Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 50

Morgunblaðið - 04.03.2021, Síða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 ✝ Viktoría Bryn-dís Viktors- dóttir fæddist á Akureyri 20. mars 1934 og ólst þar upp. Hún lést á Landspítalanum 16. febrúar 2021. Foreldrar Viktoríu voru Friðfinna Hrólfsdóttir, klæð- skeri og húsfrú, frá Ábæ í Austur- dal í Skagafirði, f. 2. apríl 1909, d. 26. september 1996, og Vikt- or Aðalsteinn Kristjánsson raf- virkjameistari frá Ölversgerði í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði, f. 18. júlí 1898, d. 5. desember 1973. Systkini Viktoríu eru: 1) Sigrún Pálína, f. 20. mars 1930, d. 14. september 2010. 2) Vikt- oría Bryndís, f. 1. júlí 1932, d. 11. júní 1934. 3) Haukur Arnar arkitekt, f. 21. maí 1935. Eigin- eyrar 1953 og starfaði sem rit- ari bæjarfógeta 1953-1956 Hún lauk prófi frá Samvinnuskól- anum á Bifröst 1957. Vann hjá skrifstofu Mont Blanck í Ham- borg 1957-1958 og var auk þess í Hamburger Fremdsprachsc- hule. Starfaði sem ritari hjá Landsbanka Íslands á Akureyri 1959-1962. Hún stundaði nám í Skolen for fodterapeuter í Kaupmannahöfn 1963-1965. Var hlaðfreyja hjá Flugfélagi Íslands sumurin 1963-1964. Ár- in 1965-1967 starfaði hún hjá Dr. Scholl’s í Kaupmannahöfn. Viktoría opnaði eigin fótaað- gerðastofu á Klapparstíg 1967 og starfrækti hana til 2007. Hún var virkur félagi í Zontaklúbbi Reykjavíkur og gegndi þar mörgum trún- aðarstörfum. Útförin er gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík fimmtu- daginn 4. mars klukkan 13. Einnig er streymt frá útförinni. Stytt slóð á streymið: https:// tinyurl.com/57wzcmur/ Einnig má nálgast hlekk á: https://www.mbl.is/andlat/ kona Hauks er Gyða Jóhanns- dóttir, f. 27. apríl 1944, fyrrverandi skólastjóri og dós- ent við HÍ. Synir Gyðu og stjúpsynir Hauks eru a) Jó- hann Árni Helga- son, sviðsstjóri þjónustusviðs hjá Þekkingu, f. 11. september 1971, maki Þóra Einarsdóttir, verk- efnastjóri hjá Medis, f. 22. des- ember 1972. Þau eiga tvö börn. b) Jón Ari Helgason, hug- mynda- og hönnunarstjóri á Brandenburg, f. 22 október 1973, maki Ingibjörg Sæmunds- dóttir, deildarstjóri hjá Ice- landair, f. 16. september 1972. Þau eiga þrjár dætur. Viktoría lauk gagnfræða- prófi frá Gagnfræðaskóla Akur- Í dag kveð ég ástkæra systur mína hana Dísu sem ég ólst upp með á Akureyri ásamt Sigrúnu systur sem fallin er frá. Við vorum alla tíð mjög samrýmd systkinin þó ólík værum. Dísa var mjög sjálfstæð og áræðin allt frá upp- hafi og það einkenndi hana alla tíð. Þegar við ólumst upp sem börn geisaði stríð úti í hinum stóra heimi og það tíðkaðist að senda börn í sveit á þeim árum, átti það við um okkur líkt og aðra. For- eldrar okkar voru ættaðir úr Skagafirði og Eyjafirði en vegna berklafaraldurs í Eyjafirði og mikilla farartálma yfir jökulsár inn í Skagafjörðinn vorum við send í sveit í Kelduhverfi, ég fór að kirkjustaðnum Garði en Dísa fór á Núp í Öxarfirði þar sem hún gætti meðal annars barna. Svo vel líkaði okkur dvölin þar að við höf- um minnst þess alla tíð síðan og haldið góðum tengslum við fjöl- skyldurnar þar. Þetta lagði grunninn að sjálfstæði okkar upp frá því. Dísa gekk menntaveginn upp úr þessu ólíkt mörgum kyn- systrum sínum á þessum tíma, fór í Samvinnuskólann á Bifröst eftir gagnfræðapróf, þar sem hún stofnaði til ævilangrar vináttu við