Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 55
MINNINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021 ✝ Ingibjörg Guð-mundsdóttir fæddist í Flekku- vík á Vatnsleysu- strönd 30. desem- ber 1926. Hún lést 8. febrúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Jóhann- esson, sjómaður frá Flekkuvík, f. 19.10. 1887, d. 21.5. 1959, og kona hans, Hans- ína Einarsdóttir frá Selvogi, f. 8.6. 1892, d. 29.11 1983. Þau eignuðust 14 börn, en fyrsta barn þeirra lést aðeins tveggja ára að aldri 1911. Árið 1918 misstu þau aðra dóttur aðeins nokkrum dögum eftir fæðingu. Alls komust 12 börn þeirra til fullorðinsára og var Ingibjörg fimmta yngst af 14 systkinum og yngsta dóttirin. Af þeim systkinum frá Flekkuvík lifði Ingibjörg lengst allra og náði hæsta aldri, en yngsti bróðir hennar Halldór lést 27. desem- ber sl. Álfsnesi. Sigurgeir lést 16.2. 1987. Auk barna á Ingibjörg nú 29 afkomendur. Seinni eiginmaður Ingi- bjargar (14.2. 1978) var Sigmar Hróbjartsson, múrarameistari frá Hegranesi í Skagafirði, f. 24.5. 1919, d. 5.11. 2014. Hún bjó lengst af með seinni eigin- manni sínum í Brautarási 10 í Reykjavík uns þau fluttu í íbúð við Boðaþing í Kópavogi og síð- ar á hjúkrunarheimili Hrafn- istu við Boðaþing þar sem Sig- mar lést í nóvember 2014 og Ingibjörg hinn 8. febrúar sl. 94ra ár að aldri. Ingibjörg var ásamt fyrri eiginmanni sínum með búskap á Litlu-Fellsöxl. Hún útskrif- aðist sem sjúkraliði 1967 og starfaði alla tíð eftir það sem sjúkraliði, fór víða og fékk verðmæta og margháttaða reynslu af störfum sínum við hjúkrun og umönnun, m.a. á Reykjalundi, Endurhæfing- ardeildinni á Grensás, hjúkrun aldraðra í Hátúni, eitt sumar á hjúkrunarheimili í Osló, en lengst af á deild 14G á Land- spítalanum við Hringbraut þar sem hún lauk langri og farsælli starfsævi. Útför Ingibjargar fór fram í kyrrþey að hennar ósk þann 17. febrúar 2021. Ingibjörg var tvígift: Fyrri eigin- maður Ingibjargar (8.5.1945) var Sig- urgeir Jóhannsson frá Litlu-Fellsöxl í Skilmannahreppi, f. 18.6. 1919. Sig- urgeir lést 28.5. 1960. Börn þeirra eru fimm: 1. Að- alsteinn, f. 24.12. 1944, maki Lea Hjörbjörg Björnsdóttir, börn: Ragnhildur Inga (1968), Sig- urgeir Jóhann (1970) og Að- alsteinn Leó (1977). 2. Sigríður, f. 18.7. 1946, maki Ragnar Þór Jónasson, börn: Þórkatla (1975) og Sigurveig (1977). 3. Hansína, f. 1.11. 1952, börn: Herbert (1973) og Jóhann Elv- ar (1980). 4. Þorkatla, f.11.10. 1953, maki Jón Þórhallur Sig- urðsson, barn (úr fyrri sam- búð): Ingibjörg (1973). 5. Sig- urbjörg, f. 18.8 1955. Ingibjörg eignaðist sjötta barn sitt, son- inn Sigurgeir, f. 16.7. 1964, með Þórði Kristjánssyni frá Saga okkar mömmu er ofin mörgum litríkum þráðum sem einkennast öðru fremur af at- burðum sem tengjast ástvina- missi en nýju lífi og því sem fylgir börnum og nýjum afkom- endum. Missir líkt og nýtt líf býður upp á lærdóma og miss- irinn í lífi okkar mömmu sýndi mér best hvað í henni bjó. Elsku mamma, þegar þú misstir manninn þinn, þá missti ég pabba. Pabbi fór að ráðum læknis til tannlæknis, en hann kom ekki aftur heim. Hann lést nokkrum dögum síðar. Rann- sókn leiddi í ljós hvítblæði og því gat pabbi ekki lifað