eru
lífshættulega særðir. Maðurinn lét
til skarar skríða á fimm stöðum í
miðbænum, en að sögn lögreglu er
málið rannsakað sem hryðjuverk.
Hún segir atvik gefa tilefni til þess,
án þess að skýra það nánar að sinni.
Hryðjuverkaárás
með hnífi í Svíþjóð
Vetlanda Lögregla girti svæðið af.
AFP
Katrín Jak-
obsdóttir for-
sætisráðherra
segir að íslensk
stjórnvöld skoði
nú aðra kosti
varðandi öflun
bóluefna, þar
sem Evrópusam-
starf um það hafi
valdið von-
brigðum. Hún
undirstrikar að Íslendingar séu
ekki á leið úr samstarfinu, en minn-
ir á að ríki megi afla sér annarra
bóluefna en samið hefur verið um í
Evrópusamstarfinu. „Það er ekkert
sem hindrar okkur í að ræða við
aðra framleiðendur,“ segir Katrín í
samtali við Morgunblaðið. Hún vildi
ekki svara því hvort slíkar við-
ræður ættu sér þegar stað. »6
Katrín segir önnur
bóluefni athuguð
Katrín
Jakobsdóttir
Íslenskir aðalverktakar segja að
ástæður þær sem 105 Miðborg hafi
teflt fram er félagið rifti samningi
varðandi uppbyggingu stórhýsa á
Kirkjusandi séu ólöglegar. Verktak-
inn segir auk þess að 105 Miðborg
hafi frá því á síðasta ári lent í van-
skilum með greiðslur er tengjast
framvindu framkvæmdanna. telur
ÍAV að 105 Miðborg hafi sýnt óbil-
girni og ekki sýnt ófyrirsjáanlegum
aðstæðum skilning, þegar mat er
lagt á tafir við afhendingu bygg-
inga, m.a. kórónuveirukreppunni og
erfiðum veðurfarslegum aðstæðum
veturinn 2019 til 2020. »6
ÍAV segja 105 Mið-
borg skulda peninga