Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Efla verkfræðistofa
sér um tæknilega
hönnun á öllum
húsunumokkar
samkvæmt
íslenskri
byggingar-
löggjöf.
Klettar eru sterkbyggðhús – sérhönnuð af Eflu verkfræðistofu.
Húsin eruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi að góðu kunn.
Húsin afhendast ósamsett, að hluta í forsmíðuðumeiningumog að
hluta sem forsniðið efni. Hentug lausn við þröngar aðstæður.
Uppsetning húsanna er afar fljótleg.
Klettar erumeð rúmgóðu svefnlofti (hæð2,1m)
semeykur notagildi hússins umtalsvert.
Klettar 65 –Grunnverð kr. 8.373.000,-
Klettar 80 –Grunnverðkr. 10.807.000,-
Húsið ámyndinni er af gerðinni
Klettar 80 sem reist var 2019 á
Vesturlandi.
Ítarlegar upplýsingar og
afhendingarlýsingumáfinna á
vefsíðu okkar.
ÍSLENSK HÚS - SÉRHÖNNUÐ
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐURKLETTAR
HEILSÁRSHÚS
STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN
Landshús - Sími 553 1550 - landshus@landshus.is - www.landshus.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vandi verslunarrekstrar ein-yrkja og þeirra sem erumeð starfsemi úti á landiliggur í þeim kjörum sem
heildsalarnir bjóða. Stóru versl-
unarkeðjurnar njóta mikils afsláttar
í innkaupum, mun meiri en smærri
fyrirtækjum bjóðast. Í þessu efni
verður að tryggja jafnræði. Stjórn-
völd verða að taka á málinu og koma
með lausnir. Þetta segir Einar Jón
Ólafsson, kaupmaður í Verslun Ein-
ars Ólafssonar á Akranesi, gamal-
gróinni verslun sem á að baki 87 ára
sögu.
Verðið er sanngjarnt
Erfið staða dreifbýlisverslunar
hefur verið til umfjöllunar í kjölfar
útgáfu nýrrar skýrslu um málið.
Vandinn helgast af óhagstæðum inn-
kaupum, samkeppni við lág-
vöruverðsverlsanir og háum kostn-
aði við vöruflutninga. Í skýrslunni,
sem Emil B. Karlsson, fyrrverandi
forstöðumaður Rannsóknarseturs
verslunarinnar, vann, segir að rekst-
ur verslana þessara beri sig tæpast
lengi nema opinber stuðningur komi
til. Þá sé vert að Samkeppniseftir-
litið kanni hvernig viðskiptakjörum
sé háttað.
„Ef minni verslanir nytu sam-
bærilegra kjara og stóru fyrirtækin
værum við á grænni grein,“ segir
Einar Jón. „Og í raun erum við í
þessari búð í ágætum málum. Við-
skiptavinir eru okkur tryggir því hér
er fjölbreytt úrval af góðum vörum,
afgreiðslutíminn langur og verð
sanngjarnt. Við höldum álagningu
niðri og slíkt er mögulegt því þetta
er skuldlaust fjölskyldufyrirtæki og
hóf á öllu. Hér vinna um tíu manns
en við hjónin og synir okkar mikið
við þetta sjálf og þannig gengur
dæmið upp.“
Verslunin hefur sál
Verslunin góða er í daglegu
máli Akurnesinga kölluð Einarsbúð
og er á Skagabraut 9-11. Fyrirtækið
var stofnað árið 1934 af Einari Ólafs-
syni, sem lést árið 1957. Varð þá úr
að sonurinn Einar Jón, sem skírður
er Ólafsson, tók við rekstrinum að-
eins átján ára gamall og er enn að –
með Ernu Sigríði Guðnadóttur konu
sinni. Synir þeirra, þeir Einar og
Guðni, koma einnig að rekstrinum
og sinna ýmsum þáttum í daglegum
rekstri. Einarsbúð er opin alla virka
daga frá hálfátta til sex og hálftím-
anum lengur á föstudögum. Lokað
er um helgar.
„Ég sé enga ástæðu til að hætta
störfum þótt ég sé orðinn 83 ára.
Heilsan er góð og starfið skemmti-
legt,“ segir Einar sem stendur í búð-
inni í hvítum slopp, eins og matvöru-
kaupmenn fyrri tíðar gerðu gjarnan.
Verslunin hefur líka svo sannarlega
sál; margt þar innandyra minnir á
gamla tíma. Og þarna fæst flest sem
þarf; nýmeti í kjötborði, mjólk í kæli
og rúgbrauð frá Brauða- og köku-
gerðinni við Innnesveg.
„Þegar ég byrjaði hér voru
þrettán nýlenduvöruverslanir á
Akranesi, sem týndu tölunni með
tímanum. Umhverfið breyttist og nú
eru hér Krónan og Bónus. Auðvitað
erum við í samkeppni við þær versl-
anir, en verðmunurinn milli okkar
og þeirra er ekki svo mikill. Hér er
nóg að gera, hingað kemur bæði fólk
af götunni til innkaupa og einnig
seljum við mikið í fyrirtæki hér í
bænum, sem mörg eru komin með
mötuneyti fyrir starfsfólkið.“
Náð í nýtt til Reykjavíkur
Úr Einarsbúð er farið á hverj-
um morgni til Reykjavíkur og náð í
kjöt og fisk og fleira sem þarf og við-
skiptavinir vilja, segir Einar sem
aftur leggur áherslu á að jafna verði
stöðuna í viðskiptum við heildsalana.
Ætla verði að stóru verslunarkeðj-
urnar fái 30-40% afslátt af skráðu
verði hjá stóru birgjunum, sem aftur
gefa minni fyrirtækjum á markaði 5-
15% afslátt.
„Af því má ráða hve mikil álagn-
ing og framlegðin er hjá lág-
vöruverðsverslununum sem geta
neytt aflsmunar til að fá þessi hag-
stæðu kjör. Svo virðist líka sem
Samkeppniseftirlitið haldi vernd-
arhendi yfir starfsemi verslanakeðj-
anna. Að minnsta kosti hefur ekki
þótt ástæða til að bregðast við
ábendingum okkar um þann mikla
mun sem er á afsláttarkjörum. Í því
misrétti liggur vandi verslunar á
landsbyggðinni,“ segir Einar Jón
Ólafsson kaupmaður að síðustu.
Kaupmaður í
hvítum slopp
Flest fæst í Einarsbúð, sem er gamalgróin verslun á
Akranesi. Viðskiptavinirnir eru okkur tryggir, segir
Einar Jón Ólafsson kaupmaður sem telur þarft að
jafna stöðu smásala gagnvart heildsölum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Samhent Við höldum álagningu niðri og slíkt er mögulegt því þetta er skuldlaust fjölskyldufyrirtæki og hóf á öllu,
segir Einar Jón Ólafsson. Þau Erna Sigríður Guðnadóttir kona hans hafa starfað saman í búðinni í áratugi.