Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 64
64 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
England
Burnley – Leicester................................. 1:1
Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í
leikmannahóp Burnley vegna meiðsla.
Sheffield United – Aston Villa ................ 1:0
Crystal Palace – Manchester Utd........ (0:0)
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. Sjá mbl.is/sport/enski.
Danmörk
AGF – Nordsjælland ............................... 0:1
Jón Dagur Þorsteinsson fór af velli hjá
AGF á 9. mínútu.
Horsens – AaB ......................................... 2:1
Ágúst Eðvald Hlynsson kom inn á sem
varamaður hjá Horsens á 90. mínútu.
Staðan:
Midtjylland 18 12 3 3 30:17 39
Brøndby 18 12 1 5 34:22 37
København 19 10 4 5 37:31 34
AGF 19 9 6 4 32:20 33
Randers 18 8 3 7 27:17 27
OB 18 6 6 6 22:22 24
SønderjyskE 18 7 3 8 26:28 24
Nordsjælland 19 5 7 7 28:27 22
AaB 19 5 7 7 21:28 22
Vejle 19 5 6 8 23:30 21
Lyngby 18 2 5 11 19:38 11
Horsens 19 2 5 12 12:31 11
Grikkland
Bikarinn, 8-liða úrslit, seinni leikur:
Lamia – PAOK ......................................... 1:1
Theódór Elmar Bjarnason lék fyrstu 75
mínúturnar með Lamia.
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
PAOK áfram, 6:3 samanlagt.
Katar
Krónprinsbikarinn, 8-liða úrslit:
Al Sailiya – Al-Arabi ............................... 1:4
Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 80.
mínúturnar með Al-Arabi og lagði upp
mark. Freyr Alexandersson aðstoðarþjálf-
ari stýrði liðinu en Heimir Hallgrímsson
þjálfari er veikur.
Meistaradeild kvenna
16-liða úrslit, fyrri leikur:
Rosengård – St. Pölten ........................... 2:2
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Kristrún Rut Antonsdóttir kom inn á
sem varamaður hjá St. Pölten á 76. mínútu.
Barcelona – Fortuna Hjörring................ 4:0
Manchester City – Fiorentina................. 3:0
Wolfsburg – Lilleström ........................... 2:0
Chelsea – Atlético Madrid....................... 2:0
Dominos-deild kvenna
Skallagrímur – Breiðablik ................... 80:48
KR – Fjölnir.......................................... 67:96
Snæfell – Valur ..................................... 69:81
Keflavík – Haukar ............................. (54:53)
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti.
Staðan:
Valur 12 10 2 894:727 20
Keflavík 9 9 0 758:646 18
Haukar 11 7 4 735:705 14
Fjölnir 12 7 5 896:853 14
Skallagrímur 12 6 6 814:833 12
Breiðablik 11 3 8 643:700 6
Snæfell 11 2 9 775:849 4
KR 12 1 11 789:991 2
Evrópubikarinn
16-liða úrslit, H-riðill:
Unics Kazan – Andorra ...................... 85:63
Haukur Helgi Pálsson var stigahæstur
hjá Andorra með 18 stig, tók 5 fráköst og
átti eina stoðsendingu á 24 mínútum.
Unics Kazan 5/0, Gran Canaria 2/3, An-
dorra 2/3, Mornar Bar 1/4.
Litháen
Siauliai – Lietkabelis .......................... 84:86
Elvar Már Friðriksson skoraði 6 stig
fyrir Siauliai, gaf sjö stoðsendingar og tók
eitt frákast á 26 mínútum.
Spánn
B-deild:
Almansa – Girona................................ 84:55
Kári Jónsson leikur með Girona.
NBA-deildin
Washington – Memphis ................... 111:125
Boston – LA Clippers....................... 117:112
Miami – Atlanta .................................... 80:94
San Antonio – New York ................... 119:93
Milwaukee – Denver .......................... 97:128
LA Lakers – Phoenix ....................... 104:114
Staðan í Austurdeild:
Philadelphia 23/12, Brooklyn 23/13, Mil-
waukee 21/14, Boston 18/17, New York 18/
18, Toronto 17/17, Miami 17/18, Charlotte
16/18, Indiana 15/18, Chicago 15/18, Atl-
anta 15/20, Cleveland 14/21, Washington
13/20, Orlando 13/22, Detroit 9/25.
