Morgunblaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
✝ RagnhildurGuðlaug Páls-
dóttir fæddist á
Gilsárstekk í Breið-
dal 11. mars 1942.
Hún lést 10. febrúar
2021 á Hrafnistu við
Sléttuveg.
Foreldrar henn-
ar voru Páll Guð-
mundsson frá Gils-
árstekk í Breiðdal,
bóndi og hrepp-
stjóri, f. 1907, d. 1972, og Hlíf
Petra Magnúsdóttir, fædd á
Skriðustekk í Breiðdal, húsfreyja
og organisti, f. 1908, d. 2007.
Bræður Ragnhildar eru: Baldur,
f. 1934, og Magnús, f. 1936.
Þann 11.3. 1962 giftist Ragn-
hildur Róberti Kárasyni, f. 1939,
d. 2007. Þau slitu samvistir.
Ragnhildur og Róbert eign-
uðust fjögur börn: 1) Hlíf Harpa,
f. 1962, sambýlismaður Stefán
Rúnar Garðarsson. Börn Hörpu
eru: a) Sandra Ýr, f. 1989, gift
Aaroni Zarabi. Sonur Söndru er
Baltasar Tindur Björgvinsson, f.
2010. b) Róbert Freyr, f. 1991,
sambýliskona Eva Karen Ástu-
dóttir. Þeirra sonur er Kári Páll,
f. 2017. c) Alex Freyr, f. 1997,
kærasta Birta Guðlaugsdóttir. 2)
Rafn starfaði hjá Reiknistofu
bankanna. Foreldrar hans: Her-
mann Bjarnason, f. 1930, d. 2001,
og Elísabet Kristjánsdóttir,
f.1935. Þau voru bæði frá Þing-
eyri.
Ragnhildur ólst upp á Gilsár-
stekk í Breiðdal. Eftir barna-
skóla fór hún 17 ára gömul til
náms í Húsmæðraskólann á
Laugalandi í Eyjafirði. Ragnhild-
ur var kokkur á bát eitt sumar og
bjó síðan á Akureyri og vann í
Kristjánsbakaríi. Árið 1962 sett-
ist hún að á Breiðdalsvík ásamt
Róberti fyrri eiginmanni sínum.
Meðfram húsmóðurstörfum vann
Ragnhildur í Útvegsbankanum
og var síðar forstöðumaður
Landbankans á Breiðdalsvík í
mörg ár þar til hún flutti til
Reykjavíkur árið 1991. Hún
starfaði lengst af í Landsbank-
anum í Mjódd og á Seltjarn-
arnesi. Síðustu starfsárin vann
hún m.a. við umönnun þríbura-
drengja og í eldhúsinu á Vestu-
götu 7.
Ragnhildur hafði mikinn
áhuga á tónlist, söng og ferðalög-
um. Á árum áður söng hún með
Kirkjukór Breiðdals og síðar
Samkór Stöðvarfjarðar og Breið-
dals. Ragnhildur ferðaðist mikið
innanlands og einnig út um allan
heim með Rafni eiginmanni sín-
um. Hún sat um árabil í stjórn
Félagsins Ísland-Ungverjaland.
Útförin fór fram frá Seltjarn-
arneskirkju 22. febrúar 2021, í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Arna Vala, f. 1966,
gift Elíasi Má Hall-
grímssyni, f. 1965.
Börn þeirra eru: a)
Thelma Rut, f. 1990,
sambýlismaður
Grímur Már Þór-
ólfsson, hans dóttir
Árný Lea, f. 2010. b)
Tinna Heiðdís,
f.1996, kærasti
Nicholas Steiner. c)
Kári Kristófer, f.
1999, kærasta Halldóra Róberts-
dóttir. 3) Páll, f. 1967, kvæntur
Auði Sólmundsdóttur, f. 1970.
Börn þeirra eru: a) Karen, f.
1993, b) Kristjana, f. 1997, d.
1997, c) Kristján Daði, f. 1998, d)
Auður Ósk, f. 2007. Dóttir Páls
frá fyrra sambandi er Ragnhild-
ur, f. 1987, sambýlismaður Hlíð-
ar A. Sigurðsson. Þeirra dóttir er
Áróra Draumey, f. 2019. Dóttir
Ragnhildar frá fyrra sambandi
er Magdalena Guðfinnsdóttir, f.
2010. 4) Heiðdís Ellen, f. 1972.
Sonur hennar er Gabriel Arnar
Amador Losada, f. 1999, kærasta
Svala Björgvinsdóttir.
Eftirlifandi eiginmaður Ragn-
hildar er Rafn Hermannsson, f.
