Morgunblaðið - 04.03.2021, Side 43
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Við Íslendingar er-
um lánsamir að búa í
friðsælu lýðræðisríki
þar sem mannréttindi
eru virt og almenn vel-
sæld ríkir. Flest erum
við sammála um að
leggja okkar af mörk-
um til að svara sárri
neyð þar sem átök
geisa og til uppbygg-
ingar í fátækari ríkj-
um. Alþjóðleg þróun-
arsamvinna er ein af meginstoðum
íslenskrar utanríkisstefnu, en fram-
lagi okkar þar er ætlað að draga úr
fátækt og hungri og stuðla að al-
mennri velferð. Hluti af því framlagi
okkar er móttaka flóttamanna á ári
hverju en með henni uppfyllum við
alþjóðlegar skuldbindingar okkar til
að veita þeim vernd sem hingað leita
vegna ofsókna í heimalöndum eða
ríkisfangsleysis. Þróunarsamvinna
og úrræði vegna umsækjenda um al-
þjóðlega vernd og kvótaflóttafólks
tengjast því að þessu leyti. Það er
mikilvægt að við tökum vel á móti
fólki sem er á flótta undan raunveru-
legum ógnum. Aðeins þannig fær
það í raun tækifæri til að festa hér
rætur og leggja sitt af mörkum til
samfélagsins, öllum til hagsbóta.
Ágallar á íslenska
hælisleitendakerfinu
Samkvæmt verklagsreglum þró-
unarsamvinnunefndar Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD
DAC) sem Ísland á aðild að rennur
hluti af heildarframlögum til þróun-
arsamvinnu til þjónustu við hæl-
isleitendur og móttöku kvóta-
flóttafólks. Þetta hlutfall fór
stighækkandi í takt við mikla fjölgun
hælisumsókna hérlendis, en nýlegar
reglur frá OECD DAC leiddu til
þess að hlutfallið lækkaði aftur. Inn-
leiðing nýrra reglna leiddi hins veg-
ar til yfirgripsmikillar vinnu í utan-
ríkisráðuneytinu við greiningu
kostnaðar við þjónustu
við hælisleitendur og
kvótaflóttafólk.
Meðal vandkvæða
sem komu upp við yf-
irferð reikninga og
samninga vegna kostn-
aðarins voru þau að
hælisleitendur fá
nokkrar mismunandi
kennitölur við komuna
til landsins, t.a.m. eina
frá Útlendingastofnun
og aðra frá lögreglunni.
Vinna er hafin við ein-
földun þessa kerfis, en
nú er illmögulegt að hafa fulla yf-
irsýn yfir útgjöldin. Yfirferð gagna
um margvísleg útgjöld vegna hæl-
isleitenda vakti einnig ýmsar spurn-
ingar um meðferð opinbers fjár og
gagnsæi í þessum málaflokki. Sem
dæmi um útgjaldaliði sem voru yf-
irfarnir má nefna lyf, sálfræðiþjón-
ustu, sjúkra- og iðjuþjálfun, gler-
augu og heyrnartæki og
aksturskostnað. Er þá ótalinn kostn-
aður við framfærslu og húsnæði.
Ljóst er að kostnaður við heilbrigð-
isþjónustu við hælisleitendur er stór
útgjaldaliður, en þar með talinn er
kostnaður við ýmsa sérlækna. Ég
hef áður skrifað um endurskoðun
hælisleitendakerfisins hérlendis en
mér þykir ljóst að það sé haldið ýms-
um ágöllum sem við hljótum að vilja
bæta úr.
Að nýta fjármunina
þar sem mest er þörf
Árið 2019 voru útgjöld ríkisins
vegna hælisleitenda hátt í 4 millj-
arðar ISK en 867 einstaklingar sóttu
hér um hæli það ár. Af þessari fjár-
hæð voru um 800 milljónir flokkaðar
sem þróunarsamvinna samkvæmt
reglum þar um. Til þess að setja
þessar fjárhæðir í samhengi við
verkefni Íslands í þróunarsamvinnu
á vettvangi, þá kostar um 4 milljónir
ISK að veita 1.000 manns aðgang að
heilnæmu vatni og salernisaðstöðu í
samstarfslöndum Íslands í Afríku.
Þar er einnig hægt að grunnbólu-
setja yfir 1.700 börn fyrir sömu fjár-
hæð eða 4 milljónir ISK.