Staðan í Vesturdeild:
Utah 27/8, Phoenix 23/11, LA Lakers 24/12,
LA Clippers 24/13, San Antonio 18/13,
Portland 19/14, Denver 20/15, Golden State
19/16, Memphis 16/15, Dallas 17/16, New
Orleans 15/19, Oklahoma City 14/20, Sacra-
mento 13/21, Houston 11/22, Minnesota 7/
28.
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ariel Hearn var með þrefalda
tvennu fyrir Fjölni þegar liðið vann
stórsigur gegn KR í úrvalsdeild
kvenna í körfuknattleik, Dominos-
deildinni, í DHL-höllinni í Vesturbæ
í gær.
Hearn skoraði 18 stig, tók sextán
fráköst og gaf tólf stoðsendingar í
96:67-sigri Fjölnis en KR leiddi með
fimm stigum eftir fyrsta leikhluta,
31:26.
Fjölnir skoraði 23 stig gegn 9 stig-
um KR í öðrum leikhluta og þrátt
fyrir jafnan þriðja leikhluta skoruðu
KR-ingar einungis 10 stig gegn 29
stigum Fjölnis í fjórða leikhluta.
Annika Holopainen var stigahæst
í liði KR með 26 stig en þetta var
fyrsti sigur Fjölnis eftir þrjá tapleiki
í röð í deildinni.
Dagbjört Dögg Karlsdóttir var
stigahæst Valskvenna þegar liðið
heimsótti Snæfell í Stykkishólm en
leiknum lauk með 12 stiga sigri
Snæfells, 81:69.
Dagbjört skoraði 24 stig og gaf
fimm stoðsendingar en Valskonur
tóku strax frumkvæðið í leiknum og
leiddu með fjórtán stigum í hálfleik,
49:35. Hólmarar náðu aldrei að snúa
leiknum sér í vil í síðari hálfleik og
Valskonur fögnuðu sigri.
Haiden Palmer var stigahæst í liði
Snæfells með 21 stig og fimmtán frá-
köst og Kiana Johnson var nálægt
þrefaldri tvennu í liði Vals, skoraði
15 stig, tók átta fráköst og gaf átta
stoðsendingar.
Þá átti Keira Robinson stórleik
fyrir Skallagrím þegar liðið vann
stórsigur gegn Breiðabliki í Borg-
arnesi.
Leiknum lauk með 80:48-sigri
Skallagríms en Robinson skoraði 31
stig, tók átta fráköst og gaf eina
stoðsendingu.
Skallagrímur byrjaði leikinn af
miklum krafti og leiddi með 15 stig-
um í hálfleik, 34:19. Breiðablik tókst
að klóra í bakkann í þriðja leikhluta
en í fjórða leikhluta skoraði Skalla-
grímur 29 stig gegn 14 stigum Blika.
Jessica Loera var stigahæst í liði
Breiðabliks með 13 stig og sex stoð-
sendingar og Isabella Ósk Sigurð-
ardóttir skoraði 12 stig og tók fjór-
tán fráköst.
Leik Keflavíkur og Hauka var
ekki lokið þegar blaðið fór í prentun
en Keflavík hafði fyrir hann unnið
alla níu leiki sína í deildinni í vetur.
Þreföld tvenna
í stórsigri
í Vesturbæ
Fjölniskonur á beinu brautina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einvígi Annika Holopainen og Ariel Hearn eigast við í Vesturbæ.
breyst síðan þá, eins og til dæmis
að Bretland er ekki lengur í Evr-
ópusambandinu. Það er óvissa í
kringum það og það er ekki vitað
með leikmenn frá Englandi sem
dæmi, hvert mega þeir fara og
hvað gerist þegar þeir koma til
baka. Þetta eru alls ekki aðstæður
sem maður myndi óska sér,“ bætti
Arnar við en reglur FIFA heimila
félagsliðum að meina leikmönnum
sínum að fara í landsliðsverkefni
ef þeir þurfa að fara í sóttkví við
heimkomuna til landsins sem þeir
spila í.
