Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 54

Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 ✝ ValgerðurGísladóttir fæddist 17. nóv. 1944 á Akranesi. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands Akra- nesi 19. feb. 2021. Foreldrar hennar voru Ósk Guð- mundsdóttir, f. 2. júlí 1913, d. 20. jan. 1963 og Gísli Bjarnason, f. 13. júlí 1910, d. 15. des. 1963. Systkini Valgerðar eru Ragnheiður, f. 1935, d. 2016, Helgi, f. 1937 og Kristín Ósk, f. 1947, d. 2008. Valgerður giftist Lúðvík Jak- obssyni, f. 12. des. 1944, d. 20. ágúst 1989, þann 18. des. 1965. Foreldrar hans voru Rósbjörg Anna Hjartardóttir, f. 9. sept. 1916, d. 17. mars 2002 og Jakob Karel Þorvaldsson, f. 28. júlí 1910, d. 21. apr. 2000. Börn Valgerðar og Lúðvíks eru: 1) Anna Ósk, f. 22. ágúst 1965, maki Reynir Kristjánsson. Börn: Kári, Rakel og Ísól Rut og tvö barnabörn. 2) Hjört- ur, f. 23. okt. 1966, maki Kristín Sig- urey Sigurðardóttir. Hjörtur á tvö börn: Lúðvík og Karítas Mist og Kristín á þrjú börn: Árný, Marey og Sigþór og tvö barna- börn. 3) Bjarki, f. 11. maí 1972, maki Rannveig Björk Guðjóns- dóttir. Börn: Eiður Daði, Alex Mar, Þorgeir Örn og Lena Björk. 4) Rósa Björk, f. 2. des. 1980, maki Hrafn Einarsson. Börn: Hjörtur, Viktoría Vala og Krist- rún Sara. Valgerður ólst upp á Akranesi þar sem hún gekk í barnaskóla og útskrifaðist sem gagnfræðingur. Hún var ung þegar hún missti for- eldra sína og fór ung að vinna á sjúkrahúsinu á Akranesi. Val- gerður og Lúðvík hófu búskap á Akranesi. Þau bjuggu tímabundið í Þorlákshöfn og síðar í Kópa- vogi. Í desember 1979 fluttu þau aftur á Akranes og byggðu sér hús í Jörundarholti skömmu áður en Lúðvík lést. Eftir að hún flutti á Akranes vann hún á Höfða og svo á leikskólanum Garðaseli. Haustið 1996 kynntist hún sambýlismanni sínum Þorvaldi Valgarðssyni, f. 24. júlí 1945, bónda á Eystra-Miðfelli Hval- fjarðarsveit, og flutti þangað vor- ið 1997. Sonur hans er Friðrik Drafnar, f. 19. júlí 1979. Í sveitinni vann hún á leikskól- anum Skýjaborg sem matráður ásamt því að taka þátt í bústörf- um og heimilishjálp. Haustið 2009 fluttu þau á Akranes að Álmskógum og síðar á Sólmundarhöfða árið 2015. Hún tók þátt í starfi eldri borgara á Akranesi og þá aðallega í föndri enda listamaður í öllu handverki. Útförin fer fram frá Akranes- kirkju fimmtudaginn 4. mars klukkan 13. Athöfninni verður streymt frá vef Akraneskirkju: https://www.akraneskirkja.is/. Virkan hlekk má einnig nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat/. Þar sem Snæfellsjökul ber við himin handan flóann, Þormóðs- sker rís úr sæ og fallega Akra- fjallið breiðir úr sér sem bak- grunnur Skagans er staðurinn þar sem við Valla kynntumst í æsku. Fyrstu kynni okkar Völlu virð- ast fersk í minningunni. Ég er ný- flutt á Heiðarbrautina þegar mér verður litið út gluggann, það er farið að skyggja, snjór lá yfir og logndrífa féll rólega til jarðar þeg- ar ég kom auga á litla stúlku leika sér í snjónum í skini frá ljósastaur andspænis heimili mínu. Ég fer hikandi í átt til hennar yfir göt- una, geng hreinlega til verks og spyr hvort hún vilji vera vinkona mín. Ef til vill er minningin fölsk en fyrir mér er hún raunveruleg, vitað er að minnið getur beitt okk- ur brögðum þó það geti oft varð- veitt af kostgæfni algjör smáat- riði. Frá þeirri stundu urðum við óaðskiljanlegar vinkonur, þar sem sást til hennar var ég aldrei langt undan. Það eru forréttindi að hafa alist upp á Heiðarbrautinni í æsku okkar þar sem fjölmennur hópur barna bjó í nágrenninu. Enda- lausir útileikir stundaðir og aldrei hörgull á leikmönnum. Leikirnir yfirleitt stundaðir á presttúninu eða í götunni. Ef svo vildi til að bíll átti leið um þá var vikið til hliðar og leik síðan haldið áfram. Dögum saman var unað við sjósund á Langasandi og skeljatínslu. Í minningunni finnst mér að sumr- in hafi verið hlýrri í þá daga og að vetri hafi verið meiri stillur, iðu- lega mikil snjókoma og frost. Við vinkonurnar stunduðum skauta- íþróttina af kappi hvar sem ísi- lagðan poll var að finna og ef ekki þá dugðu snævi þaktar troðnar göturnar til. Valla vinkona mín var afar vel gerð og falleg kona, ljúfleiki og hógværð einkenndu hana, stutt var í brosið en mikil glaðværð var ríkjandi í samskiptum okkar. Hún átti trausta og góða foreldra og gott heimili þar sem ég var ávallt velkomin. Það er gæfa að eignast góða vini og sagt er að vinir séu vitni að lífshlaupi okkar. Vinátta okkar var hafin yfir alla skilgreiningu. Alltaf fylgdust við Valla með lífi hvor annarrar þótt búseta kæmi í veg fyrir reglubundin samskipti. Valla fékk snemma að kynnast sárum erfiðleikum, sem ungling- ur missti hún báða foreldra sína á einu ári svo og fyrri eiginmann sinn á besta aldri og stóð þá uppi sem ekkja með ung börn. Heim- spekingurinn og guðfræðingurinn Sören Kierkegaard segir að lífinu verði menn að lifa áfram til að skilja það aftur á bak, ekki er ég viss um að við getum skilið allt það sem á daga okkar hefur drifið en öll erfið lífsreynsla markar sál- ina og er oftar en ekki þroskandi þó við vildum gjarnan hafa viljað vera án hennar. Við Valla þekktum hvor aðra áður en heimurinn skapaði óreiðu í lífi okkar, nutum hvers dags og áttum saman hluta af bernskunni. Við gátum deilt dýrmætum æsku- minningum á síðustu samveru okkar á sjúkrastofu spítalans fyr- ir stuttu, það var ljúf stund. Út um gluggann mátti sjá æsku- heimili okkar beggja við götuna þar sem við kynntumst fyrir svo óralöngu en samt svo stuttu. Guð blessi minningu elsku Völlu vinkonu minnar. Edda Björk Bogadóttir. Valgerður Gísladóttir Það er mér ljúft og skylt að minnast móðurbróður míns hans Magnúsar Finns Hafberg með nokkrum orðum. Maggi frændi var elstur barna Olgu Magnús- dóttur og Engilberts Ólafs Haf- berg, en af börnum þeirra hjóna var Olga móðir mín yngst. Þau systkin misstu móður sína úr barnsfarasótt þegar Olga móðir mín fæddist og var Magnús þá einungis sjö ára gamall en jafn- framt elstur fimm systkina. Engilbert afi minn var oft fjar- verandi af heimilinu við vinnu til að ala önn fyrir barnahópnum og treysti mikið á elsta son sinn þegar kom að börnum og búi og hvað mesta ábyrgð axlaði hann gagn- vart henni Olgu litlu systur sinni. Hann minntist á það við mig stund- um þegar hann var sendur með litlu systur sína tveggja ára gamla til læknis. Maggi var þá einungis níu ára gamall að axla mikla ábyrgð sem óhugsandi væri að lögð yrði á herðar barni í dag. Ég sagði honum líka að mamma talaði oft um hann og sagði hann þá alltaf að það hafi verið vegna þess að hann hafi svo mikið verið að passa hana. Á fimmta áratug síðustu aldar, Þegar Maggi var táningur, tók hann að undirlagi pabba síns við búsforráðum í Viðey ásamt Rann- veigu Hafberg seinni konu afa og sinntu þau því hlutverki af