Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi forstjóri
Bláfugls, telur flugfélagið Icelandair geta
staðið sig vel í samkeppni við erlend flugfélög
á komandi árum. Hins vegar sé rekstr-
arkostnaður enn of hár hjá félaginu og að leita
verði leiða til þess að lækka hann. Þá gefi lega
Íslands og leiðakerfi færi á að nýta flug-
vélakost félagsins betur en öðrum flugfélögum
sé unnt og að keyra verði á þeim styrkleikum.
Þetta kemur fram í viðtali við Stein Loga í
nýjasta þætti Dagmála sem aðgengilegur er
áskrifendum Morgunblaðsins á mbl.is frá og
með kl. 9.00 í dag. Steinn Logi býður sig fram
til stjórnar Icelandair en aðalfundur félagsins
fer fram í lok næstu viku. Líkt og fram hefur
komið í Morgunblaðinu er Steinn Logi ekki í
hópi þeirra fimm sem tilnefningarnefnd fé-
lagsins leggur til við aðalfund að verði kosnir í
stjórnina. Tillaga nefndarinnar felst í að allir
núverandi stjórnarmenn félagsins hljóti end-
urnýjað umboð á fundinum.
Reynsla af flugrekstri skipti sköpum
Í viðtalinu segir Steinn Logi að áratugalöng
reynsla sín, ekki aðeins af rekstri Bláfugls
heldur einnig á vettvangi Icelandair, geti nýst
félaginu til góðs. Þekking hans á innri mál-
efnum félagsins, viðhaldsmálum flugvéla og
öðru því tengdu geti reynst verðmætt fyrir fé-
lagið. Hann hafi t.d. borið ábyrgð á öryggis-
málum Bláfugls síðustu árin, bæði gagnvart
flugmálayfirvöldum í Evrópu og Bandaríkj-
unum og að fátítt sé að málum sé svo háttað
meðal flugrekenda.
Lágmarka þurfi kostnað og flækjustig
Spurður út í flotamál Icelandair segir
Steinn að nauðsynlegt sé að taka þau til gagn-
gerrar endurskoðunar. Mikilvægt sé að
byggja upp einsleitan flota sem tryggi lág-
mörkun kostnaðar og dragi úr óþarfa flækju-
stigi.
„Ég var aldrei mjög hrifinn af þeirri
ákvörðun að taka Maxinn og fannst hún ekki
endilega góð,“ segir Steinn Logi spurður út í
núverandi stöðu flota félagsins. Eins og al-
kunna er hefur Icelandair í hyggju að vera
með 12 slíkar vélar í flota sínum á komandi ár-
um og verður fyrsta vélin tekin í notkun á
mánudaginn næsta í áætlunarflugi milli Kefla-
víkur og Danmerkur. Verður það fyrsta áætl-
unarflug félagsins með þeirri flugvélategund
síðan í mars 2019 þegar þær voru kyrrsettar í
kjölfar mannskæðra flugslysa á Jövuhafi og í
Eþíópíu.
Aðspurður af hverju hann telji MAX-
vélarnar ekki framtíðarkost fyrir Icelandair
segir hann að þær henti ekki vel inn í alla
hluta leiðakerfis félagsins.
„Vélin getur ekki þjónað öllu leiðakerfi Ice-
landair. Ef þetta ætti bara að vera MAX-inn
þá yrði að breyta leiðakerfinu og hætta að
fljúga á lengri leiðir Ameríku megin. Hún get-
ur ekki tekið mikinn fisk, til dæmis, sem skipt-
ir mjög miklu máli, til austurstrandar Banda-
ríkjanna.“
Horfir fremur til Airbus en Boeing
Hann segir að þótt vélin henti ekki sem
hryggjarstykki í leiðakerfi Icelandair þá sé
margt mjög jákvætt um vélina að segja. Hún
sé mjög sparneytin, svo dæmi sé tekið.
Spurður út í hvaða kosti Icelandair hafi í
flotamálum til framtíðar segist hann ekki hafa
séð endanlegar sviðsmyndir fyrir félagið þar
sem allir vélakostir eru mátaðir inn.
„ [...] sú vél sem virðist augljósi kandídatinn
er A321XLR. Þær vélar virðast vera náttúru-
legi kandídatinn. Þar er líka hægt að tengja
saman A321XLR og A320 sem er minni vél.“
Bendir hann á að síðarnefndu vélina mætti
nýta meira í styttra Evrópuflugi meðan A321-
vélin hefði drægi á fjarlægustu vellina sem fé-
lagið beinir vélum sínum til. Kosturinn við
slíka samsetningu sé sá að nota megi sömu
áhafnir, með sömu þjálfun, á báðar tegundir.
Þessi skoðun Steins Loga rímar við þær
leiðir sem Icelandair hefur viðrað um breyttar
áherslur í flotamálum félagsins á komandi ár-
um. Í þeim hugmyndum hefur félagið talið
koma til greina að skipta alfarið yfir í vélar frá
Airbus en einnig að reka slíkar vélar samhliða
rekstri MAX-vélanna.
Airbus hefur gefið út að það geri ráð fyrir
að fyrstu A321XLR-vélarnar komi á markað
árið 2023. Hámarksdrægi þeirra er sam-
kvæmt Airbus 8.700 kílómetrar á meðan
drægi MAX-vélanna er að hámarki 7.084 kíló-
metrar.
MAX-vélar henti ekki Icelandair
Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Icelandair, segir að endurskoða þurfi
flotamál félagsins Hann býður sig fram í stjórnarkjöri hjá Icelandair sem fram fer í komandi viku
Morgunblaðið/Eggert
MAX Icelandair tekur vélarnar í notkun að nýju á mánudaginn kemur. Steinn Logi segist treysta
vélunum vel og myndi taka sér far með þeim. Þær henti þó ekki félaginu til lengri tíma litið.
Icelandair Steinn Logi starfaði hjá Icelandair á árunum 1985-2005, síðast sem framkvæmda-
stjóri markaðs- og sölusviðs. Í byrjun árs í fyrra seldi hann Bláfugl sem hann stýrði í sex ár.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points Carina
27.990 kr.
Nýjar vörur frá
Lagastofnun Háskóla Íslands hefur gefið út ritið
Evrópuréttur - réttarreglur Evrópusambandsins
- eftir Stefán Má Stefánsson prófessor.
Í ritinu er að finna yfirlit yfir helstu reglur sem
leiddu af gildistöku Lissabon sáttmálans frá
1. desember 2009. Fjallað er um stofnanir
ESB og ýmsar grundvallarreglur sambandsins,
reglur um bein réttaráhrif og forgangsáhrif
sem og reglur um frelsi, öryggi, réttlæti og
efnahags- og myntmál. Þá er fjallað um
það álitamál hvort ESB geti talist ríki og þá
einkum hve langt aðildarríki ESB hafa gengið
í samrunaferli sínu. Loks er fjallað um kosti
og galla við aðildarumsókn og önnur atriði
sem skipta máli fyrir hagsmuni Íslands í
tengslum við framkvæmd EES-samningsins,
einkum varðandi náttúruauðlindir, frjálsa
fjármagnsflutninga og fiskveiðireglur ESB.
Evrópuréttur
Réttarreglur
Evrópusambandsins
Ritið má panta með tölvupósti á netfangið lagastofnun@hi.is
Ritið er einnig fáanlegt hjá Bóksölu stúdenta
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG
PÍPARA?