Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 ✝ Margrét Þor-björg Jafets- dóttir fæddist 24. maí 1931 í Reykja- vík. Hún lést 18. febrúar 2021 að hjúkrunarheim- ilinu Eir í Grafar- vogi. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jafet Hjartarson vél- stjóri, f. 26.5. 1906, d. 4.3. 1992, og Björg Guð- mundsdóttir húsmóðir, f. 13.3. 1908, d. 31.1. 1957. Yngri syst- kini Margrétar eru Guðmundur, Hjördís og Áslaug. Guðmundur og Áslaug eru nú látin. Þann 13. mars 1954 giftist Margrét Óskari Ólafssyni, f. 14.5. 1931, frá Hurðarbaki í Svínadal. Foreldrar hans voru Ólafur Daníelsson, f. 4.4. 1895, d. 14.3. 1967, og Þórunn Magn- úsdóttir, f. 1.10. 1896, d. 24.9. 1990. Systkini Óskars eru Magn- ús, Sigríður, Ingólfur, Steinunn Daníellína og Árni. Magnús og Sigríður eru nú látin. Börn Margrétar eru: Skúli Þórólfsson, Elín Þórólfs- dóttir, maki Guðjón Ágústsson, börn þeirra eru Bryndís Hekla, Bergur Ingi og Breki Þór. Mar- grét Þórólfsdóttir, sambýlis- maður Ófeigur Ragnarsson. Bryndís Þórólfsdóttir. 4) Hrafnhildur Óskarsdóttir, fædd 1957, maki Jens G. Jens- son. Börn þeirra eru Jóhanna Ósk Jensdóttir, maki Atli Már Markússon, börn þeirra eru Ívar Ingi og Karen Erla. Rakel Jens- dóttir, maki Andrés Ingason, börn þeirra eru Jens Ingi, Ka- milla Ósk og Jökull Andrés. Þór- unn Jensdóttir, maki Guð- mundur Karl Gautason, börn þeirra eru Katla, Rakel Brynja og Karlotta. Barnabörnin eru því orðin 14 og langömmubörnin 21. Margrét ólst upp í Reykjavík og á Bíldudal. Þau Óskar hófu búskap í Skipasundi og bjuggu lengi á Langholtsvegi eða þar til börnin voru burtflutt, fluttu þá í Álftamýri, síðar í Ársali í Kópa- vogi en síðast að Eir í Grafar- vogi. Margrét lauk prófi frá Ingimarsskóla og hefur sótt hin ýmsu námskeið sér til frekari menntunar. Mar- grét vann við verslunarstörf, m.a. hjá KRON og Ziemsen. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 4. mars 2021, klukkan 13. 1) Björg Þor- steinsdóttir, fædd 1952. Börn hennar eru Margrét Guð- jónsdóttir, unnusta Hulda Snæberg Hauksdóttir. Börn Margrétar eru Ar- on Logi og Jóhanna Björg. Berglind Guðjónsdóttir, sam- býlismaður Andri Már Helgason, börn þeirra eru Daníel Kári, Guðjón Frosti og Emilia Rakel. Stein- grímur Jón Guðjónsson, maki Mingming Shi. 2) Jafet Óskarsson, fæddur 1954, maki María Hrund Sigur- jónsdóttir. Börn þeirra eru Linda Margrét Jafetsdóttir, börn hennar eru Óðinn Freyr, Björn Grétar og Óskar Þór. Eva Dögg Jafetsdóttir, maki Álfheið- ur Björk Sæberg Heimisdóttir, börn þeirra eru Sindri Sæberg og Sara Sæberg. Óskar Jafets- son og Sigrún Jóna Jafetsdóttir. 3) Þórólfur Óskarsson, fædd- ur 1955, maki Kristjana Skúla- dóttir. Börn þeirra eru Egill Magga, tengdamamma mín til 45 ára, er látin tæplega níræð. Hún var há og dökk yfirlitum, myndarleg kona og verklagin. Þegar ég fór að venja komur mínar á Langholtsveginn var allt- af gert ráð fyrir manni í mat og spjall. Minnist ég sérstaklega lærissneiðanna og kótelettanna sem biðu manns oft um helgar, einstaklega ljúffengar. Sumarbústaðaferðir heilluðu Möggu og Óskar og var farið í nokkrar með okkur unga fólkið og alltaf mjög gaman. Magga og Óskar festu síðan kaup á sum- arbústaðalandi og húsi í Gríms- nesinu, sem þau nefndu Selið, og urðu ferðir þangað tíðar með barnabörnin og var iðulega