samnemendur sína. Næst lá leiðin til Hamborgar í Þýskalandi, hvar hún vann hjá Mont Blanc-penna- framleiðandanum og lærði þýsku í málaskóla, á sama tíma nam ég arkitektúr í Stuttgart og hittumst við oft. Eftir stutta dvöl á Íslandi eftir Þýskaland hélt hún svo til Kaupmannahafnar þar sem hún bjó í nokkur ár, lærði þar fótaað- gerðafræði og vann svo hjá hinu virta dr. Scholls- fyrirtæki. Þegar hún bjó í Kaupmannahöfn leigði hún hjá danskri fjölskyldu sem tók henni sem eigin dóttur. Mikil vinátta varð á milli þeirra og okk- ar fjölskyldu. Þarna lærðum við Akureyringarnir ýmsa góða siði sem við héldum í heiðri eftir það. Dísa fluttist svo heim 1967 og stofnaði eigin fótaaðgerðastofu sem hún rak í 40 ár. Dísa var ævintýragjörn og sjálfstæð sem birtist meðal annars í því að hún tók bílpróf og meirapróf sem þá var ekki algengt, hún nýtti það óspart og ferðaðist mikið um land- ið með okkur fjölskyldunni og vin- um ásamt því að við ferðuðumst um Evrópu saman við systkinin með mömmu, sem var alls ekki al- gengt á þeim árum. Við vöktum gjarnan athygli heimamanna fyrir þær sakir að mamma var ósjaldan í íslenska þjóðbúningnum, upp- hlut og öllu. Seinna voru þær systur mjög duglegar að ferðast saman bæði um Evrópu og eins til framandi landa í Asíu, og var það áður en þetta urðu vinsælir áfangastaðir. Áhugamál Dísu sneru að matar- gerð og ekki síst að blómum og skógrækt. Hún starfaði við skóg- rækt á Hallormsstað sem ung kona og hafði mikinn áhuga á alls konar ræktun gróðurs eftir það. Þegar ég kynntist svo konunni minni Gyðu og sonum hennar og við giftum okkur þá eignuðust systur mínar nýja fjölskyldu með mér og tóku alla tíð þátt í okkar daglega lífi af sinni einstæðu um- hyggju og ástúð og fyrir það er ég ævinlega þakklátur. Elsku Dísa mín, takk fyrir samfylgdina og vináttuna í gegnum árin, það er með söknuði sem ég kveð þig í dag en við sjáumst aftur síðar í nýjum ævintýrum. Þinn bróðir, Haukur A. Viktorsson. Í dag kveðjum við elskulega mágkonu mína, Viktoríu Bryndísi, eða Dísu eins og fjölskylda og vin- ir kölluðu hana. Hún ólst upp á Akureyri í faðmi fjölskyldunnar. Heimili Friðfinnu, tengdamóður minnar heitinnar, var annálað fyrir myndarskap og sérstaka gestrisni og það fylgdi fjölskyld- unni þegar þau fluttu til Reykja- víkur og byggðu raðhús við Laugalæk. Ég kynntist Dísu vel rétt eftir að við Haukur tókum saman en þá fór Friðfinna í hættu- lega hjartaaðgerð í London. Við Dísa fórum með henni, Haukur og Sigrún komu seinna. Í svona að- stæðum sem einkennast af áhyggjum, von, hræðslu og gleði kynnist maður vel. Og það gerð- um við Dísa svo sannarlega og bjuggum alla tíð að þeirri gagn- kvæmu væntumþykju sem þá varð til. Þegar við Haukur tókum sam- an eignuðumst ég og synir mínir Jói og Jari nýja fjölskyldu sem tók okkur opnum örmum og einnig varð þar mikil vinátta á milli fjöl- skyldu minnar á Melhaga. Dísa var falleg, glæsileg heims- kona enda hafði hún farið víða. Hún var afar smekkleg, elegant í klæðaburði en jafnframt sportleg. Hún var fagurkeri og bar heimili þeirra vott um það. Hún hafði mikla unun af garðrækt og rækt- uðu þær Sigrún undurfallegan garð á Laugalæknum af kost- gæfni og alúð. Dísa var glaðlynd og stutt í stríðnisglampann í aug- unum. Jafnframt var hún næm á aðra, og gefandi í samskiptum. Hún var sjálfstæð, drífandi og gerði það sem hún ætlaði sér og var illa við aðgerðaleysi. Hún var mjög eftirsótt sem fótaaðgerðafræðingur, enda afar flink, nákvæm og í sérstöku gef- andi sambandi við kúnnana. Við Haukur urðum vör við það þegar við fórum saman á tónleika, leik- hús eða út að borða. Þá kallaði oft- ast einhver „Viktoria!