Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Staðfesting ársreiknings samstæðu og móðurfélags og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs. 4. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins, ef borist hafa. 5. Kosning þriggja einstaklinga í tilnefningarnefnd. 6. Kosning stjórnar félagsins. 7. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu. 8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra sem og þóknun nefndarmanna í undirnefndum og í tilnefningarnefnd. 9. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 10. Tillaga um lækkun á hlutafé vegna eigin hluta og breytingu á samþykktum félagsins. 11. Tillaga um lækkun á hlutafé með greiðslu til hluthafa og breytingu á samþykktum félagsins. 12. Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 13. Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá. 14. Önnur mál. Tvær tillögur eru um breytingar á samþykktum félagsins vegna lækkunar hlutafjár sem báðar varða grein 4.1 í samþykktunum. Þá er lögð til breyting á viðauka við samþykktir sem tengjast heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins. Stjórn félagsins hefur ákveðið í samræmi við grein 10.6 í samþykktum félagsins að aðalfundur verði eingöngu haldinn rafrænt. Hluthafar semætla að sækja fundinn skulu skrá sig á smartagm.com eigi síðar en fimm dögum fyrir hluthafafundinn, eða fyrir klukkan 16:00, 6. mars 2021. Fundurinn fer fram í gegnum tæknibúnaðinn Lumiglobal þar sem hluthafar geta fylgst með aðalfundarstörfum og tekið þátt í atkvæðagreiðslum. Stjórn Símans hf. Vísað er til Kauphallartilkynningar Símans frá 18. febrúar 2021 þar sem boðað var til fundarins. Ítarlegri upplýsingar um efni fundarins, þar á meðal skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir fundinn, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins siminn.is/umsimann/fundir. Dagskrá Aðalfundur Símans hf. Verður haldinn rafrænt fimmtudaginn 11. mars 2021 kl. 16:00 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir við nýtt 40 her- bergja hótel í Reykholti í Blá- skógabyggð, Blue Hótel Fagralund, ganga vel. Undirstöður eru til- búnar og verið er að smíða hót- elbygginguna sjálfa úti í Noregi. Von er á húsinu um miðjan apríl og stefnt að opnun hótelsins 15. júní. Þegar hóteleiningarnar koma verður þeim raðað upp. Jóhann Guðni Reynisson, framkvæmda- stjóri Stakrar gulrótar ehf. sem byggir hótelið, segir að það taki að- eins nokkra daga að setja húsið upp. Síðan þarf að ganga frá göng- um og anddyri og útbúa húsið sem hótel. Jafnframt er verið að breyta eldra gistiheimili fyrirtækisins. Þar verður móttaka fyrir hótelið og morgunverðarsalur. Reiknað með Íslendingum Áður en kórónuveirufaraldurinn reið yfir voru langflestir gestir Fagralundar erlendir ferðamenn. Nú er óvissa með komur ferða- manna vegna heimsfaraldursins. „Við reiknum frekar með Íslend- ingum í sumar, að minnsta kosti framan af. Íslendingar vilja hafa heita potta og hluti af okkar við- brögðum við breyttri stöðu er að koma upp pottum og heilsulind fyr- ir gestina. Mér heyrist á öllu að það gangi vel að bólusetja í Bretlandi og Bandríkjunum sem verið hafa okkar helstu markaðir og ég vonast til að gestir þaðan fari að skila sér þegar líður á sumarið,“ segir Jó- hann Guðni. Í sumar verða skipu- lagðar fræðslu- og sælkeragöngur um Reykholt, eins og gert var á síð- asta ári við góðar undirtektir. „Ég er bjartsýnn á að ferðaþjón- ustunni muni vegna vel í sumar og framvegis,“ segir Jóhann Guðni. Hótel opnað í Reykholti í vor  Byggingin kemur tilbúin frá Noregi og tekur fáeina daga að setja hana upp Tölvuteikning/Onno Fagrilundur Hótelið er í skógarreit í Reykholti. Gönguleiðir verða að veitingahúsunum Mika og Friðheimum. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á kröfu lögreglunn- ar á höfuðborgar- svæðinu um að þrír sæti áfram- haldandi gæslu- varðhaldi í tengslum við morð, sem framið var í austurborg Reykjavíkur í febrúar. Tveir voru úrskurðaðir í áfram- haldandi tveggja vikna gæsluvarð- hald, eða til miðvikudagsins 17. mars, og einn í áframhaldandi viku- langt gæsluvarðhald, eða til miðviku- dagsins 10. mars. Þá var einn til við- bótar úrskurðaður í fjögurra vikna farbann, eða til miðvikudagsins 31. mars. Gæsluvarðhald yfir þeim síð- astnefnda rann út í gær og ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald. Fjórir eru nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins og fimm hafa verið úr- skurðaðir í farbann, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni. Einum þeirra var sleppt úr haldi á þriðju- dag. Þrír áfram í gæslu- varðhaldi  Fjórir í varðhaldi og fimm í farbanni Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Bókunum Íslendinga hefur heldur fjölgað að undanförnu hjá ferðaskrif- stofunum Vita og Úrvali-Útsýn. Þar er Tenerife efst á blaði, enda ekki margir aðrir kostir í boði. Greinilega verður vart við ferðaáhuga landsmanna í sum- ar og haust og eitthvað um að fólk horfi til dagatals yfir bólusetningar við skipulagningu utanlandsferða. Hægt og sígandi hefur íslenskum ferðamönnum fjölgað á Tenerife upp á síðkastið, að sögn Þórunnar Reynis- dóttur, forstjóra Úrvals-Útsýnar. Hún segir að nokkuð gott ástand sé á Kan- aríeyjum hvað varðar kórónu- faraldurinn, rólegra sé yfir þar sem ferðamenn séu mun færri en í eðlilegu ári og fólk fylgi reglum sem eru á svæðinu. Hún segir ánægjulegt að talsvert hafi verið um fyrirspurnir um utanlandsferðir í sumar og haust, ferðahugur sé greinilegur í lands- mönnum. Hótelin vilja PCR-próf Í síðustu viku tilkynntu yfirvöld á Spáni að ferðamenn frá Íslandi þyrftu ekki að geta sýnt neikvætt PCR-próf gegn kórónuveirunni við komuna til Tenerife sem hefði verið tekið innan við 72 klukkustundum fyrir brottför. Þórunn segir að hótel þar hafi hins vegar tilkynnt um síðustu helgi að þau óskuðu eftir slíku prófi og því hefði í sjálfu sér ekki orðið breyting á. Fram undan er sá tími sem margir Íslendingar hafa haldið til Spánar og Portúgals, meðal annars til að spila golf. Þórunn segir að í ár bjóði ferða- skrifstofan ekki upp á slíkar hópferðir nema til Kanaríeyja og segir hún að enn sé hægt að komast í páskaferðir til Tenerife. Hún vill ekki gefa upp tölur um hversu margir Íslendingar verði á Kanaríeyjum næstu vikurnar á vegum ÚÚ. Þráinn Vigfússon, framkvæmda- stjóri Ferðaskrifstofunnar VITA, seg- ir að nokkuð góð eftirspurn hafi verið eftir ferðum til Tenerife undanfarið. Ólíku sé þó við að jafna við stöðuna núna og var fyrir tveimur árum. Hann reiknar með að 3-400 farþegar verði á vegum Vita á Tenerife í marsmánuði, en í sama mánuði fyrir tveimur árum hafi þeir verið um tvö þúsund. Eldra fólk og forgangshópar Talsvert er um að eldra fólk bóki ferðir til Tenerife, en einnig fólk í for- gangshópum, sem hefur fengið bólu- setningu, að sögn Þráins. Það fólk hafi staðið vaktina lengi og eigi sín frí eins og aðrir. Nú hafi um 13 þúsund Íslend- ingar verið fullbólusettir og um sex þúsund hafi fengið kórónuveikina. Ferðalög þessa fólks séu því orðin auð- veldari en ella. Hann segir að staðan sé góð á Tene- rife um þessar mundir, miklar sótt- varnir og hótelin fylgist vel með því að farið sé að reglum. Á vegum Vita verða fjórar brottfarir til Tenerife í mars. Til Alicante er ein páskaferð á áætl- un og segir Þráinn að ágætlega sé bók- að í þá ferð. Þar sé mest um eigendur húsnæðis í Alicante að ræða. Golfferðir til meginlands Spánar hafi hins vegar ýmist verið felldar niður eða frestað enda sé staðan ekki eins góð þar og á Tenerife. Það geti þó breyst er líður á aprílmánuð. Varðandi framhaldið segir Þráinn að margir hafi bólusetningadagatalið til hliðsjónar þegar spáð sé í utan- landsferðir. Margir spyrji og séu að hugleiða ferðir seinni part sumars og í haust. Þar sé Tenerife ofarlega á blaði, en einnig Krít sem hafi verið græn lengi vel, en nú sé staðan þar skil- greind sem appelsínugul. Sól Tenerife hefur notið vinsælda meðal íslenskra ferðamanna. Íslendingum hefur fjölgað á Tenerife  Fylgjast með bólusetningadagatali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.