alúð og samviskusemi. Ég held að það hafi alltaf haft mikil áhrif á Magga þeg- ar Gunnar bróðir hans varð fyrir voðaskoti af höndum vinar síns og dó í fanginu á honum í bátnum á Viðeyjarsundi á leið til lands. Magnús Finnur Hafberg ✝ Magnús FinnurHafberg fædd- ist 22. júní 1923. Hann lést 13. febr- úar 2021. Útförin fór fram í kyrrþey. Frændi vildi aldrei fara út í Viðey eftir að afi brá búi þar. Minn uppvöxtur einkenndist af mik- illi aðdáun og virð- ingu í garð Magga frænda en ég fékk svo tækifæri til þess að treysta böndin enn frekar þegar ég var sendur í sveit til tengdaforeldra hans á Hvítanesi í Skilmannahreppi. Þá varð mér ljóst að aðdáun móður minnar var verðskulduð. Í seinni tíð urðu alltaf fagnaðarfundir með okkur frændum. Á milli okkar var sterk taug. Við vorum stoltir af Hafbergsættinni og dálítið ánægðir með okkur þegar við hitt- umst. Í okkar síðasta samtali bar frændi sig vel eins og alltaf en vildi meina að hans dagur væri að kvöldi kominn og hans biðu mörg verkefni í Sumarlandinu. Olga móðir mín talaði alltaf um að Maggi frændi hafi átt auðvelt með nám og að hugur hans hafi staðið til mennta þegar hann var ungur maður. Þau verkefni sem honum voru falin sem barni, ung- lingi og ungum manni voru hins vegar umfangsmeiri en svo að hann gæti dvalið lengi á skólabekk. Maggi frændi varð gæfumaður í sínu einkalífi, naut barnaláns, var vel kvæntur henni Evu sinni og var ávallt stoltur af sínu fólki. Maggi frændi var mikið stór- menni í öllum skilningi þess orðs og fylgdi honum mikil birta og fal- leg orka. Ég kveð hann með sökn- uði og stolti. Ég kveð hann þó fyrst og fremst með einlægu þakklæti fyrir að hafa reynst henni Olgu móður minni hinn besti bróðir alla hennar ævidaga. Evu, börnum þeirra hjóna og afkomendum öllum sendi ég mín- ar einlægustu samúðarkveðjur. Engilbert Ólafur Hafberg Snorrason. Elsku Friðrik minn, ég var alltaf mjög montin af þér, stóra bróður mín- um, enda varstu mikill myndar- maður að öllu leyti. Á unglingsárunum vannst þú oft lausavinnu í skólafríum og nutum við yngri systkinin örlæti þíns. Því stóri bróðir fór oft með okkur í bíó, að sjá Dumbo, Bamba, Mjallhvít og Þyrnirós. Varla fyrsta val unglingsdrengs, en þú naust þess að geta glatt litlu systkini þín. Þegar þú keyptir mótorhjólið var mamma valin til að prófa hjólið. Snúðu handfanginu, sagð- ir þú, og með því flaug hún af stað, óviðbúin og skelfingu lostin, niður stíginn, niður að Háaleitis- götu og allir krakkarnir á harða- hlaupum á eftir, niður að Mac- verkstæðinu stóra, þar sem hún fór hring eftir hring þar sem loksins tókst að hrópa til hennar leiðbeiningar um hvernig mætti stoppa hjólið. Friðrik Björnsson ✝ Friðrik Björns-son fæddist 1. janúar 1943. Hann lést 16. febrúar 2021. Útför Friðriks var gerð 1. mars 2021. Þú vannst ýmsa sumarvinnu til að borga námsgjöldin í Versló, m.a. með því að grafa skurði fyrir símalínulagnir norð- ur í landi og svo fórstu nokkra túra sem kokkur á tog- ara á Grænlands- miðum. Þú færðir mér skólabækur í dönsku, ensku og stærðfræði. Skoðaðu þessar bækur og taktu inntökuprófið í Versló, sagðir þú. Þú getur þetta vel, ég er viss um að þú kemst inn. Þannig elti ég þig í Versló og útskrifaðist árið á eftir þér. Við höfðum bæði vin- sælasta stærðfræðikennara Versló, Gunngeir Pétursson, föður Herdísar. Þið hjónin voruð einstaklega samhent, svo að Her- dís og Friðrik