“ hún föðm- uð og svo spjallað. Friðfinna, Sigrún og Dísa dekr- uðu alveg sérstaklega við strák- ana. Þær voru allar listakokkar hver á sinn hátt. Dísa bætti við matargerð frá þeim löndum sem hún hafði dvalið í. Alltaf datt henni eitthvað skemmtilegt í hug. Þegar strákarnir fermdust fóru þeir til hennar og bjuggu til forláta vík- ingaskip úr súkkulaði sem var svo fyllt með sælgæti. Kransakaka var ekkert í samanburði við þetta. Dísa og Sigrún höfðu unun af því að ferðast bæði innanlands og utan. Minnisstæðastar eru ævin- týralegar ferðir þeirra til Asíu og það áður en túrisminn flæddi yfir þessi lönd. Þær komu heim hlaðn- ar af gjöfum til okkar og alltaf eitthvað mjög sérstakt til strák- anna. Mikið var tekið af myndum og man ég sérstaklega eftir tveim, Dísa liggjandi á jörðinni undir fæti á fíl sem virtist ætla að stíga á hana. Á hinni myndinni sat hún með stóra og digra kyrkislöngu um hálsinn. Ég var spurð: „Mamma, þorir þú að gera svona?“ Það varð fátt um svör. Við Dísa ræddum oft alvarleg málefni, vorum kannski ekki alltaf sammála en komum okkur saman um að vera ósammála en svo sann- arlega skemmtum við okkur líka og hlógum dátt. Elsku Dísa, þakka þér fyrir allt og sérstaklega alla væntumþykj- una í okkar garð, þú gafst svo mik- ið og öll fjölskyldan, börn og barnabörn eiga hver sinn minn- ingabrunn. Þú munt aldrei gleym- ast. Hvíl þú í friði. Gyða Jóhannsdóttir. Elsku Dísa, í dag kveðjum við þig og minnumst þín með ást og söknuði. Þegar maður hugsar um Dísu kemur upp í hugann mynd af merkilegri konu, konu sem var á einn veg hefðbundin og vildi haga hlutum á íhaldssaman hátt en á sama tíma mjög framúrstefnuleg á öðrum sviðum og fór ótroðnar slóðir. Ef Dísa væri ung í dag þá væri hún alveg örugglega ein af áhrifavöldum sem fjallað er um reglulega í fjölmiðlum og sífellt að prófa eitthvað nýtt. Dísu kynntumst við bræður þegar við vorum litlir og móðir okkar giftist Hauk, sem hefur ver- ið okkur sem faðir alla tíð síðan. Systur Hauks þær Sigrún og Dísa fylgdu með sem frábær bónus og dekruðu við okkur bræður frá upphafi, án þess þó að spilla okk- ur. Þær systur voru nánast óað- skiljanlegar og ferðuðust saman um allt land og allan heim og ósjaldan á framandi slóðir sem við höfðum lítið heyrt af, Taíland var í uppáhaldi hjá þeim og fóru þær oftar en einu sinni þangað og komu til baka hlaðnar gersemum á borð við gleraugnaslöngur og uppstoppaða krókódíla, þetta var reyndar áður en þessir hlutir fóru á bannlista, þessu fylgdu ævin- týralegar sögur úr framandi menningarheimum. Í flestum þessum ævintýrum var Dísa driffjöðrin og frum- kvöðullinn, hún hafði unun af því að ferðast og kynnast nýju fólki. Þegar Sigrún féll frá 2010 hélt Dísa áfram að ferðast og fór með- al annars til Kúbu með vinum, þá komin á áttræðisaldur, þar skemmti hún sér með ferðafélög- um og innfæddum enda það henn- ar von og vísa að vilja kynnast sem flestum. Dísa var líka ákaflega hænd að fjölskyldu sinni og vildi gera öll tilefni sem skemmtilegust með góðum mat og samræðum. Áramótin á Laugalæknum og matarboðin