1953. Þau hófu sambúð árið 1992
og gengu í hjónaband 16.12.2000.
Elsku mamma okkar lést þann
10. febrúar á fæðingardegi Krist-
jönu, sonardóttur sinnar, en hún
lést aðeins fimm vikna gömul.
Okkur finnst táknrænt að mamma
hafi kvatt á þeim degi. Það var eins
og hún biði eftir því að dagurinn
rynni upp og að hún hafi fengið lít-
inn engil í fangið á kveðjustund-
inni.
Mamma talaði alltaf af mikilli
hlýju um æskuárin sín. Hún var
mikil pabbastelpa og þótti best að
vera úti og hjálpa til við bústörfin.
Henni þótti vænt um dýrin og
sagði okkur margar sögur um kis-
una sína og hundinn Bolla.
Mamma las mikið, bæði sögur og
ljóð og hafði mikinn áhuga á tón-
list.
Hún spilaði á orgel á árum áður,
einnig spilaði hún oft á gítar og
söng fyrir okkur systkinin á
bernskuárum okkar.
Við eigum mjög góðar minning-
ar frá árunum okkar á Breiðdals-
vík, hjá mömmu og pabba áttum
við yndislegt heimili, bjuggum við
öruggt skjól, ást og umhyggju.
Mamma hafði mikla ánægju af
því að ferðast jafnt innanlands sem
utan. Henni þótti afar vænt um
landið sitt og hafði komið víða.
Mamma og Rafn, eiginmaður
hennar, ferðuðust um heim allan.
Þau höfðu farið vítt og breitt um
Evrópu, N- og S-Ameríku og
heimsóttu einnig mörg fjarlæg
lönd í Asíu og fóru til Suður-Afr-
íku. Það var gaman að skoða
myndir og hlusta á hana segja frá
þessum ævintýralegu ferðalögum.
Það er dásamlegt að hugsa til
þess að mamma, sem alltaf hafði
svo mikla ferðaþrá, fékk að upplifa
drauminn sinn.
Mamma var alltaf til staðar fyr-
ir okkur börnin sín, var okkar stoð
og stytta í gegnum hvað sem var,
ávallt reiðubúin að rétta fram
hjálparhönd. Hún var einstaklega
ráðagóð í hverju sem var og við
vissum svo vel að við gátum treyst
hennar ráðum og visku.
Fyrir það erum við henni ævin-
lega þakklát. Mamma var mikil
kjarnakona, hún var glaðlynd,
brosmild og alltaf hún sjálf. Talaði
ávallt frá sínu hjarta, var einlæg,
sönn og laus við alla tilgerð.
Mamma var dugleg að búa til
dýrmætar samverustundir með
allri fjölskyldunni. Hún var með-
vituð um að lifa „í núinu“ eins og
stundum er sagt og vildi ekki
fresta því sem maður getur gert
núna.
Eftir að mamma greindist með
Parkinson-sjúkdóminn fyrir tæp-
um tíu árum lét hún ekkert stöðva
sig, hélt áfram að ferðast út um allt
með Rafni og var áfram dugleg að
ganga og hreyfa sig. Hún fluttist á
Hrafnistu við Sléttuveg fyrir ári
síðan en þá var heilsunni mikið far-
ið að hraka. Það var mjög erfitt að
mega ekki heimsækja hana eins oft
og við vildum vegna veirunnar.
Hver
samverustund varð því enn dýr-
mætari fyrir vikið og við reyndum
að standa um mömmu styrkan
vörð allt þar til yfir lauk.
Elsku hjartans mamma. Við
systkinin munum vanda okkur og
reyna að ganga til góðs götuna
fram eftir veg, eins og þú hefðir
gert.
Við erum full þakklætis fyrir að
hafa átt þig sem móður. Sorgin og
söknuðurinn eru mikil, en við
huggum okkur við allar góðu
minningarnar, gleðina, ástina og
hamingjuna sem við áttum með
þér.
Þú verður ætíð með okkur í
huga og hjarta hvert sem lífið mun
leiða okkur.
Krjúptu að fótum friðarboðans,
fljúgðu á vængjum morgunroðans,
meira að starfa Guðs um geim.
(Jónas Hallgrímsson)
Þín börn,
Hlíf Harpa, Arna Vala, Páll
og Heiðdís Ellen.
Elsku amma Ugla.
Það var alltaf svo gott að vera
hjá þér, þú bakaðir alltaf pönnu-
kökur, spilaðir við okkur og teikn-
aðir með okkur, fórst á kríuvarpið
og í bíltúr að skoða allar flottu
stytturnar í Reykjavík.
