Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 48
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spennandi nýjungar Silja Mist Sigurkarlsdóttir markaðsstjóri Nóa-Siríusar segir alltaf mikið að gera í vöruþróun.
Silja Mist Sigurkarlsdóttir markaðsstjóri
Nóa-Síríusar segir að nýju eggin hafi verið
nokkuð náttúrulegt val enda byggist þau bæði á
sælgæti sem náð hefur gríðarlegum vinsældum
hjá fyrirtækinu. Um er að ræða annars vegar
Eitt sett-egg og hins vegar Síríus-salt-
kringluegg.
Eitt sett er eitt rótgrónasta súkkulaðið hjá
Nóa og kannski er það einfaldleikinn sem gerir
það svo vinsælt. Rjómasúkkulaðilengja og lakkr-
ísbiti sem hægt er að borða saman eða hvort í
sínu lagi. Silja segir að ákveðið hafi verið að búa
til svokallaða Eitt sett-bita og setja í poka. Átti
hún fastlega von á því að það myndi mælast vel
fyrir en óraði ekki fyrir viðtökunum. Eitt sett-
bitarnir ruku út og voru meðal annars valdir
besta nýjungin á árinu 2020 hjá facebook-
hópnum Nammitips sem er samkomustaður
harðkjarnanammispekúlanta hér á landi. Hóp-
urinn hefur vaxið á undraverðum hraða og er nú
einn heitasti umræðuvettvangur fyrir sælgæti
hér á landi. Það sé því ekki amalegt að hljóta
blessun þaðan enda sé það álit neytenda sem
skipti mestu máli.
Silja segir að í framhaldinu hafi verið ákveðið
að búa til Eitt sett-egg fyrir páskana og hafi
áætlanir verið fremur hóflegar. „Nú þegar erum
við búin að endurskoða framleiðsluáætlunina
tvisvar með tilliti til aukningar þó að enn sé mán-
uður í páska. Við áttum hreint ekki von á þessum
viðtökum og höfum reyndar aldrei séð aðrar eins
viðtökur. Við höfum því hert hressilega á fram-
leiðslunni til þess að sem flestir geti tryggt sér
sitt uppáhaldsegg.
Síðan er það hitt eggið okkar sem er ekki síður
spennandi en við sendum frá okkur salt-
kringlusúkkulaði sem fékk frábærar viðtökur og
því ákváðum við að breyta því líka í páskaegg.
Það hefur komið einstaklega vel út og er virkilega
spennandi egg. Það eru ansi margir sem vilja fá
stökkan bita og saltkringlueggið svarar þörfum
þeirra fullkomlega. Við erum því einstaklega
ánægð með nýjungarnar okkar í ár og teljum að
þær endurspegli vel þarfir neytenda,“ segir Silja.
Sú var tíðin að páskaegg voru öll eins og
það eina sem menn spáðu í var hvaða
stærð yrði fyrir valinu. Sælgætisframleið-
endur voru bara með sitt egg og þannig var
það. Nú er öldin aldeilis önnur og úrvalið af
páskaeggjum svo spennandi að margir
ráða hreint ekki við sig. Nói-Síríus hefur
verið þar brautryðjandi og í ár kynnir fyrir-
tækið tvö ný páskaegg.
Tvö ný páskaegg
frá Nóa-Síríusi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
KRINGLAN / SMÁRALIND / SKÓR.IS
20
KAUPHLAUP
KRINGLUKAST
4.-8. MARS
% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
SÓLGLERAUGU
frá Aspinal of London
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Nýtt íslenskt granólamúslí á markað
Að sögn Karenar Jónsdóttur, konunnar á bak við Kaja Organics, er granóla-
múslíið það fyrsta í nýrri múslílínu frá fyrirtækinu en til stendur að koma
með glútenlaust múslí og svo múslí með súkkulaðibragði á vordögum.
Kaja segir múslíið einstakt að gæðum enda séu lífrænir, finnskir hafrar
notaðir í grunninn og það sætt með ekta villiblómahunangi. Næst á dagskrá
sé svo að fá lífrænt vottaða íslenska hafra svo hægt verði að bjóða upp á
meira úrval af íslensku lífrænu.
Granólamúslí fæst í Hagkaupum, Melabúðinni, Fjarðarkaupum, Frú
Laugu, Matarbúðinni og Gott og blessað.
Lífrænt og ljúffengt
Vörurnar frá Kaju eru
lífrænar og aðeins besta
hráefnið valið.