lifa í minningunni, maturinn engu líkur, enda Dísa og Sigrún ásamt móður þeirra Frið- finnu listakokkar. Gilti einu hvort það voru steikur, súpur eða eftir- réttir, allt var það svo gómsætt að erfitt var að kunna sér hóf. Dísa rak svo fótaaðgerðastofu á Klapparstígnum í 40 ár þar sem jafnan var fullt út úr dyrum, það var alla vega ekki hlaupið að því að heimsækja Dísu þangað, því hún var alltaf með viðskiptavin hjá sér. Við bræður munum Dísu þannig að ef hún var ekki að vinna, ferðast eða útbúa kræsing- ar var hún að nostra við blóm og gróður enda lék allt slíkt í hönd- unum á henni. Þegar við bræður svo eignuðumst okkar fjölskyldur þá urðu þær ósjálfrátt hluti af fjöl- skyldu Dísu og Sigrúnar og þær elskuðu öll „barnabörnin“ sem þær eignuðust þar og dekruðu á sama hátt og okkur bræður áður. Það var alltaf gaman að hitta Dísu, hvort heldur það var á tylli- dögum eða bara að við kipptum með okkur smørrebrød í hádeginu heim til Dísu á virkum degi og töl- uðum saman um heima og geyma. Elsku Dísa okkar, takk fyrir alla umhyggjuna og samveruna í gegnum árin, þín er sárt saknað en þú munt ávallt lifa áfram í huga og hjörtum okkar og við munum aldrei gleyma þér og þeim stund- um sem við áttum með þér. Hvíl í friði og takk fyrir allt. Jóhann Á. Helgason, Þóra Einarsdóttir og börn. Jón Ari Helgason, Ingibjörg Sæmundsdóttir og dætur. Dísa kom inn í líf mitt þegar Haukur bróðir hennar giftist Gyðu, móðursystur minni. Það var mikill happafengur fyrir okkur öll að fá hann í fjölskylduna og í kaupbæti fylgdu Friðfinna móðir hans og Dísa og Sigrún systur hans. Ég kom nokkrum sinnum í heimsókn á Laugalækinn þar sem þær mæðgurnar bjuggu saman og hitti þær við ýmis tilefni á Bakka- vörinni hjá Gyðu og Hauki. Eins og allir sem þekktu Dísu vita var hún einstaklega glæsileg kona; hávaxin, grönn, falleg, alltaf óað- finnanlega tilhöfð og svo var auð- vitað hennar aðalsmerki síða hár- ið sem var alltaf í risastórum snúð, fyrst brúnt, svo grátt, en alltaf jafn flott. Hún hafði fágaða fram- komu en var samt alltaf létt, hress og skemmtileg. Hún sýndi mér og seinna fjölskyldu minni alltaf mikla hlýju. Á fallega heimilinu þeirra á Laugalæknum var allt eins og klippt út úr lífsstílsblaði þess tíma. Garðurinn með litlu tjörninni var þó sennilega toppurinn og þótt systurnar væru hógværar voru þær augljóslega stoltar af honum og deildu því með mér að hann hefði unnið til verðlauna. Þær voru líka stoltar af upp- runa sínum en þær voru Akureyr- ingar og minntust oft á gamla tíma þar. Fyrir ein jólin fékk ég að fara með Gyðu og fjölskyldu á Laugalækinn að skera út laufa- brauð og þá fékk ég að kynnast því hvernig það er gert fyrir norð- an. Kökurnar voru flattar út á marmaraplötu og þær þurftu að vera svo þunnar að æðarnar á marmaranum sæjust í gegn. Svo var skorið út eftir kúnstarinnar reglum og þær mæðgur lögðu mikla natni í það eins og allt sem þær gerðu. Þegar ég byrjaði ung með kær- astanum mínum, sem er sambýlis- maður minn í dag, tók Dísa honum strax galopnum örmum. Eftir að við fluttum í Laugarnesið heim- sóttum við þær systur einstaka sinnum með börnin okkar og þær tóku alltaf jafn vel á móti okkur. Dísa starfaði sem fótaaðgerða- fræðingur og Haukur sagði mér stoltur frá því að hún hefði farið ein utan að læra fagið, sem hefði þótt frekar óvenjulegt á þeim tíma fyrir unga konu, og hann sagði mér líka að hún hefði verið mjög fær í sínu fagi og umsetin. Ég á mjög auðvelt með að trúa því mið- að við hvað hún gerði allt óaðfinn- anlega. Þær systurnar stofnuðu ekki fjölskyldur sjálfar en fjölskylda Hauks skipaði þeim mun stærri sess hjá þeim. Þær systur voru líka alla tíð mjög nánar og ferð- uðust saman um allan heim, á framandi slóðir og nutu lífsins. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Dísu og hún mun alltaf eiga stað í hjarta okkar fjölskyldunnar. Hvíl í friði, elsku Dísa, og inni- legar samúðarkveðjur til ykkar, elsku Haukur, Gyða, Jói, Jari og fjölskyldur. Sigrún Drífa, Árni og börn. Kær æskuvinkona mín, Vikt- oría Bryndís Viktorsdóttir, er lát- in, eftir farsælan lífsferil. Við kynntumst á Akureyri, þar sem hún bjó ásamt foreldrum sínum, Friðfinnu og Viktori, og systkin- unum, Sigrúnu og Hauki, en ég var þá í heimavist MA. Það var einhverju sinni að ein skólasystir mín á vistinni spurði mig hvort ég þekkti ekki Friðfinnu. Þegar ég svaraði neitandi, sagði hún að ég mætti til með að kynnast þeirri frábæru konu. Dreif hún mig samdægurs með sér í heimsókn til hennar. Á þeirri stundu hófust góð og dýrmæt kynni mín við Friðfinnu, en hlýja hennar og um- hyggja við okkur skólakrakkana var einstök. Í framhaldinu kynnt- ist ég Viktoríu, eða Dísu eins og við vinir hennar kölluðum hana jafnan. Eftir stúdentspróf mitt 1956 skildi leiðir og ég var einn vetur við nám í HÍ, en síðan lá leiðin til Hamborgar í háskóla- nám þar. Nokkru eftir að skólinn byrjaði hitti ég Dísu á fundi í Ís- lendingafélaginu og urðu þar fagnaðarfundir. Í ljós kom að hún bjó í sömu götu og ég, en hún vann hjá Mont Blanc-fyrirtækinu. Góð vinkona okkar, Sigrún Sveinsson, sem var í Hamborg- arháskóla eins og ég, bjó líka í götunni okkar. Haukur Guðlaugs- son, sem síðar varð maðurinn minn, bjó líka í sama hverfi og við og fannst okkur það með ólíkind- um að við, þessir Íslendingar, skyldum lenda þarna í sama hverfinu í þessari milljónaborg. Meðal ógleymanlegra minninga er ferðalag okkar Dísu í jólafríinu 1957 til þýskra vina sem buðu okkur að dvelja hjá sér um jólin í Bad-Wildungen. Haukur, bróðir Dísu, var þá við nám í Stuttgart og slóst hann í för með okkur. Átt- um við þarna dýrðardaga hjá ynd- islegu fólki og kynntumst þýskum jólum. Þegar Dísa flutti sig um set og fór til Kaupmannahafnar í nám skildi hún eftir sig skarð og sakn- aði ég hennar mikið. Hún fór þar að nema það fag er varð hennar ævistarf, fótaaðgerðir. Hún lagði mikla alúð við starfið og var alla tíð ein sú færasta og eftirsóttasta á sínu sviði hérlendis og vísuðu læknar oft sjúklingum sínum til hennar til meðhöndlunar. Samfundir okkar urðu strjálli með árunum, en vináttan hélst alltaf hin sama. Sérlega minnis- stæð er mér heimsókn Dísu og fjölskyldunnar til okkar Hauks á Akranes, þegar við bjuggum þar, en þau voru að koma frá Akureyri. Ég minnist líka góðra stunda hér í Reykjavík með Dísu, og einnig Sigrúnu systur hennar, og ógleymanlegs brúðkaups Hauks og Gyðu. Samheldni fjölskyldunn- ar alltaf svo einstök. Við hjónin, Haukur og ég, kveðjum Viktoríu Bryndísi með þökk fyrir kynnin og vináttuna. Grímhildur Bragadóttir. Það mun hafa verið í byrjun áttunda áratugarins, sem ég fór fyrst til fótaaðgerðakonunnar Viktoríu Viktors, eins og hún var jafnan kölluð. Þá höfðu foreldrar mínir