Það er staðreynd að umsóknum
um alþjóðlega vernd hefur fjölgað
verulega undanfarin ár og hælisveit-
ingum sömuleiðis. Það þýðir samt
ekki að slaka megi á faglegum kröf-
um sem við gerum við ráðstöfun
opinbers fjár og að fullkomið jafn-
ræði og gagnsæi ríki við útdeilingu
þess. Það á ekki síst við um þróun-
arsamvinnu en framlög til hennar
eru ekki óþrjótandi. Á þeim vett-
vangi hefur heimsfaraldurinn snúið
margra áratuga ávinningi og ákall
eftir mannúðaraðstoð er sterkt,
milljónir draga fram lífið við
hungurmörk og hungursneyð er víða
yfirvofandi. Þörfin á því að fjár-
munir Íslands til þróunarsamvinnu
séu vel nýttir og gagnist þeim sem
mest þurfa á þeim að halda hefur í
raun aldrei verið meiri.
Eftir Diljá Mist
Einarsdóttur » Þörfin á því að fjár-
munir Íslands til
þróunarsamvinnu séu
vel nýttir og gagnist
þeim sem mest þurfa á
þeim að halda hefur í
raun aldrei verið meiri.
Diljá Mist
Einarsdóttir
Höfundur er aðstoðarmaður utan-
ríkis- og þróunarsamvinnuráðherra
og fulltrúi utanríkisráðuneytisins í
flóttamannanefnd.
dilja@mfa.is
Framlög Íslands til
þróunarsamvinnu,
flóttafólks og hælisleitenda
ýmsum hætti. Eigi okkur að takast
að bjarga lífríki jarðarinnar þurfa
að koma til miklar breytingar á lífs-
stíl okkar mannanna. Þetta mun
óhjákvæmilega hafa í för með sér
fórnir af okkar hálfu. Lífsstílsbylt-
ingu verður ekki komið á í einu vet-
fangi, en tíminn er naumur. Lífs-
stílsbylting þýðir fyrst og fremst
hugarfarsbreyting. Erum við tilbúin
í þá byltingu hugans sem til þarf?
Lengi hefur orðið hagvöxtur ver-
ið heilagt orð í huga heimsins og
það orð hefur trónað á toppi þeirrar
trúar að góður hagvöxtur sé und-
irstaða hamingju mannsins. Vissu-
lega er hagvöxtur nauðsynlegur til
þess að halda samfélagi gangandi.
Hins vegar þarf hagvöxtur nauð-
synlega að taka mið af hinum fé-
lagslega þætti allra manna,
„mennskunni“, með öllu því sem
hún stendur fyrir. Þessu hafa
margir hagfræðingar áttað sig á í æ
ríkara mæli, öllum heiminum til
hagsbóta, en betur má ef duga skal.
Ef hagvöxtur skapast að stórum
hluta á kostnað lífríkis er illt í efni.
Aldrei hef ég rekist á hugtakið and-
legur hagvöxtur í ræðum eða riti
enda virðist hin andlega hlið mann-
eskjunnar vera aukaatriði í þessu
samhengi. Ég er sannfærður um að
hinn hræðilegi kóvidfaraldur hefur
fært okkur nær hugtakinu andlegur
hagvöxtur, þrátt fyrir þau áföll sem
hann hefur haft í för með sér. Far-
aldurinn hefur kallað fram í okkur
mönnunum eiginleika og möguleika
í mannlegu tilliti, sem höfðu
gleymst í mörgum tilfellum í yf-
irborðskenndu írafári þess lífsstíls,
sem við höfum tileinkað okkur. Lít-
um á þennan faraldur, sem við
munum ná tökum á og halda í skefj-
um, sem fyrsta mikilvæga skrefið
til gagngerrar hugarfarsbreytingar.
Hún verður sú breyting í átt til
meiri samkenndar, alþjóðlegrar
samvinnu og góðvildar, sem mun
gera okkur kleift að takast á við
loftslagsvandann með öllum til-
tækum ráðum.
Að lokum vil ég nefna eitt atriði
úr ríki náttúrunnar, sem sýnir á af-
dráttarlausan hátt alvöru þess sem
er að gerast hér og nú í náttúrunni.
Danskir vísindamenn sem höfðu
verið að rannsaka bráðnun Græn-
landsjökuls birtu nýlega nið-
urstöður sínar. Þær voru sláandi.
Bráðnun jökulsins er svo gífurleg
að hún jafngildir vatni sex sund-
lauga á sekúndu. Þetta jafngildir
innihaldi 360 sundlauga á mínútu og
innihaldi 21.600 sundlauga á
klukkustund. Þetta eru stjarn-
fræðilegar tölur og við hljótum að
viðurkenna að hér er þörf skjótra
viðbragða alls heimsins, því þetta er
einungis eitt dæmi um ástand mála.
Vísindamenn heimsins hafa sýnt á
óvefengjanlegan hátt að náin al-
þjóðleg samvinna til að framleiða
bóluefni hefur tekist á mettíma.
Með þeirra einstaka framlagi hafa
þeir sýnt fram á möguleika mann-
kyns til samvinnu og samstarfs á
tímum heimsógnar. Er þetta ekki
fagurt og stórkostlegt fordæmi til
eftirbreytni í loftslagsmálum heims-
ins?
Höfundur er sellóleikari og prófessor
emeritus við Listaháskóla Íslands.
sellokvaran@gmail.com
Nokkuð hefur verið
rætt um aðkomu lífeyr-
issjóða hér á landi að
óhagnaðardrifnum
leigufélögum nú í að-
draganda formanns-
kosninga í VR, og hef-
ur formaður félagsins
lýst sig fylgjandi slíku.
Umræðan sem slík er
góðra gjalda verð en
hafa ber þó í huga í
þessu sambandi, að lífeyrissjóðir eru
sjálfstæðar fjármálastofnanir sem
eiga ekki að þola þrýsting eða
skuggastjórnun utanaðkomandi að-
ila, líkt og núverandi formaður VR
hefur gert sig uppvísan að.
Góð ávöxtun er forsenda góðra
lífeyrisréttinda
Erfitt er að sjá hvernig lífeyr-
issjóðir eigi að ávaxta fé lífeyrissjóða
á sem bestan máta nema með hagn-
að að markmiði. Sjóðsfélagar hafa
mismunandi bakgrunn og ólíka lífs-
sýn. Það eina sem sameinar er fram-
tíðarsýnin um óskertan lífeyri og
áhyggjulaust ævikvöld þegar þar að
kemur. Innan þessa ramma hljóta
lífeyrissjóðir að starfa. Orðaleikir
um óhagnaðardrifnar fjárfestingar
geta því aldrei orðið annað en póli-
tískur hráskinnaleikur, og ekki við-
eigandi af formanni VR að setja
þennan þrýsting á lífeyrissjóði.
Staðreyndir um erlenda
lífeyrissjóði
Núverandi formaður VR hefur
fullyrt að óhagnaðardrifnar fjárfest-
ingar í leigufélögum tíðkist hjá líf-
eyrissjóðum víða erlendis. Það hlýt-
ur að vera á misskilningi byggt, þar
sem almennt er ekki talið í verka-
hring lífeyrissjóða að fjármagna
óhagnaðardrifna hluta leigumark-
aðar. Í því eru allt aðrir aðilar, á allt
öðrum forsendum líkt og hér á landi.
Hollenskir og danskir lífeyrissjóðir
hafa þannig tekið þátt í hagn-
aðardrifnum leigufélögum um ára-
bil, svo að dæmi sé tekið.
Að stórum hluta má þakka skil-
virkni danska leigu-
markaðarins fagmann-
legum vinnubrögðum
lífeyrissjóðanna þar í
landi, sem hafa um
langt skeið fjármagnað
hagnaðardrifin leigu-
félög í gegnum ýmiss
konar samstarfsleiðir.
Með þessu móti mynda
lífeyrissjóðirnir grund-
völl fyrir heilbrigðan
leigumarkað þar í
landi. Af þessu getum
við margt lært, ekki
hvað síst ef forsendur
eru til staðar hér á landi fyrir öflugri
almennum leigumarkaði. Margt
gæti bent til að svo sé. Þeim gæti vel
fari fjölgandi sem sjá sér hag í að
vera lausir undan fjárskuldbind-
ingum fasteignakaupa.
Leigufélög góð fjárfesting
Spurningunni um hvort lífeyr-
issjóðir eigi að fjárfesta í óhagn-
aðardrifnum leigufélögum er því
auðsvarað, enda þarf ekki að hugsa
sig lengi um til að sjá þversögnina
sem í spurningunni felst. Hlutverk
lífeyrissjóða er að ávaxta iðgjöld
sjóðsfélaga og óhagnaðardrifin verk-
efni eiga illa heima innan þess
ramma. Hins vegar getur meira en
vel verið að fjárfestingar lífeyr-
issjóða í leigufélögum eigi rétt á sér,
ef um verkefni er að ræða sem fellur
að fjárfestinga- og ávöxtunarstefnu
viðkomandi lífeyrissjóðs. Það er ein-
faldlega viðkomandi lífeyrissjóðs að
ákveða hvort slík fjárfesting sam-
ræmist áherslum og markmiðum
hverju sinni.
Óhagnaðardrifna
leiguþversögnin
Eftir Helgu
Guðrúnu
Jónasdóttur
» Að stórum hluta má
þakka skilvirkni
danska leigumarkaðar-
ins fagmannlegum
vinnubrögðum lífeyr-
issjóðanna þar í landi
Helga Guðrún
Jónasdóttir
Höfundur er stjórnmálafræðingur,
fjölmiðlafræðingur og býður sig fram
til formanns VR.
hgjonasdottir@gmail.com
Atvinna
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga kl. 12-18, laugardaga kl.11-15
Evolution Curvy
bralette
Stærðir SX-XL
Henta skálastærðum
DD-H
Verð 14.650,-