gist þegar þau voru lítil, öllum til mik- illar ánægju. Magga var mikil föndurkona og Óskar mikill garðyrkjumaður og bar sumarbústaðurinn og um- hverfi hans þess merki. Búið að gera fígúrur úr trjágreinum og steinum og ýmsu tilfallandi og skreyta allt umhverfið og dafnaði lóðin vel og varð að miklum og fal- legum gróðurreit með árunum. Þar voru m.a. ræktuð jarðarber og var mjög spennandi fyrir barnabörnin að fara með ömmu sinni og afa að tína þau og borða. Magga og Óskar héldu jólaboð á jóladag til fjölda ára og voru það heljarinnar veislur með fjölda manns, miklum mat og um- ræðum. Þetta hefur verið gífur- leg vinna við undirbúning en aldr- ei talaði Magga um það, enda ekki að telja eftir sér verkin. Einnig var börnum og fjölskyldum þeirra boðið í þorra- mat í mörg ár þar sem allar teg- undir þorramatar voru á borðum og var súr hvalur þeirra aðal og mátti aldrei sleppa honum enda kynntust þau í Hvalstöðinni. Pabbi Möggu hafði unnið þar til fjölda ára og auk þess var Óskar úr Svínadalnum næstu sveit við, miklar tengingar við Hvalfjörð- inn. Magga átti afmæli í maí eins og Óskar og var iðulega boðið til af- mælisveislu í bústaðinn í heima- bakkelsi og grill. Magga var einstaklega minnug alveg til hins síðasta. Mundi t.d. alla afmælisdaga barna og tengdabarna (8), barnabarna (14) og barnabarnabarna (21). Ekkert smá gott minni og alltaf mætt með afmælispakka. Einnig hafði hún til siðs á sumardaginn fyrsta að gefa öllum barnabörnum sokkapar í sumargjöf, fallegur siður. Magga var alveg sérstaklega skipulögð og geymdi hún allt í röð og reglu og merkt börnum sínum. Hafði hún t.d. geymt slaufur og bindi sem maðurinn minn, Þór- ólfur, átti þegar hann var strákur ásamt Matchbox-bílum og er þetta nú komið í eigu ömmu- stráka okkar og nýtt af þeim í dag. Enda spurði annar þeirra þegar hann sá mynd af afa sínum litlum með eina slaufuna hvort hann ætti ekki líka enn þá jakk- ann sem hann var í á myndinni. Sjón Möggu hrakaði mjög hin seinni ár, sem var mikil synd þar sem hún var svo mikil handa- vinnu- og föndurkona, en þrátt fyrir það hélt hún áfram að sauma út í púða fyrir nýfædd barnabarnabörn. Hvíl í friði Magga og takk fyrir allar góðu minningarnar og hjálp- semina í gegnum árin. Kristjana Skúladóttir. Elsku Magga amma. Við munum þær góðu stundir sem við áttum með þér, þá sér- staklega í Álftamýrinni og í sum- arbústaðnum ykkar afa á Kóngs- veginum í Grímsnesi. Við vorum nokkuð heppnar að eiga ömmu sem var til í að fá okkur í pössun og leika við okkur. Oft var farinn labbitúr í Kringluna og þar var oft stoppað í Ótrúlegu búðinni og þar máttum við velja eitthvað fal- legt. Síðan var farið í Hagkaup og keyptur Royal-búðingur. Því næst var farið til baka í Álftamýr- ina og við fengum að hræra í búð- ing sem var svaka sport. Oft var farið í tilraunastarfsemi þar sem það þótti ekki nóg að hræra bara í einn búðing heldur var búinn til regnbogi úr tveimur eða þremur mismunandi gerðum af Royal- búðingum. Royal-búðinga nafnið var einnig þó nokkuð í stíl við þig þar sem þú hélst mikið upp á kóngafólkið og vissir alltaf hvað var að frétta þaðan. Síðan spil- uðum við oftast og þar þótti okk- ur langskemmtilegast að fara með þér í laumu. Þú varst einnig nokkuð lunkin spilakona og hélst okkur systrum við efnið, auk þess sem þú