Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Heilbrigðisstofnun Austurlands
(HSA) tekur við rekstri hjúkrunar-
heimilanna Hulduhlíðar á Eskifirði
og Uppsala á Fáskrúðsfirði frá og
með næstu mánaðamótum. Vigdísar-
holt sem er í eigu ríkisins tók við
rekstri heimilisins Skjólgarðs á
Hornafirði um sl. mánaðamót.
Fjögur sveitarfélög sögðu upp
samningum við ríkið um rekstur
hjúkrunarheimila á síðasta ári vegna
mikils tapreksturs. Akureyri, Vest-
mannaeyjar og Fjarðabyggð fram-
lengdu samninga gegn ákveðnum
viðbótargreiðslum til 1. apríl.
Óljóst með Akureyri
Hornafjörður hafnaði slíkum
samningum. Nú hefur Vigdísarholt
sem ríkið á, og rekur Sunnuhlíð í
Kópavogi og Seltjörn á Seltjarnar-
nesi, tekið við rekstri Skjólgarðs í
Hornafirði frá og með 1. mars. Tveir
aðilar lýstu yfir áhuga á rekstri
hjúkrunarheimila á Akureyri þegar
Sjúkratryggingar auglýstu eftir
áhugasömum félögum til að taka yfir
reksturinn þar en enginn sýndi
áhuga rekstrinum í Fjarðabyggð og
Vestmannaeyjum. Nú hefur verið
ákveðið að Heilbrigðisstofnun Aust-
urlands sem er í eigu ríkisins og ann-
ast þegar rekstur hjúkrunarheimila
á Austurlandi taki við rekstri Huldu-
hlíðar og Uppsala í Fjarðabyggð frá
og með 1. apríl. Tilkynnt var um það
í gær.
Ekki fengust í gær svör frá
Sjúktratryggingum um það hverjir
taka við rekstri hjúkrunarheimila
Akureyrarbæjar og Hraunbúða í
Vestmannaeyjum þegar samningar
renna út 1. apríl nk.
helgi@mbl.is
Taka við rekstri hjúkrunarheimila
Rekstur hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð og Hornafirði færður til stofnana ríkis
Rannsóknarnefnd samgönguslysa,
flugsvið, hefur nú til umfjöllunar at-
vik á Egilsstaðaflugvelli fyrir rúmu
ári er sandari var á flugbraut þegar
áætlunarflugvél kom inn til lend-
ingar. Rannsóknin beinist að fjar-
skiptum, fjarskiptabúnaði og aðgangi
að sandgeymslu, segir í umfjöllun um
stöðu máls á heimasíðu RNSA.
Þar segir um málsatvik: „Snjó-
hreinsun sem og bremsumælingar
voru í gangi á Egilsstaðaflugvelli og
voru tvö snjóruðningstæki, bremsu-
mælingarbíll og sandari notuð við
það verk. Þegar áætlunarflugvél sem
von var á inn til lendingar nálgaðist
flugvöllinn, kallaði flugradíómaður í
flugturni öll tæki af flugbraut 04 og
yfirgáfu öll tækin flugbrautina.
Skömmu síðar fór sandarinn aftur
inn á flugbraut 04, á leið sinni að
sandgeymslu til þess að sækja sand.
Yfirflaug flugvélin sandarann á flug-
brautinni í lendingunni.
Að sögn starfsmanna flugvallar-
þjónustu BIEG, þá var stórhríð og
skafrenningur og skyggni nánast
ekki neitt þegar atvikið varð. Að sögn
flugradíómannsins var snjókoma, lé-
legt skyggni og gekk á með mjög
dimmum éljum. Skyggni var 300-400
metra og 200 feta skýjahæð.“
Flaug yfir sandara
í lendingu eystra
RNSA fjallar um atvik á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samgöngur Tekið á móti vél Air Iceland Connect á Egilsstaðaflugvelli.
Jón Magnússon hæstaréttar-lögmaður fjallar á blog.is
um bóluefnamál: „Meðan heil-
brigðis- og forsætisráðherrar
stöðugt fleiri Evrópuríkja sjá,
að ekki er hægt að
treysta yfirstjórn
Evrópusambands-
ins til að tryggja
aðgang að Covid-
bóluefnum, aðhaf-
ast þær Katrín
Jakobsdóttir og
Svandís Svav-
arsdóttir ekki neitt og reyna að
telja landsmönnum trú um það
að best sé að láta Evrópusam-
bandið um lyfjakaup fyrir ís-
lensku þjóðina.
Nú síðast tilkynntu forsætis-
ráðherrar Austurríkis og Dan-
merkur að þeir mundu leita eig-
in leiða til að tryggja sínu fólki
Covid-bóluefni sem allra fyrst.
Áður höfðu Pólverjar, Slóvakar,
Tékkar og Ungverjar haldið
hverjir í sína sérleið.“
Þá bendir Jón á hve hörmu-lega ESB hafi gengið að
tryggja íbúum landa sinna bólu-
efni og ber saman við Breta sem
standi margfalt betur. Hann
nefnir að mörg önnur Evr-
ópuríki hafi ekki talið sig bund-
in af innkaupastefnu ESB, en
„hér á Íslandi telja forsætis- og
heilbrigðisráðherra sig meira
bundnar Evrópusambandinu en
mörg ríki sambandsins. Auk
þess hafa þær engin önnur úr-
ræði.
Var íslenski heilbrigð-isráðherrann virkilega svo
heillum horfin, að hún hafi talið,
að vandinn yrði leystur með því
að Ísland yrði tilraunaverkefni
Pfizer-lyfjarisans, og þegar það
brást, að þá hafi engin varaáætl-
un verið í gangi?
Sums staðar mundu ráðherrar
þurfa að taka pokann sinn fyrir
slíka vanrækslu,“ segir Jón
Magnússon.
Jón Magnússon
Ekkert frumkvæði?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Mán. – Fim. 10–18
Föstudaga 10–17
Laugardaga 11–15
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar