Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 ✝ Villy Pedersenfæddist á Siglufirði 10. ágúst 1937. Hann lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 20. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Johan Peder- sen fisksali, f. 11.11. 1906 í Nor- egi, d. 21.11. 1968, og Stefanía Guð- mundsdóttir, f. 3.8. 1906 á Tjörnum í Sléttuhlíð, d. 21.2. 1973. Bræður Villys eru: 1) Harry Pedersen, f. 7.2. 1936, d. 21.4. 2008. 2) Guðmundur Elí Peder- sen, 9.10. 1947. 3) Hálfbróðir samfeðra er Stefán Birgir Pedersen, f.7.12. 1936. Villy giftist eiginkonu sinni, Þórunni Hönnu Júlíusdóttur, 25.5. 1959, f. 20.7. 1940, d. 1.11. 2004. Þau eignuðust 3 börn: 1) Ólafur Guðbjörn Petersen, f. 11.8. 1958, kvæntur Ingi- björgu Halldórsdóttur og eiga þau 3 börn: a) Villý Þór, barn úr fyrri sambúð er Þorvaldur Hörður, sambýliskona hans er Guðrún Helgadóttir og börn þeirra eru Ingibjörg Freyja og Ólafur Flóki. b) María Björk, gift Jóni Ara Rúnarssyni, börn þeirra eru Hildur Sif, Hekla Dís og Karen Ósk. c) Rebekka Rut, unnusti Orri Már Kristins- son og börn þeirra eru Patrekur Óli og Alexander Óli. 2) Ragnar Bogi Pedersen, f. 13.3. 1962, sambýliskona Sól- veig Sveinsdóttir. Börn Ragn- ars Boga eru: a) Sólveig Margrét, hún á tvö börn, El- ínu Ósk og Julie. Ragnar Bogi kvæntist Sæunni Sævarsdóttur, þau skildu, dóttir þeirra er b) Þór- unn Hanna, sam- býlismaður Haukur Henriksen. Sólveig á son, Kristján Frey, og sambýliskona hans er Katrín Sveina, hún á eina dótt- ur, Elsu Margréti. 3) Jóna Pedersen, f. 20.9. 1965. Barn Jónu og Péturs Ein- arssonar er Gunnhildur, unn- usti hennar er Jari Liukku og á hann fyrir son, Theodor Christ- offer. Villy ólst upp á Siglufirði til 13 ára aldurs, frá átta ára aldri var hann á síldarplaninu með móður sinni og föður. Hann starfaði hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli þar til hann fór til Eimskips sem sjómaður og síðar vaktmaður, starfaði hann þar í 49 ár samfleytt. Hann var liðtækur á sínum yngri árum í frjálsum íþróttum og spilaði auk þess körfubolta. Lengst af bjó hann í Kópa- vogi á Nýbýlavegi. Útförin fer fram frá Digra- neskirkju í dag, 4. mars 2021, klukkan 11. Stytt slóð á streymi frá út- för: https://tinyurl.com/4sver5fn/. Einnig má nálgast virkan hlekk á: https://www.mbl.is/ andlat/. Elsku pabbi og afi. Það er svo sárt að þú sért farinn frá okkur. Margar góðar minningar koma upp í hugann, allar Spánarferðirnar sem við fórum í sem þú hafðir svo gam- an af og ferðirnar til Siglu- fjarðar þangað sem þú áttir rætur þínar að rekja og frædd- ir okkur um gamla heimabæinn þinn sem þér þótti svo vænt um. Einnig koma upp í hugann allar heimsóknirnar á Nýbýla- veginn, kaffihúsaferðirnar á uppáhaldskaffihúsið þitt, Kaffi- vagninn, og bíltúrarnir um höfnina þar sem þú hafðir gam- an af því að skoða skipin. Þú varst svo skemmtilegur, fyndinn, ljúfur, góður og hafðir sterkar skoðanir á mörgum málefnum. Þú hefur alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum þar þá helst fótbolta, einnig voru krossgátur þér hugleiknar og þær erfið- ustu fórstu létt með. Það voru kaflaskil í lífi þínu þegar þú gast ekki búið lengur á heimili þínu þar sem þú hafð- ir búið í 53 ár og fluttir inn á Hrafnistu í Hafnarfirði í apríl í fyrra. Þar héldum við þín seinustu jól og er mjög sárt að hugsa til þess að þú máttir ekki vera með okkur heima vegna heims- faraldurs. Að lokum viljum við þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Við munum aldrei gleyma þér og þú munt ávallt vera í hjarta okkar. Elskum þig mest. Knús og kossar. Jóna og Gunnhildur. Þegar söknuðurinn er svona mikill verða orðin svo lítilsmeg- nug. Hvernig á maður að læra á lífið sem inniheldur þig ekki lengur? Ég var svo lánsöm að eiga þig sem afa í tæp þrjátíu ár og öll þessi ár gáfu mér svo ótal margar ómetanlegar og dýr- mætar minningar. Ég sótti mikið í að vera hjá þér og ömmu enda leið mér alltaf svo vel hjá ykkur og fann hvað ég var elskuð. Ég var svo sann- arlega litla afastelpan þín sem þú gerðir allt fyrir, ég verð þessi litla afastelpa að eilífu. Samband okkar var einstakt en virðing og mikil vinátta ein- kenndu það, þú talaðir alltaf svo fallega til mín og því mun ég aldrei gleyma. Minningarnar eru ótal marg- ar, ferðirnar niður á tjörn, blá- berjatínslan, bókamarkaðurinn og allskonar ferðir hingað og þangað um landið. Ferðirnar í Kolaportið ylja mér alltaf en þar fékk maður alltaf að velja sér eitthvað, síðan var keyrt niður á höfn að skoða skipin og stoppað að skoða krabbana. Fyrst og fremst fannst mér alltaf svo gaman og gott að vera í kringum þig. Hlýju afaknúsin, öll fallegu, fyndnu og dýrmætu samtölin sem ég trúi ekki ennþá að verði ekki fleiri. Þinn einstaki húmor sem fékk mig alltaf til að skellihlæja og rúmlega það, húmorinn sem þú hélst í þar til yfir lauk. Síð- ustu árin snerust hlutverkin við, ég náði í þig og við keyrð- um niður á höfn alveg eins og í gamla daga, síðan skelltum við í okkur kaffisopa á Kaffivagn- inn, ég á eftir að sakna þess mikið. Ég var svo heppin að allt mitt líf leiddir þú mig og kenndir mér svo margt. Það var minn heiður að fá að leiða þig þinn síðasta spöl. Ég sakna þín á þann hátt að ég hreinlega finn ekki réttu lýsingarorðin. Sofðu rótt, elsku afi minn, takk fyrir allt. Þín Þórunn Hanna Ragnarsdóttir. Villy Pederseneru ógleymanleg, allur dásamlegimaturinn, litlu aukapakkarnir handa okkur barnabörnunum og söngurinn og dansinn kringum jólatréð. Dásamlegir tímar og dýr- mætar minningar. Þegar við urðum unglingar þá tókum við eftir því hvað amma lifði lífinu lifandi. Hún ferðaðist mikið um Ísland en líka um allan heim- inn með afa Rafni, hún elskaði að sjá nýja staði og menningarheima. Þegar hún kom heim þá var alltaf svo notalegt að heimsækja hana og heyra sögurnar og skoða myndirnar. Amma var okkur systkinum mikil fyrirmynd og við höfum öll þessa sömu ferðaþrá og hún. Við höfum alltaf litið upp til ömmu og stundum kölluðum við hana ömmu Indiana Jones. Það var svo magnað að vita að hún hafði gist í Amazon-frumskógin- um í Brasilíu og á eyjunni Borneo í Asíu, skoðað heimsþekktu Inka- rústirnar Machu Picchu í Perú, farið til Kína, Indlands, Víetnam, Argentínu, Suður-Afríku og einn- ig upplifað stórbrotið dýralífið á Galapagoseyjum – svo aðeins brot af þeim stöðum sem amma heim- sótti séu nefndir. Amma kunni að láta drauma sína rætast. Við vitum að hvert sem við eigum eftir að ferðast í framtíðinni þá verður amma með okkur í huga og hjarta. Þó svo ferðalagið hennar ömmu hér á jörðinni sé búið þá verður hún með okkur hvert sem við förum. Elsku amma, góða ferð! Þín barnabörn, Thelma Rut, Tinna Heið- dís og Kári Kristófer. Elsku amma. Fólk spyr mig hvort ég hafi ekki upplifað útförina sem fallega kveðjustund. Ég útskýri fyrir þeim að ég viti að ég var ekkert að kveðja þig, við eigum nú bara þannig tengingu að hún nær lengra en okkar jarð- neska og þegar ég horfi á afkom- endur þína þá ert þú þar, í okkur öllum, svo greinileg. Brosið hennar mömmu og hvernig höfuðið hallar á aðra hlið- ina þegar þið brosið, augun henn- ar Heiðdísar sem geta talað, leið- beint, brosað og hrætt án orða, blíða og fallega röddin hennar Öddu, hláturinn hennar Thelmu, Tinna með Indiana Jones-hattinn þinn, einlæga umhyggjan í Karen, Auður Ósk það þarf nú bara að horfa á hana, nafna þín hún Ragn- hildur og ég sem reyni að leika allt eftir þér. Svo eru það allir strák- arnir þínir sem þú unnir svo inni- lega, þeir áttu sér alveg sérstakan stað í ömmuhjartanu og ég skil það svo vel, þú átt einstaklega vel gerða stráka. Ég man svo vel eftir að koma til þín og þú sagðir mér glaðlega að nú væri litli strákurinn þinn að hlaupa heim til mömmu sinnar svo við ættum að skella í kaffi, mér fannst það svo fallegt. Einnig man ég þegar Róbert gat ekki haldið sér vakandi í gegnum boðin þín. Þá komst þú á eftir mér inn í herbergi ykkar Rafns og hvíslaðir að mér að hann þyrfti að fá að melta og rifjaðir upp að pabbi minn hafi nú verið ekki ósvipaður í boðunum þínum. Nú þekki ég þá feðga og veit að þeir sofna hvergi annars staðar úr ofáti en hjá þér amma mín, það er bara lambakjötið þitt sem er svo gott að maður þarf hvíld eftir það. Ég horfi á mynd af þér og þú vekur upp í mér svo margar góðar tilfinningar, stolt fyrir að vera af- komandi þinn sem lærði af þér, gleði að eiga svo mikið af skemmtilegum minningum með þér, frá kríuvarpinu úti á nesi þeg- ar ég var lítil stelpa til stundanna þegar við lituðum saman á þér hárið og drukkum kaffi. Næst finn ég fyrir drifkrafti að vilja líkjast þér, ég vil fylgja því að ef það er hægt í dag þá gerum við það í dag! Einhvern veginn tókst þér að gera allt sem þú gerðir, vinna, skoða allan heiminn, eiga öll þessi börn og barnabörn, sitja í félögum en samt leið manni alltaf eins og þú hefðir allan tímann í heiminum fyrir mann. Það vil ég tileinka mér, að öllum líði eins og þeir eigi athyglina óskerta og að ekkert annað skipti máli en líðandi stund, þú varst svo góð í því. Ekkert kemur þó ofar í huga minn við að hugsa til þín, amma, en styrkur, þú varst sú allra sterkasta og staðfastasta! Þú fórst þínar eigin leiðir með bros á vör, hnyttin svör og sjarmann að vopni og fylgdir eigin sannfær- ingu, ég er svo stolt af því. Við eigum saman stund sem ég mun geyma ofar mörgum öðrum í hjarta mínu, þegar þú varst orðin veik og ég kom til þín. Þú lást í rúminu þínu, ég hlammaði mér við hlið þér eins og ég svo oft gerði og við lágum saman hlið við hlið að spjalla. Við ræddum ekkert sér- stakt en við bara lágum þarna saman, leiddumst og horfðum upp í loftið, eins og við höfðum gert svo oft áður þegar ég var lítil stelpa, hlið við hlið á dýnunni að spjalla um ævintýri þeirra fimm fræknu og látið okkur dreyma um allt sem heimurinn hefur upp á að bjóða og það sem við sjáum ekki en finnum. Þegar fólk spyr mig hvort ég hafi náð að kveðja þig, þá segi ég nei, því ég þarf ekki neitt að kveðja þig, ég finn fyrir þér alla daga og einn daginn mun ég finna faðm þinn aftur. Þangað til sjáumst við í draum- um. Meira á www.mbl.is/andlat Þín Sandra „eggjakona“. Elsku amma. Þegar ég hugsa til þín þá eru mér efst í huga allar okkar góðu stundir, þegar ég gat komið til þín á Eiðistorgið og ég vissi það að núna væri ég kominn heim til ömmu og þyrfti ekki að pæla í neinu nema slappa af og njóta, sem ég gerði og sofnaði ég oft í ró- legheitunum hjá þér. Þegar Kári Páll fæddist þá vor- um við alltaf velkomin í heimsókn og mér þótti svo gaman að sjá þeg- ar þið voruð að leika við hann og hversu vel þið sýnduð bíladellunni hans áhuga. Kári var fljótur að taka upp ömmu Uglu-nafnið og talar hann mikið um að amma Ugla var góð amma. Egyptalandsferðin ykkar Rafns verður mér líka alltaf ofar- lega í huga, ég man þegar þið komuð heim og þið sýnduð mér myndir af píramídunum og ég varð afbrýðisamur og vildi að ég hefði verið með ykkur í ferðinni, þú tókst eftir því hvernig mér leið og gafst mér bækur um Egypta- land svo ég gæti lesið mér til um landið og fundist eins og ég þekkti það jafn vel og þið, svo spjölluðum við saman um Egyptaland og ég lét mig dreyma um að vera þar. Kríuvarpið á nesinu er líklega sá staður þar sem við hlógum hvað mest saman, vegna þess hversu hræddur ég var við kríurnar. Ég reyndi alltaf að fela mig undir Rafni þannig að þær gogg- uðu frekar í hann en mig, sem þær stundum reyndu að gera og við hlógum að viðbrögðum okkar allra. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Takk fyrir allar okkar stundir saman. Takk fyrir að hjálpa mér þegar þess þurfti. Takk fyrir að vera alltaf til stað- ar og takk fyrir að vera svona góð. Ég sakna þín og ég mun varð- veita minningu þína að eilífu. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þinn Róbert Freyr. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SUMARLIÐADÓTTIR, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 5. mars klukkan 13. Athöfninni verður streymt á https://www.youtube.com/channel/UCLoNRDNgtA4a6tgIEywD CGw Ársæll Friðriksson Björk Georgsdóttir Símon Friðriksson Guðrún Hjálmarsdóttir Hildur S. Friðriksdóttir Kristin H. Friðriksdóttir Sigurður Þ. Sigurðsson Ragnheiður Eiríks Friðriksd. Arnar Haukur Ottesen Ingvar Geir Guðbjörnsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG BERGSVEINSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Seltjörn, áður til heimilis að Sævargörðum 7, Seltjarnarnesi, lést sunnudaginn 21. febrúar. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 10. mars klukkan 15. Athöfninni verður streymt á: https://shor.by/IngibjorgBergsveinsdottir. Magnús Erlendsson Erlendur Magnússon Carla Magnússon de Jong Guðrún Magnúsdóttir Ólafur J. Straumland Berglind Magnúsdóttir Hákon Sigursteinsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN RAGNA KRÜGER, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 23. janúar í faðmi fjölskyldu. Útför fer fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar Sjúkrahússins á Akureyri og starfsfólks heimahlynningar fyrir ómetanlega umönnun í veikindum Guðrúnar. Ragnar Már Krüger Elfa Ingibergsdóttir Eymar Krüger Elsý Vilhjálmsdóttir Óttar Erling Krüger Helga Stefánsdóttir Valgeir Pálsson Krüger Íris Ósk Egilsdóttir Bergþór Pálsson Krüger Eva Berglind Tulinius og barnabörn Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, KATLA ÞORSTEINSDÓTTIR lögfræðingur, Digranesvegi 46, lést á heimili sínu mánudaginn 1. mars. Þorsteinn Johansson Jónína Lilja Pálsdóttir Guðmundur Sigbergsson Þorsteinn Magnússon Arna Þórhallsdóttir Arna Pálsdóttir Ólafur Pálsson Birna Steingrímsdóttir Diljá Pálsdóttir Fannar Eðvaldsson Þorsteinn Þorsteinsson Aðalbjörg Einarsdóttir Ingibjörg Þorsteinsdóttir og barnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.