kenndir okkur fleiri spil. Heima fyrir varstu með skemmtilegt herbergi þar sem þú varst með allt sauma- og föndur- dótið þitt að ógleymdum öllum parastyttunum sem þú safnaðir sem við nutum góðs af og vorum við þar oft í leik sem hét að fela hlut. Þú varst mikil prjóna- og saumakona, passaðir upp á að við ættum alltaf falleg pör af vett- lingum og sérstaklega tátiljum. Við vorum einnig svo heppnar að eiga ömmu og afa sem áttu sumarbústað. Í sumarbústaðnum var alltaf svo ótrúlega gaman. Sérstaklega þegar þið afi sóttuð okkur systur út í Skerjó og við fengum að fara einar með ykkur í Grímsnesið. Þar var alltaf byrjað á því að sækja álfana og annað puntudót og við hjálpuðumst að við að raða því niður á sína staði, þar sem hver hlutur átti sinn stað. Síðan fylgdumst við með fuglunum heilsa upp á allt dótið og baða sig í körunum. Við vorum mikið úti, þið að gera og græja og við að leika okkur ýmist í Litla- Seli, í dekkjarólunni eða í felu- og eltingaleik í „skóginum“. Svo munum við eftir gómsæta matn- um og þá sérstaklega í kaffitím- anum þegar amma opnaði köku- skápinn og valdi eina köku þar úr. Þær voru allar hver annarri betri. Þegar á kvöldin leið sagðir þú okkur ýmist sögu um konuna sem bjó hjá ykkur í bústaðnum eða sögur frá því þegar þú varst lítil stelpa og við gæddum okkur á nýtíndum jarðarberjum úr garð- inum með rjóma og sykri. Amma var einstaklega góð- hjörtuð og vildi öllum vel, hress og skemmtileg. Þér fannst ekkert skemmtilegra en að fá að heyra hvað maður væri að gera í lífinu. Einnig varstu einstaklega minnug og sagðir oft sögur frá því í gamla daga og hvernig lífið hafði verið þá, á hvaða staði þú hefðir komið og þess háttar. Við minnumst þín með gleði, hlátri og góðum minningum og verðum ævinlega þakklátar fyrir allan þann tíma sem við áttum með þér. Hvíl í friði, elsku amma. Þínar Margrét og Bryndís. Margrét, fyrrverandi tengda- móðir mín, er látin í hárri elli. Að ná svo háum aldri er ekki sjálf- gefið en Margrét var alla tíð and- lega ern og hafði vissulega viljann til að lifa áfram en líkaminn var að þrotum kominn og sjónin horf- in. Nú er vegferð hennar lokið en minningarnar lifa. Einangrun síðastliðins árs átti illa við Margréti, því hún var ein- staklega félagslynd og hafði yndi af að hitta og spjalla við unga sem aldna. Þau Óskar voru alls staðar aufúsugestir og áhugasöm um að mæta þegar eitthvað stóð til í fjöl- skyldunni eins og afmæli, skírn, útskrift eða á öðrum tyllidögum og sjálf voru þau hjónin skemmti- leg heim að sækja. Margrét sýndi afkomendum sínum einlægan áhuga og fylgdist vel með hvað hver og einn tók sér fyrir hendur í námi, starfi, ferðalögum eða barneignum. Það átti því ekki vel við hana að geta hvorki komist úr húsi né tekið á móti heimsóknum. Börn mín og Bjargar dáðu ömmu sína og þótti undurvænt um hana. Hún sáði hjá þeim fræj- um, sem munu halda áfram að spíra og dafna um ókomna tíð og vera þeim gott veganesti. Meðal góðra minninga sem skjóta upp kollinum er samvera í sumar- bústaðnum í Grímsnesinu þar sem Óskar hafði byggt lítinn leik- kofa fyrir barnabörnin og ótal munir, sem Margrét hafði föndr- að, voru út um allt og börn máttu leika með og skoða að vild. Ég er einlæglega þakklátur fyrir samfylgdina og við Jóhanna vottum Óskari og afkomendum innilega samúð okkar. Guðjón Steingrímsson. Margrét Þorbjörg Jafetsdóttir ✝ Ásgerður fædd-ist 6. janúar 1940 á Borg á Djúpavogi. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Eir þann 10. febrúar 2021. Foreldrar henn- ar: Guðfinna S. Gísladóttir, f. 21.11. 1902, d. 09.04. 1984, og Ásmundur Guðnason, f. 24.02. 1908, d. 26.11. 1982. Bræður Ásgerðar eru Örn Ás- mundsson, f. 04.05. 1932, d. 25.09. 2016, og Guðni Ásmunds- son, f. 09.09. 1938. Börn Ásgerðar eru: Kristín Hreinsdóttir, f. 02.11. 1960, maki: Sigurður Viðar Jón- asson, f. 21.12. 1963. Börn þeirra eru 2: Ari Viðar Sigurðarson, maki Dagný Ósk Axelsdóttir. grét á fjögur barnabörn. Hrefna Hreinsdóttir, f. 27.02. 1968, maki: Stefán Axelsson, f. 19.10. 1966. Börn þeirra eru tvö: Harpa Lind Stefánsdóttir, sambýlismaður: Ingimundur S. Sverrisson. Axel Gerðar Stefánsson. Hrefna og Stefán eiga eitt barnabarn. Ás- mundur Sveinsson, f. 03.08. 1970, sambýliskona: Þorgerður Guð- mundsdóttir, f. 16.11. 1979. Ás- mundur á fjögur börn úr fyrri sambúð og Þorgerður þrjú börn úr fyrri sambúð: Benedikt Daníel Ásmundsson, Katla Margrét Ás- mundsdóttir, maki: Hjörtur Við- ar Guðmundsson. Sæbjörg Ás- mundsdóttir. Björn Þór Ásmundsson. Smári Berg Þor- gerðarson. Þórunn Fjóla Jóns- dóttir. Hólmgeir Örn Jónsson. Ásmundur á tvö barnabörn. Þor- björn Gerðar Þorbjörnsson, f. 21.07. 1976, maki: Dögg Ingi- mundardóttir, f. 18.02. 1984. Börn þeirra eru tvö: Birna Rós Þorbjörnsdóttir. Gerðar Freyr Þorbjörnsson, úr fyrra sambandi á Þorbjörn Gerðar soninn Róbert Halldór Þorbjörnsson, úr fyrra sambandi á Dögg börnin Victor Breka Björgvinsson og Kareni Ingu Björgvinsdóttur. Ásgerður ólst upp á Djúpa- vogi til 5 ára aldurs, þá fluttu foreldrar hennar með börnin til Reykjavíkur, þar gekk Ásgerður í Laugarnesskóla og lauk þar gagnfræðaprófi. Ásgerður sótti Húsmæðraskólann á Staðarfelli, þaðan útskrifaðist hún vorið 1960. Ásgerður hefur starfað við ýmis störf eins og síldarævintýri á Raufarhöfn, búrekstur á Þver- dal í Saurbænum, fiskverkun í Ísbirninum, sem dagmóðir, á kvennadeild Landspítalans og síðast starfaði hún hjá Gatna- málastjóra við Jafnasel í Breið- holti, þar varð hún að láta af störfum vegna veikinda. Um haustið 2014 flutti Ásgerð- ur á stoðbýlið í Foldabæ, þar sem henni leið vel, því miður staldraði hún ekki lengi við, því alzheimer- sjúkdómurinn gekk hart að henni og var því flutt á Hjúkr- unarheimilið Eir, þar sem hún fékk mjög góða aðhlynningu hjá starfsfólkinu á deild tvö Norður. Útför Ásgerðar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðfinna Sigurveig Sigurðardóttir, maki: Davíð Rúnar Benjamínsson, Krist- ín og Sigurður eiga sex barnabörn og eitt stjúp-barnabarn. Guðrún Hreins- dóttir, f. 15.10. 1961, maki Friðbjörn Ósk- arsson, f. 14.05. 1959. Börn þeirra eru þrjú: Óskar Að- alsteinn Friðbjarnarson, sam- býliskona: Monika Nilsson. Ás- gerður Friðbjarnardóttir, maki: Sveinn Jónasson. Stefán Frið- bjarnarson, sambýliskona: Kristín Ósk Guðmundsdóttir. Guðrún og Friðbjörn eiga sjö barnabörn. Margrét Guðfinna Hreinsdóttir, f. 09.01. 