verið nokkurn tíma hjá henni. Við höfðum frétt af henni og stofu hennar hjá heimilisvini okkar, Emil Jónassyni frá Seyð- isfirði, en dóttir hans, Anna Katr- ín, og Viktoría voru góðar vinkon- ur. Ég hafði verið slæm í fótunum, en meðferð hjá Viktoríu breytti öllu, og eftir það var ég fastur við- skiptavinur hennar, uns hún hætti störfum. Það var mikil eftirsjá að henni, því að hún var bæði vand- virk og mjög vel að sér um allt, sem sneri að fótum og ýmiss kon- ar meinum í þeim. Við urðum líka ágætar kunningjakonur með ár- unum og spjölluðum jafnan margt saman, meðan hún var að sinna fótsnyrtingunni. Hvað sem á bját- aði, fótsveppir, líkþorn eða annað – hún kunni ráð við öllu. Það var líka gaman að tala við hana, því hún hafði gott skopskyn og var skemmtileg, en var líka vel lesin og fjölfróð kona á ýmsum sviðum, og mér heyrðist við eiga mörg sameiginleg áhugamál, og náðum vel saman. Ég talaði alltaf öðru hverju við hana, eftir að hún var hætt störf- um, og alltaf þegar við hittumst einhvers staðar, eins og í sjúkra- þjálfun, og það var alltaf jafn yndislegt að hitta hana og tala við. Að vísu hafði ég ekki mikið sam- band við hana hin síðari árin, en ég mun sakna hennar, þegar hún hefur yfirgefið þetta jarðlíf. Þegar ég nú kveð hana hinstu kveðju, þá er efst í huga mér inni- legt og einlægt þakklæti fyrir fót- snyrtinguna, svo og góða og gjöf- ula viðkynningu og vináttu í gegnum árin, og bið henni allrar blessunar Guðs, þar sem hún er nú, um leið og ég votta Hauki bróður hennar og öðrum aðstand- endum mína innilegustu samúð. Blessuð sé minning Viktoríu Bryndísar Viktorsdóttur. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Kveðja frá Zonta-klúbbi Reykjavíkur Látin er kær zonta-systir, Vikt- oría B. Viktorsdóttir, eftir lang- varandi veikindi. Hún starfaði í Zonta-klúbbi Reykjavíkur í tæp 40 ár. Hún var allan þann tíma virk og mikils metin innan Zonta- hreyfingarinnar og trú markmið- um og hugsjón alþjóðahreyfingar Zonta sem er mannúðarfélag til að styrkja stöðu, hag og menntun kvenna á heimsvísu með háleit, siðræn gildi að leiðarljósi. Viktoría fæddist og ólst upp á Akureyri í samheldinni fjölskyldu. Systkinin þrjú voru óvenjunáin alla ævi og á þeim mátti sjá metn- aðarfulla lífsstefnu sem þau ólust upp við í foreldrahúsum. Viktoría starfaði sem löggiltur fótaaðgerðasérfræðingur eftir að hún lauk sérnámi í þeirri sérgrein í Danmörku og rak hún eigin stofu á Klapparstíg 27 í Reykjavík í 40 ár. Áður stundaði hún nám við Samvinnuskólann og starfaði síð- an við skrifstofustörf í Sviss um tíma. Viktoría var í raun brautryðj- andi í samfélaginu á sínu sérsviði í fótaaðgerðum. Hún var nákvæm, vandvirk, traust og lausnamiðuð, sem voru eiginleikar sem nýttust henni vel í störfum innan Zonta- hreyfingarinnar en þar gegndi hún ýmsum trúnaðarstörfum í nefndum klúbbsins á fjórða ára- tug. Viktoría var óvenjuglaðvær og skemmtileg zonta-kona. Konur í Zonta-klúbbi Reykja- víkur kveðja Viktoríu með virð- ingu og þökk fyrir samfylgdina og þakka henni hlutdeild hennar í mikilvægu starfi klúbbsins. Að leiðarlokum sendum við fjöl- skyldu hennar og ástvinum inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Viktoríu B. Viktorsdóttur. Fyrir hönd Zonta-klúbbs Reykjavíkur, Helga Hannesdóttir. Viktoría Bryndís Viktorsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.