Morgunblaðið - 04.03.2021, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
drög að dagskrá
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram
ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða
rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða
drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en 10
dögum fyrir fund, fyrir kl. 16:00 þann 15. mars 2021. Nánari
upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu
félagsins: www.eimskip.com/investors
Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum eigin
hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar, atkvæða-
seðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hlut-
höfum sem ekki sækja aðalfund stendur til boða að kjósa um
dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Ekki
verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á
fundinum.
Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa
um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu. Hluthafar
geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig má nálgast þá
í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má atkvæði alla virka
daga milli kl. 9:00 og 16:00. Atkvæðin skulu berast félaginu fyrir
aðalfundinn. Hluthafar geta veitt skrifleg umboð að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Slík umboð skulu berast félaginu áður en
aðalfundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Nánari
upplýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að
finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2020
4. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum
5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin
hlutum skv. endurkaupaáætlun
6. Tillaga um heimild til lækkunar hlutafjár
7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
8. Kosning stjórnar félagsins
9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna,
varamanna og undirnefnda stjórnar
10.Kosning endurskoðenda
11. Önnur mál, löglega upp borin
reglur um þátttöku og
atkvæðagreiðslu á fundinum
Athygli hluthafa er vakin á því að tilhögun fundarhalda verður
í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur á aðalfundardegi og
ákvæði hlutafélagalaga um hluthafafundi. Ef breyta þarf
tilhögun fundarhalda verður tilkynnt um það í fréttakerfi
Nasdaq Iceland eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir
aðalfund.
Í samræmi við núgildandi reglur verður þátttaka allra
fundarmanna skráð, öllum fundarmönnum ber að nota
andlitsgrímu og tryggt verður að fjarlægð milli ótengdra
aðila sé meiri en 1 metri.
Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu
félagsins: www.eimskip.com/investors
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í
höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík,
virka daga milli kl. 9:00 og 16:00.
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar tveimur
vikum fyrir fundinn. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær
birtar a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri
dagskrá. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal
tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst tíu dögum
fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 þann 15. mars 2021.
Framboðstilkynningu má nálgast á skrifstofu félagsins.
Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar
eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent frá kl. 15:30 á aðalfundardegi.
Reykjavík, 3. mars 2021
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.
aðrar upplýsingar
Sundabakki 2 | 104 Reykjavík | +354 525 7000 | eimskip.com
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2021
kl. 16:00 í fundarsalnum Gullteig á Grand hótel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
Aðalfundur
Eimskipafélags Íslands hf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ágæt loðnuveiði hefur verið á Faxa-
flóa síðan um hádegi á mánudag og
loðnan hentað vel til hrognavinnslu.
Ef vel gengur gæti vertíð lokið á um
vikutíma. Mörg skipanna hafa fengið
góðan afla og þannig hefur Venus
NS landað tvívegis á Akranesi, 650
og um 2.000 tonnum, og Beitir NK
var væntanlegur til Neskaupstaðar í
gærkvöldi með um 2.000 tonn.
Útgerðirnar reyna að haga veið-
um þannig að skipin komi inn til
löndunar með hæfilegu millibili.
Þannig var reiknað með að Víkingur
kæmi til löndunar hjá Brimi á Akra-
nesi þegar búið væri að landa úr
Venusi. Sömu sögu er að segja af
skipum Eskju, svo dæmi séu tekin,
Aðalsteinn Jónsson var á miðunum í
gær, en þegar hann heldur heim á
leið taka Jón Kjartansson og síðan
Guðrún Þorkelsdóttir til við veiðar.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað var í gær fjallað um
hrognavertíðina undir fyrirsögninni:
Hrognin eru að koma. Þar segir frá
því að Beitir hafi fengið 1.750 tonn á
Faxaflóa í þremur köstum á mánu-
dag. Börkur hafi síðan tekið rúmlega
400 tonna kast og var þeim afla dælt
um borð í Beiti. Gert var ráð fyrir að
Börkur veiddi í gær og Bjarni Ólafs-
son AK í dag.
Skipulag veiðanna tekur mið af af-
kastagetu hrognavinnslunnar. „Það
skiptir mjög miklu máli hvernig
gengur að veiða hrognaloðnuna og
vinna hrognin en þau eru verðmæt-
asta afurð vertíðarinnar. Móttaka
hrognaloðnunnar hefur verið undir-
búin að undanförnu og nú er allt
klárt,“ segir á heimasíðu SVN.
Á Akranesi hófst hrognavinnsla
hjá Brimi á mánudagsmorgun og
hefur gengið vel. Loðnan er skorin
og sett í hrognaskilju þar sem
hrognin eru skilin frá áður en þau
eru hreinsuð. Á Akranesi fara
hrognin ýmist í frystingu eða í frek-
ari vinnslu hjá Vigni G. Jónssyni,
dótturfyrirtæki Brims á Akranesi.
Langmest af afurðunum fer til Jap-
ans.
Akranes Við hrognavinnslu fer loðnan í gegnum talsvert ferli. Til vinstri setur Rakel Hilmarsdóttir, starfsmaður Vignis G. Jónssonar, hrognin í poka. Til hægri fylgist Skagfirðingurinn Stefán
Gísli Haraldsson með hreinsunarferlinu hjá Brimi á Akranesi. Reikna má með að hrognavinnsla hefjist í dag í Neskaupstað og fljótlega í Vestmannaeyjum, á Eskifirði og Fáskrúðsfirði.
Morgunblaðið/Eggert
Hrognavertíðin
að komast á fullt
Ágæt loðnuveiði á Faxaflóa
Loðnuhrogn Ástþór Örn Árnason, bóndi í Miðdal í Skagafirði, vinnur við
hreinsun hrogna. Hópur fólks sem tengist landbúnaði kemur að vertíðinni.