1963. Margrét á eina dótt- ur. Hildur Björk Margrétardóttir, maki: Pétur Þormóðsson, Mar- Ég veit ekki hvort er verra, að missa systkini skyndilega í slysi eða að horfa upp á manneskju tærast upp smátt og smátt. Það var virkilega erfitt að horfa upp á ömmu mína hverfa inn í heim þessa sjúkdóms - sjúkdóms sem rændi frá mér ömmu minni - sjúk- dóms sem hefur áhrif á alla, ekki bara sjúklinginn - sjúkdóms sem hefur öll völdin og skelfir alla í kringum sig. En ég ætla þó ekki að leyfa þessum örlögum alzheim- er-sjúkdómsins að hafa neikvæð áhrif á mig. Ég vil halda í þær góðu minningar sem ég hef um ömmu Ásgerði. Allar bílferðirnar okkar á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, þar taldir þú upp öll heiti á hverju fjalli sem lá á leið okkar, enda hafðir þú einstakan áhuga á fjöll- um Íslands. Þaðan tel ég minn áhuga á fjallgöngu koma, og mun ég ganga mörg fjöll og færð þú að fylgja mér upp á hvert og eitt ein- asta, fylgir mér í hjartanu mínu. Á þessum bílferðum okkar jöpl- uðum við á rauðum Ópal og gæddum okkur einnig á Góu- karamellukúlum. Ristaða brauðið, smjörvinn og osturinn sem var skorinn með ein- hverjum töfraostaskera, það er ekkert ristað brauð eins og var hjá þér, það var eitthvað sérstakt við það, og höfum við barnabörnin ekki alveg áttað okkur á hvað það er en öll erum við sammála um að ristaða brauðið hjá þér var ein- stakt, einfaldlega best. Þér þótti skemmtilegt að spila lúdó og einnig slönguspilið, marg- ir spilaleikir voru spilaðir þegar við heimsóttum þig. Síðastliðin ár varstu á Hjúkr- unarheimilinu Eir og þótti mér einstaklega notalegt að koma til þín þangað. Hlustuðum á Ellý á meðan ég nuddað hendurnar þín- ar og bar á þig andlitskrem, gæddum okkur á After eight og rauðum Ópal, það þótti þér ein- staklega gott og þykir mér ofboðs- lega vænt um þær stundir. Síðasta hálfa árið fékk ég ekkert að hitta þig vegna Covid, það þótti mér of- boðslega erfiður tími, ég var ósátt við ákvörðun Þórólfs að loka svona á aldraða, en þegar deildin var aft- ur opnuð fyrir okkur þá lét ég mig ekki vanta, mér þykir einstaklega vænt um heimsóknina sem var mín lokaheimsókn þann 29. janúar síðastliðinn, þú varst svo veik- burða og verkjuð elsku amma mín, nú ertu komin á betri stað, í faðm móður þinnar. Takk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman elsku amma, takk fyrir hlýjuna sem þú gafst mér og takk fyrir fróðleikinn sem þú kenndir mér. Hvíl í friði. Þín nafna, Ásgerður. Ásgerður Ásmundsdóttir Elskulegur eiginmaður og faðir okkar,SIGURÐUR SIGVALDASON verkfræðingur, Hvassaleiti 103, lést aðfaranótt sunnudagsins 28. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Sigrún Magnúsdóttir Sigurður, Ragnheiður, Solveig og Magnús Sigurðarbörn Ástkær eiginmaður og faðir, ARMANDO BEQIRAI, lést sunnudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram í Grafarvogskirkju föstudaginn 5. mars klukkan 15. Þóranna Helga Gunnarsdóttir Alexander Beqirai Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, systir og mágkona, HANSÍNA BJARNADÓTTIR, Kristnibraut 77, lést á heimili sínu 24. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 8. mars klukkan 13. Aðstandendur og vinir eru velkomnir, en athöfninni verður einnig streymt og verður hægt að nálgast virkan hlekk á mbl.is/andlat. Bestu þakkir til þeirra sem litu eftir og aðstoðuðu Hansínu heima fyrir, heilbrigðisstarfsfólks og góðra nágranna. Rut Kristinsdóttir Jóhann Björgvinsson Oddur Einar Kristinsson Sigurbjörg Fjölnisdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.