var oftast sagt samróma sem eitt orð. Ég fluttist til Englands árið 1968. Þú vildir keyra okkur mömmu og pabba út á Keflavíkurflugvöll enda þurfti að leggja af stað klukkan rúmlega fjögur að morgni. En fyrst þurfti að koma Her- dísi upp á fæðingardeild og var fyrsta barn ykkar, Gunngeir, fæddur þennan dag sem einnig er afmælisdagur eiginmanns míns, Davids. Hér hef ég nú búið í rúma hálfa öld meðal 66 milljóna ann- arra landsmanna, mannskepnur virðast nú afar lítil sandkorn á fjöru tímans. Stóri bróðir, þú varst alltaf tryggur, umhyggjusamur og traustur stuðningur þínum börn- um, systkinum, foreldrum og vin- um. Ég og mín fjölskylda vottum innilegustu samúð okkar í sökn- uði ykkar. Þórhildur Ólafsdóttir Fuegi, börn og eiginmaður. Þórhildur Ólafsdóttir Fuegi. Elsku amma. Við systkinin minnumst þín með hlýju og væntum- þykju. Það er erfitt að kveðja þig og er söknuðurinn mikill. Efst í huga er þakklæti fyrir allar minningarnar sem við eigum með þér og það samband sem við þró- uðum við þig. Þú varst ætíð til staðar fyrir okkur og hægt að leita til þín hve- nær sem var. Það var alltaf gott að koma til þín, svo gott að við höfum oftar en einu sinni dottað í sófanum eftir kaffisopann og suðusúkku- laðið meðan þú sýndir barna- barnabörnunum hitt og þetta spennandi sem þú fannst til. Spiladósin var alltaf vinsæl. Það var gott að tala við þig og spjalla um ýmislegt hvort sem það voru málefni líðandi stundar eða það Elín Bjarnadóttir ✝ Elín Bjarna-dóttir fæddist 23. september 1927. Hún lést 8. febrúar 2021. Útför Elínar fór fram 19. febrúar 2021. sem var að gerast í okkar lífi. Þú varst opin fyrir öllu og nú- tímaleg, þú varst vel að þér og gast til- einkað þér margt og fylgdist með því sem var að gerast í þjóðfélaginu og úti í heimi. Það var líka gam- an að hlusta á þig tala um bernskuna í Blöndudalshólum þar sem þér fannst svo gaman að fara á hest- bak og njóta náttúrunnar í sveit- inni. Þú varst sjálfstæð, fordóma- laus, klár, hlý og falleg að utan sem innan. Þú varst líka mikil listakona og eigum við systkinin hin ýmsu listaverk eftir þig; prjónaða sokka sem og málverk, glerlista- verk og saumaða dúka. Það lék allt í höndunum á þér. Þú skilur við okkur með gott veganesti og varst góð fyrir- mynd. Við munum alltaf hugsa til þín með hlýju og þakklæti, elsku amma. Haukur, Sigríður, Þórný og Anna. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐJÓNS ARNAR KRISTJÁNSSONAR, Lækjasmára 8, Kópavogi. Guðbjörg K. Guðjónsdóttir Stefán Þórisson Ólafur Jón Guðjónsson Eyrún Ásta Bergsdóttir Katrín Guðjónsdóttir Erla Björk Guðjónsdóttir Gunnar Ólafsson Örn Már Guðjónsson Sigrún Svava Gísladóttir og barnabörn Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og stuðning vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, RAFNS MAGNÚSSONAR, vélfræðings og kennara, Löngulínu 7, Garðabæ. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks dvalarheimilisins Ísafold Garðabæ fyrir einstaka alúð og hlýhug í hanns garð. Eva Guðmundsdóttir Vilborg Rafnsdóttir Kristinn Rafnsson Sólborg Tryggvadóttir Elsa Rafnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, BIRGIS LÚÐVÍKSSONAR, Sléttuvegi 23. Helga Brynjólfsdóttir Lúðvík Birgisson Sigríður Birgisdóttir Brynjar Gauti Sveinsson Guðríður Birgisdóttir Steingrímur Gautur Pétursson Unnur Jónsdóttir og afabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.