Alltaf varst þú svo góð amma
og vildir allt fyrir okkur gera, það
var svo gaman að vera hjá ykkur
og fara í alla skemmtilegu göngu-
túrana, þú labbaðir á göngustígn-
um og við krakkarnir hoppuðum á
steinunum við sjóinn á Nesinu.
Það var svo gaman að þú faldir
alltaf fyrir okkur aukapakka í jóla-
boðinu og þið afi komuð alltaf með
eitthvað lítið dót í heimsókn og
laumuðuð að okkur. Við elskum
líka báðir jólasveinana sem þú
safnaðir og okkur finnst svo gam-
an að heyra sögurnar af Grýlu og
Leppalúða sem þér fannst svo
skemmtilegt að segja frá. Jólin
voru svo skemmtileg hjá þér
amma.
Elsku amma Ugla, við munum
sakna þín svo mikið, amma Harpa
og mamma og pabbi munu segja
okkur sögurnar þínar og frá öllum
þeim löndum sem þú heimsóttir
með afa.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Við elskum þig alltaf,
Baltasar Tindur og Kári Páll.
Það er með mikilli sorg í hjarta
sem við kveðjum elsku hjartans
ömmu Ragnhildi í síðasta sinn.
Þegar við vorum börn þá komum
við svo oft til ömmu og afa Rafns á
Eiðistorgið og eigum margar
ógleymanlegar minningar frá
þeim tíma. Amma var einstaklega
hlý og góð manneskja, full af kær-
leika. Brosið hennar og faðmlög
fylltu okkur öryggi og að koma til
hennar var alltaf eins og að koma
heim. Það var alltaf best að gista
hjá ömmu og fá kjúkling í kvöld-
matinn, allra best var að dýfa
brauði í soðið. Það var gaman að fá
að hjálpa til við að baka pönnukök-
ur og vöfflur, leggja á borðið og
borða saman. Amma gaf sér alltaf
svo mikinn tíma til að spjalla við
okkur, teikna, spila og bara vera
með okkur. Við fórum margar
skemmtilegar ferðir með ömmu og
afa Rafni út á Gróttu, lékum okkur
í fjörunni og fylgdumst með fugla-
lífinu á Bakkatjörn. Amma fór
með okkur í margar gönguferðir á
Seltjarnarnesi og þó við værum
bara að labba yfir í Hagkaup þá
var það samt alltaf hið mesta æv-
intýri með ömmu. Á þessari
stundu koma einnig upp í hugann
allar samverustundirnar og veisl-
urnar í sumarbústöðum víða um
land. Jóladagsboðin á Eiðistorginu
Ragnhildur
Guðlaug Pálsdóttir
Stefán Árnason
var einstakur maður.
Sem æskuvinkonur
Bryndísar kynnt-
umst við Stefáni snemma á lífsleið-
inni og allar götur síðan hefur hann
fylgst með okkur úr fjarska.
Við vörðum mörgum dýrmæt-
um stundum saman á Markarflöt-
inni, heimili sem einkenndist af
hlýju og virðingu. Þar sat Stefán
oft hugsi við skákborðið eða á
skrifstofunni að reikna út og upp-
færa vegalengdir dagsins á meðan
Marsibil sveif um húsið með bros á
vör. Þar sem Stefán var afar
greindur og áhugasamur maður
áttum við margar skemmtilegar og
upplýsandi samræður þar sem
stærðfræðikennarinn hafði sig all-
an við að hafa vit fyrir þremur ung-
lingsstúlkum, með misgóðum ár-
angri.
Stefán var afar auðmjúkur og
Stefán Árnason
✝ Stefán Árnasonfæddist í
Reykjavík 29. mars
árið 1944. Hann lést
af slysförum 17.
febrúar 2021. Útför
hans fór fram 1.
mars 2021.
greiðvikinn maður
sem var alltaf til taks
þegar á reyndi. Þar
sem við vinkonurnar
bjuggum allar sín í
hvorum enda bæjar-
ins þurftu feður okk-
ar ávallt að vera í
startholunum ef ske
kynni að skutla
þyrfti dömunum.
Stefán sinnti þessu
verkefni sem og öðr-
um af mikilli ábyrgð og kostgæfni.
Það brást ekki að Stefán byrjaði
allar bílferðir á því að athuga hvort
við værum ekki örugglega í örygg-
isbelti og sú skemmtilega hefð
hélst langt inn í fullorðinsaldurinn.
Stefán var alla tíð mjög virkur
og staðfastur. Gekk hann til að
mynda til og frá vinnu alla daga
óháð veðráttu. Eftir að við vinkon-
urnar fengum bílpróf reyndum við
hvað eftir annað að pikka Stefán
upp þegar við rákumst á hann á
leiðinni heim frá skólanum. Alltaf
fengum við sama svarið, að hann
vildi nú frekar ganga. Tíminn leið
og þegar orðið var auðséð að Stef-
án ætlaði sér aldrei að þiggja far
byrjuðum við að flauta á hann af
mikilli ákefð þegar við keyrðum
framhjá, honum til mikillar gleði.
Stefán var stoltur faðir og
sinnti því hlutverki af alúð. Sam-
band hans við börnin sín var alveg
einstakt þar sem hann tók virkan
þátt í lífi þeirra og sýndi þeim mik-
inn áhuga. Stefán mætti á alla
íþróttaviðburði og setti sig aldrei
upp á móti því að eyða heilu helg-
unum að safna flöskum fyrir
næsta handboltamót.
Stefán var algjör húmoristi sem
leyndi á sér. Hann sómdi sér vel í
afahlutverkinu og lét til að mynda
þýskar vatnsrennibrautir ekki
stoppa sig. Þeir góðu eiginleikar
sem hann bjó yfir endurspeglast
nú í afkomendum hans og mun
minning hans lifa um ókomna tíð.
Í þessu samhengi kemur upp í
hugann falleg mynd af feðginun-
um þar sem þau sitja saman og
fara yfir jöfnur og reikna flókin
stærðfræðidæmi fyrir próf morg-
undagsins. Öll þessi umhyggja og
stuðningur hefur án efa ýtt undir
áhuga dótturinnar á verkfræði og
ein af ástæðum þess að hún hefur
náð langt á sínu sviði.
Með söknuð í hjarta kveðjum
við Stefán og þökkum fyrir góðar
stundir. Fallegasta jafna stærð-
fræðinnar, aljafna Eulers, verður
nú án efa rituð í skýin.
Helena Eufemía
og Helga Margrét.
Ástkær eiginkona mín,
BIRNA S. GUÐJÓNSDÓTTIR,
Öldustíg 4, Sauðárkróki,
andaðist á HSN á Sauðárkróki að kvöldi
24. febrúar.
Útför fer fram frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 12. mars klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktar- og líknarsjóð
Oddfellowa.
Björn Björnsson og afkomendur
Óli Pétur
Útfararstjóri
s. 892 8947
Hinrik Valsson
Útfararstjóri
s. 760 2300
Dalsbyggð 15, Garðabæ
Sími 551 3485
osvaldutfor@gmail.com
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
HELGA GUÐRÍÐUR
FRIÐSTEINSDÓTTIR,
Hlíðarhúsum 3- 5,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 28. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar
Kristján Halldórsson
Ásdís Kristjánsdóttir Guðmundur Björgvinsson
Albert Kristjánsson Jóna Hálfdánardóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Heittelskuð móðir okkar,
UNNUR ÁGÚSTSDÓTTIR,
andaðast 26. febrúar í faðmi dætra sinna.
Hún verður jarðsungin frá Seltjarnarnes-
kirkju fimmtudaginn 11. mars klukkan 15.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu
ættingjar og vinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á
slóðinni https://youtu.be/lbqCGLLkWYE
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
Unnar er bent á vökudeild Barnaspítala Hringsins, reikningur
513-26-22241, kt. 640394-4479.
Katrín Pálsdóttir Gunnar Þorvaldsson
Lára Pálsdóttir Sveinn Kjartansson
Ingibjörg Pálsdóttir Gunnar Hermannsson
Guðrún Pálsdóttir Þórir Baldursson
Unnur Pálsdóttir Sigfús Bjarni Sigfússon
og afkomendur
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Bobba,
Bakkastöðum 73, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut
fimmtudaginn 25. febrúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 10. mars
klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á hjartadeild
Landspítalans.
Kristjana Líndal Sigurður W. Egilsson
Páll Líndal
Ingdís Líndal Hallur Illugason
Unnsteinn Líndal Steinunn A. Guðmundsdóttir
Ævar Líndal
og ömmubörnin stór og smá
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts og
útfarar ástkærs föður, tengdaföður, bróður
og afa,
GUÐMUNDAR KRISTINSSONAR
skipstjóra.
Olga Gunnarsdóttir Pétur Smári Richardsson
Kristinn Þór Guðmundsson Friðrikka Auðunsdóttir
Erlendur G. Guðmundsson Hildur Brynja Sigurðardóttir
Sigurborg Kristinsdóttir Kári Valvesson
og afabörn