Óvíst er hvort þeir Gylfi Þór Sig-
urðsson og Jóhann Berg Guð-
mundsson verða með íslenska
landsliðinu í knattspyrnu þegar lið-
ið mætir Þýskalandi, Armeníu og
Liechtenstein í undankeppni HM
2022 sem hefst í lok mars.
Þetta staðfesti Arnar Þór Við-
arsson, þjálfari íslenska karla-
landsliðsins í knattspyrnu, í Dag-
málum, nýjum frétta- og
dægurmálaþætti Morgunblaðsins, í
gær.
Ísland mætir Þýskalandi í fyrsta
leik sínum í J-riðli undankeppn-
innar hinn 25. mars í Duisburg en
strangar sóttvarnareglur gilda í
Evrópu í dag vegna kórónuveiru-
faraldursins.
„Staðan er þannig í dag að við
vitum ekki einu sinni hvaða leik-
menn við getum fengið,“ sagði Arn-
ar um mögulegan leikmannahóp Ís-
lands fyrir næstu þrjá landsleiki.
„Það er kórónuveirufaraldur og
það eru mismunandi reglur í mis-
munandi löndum. UEFA og knatt-
spyrnusamböndin náðu mjög vel
utan um þetta í síðasta lands-
leikjaglugga en það hefur ýmislegt
Mikil óvissa í kringum landsliðið
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfari Arnar tók við þjálfun karla-
landsliðsins í desember á síðasta ári.
Kelechi Iheanacho tryggði Leicest-
er jafntefli þegar liðið heimsótti
Burnley á Turf Moor í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Matej Vydra kom Burnley yfir
strax á 4. mínútu eftir slæm mistök
Hamza Choudhury en Iheanacho
jafnaði metin fyrir Leicester á 34.
mínútu og lokatölur því 1:1.
„Við byrjuðum leikinn illa en
sýndum andlegan styrk með því að
koma til baka og jafna metin,“
sagði Brendan Rodgers, stjóri Leic-
ester, í samtali við Sky Sports í
leikslok.
„Við erum sáttir við stigið þótt
við getum vissulega bætt okkur á
ákveðnum sviðum,“ bætti stjórinn
við.
Þrátt fyrir jafntefli gærdagsins
og dýrmæt stig í súginn í toppbar-
áttunni hefur Leicester verið í
fantaformi á útivelli í deildinni á
tímabilinu og unnið níu leiki til
þessa, gert þrjú jafntefli og aðeins
tapað einum leik.
Þetta er næstbesti árangur liðs-
ins í efstu deild en liðið vann ellefu
leiki á útivelli þegar það varð Eng-
landsmeistari tímabilið 2015-16.
AFP
Fyrirmæli Brendan Rodgers fer yfir málin með lærisveinum sínum í gær.
Dýrmæt stig í súginn
Norðmenn hirtu öll verðlaunin í 15
kílómetra skíðagöngu karla á
heimsmeistaramótinu í norrænum
greinum í Oberstdorf í Þýskalandi
í gær.
Hans Christer Holund vann
sannfærandi sigur á 33:48,7 mín-
útum og kom í mark rúmum 20
sekúndum á undan landa sínum Si-
men Hegstad Krüger sem gekk
brautina á 34:08,9 mínútum.
Bronsið fékk svo þriðji Norðmað-
urinn, Harald Östberg Amundsen,
á 34:24,3 mínútum.
Þeir Holund og Krüger keppa
báðir fyrir íþróttafélagið Lyn í
Ósló sem fagnaði einmitt 125 ára
afmæli í gær og gat vart fengið
betri afmælisgjöf en gull- og silf-
urverðlaunahafa á heimsmeist-
aramóti.
Snorri Eyþór Einarsson hafnaði
í 59. sæti í göngunni á 38:13,0 mín-
útum og Albert Jónsson varð í 96.
sæti á 42:28,1 mínútu. Snorri var
með rásnúmer 23 en Albert 101.
Keppendur voru 111 og af þeim
luku 102 keppni.
Þrefaldur norskur sigur
AFP
Bestir Simen Hegstad Krüger og Hans Christer Holund fagna eftir göng-
una í gær en liðsfélagarnir frá Lyn kræktu í gullið og silfrið á HM.