Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Árleg byssusýning Veiðisafnsins á
Stokkseyri verður haldin laugar-
daginn 6. og sunnudaginn 7. mars
2021 frá kl. 11-18. Að þessu sinni
verður sýningin haldin í samvinnu
við verslunina Vesturröst og Skot-
félagið Markviss á Blönduósi.
Til sýnis verða haglabyssur, riffl-
ar, skammbyssur og herrifflar
ásamt ýmsu tengdu skotveiðum,
m.a úr einkasöfnum.
Skotfélagið Markviss á Blönduósi
hélt 30 ára afmælissýningu fyrir
skemmstu. Félagsmenn úr Mark-
viss munu koma með valdar byssur
frá þeirri sýningu og verður þar
margt fróðlegt að sjá. Þá mun
verslunin Vesturröst sýna ýmsan
búnað til skotveiða og iðkunar skot-
íþrótta. Félagsmenn frá Skotveiði-
félagi Íslands (Skotvís) munu einnig
kynna félagið og félagsstarfið.
Einnig verða til sýnis skotvopn
og munir úr einkasöfnum og ís-
lenskar haglabyssur sem smíðaðar
voru á Dalvík og Ólafsfirði.
Árleg byssusýning á Stokkseyri
Ljósmynd/hunting.is
Byssur Sýningin er haldin í Veiðisafninu á
Stokkseyri og verður fjölbreytt að vanda.
Eik fasteignafélag hf.
Aðalfundur
25. mars 2021
Eik fasteignafélag hf. // Sóltún 26, 105 Reykjavík // www.eik.is
Aðrar upplýsingar:
Hluthafi getur falið umboðsmanni að sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja
fram dagsett og skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í samræmi við eyðublað sem er aðgengi-
legt á heimasíðu félagsins. Rafrænt umboð skal senda á netfangið stjornun@eik.is áður en fundur
hefst. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað
við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum og leggja fram ályktunar-
tillögur ef hann gerir skriflega eða rafræna kröfu um það til stjórnar félagsins eigi síðar en mánudaginn
15. mars 2021. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið stjornun@eik.is. Hafi hluthafi krafist
þess að fá mál tekin til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögur fyrir framangreindan tíma,
verða dagskrá og tillögur uppfærðar á heimasíðu félagsins eins fljótt og auðið er eftir móttöku þeirra.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar eigi síðar en fimmtudaginn 18. mars 2021. Mál sem ekki hafa
verið greind í endanlegri dagskrá aðalfundar er ekki unnt að taka til endanlegrar úrlausnar á fundinum
nema með samþykki allra hluthafa en gera má um þau ályktun til leiðbeiningar fyrir félagsstjórn.
Á hluthafafundum félagsins fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta
ekki atkvæðisréttar. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver
atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt ef framboð fleiri aðila
koma fram en nemur fjölda sæta sem kjósa skal um. Hluthafar geta greitt atkvæði bréflega fyrir fundinn
með því að fylla með skýrum og greinilegum hætti út atkvæðaseðil sem finna má á heimasíðu félags-
ins, undirrita og votta seðilinn, og senda hann með pósti á lögheimili félagsins eða rafrænt á netfangið
stjornun@eik.is. Atkvæðaseðillinn þarf að uppfylla framangreind skilyrði og berast í síðasta lagi einni
klukkustund fyrir upphaf aðalfundarins svo atkvæðið teljist gilt.
Frestur til þess að senda tilnefningarnefnd félagsins framboð til stjórnar rann út 4. febrúar 2021. Tillögur
tilnefningarnefndar koma fram í skýrslu nefndarinnar sem er aðgengileg hluthöfum á heimasíðu félags-
ins. Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið stjornun@eik.is lýkur sjö sólarhringum fyrir
aðalfund, nánar tiltekið kl. 16.00 fimmtudaginn 18. mars 2021. Eyðublöð vegna framboðs til stjórnarsetu
er að finna á heimasíðu félagsins og verða upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar birtar þar og verða
til sýnis á skrifstofu þess eigi síðar en sólarhring eftir að framboðsfrestur rennur út.
Aðalfundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður, sbr. 11. gr. samþykkta
félagsins. Aðalfundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn og atkvæðaseðlar, sem verða afhent
á fundarstað, einnig á íslensku.
Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem varðar aðalfundinn, svo sem endanleg dagskrá,
tillögur stjórnar og hluthafa, starfskjarastefna, skýrsla tilnefningarnefndar félagsins, eyðublöð vegna
umboðs og framboðs til stjórnar, upplýsingar um atkvæðagreiðslu og atkvæðaseðill vegna skrifleg-
ra kosninga og kosninga fyrir aðalfund, skjöl sem verða lögð fram á aðalfundi, upplýsingar um fram-
bjóðendur, upplýsingar um fjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu, er – eða verður eftir því sem þau
verða til – að finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is/hluthafar. Auk þess munu viðeigandi gögn liggja
frammi í höfuðstöðvum félagsins, að Sóltúni 26, 105 Reykjavík, þremur vikum fyrir aðalfundinn.
Fundargestir eru minntir á að kynna sér gildandi samkomutakmarkanir og hafa með sér andlitsgrímu á
fundinn. Framkvæmd aðalfundar félagsins kann að breytast með hliðsjón af tilmælum stjórnvalda eða
öðrum viðbrögðum vegna faraldursins. Upplýst verður um ráðstafanir af þessum sökum eftir því sem
við verður komið.
Drög að dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár
2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagðir fram til
staðfestingar
3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og nefnda fyrir störf þeirra á komandi starfsári
5. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins
6. Kosning félagsstjórnar
7. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
8. Heimild til kaupa á eigin hlutum
9. Önnur mál sem löglega eru fram borin
Reykjavík, 2. mars 2021
Stjórn Eikar fasteignafélags hf.
Stjórn Eikar fasteignafélags hf. boðar til aðalfundar í félaginu. Fundurinn
verður haldinn í salnum Norðurljósum, Hörpu, fimmtudaginn 25. mars nk.
og hefst stundvíslega kl. 16.00.
Sjáum um allar
merkingar
Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is
Gísli, sölu- og markaðsstjóri
vinnufatnaðar
Sími 766 5555 | gisli@run.is
ÖRYGGIS-
SKÓR
VANDAÐUR
VINNUFATNAÐUR
6424
6202
55505536
3307 3407
SAFE & SMART
monitor
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Metfjöldi skráninga barst í sumar-
búðir kristilegu æskulýðssamtak-
anna KFUM og KFUK á fyrsta
skráningardegi í ár. Fengust 2.470
skráningar sem er meira en tvöfalt
meira en á fyrsta skráningardegi
undanfarin ár. Fullbókað er í mörg
tímabil í Vatnaskógi og Vindáshlíð
og vel bókað í aðrar sumarbúðir.
„Þetta eru mjög jákvæðar fréttir
fyrir okkur sem vinnum að þessu.
Við erum þakklát fyrir traustið sem
þetta sýnir að fólk ber til okkar fé-
lagasamtaka. Við erum kristileg
æskulýðssamtök og finnum fyrir því
að fólk vill fá að kynnast boð-
skapnum í okkar starfi,“ segir Tóm-
as Ingi Torfason, framkvæmdastjóri
KFUM og KFUK.
Aldrei séð annað eins
KFUM og KFUK eru með sumar-
búðir á fimm stöðum, Vatnaskógi,
Vindáshlíð, Kaldárseli, Ölveri og
Hólavatni. Dvalartíminn er yfirleitt
tæp vika og eru alls um 2.900 pláss í
boði. Á undanförnum árum hafa
2.500 til 2.800 börn sótt sumarbúðir
samtakanna.
Löng hefð er fyrir því að kynna
fyrsta skráningardag og gefa fólki
sem er snemma í því að velja sér
tímabil. Á síðasta ári voru 1.100 börn
bókuð á fyrsta skráningardegi og
segir Tómas að það hafi þótt gott. Í
fyrradag, á fyrsta skráningardegi í
ár, bárust 2.470 skráningar.
„Okkar elsta fólk hefur aldrei séð
annað eins,“ segir Tómas. Skrán-
ingar eru rafrænar. Tölvukerfið
stóðst álagið að mestu og tókst að
leysa úr hnökrum sem komu upp um
tíma.
Vatnaskógur og Vindáshlíð eru
vinsælustu sumarbúðirnar og er bú-
ið að bóka um 90% allra plássa sem
þar eru í boði. Biðlistar eru á vinsæl-
ustu dvalartímunum fyrrihluta sum-
ars. Nú er verkefnið að reyna að
Metskráning í
sumarbúðir
KFUM og K
Tvöfalt fleiri skráningar á fyrsta
skráningardegi en nokkru sinni áður