aðgerð tannlæknisins af. Sorgin heltók okkur öll. Ég man mig í fangi þínu, hvar ég ríghélt utan um þig og fann þá hvernig ekkasogin börðust um í brjósti þér. Þegar barnið leit upp sá það móður sína þerra tárin sem runnu undan sólgleraugum. Eftir þrjú erfið ár sem líktust helst erfiðri forsjárdeilu fluttir þú með okk- ur, börnin þín, af bænum og út á Skaga. Þarna vorum við sveitabörn- in komin í framandi umhverfi, inn í samfélag sem á þessum tíma skildi ekki stöðu einstæðra mæðra og leit jafnvel niður á börnin þeirra. Jöfnu tækifærin sem áttu að tryggja öllum tæki- færi til náms og starfa létu stundum á sér standa. Svo er baráttu þinni fyrir að þakka að þau tækifæri sem stóðu öðrum til boða buðust á endanum mér líka. Þegar þú misstir son þinn úr alnæmi árið 1987, þá missti ég litla bróður minn. Hann dó heima í fanginu þínu. Ég man hvar ég sat og hélt um höfuð hans; horfði á þig tala viðstöðu- laust við elsku drenginn þinn dáinn á meðan þú bjóst hann til hinstu hvílu. Upp í hugann kom mynd af þúsundum mæðra sem í gegn- um aldirnar hafa þurft að vefja börn sín líkklæðum og kveðja þau hinstu kveðju. Allt í einu varst þú, elsku mamma, orðin ein af þessum mæðrum. En þarna vorum við í samfélagi sem hataði homma. Við tók langdregin og erfið sorg í fel- um. Þegar ég missti manninn minn árið 1997, þá misstir þú tengdason þinn. Hann féll fyrir eigin hendi. Það voru þung skrefin til þín snemma á sunnu- dagsmorgni til að segja þér að Sigursteinn væri dáinn. Angistarópið og ekkasogin í brjósti þínu þá minntu á gaml- an missi. Þarna á þessum tíma lágu sjálfsvíg í þagnargildi, sveipuð ótta og óhug í sam- félaginu. Þögnin skildi syrgj- endur eftir í tómi og sjálfs- ásökun. Við tóku dimmir dagar og ár; hjá þér hér heima og mér í London. Elsku mamma, þinn var missirinn mestur, en þú sagðir alltaf að það væri skylda okkar að halda áfram; taka öllu sem að höndum ber af æðruleysi og láta aldrei hugfallast. Ég skyldi mennta mig, læra að þekkja rétt minn og skyldur, láta gott af mér leiða, treysta á sjálfa mig og læra að treysta öðrum. Mamma mín, þú varst ekki alltaf fyrir viðkvæma, en þú varst frábær sjúkraliði. Þú hafðir sterka nærveru enda sjálfmenntuð kona, víðlesin og fróð og svæfðir aldrei sam- félagsvitund þína né réttlætis- kennd. Eldskörp kímnigáfa þín, leikrænir taktar, hláturinn og sönggleðin gerði lífið með þér bæði skemmtilegt, gefandi og lærdómsríkt. Þvílíkt foreldralán að hafa átt konu eins og þig fyrir móður. Takk fyrir allt sem þú varst mér, elsku mamma. Hvíl í friði. Sigurbjörg. Mér er ljúft að minnast ná- granna og vinar okkar hjóna, Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem lést 94 ára að aldri. Rúmir fjórir áratugir eru frá því við urðum nágrannar hennar og seinni eiginmanns hennar Sig- mars Hróbjartssonar í Braut- arási í Reykjavík. Á heimilinu bjó einnig Sigur- geir sonur Ingibjargar sem lést úr illvígum sjúkdómi. Það var ekki í fyrsta né síðasta sinn sem höggvið var svo nærri henni. Hverfið var að breytast úr sveit í borg og í þeim breyt- ingum fengu þau hjónin stöðu sem höfðingjum sæmdi. Tóku þau ungu fjölskyldunni vel. Upp frá því vorum við samferða í lífinu. Þá vann Ingibjörg fulla vinnu á spítalanum og gaf ekk- ert eftir. Þau hjónin voru félagsverur og hjá þeim áttu margir athvarf um lengri og skemmri tíma. Ekki má gleyma þeim Bósa, Tuma og Mýslu sem settu svip- mót á heimilið. Hver með sínum hætti. Hafa ferfætlingarnir áreiðanlega tekið fagnandi á móti Ingibjörgu sem átti alltaf hlýja hönd að strjúka og góðan mat í dalli. Fuglar himinsins voru fóðr- aðir á því besta og gott ef far- fuglarnir gerðust ekki bara staðfuglar við dekrið. Margs er að minnast og allt á góðan veg. Þau voru heil- steypt fólk á myndarlegu heim- ili. Bóklestur í hávegum hafður, hannyrðir og matargerð eins og best gerist. Farið til berja, sultað og saftað. Tekið slátur, sett í mysu. Sveppir tíndir. Hvönn þurrkuð og kúmeni safnað. Lappir sviðnar og margt fleira. Öllu þessu kynntumst við eins og þeir fjölmörgu gestir sem komu á heimilið og okkar fólk varð einnig þeirra fólk. Ingibjörg var mótuð af arf- leifð mannmargra heimila. Hún ólst upp í fjórtán systkina hópi í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd á fyrri hluta síðustu aldar. Hún fór með okkur á staðinn og út- skýrði aðstæður. Engum sem skoðar æsku- stöðvar hennar blandast hugur um að þar hefur þurft að hafa fyrir lífinu. Ingibjörg var víðlesin, ævin- lega með bókastafla á borðinu. Umhyggja hennar var einstök. Kleinur voru hraðsendar yfir, boðið upp á kúmenkaffi, vöfflur og rjóma, soðið slátur, skötu- veislur og svo var tekin um- ræða líðandi stundar. Einu sinni sem oftar fórum við á sjóstöng í Garðsjó. Hafði hún í uppvexti sínum lagt pabba sínum lið við að draga björg í bú og kunni sannarlega til verka. Stærri þorska hefur undirrit- aður ekki séð dregna úr sjó en þá sem kokgleyptu hjá Ingi- björgu. Hún var auðvitað feng- sælust og Sigmar orti: Ingibjörg er aflakló/enga þekki ég slíka/. Ef hún leitar út á sjó/ætla ég þangað líka. Kosningavökur voru haldnar á okkar heimili. Þangað kom fólk með fjölmörg viðhorf til að dreifa. Þau hjónin féllu vel að hópn- um enda seint sagt að þau hafi verið þjökuð af skoðanaleysi. Skemmtilegast var að beita upp í vindinn og sammælast svo um það sem skemmtilegast reynd- ist. Á þessari kveðjustundu sendum við Vilborg afkomend- um hennar þeim Alla, Siggu, Köllu, Höddu, Sillu og fjöl- skyldum einlægar samúðar- kveðjur um leið og við kveðjum góða manneskju með kæru þakklæti fyrir umhyggjuna, all- ar góðu samstundirnar og ára- tuga vináttu. Blessuð sé minning Ingi- bjargar Guðmundsdóttur. Guðmundur H. Einarsson. Ingibjörg Guðmundsdóttir ✝ Gunnar Örnvar fæddur í Reykjavík 11. mars 1946. Hann lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 22. febrúar 2021. Foreldrar Gunnars voru Gunnar Daníels- son, f. 1910, d. 1988, og Fanney Oddsdóttir, f. 1917, d. 1989. Systkini Gunnars eru: 1) Ástfríður Oddný, maki Valgeir Axelsson, látinn. 2) Steinunn Dagný, maki Axel Axelsson. 3) Kristín Hall- dóra, maki Marteinn Sverrisson. 4) Gunnar Örn. 5) Guðný, fv. maki John Hansen. 6) Bjarni, fv. maki Jóhanna Vilhjálmsdóttir, látin, seinni kona Bjarna er Sig- rún Ólafsdóttir. 7) Heiðar. Systkinin eru öll búsett í Reykjavík nema Guðný, sem býr í Danmörku. Eftirlifandi eig- inkona Gunnars er Ágústa Magnúsdóttir, f. 2. nóvember 1949. Foreldrar hennar voru Helga Svava Viggósdóttir, f. 1921, d. 1986, og G. Magnús Helgason, f. 1917, lést 32 ára úr berklum. Seinni maður Helgu Svövu var Guðmundur Helga- son, f. 1920, d. 1990. Gunnar Örn, eða Bói eins og hann var ætíð nefndur af fjöl- skyldu og vinum, ólst upp í smá- íbúðahverfinu í Reykjavík, þar sem foreldrar þeirra byggðu sér börn, Gunnar Breka og Heiðar Örn, 2) Aþena Þöll, f. 2000, sambýliskona Anna Guðný, f. 2000 og 3) Heiðmar Gauti, f. 2002. Gunnar lærði járnsmíðar og vann í Héðni um árabil, en fór síðar í nám í pípulögnum og starfaði sem pípulagn- ingameistari, lengst af hjá Ríkisspítölum, eða til sjötugs- aldurs. Gunnar stundaði bæði hand- og fótbolta af kappi öll sín yngri ár og spilaði með meist- araflokki Víkings í fótbolta fram eftir aldri. Var einnig handboltadómari um árabil. Auk þess hafði Bói gaman af hestamennsku og sinnti því áhugamáli um árabil. Árið 1989 keyptu þau hjónin æskuheimili Bóa, Hlíðargerði 18, og bjuggu þar næstu 30 ár- in, allt þar til veikindi fóru að hamla búsetu hans þar. Þau fluttu í þjónustuhús fyrir aldr- aða á Hjallabraut í Hafnarfirði í maí 2019, en vegna versnandi veikinda Bóa fékk hann var- anlegt pláss á Hrafnistu í des- ember síðastliðnum. Þann 16. febrúar sl. veiktist hann og hrakaði mikið á örfáum dögum þar til hann lést 22. febrúar með ástvini sér við hlið. Útför Gunnars fer fram í Garðakirkju í dag, 4. mars 2021, klukkan 13, allir vel- komnir að teknu tilliti til tak- markana á samkomuhaldi. At- höfninni verður streymt á slóðinni: https://promynd.is/ portfolio-items/gunnarorn/. Hægt er að nálgast virkan hlekk á: https://www.mbl.is/ andlat/. lítið hús í Hlíðar- gerði 18 og komu þar upp öllum systkinahópnum með miklum dugn- aði. Gunnar kynnt- ist verðandi eigin- konu sinni, Ágústu, í smáíbúðahverf- inu, þar sem hún ólst upp í Ásgarð- inum. Þar bjó Ágústa í foreldra- húsum ásamt ungum syni sín- um, Guðmundi Magnússyni, f. 21. júní 1965. Þau Gunnar og Ágústa gengu í hjónaband 25. nóvember 1972. Þau bjuggu sér heimili í Breiðholti ásamt syni Ágústu, sem hann ól upp sem sinn eigin og eignuðust þau síð- ar soninn Gunnar Heiðar, 15. janúar 1974. Guðmundur er giftur Rann- veigu Halldórsdóttur, f. 1964. Börn þeirra eru: 1) Ágúst Örn, f. 1988, sambýliskona Fanney Lára, f. 1987, og eiga þau tvö börn, Guðmund Alexander og Kristjönu Birtu, 2) Kristveig Halla, f. 1991, sambýlismaður Kristján Örn, f. 1974, og 3) Fanney Svava, f. 1996, sam- býlismaður Magnús Orri, f. 1994. Gunnar Heiðar er giftur Huldu Þórarinsdóttur, f. 1974. Börn þeirra eru: 1) Úlfar Breki, f. 1993, sambýliskona Guðlaug María, f. 1993, og eiga þau tvö Í dag kveðjum við ástkæran föður, tengdaföður, afa og lang- afa. Afi Bói var gull af manni sem tók alltaf vel á móti okkur fjölskyldunni í Hlíðargerðinu. Brosmildur og glaður var hann alltaf boðinn og búinn að að- stoða okkur ef óskað var eftir því. Minnisstæð eru matarboðin þar sem kveikt var á grillinu og ljúffengt lambalæri borið fram og allir fóru pakksaddir frá matarborðinu. Afi Bói var með allt á hreinu þegar kom að fréttum og hafði mikinn áhuga á að fylgjast heimsmálunum. Alltaf var kveikt á litla útvarp- inu í eldhúsinu og missti afi Bói ekki úr fréttatíma. Þegar kom að fréttatímum sjónvarpsins var afi Bói sestur í hæginda- stólinn sinn þar sem fjarstýr- ingin var ekki langt undan svo fljótlegra væri að skipta þegar nýr fréttatími hófst á næstu sjónvarpsrás. Bói var mikill afi og sýndi því mikinn áhuga sem barnabörnin voru að gera og þar er fótboltinn ofarlega á lista. Afi Bói kom eins oft og hann gat að fylgjast með leikj- um og stóð á hliðarlínunni og fylgdist vel með FH-ingunum. Þegar hugsað er til afa Bói er vinnusamur maður það eitt af því sem kemur upp í hugann. Vinnubíllinn var mjög áhuga- verður þar sem rör og verkfæri rúlluðu um bílinn. Þau voru ófá skutlin sem farin voru með afa Bóa í vinnubílnum. Síðasta árið var afi Bói duglegur að mæta í vinnuna sína í Drafnarhúsi og naut sín þar í góðum félagsskap og frábærri umönnun. Það var gott að fá afa Bóa og ömmu Ágústu í Hafnarfjörðinn svo styttra er að skreppa í heim- sókn. Að koma til afa Bóa og ömmu Ágústu er svo dýrmætt og ekki skemma kræsingarnar fyrir sem amma leggur á borð og afi var ekki lengi að tína á diskinn sinn af öllum sortum. Það var skrítið að hafa ekki afa Bóa hjá okkur á jólunum en hann kunni að njóta matarins og þar var alltaf gaman að bjóða honum í mat. Við erum svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér þitt síðasta kvöld þar sem gátum ekki hitt þig vegna aðstæðna fram að því en vitum að það var vel hugsað um þig á Hrafnistu og þökkum við þeim fyrir alla þá góðu umönnun sem þú fékkst hjá þeim. Við vitum að þú ert á góð- um stað þar sem þú getur notið þess að fá þér pípu og fylgst vel með heimsmálunum. Við vitum að þú vakir yfir okkur. Elsku afi Bói, takk fyrir samveruna og allt sem þú hefur gefið okkur. Gunnar Heiðar, Hulda, Úlfar Breki, Aþena Þöll og Heiðmar Gauti. Elsku afi Bói. Það er svo óraunverulegt að hugsa til þess að þú sért ekki hérna lengur. Við héldum svo innilega að við ættum fleiri ár eftir saman. Þú varst alltaf svo góður og þolinmóður við okkur systkinin. Okkur þótti ótrúlega vænt um að frá því að við fjölskyldan fluttum norður komuð þið amma hver einustu jól til okkar á Kópasker. Fyrir okkur hefðu ekki verið jól án ykkar. Ofar- lega í huga eru allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman og eftirvæntingin var ævinlega mikil að heimsækja ömmu og afa í Hlíðó. Þú varst alla tíð svo duglegur að fara með okkur í göngutúr, skutla okkur út um allan bæ og aðstoða okkur við allt sem við báðum þig um þegar þú áttir lausa stund. Minnumst allra gönguferðanna í Kúluna til að kaupa ís og nammi. Síðasta árið var okkur öllum mjög erfitt, að mega ekki vegna covid heimsækja þig eins og við hefðum viljað en erum mjög þakklát fyrir að hafa hitt þig og náð að kveðja þig á síðustu dög- unum. Elsku afi, við þökkum þér allar góðu stundirnar saman. Við munum ætíð sakna þín og bjartar minningar um yndisleg- an afa lifa með okkur ævina á enda. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíldu í friði, elsku afi Bói. Þín barnabörn, Ágúst Örn, Kristveig Halla og Fanney Svava. Gunnar Örn Gunnarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.