Morgunblaðið - 04.03.2021, Qupperneq 66
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Þó þessi saga sé næstum þriggja
alda gömul á hún heilmikið erindi í
dag, það er heilmargt í gangi í
heiminum sem kallast á við þetta,“
segir Þór Tulinius, leikstjóri
sýningarinnar Sunnefa, sem leik-
hópurinn Svipir stendur að og
frumsýnd verður í Tjarnarbíói í
kvöld kl. 20. Í
verkinu er rakin
saga Sunnefu
Jónsdóttur sem
var í tvígang
dæmd til drekk-
ingar snemma á
18. öld. Sunnefa
var sögð hafa
eignast börn með
yngri bróður sín-
um, fyrst þegar
hún var 16 ára og svo þegar hún
var 18 ára. Hún neitaði sök á Þing-
völlum árið 1743 og sagði föður
seinna barnsins sýslumanninn Hans
Wium. Sunnefa var fátæk og hug-
rökk alþýðustúlka sem reis upp
gegn yfirvaldinu á tímum þegar
konum var drekkt og menn ýmist
hengdir eða hálshöggnir.
Sunnefa er kvennatvíleikur þar
sem leikkonurnar Tinna Sverris-
dóttir og Margrét Kristín Sigurðar-
dóttir kafa ofan í sögu Sunnefu,
rýna í heimildir og miðla rannsókn-
um sínum til leikhúsgesta. „Hvert
var raunverulegt faðerni barna
hennar? Hvað var í húfi þegar hul-
unni var svipt af sannleikanum?
Hverjar voru þessar „ólánskonur“
sem létu lífið í drekkingarhyljum
landsins og það oft fyrir litlar sak-
ir?“ er spurt á vef Tjarnarbíós en
verkið var sýnt á Egilsstöðum,
heimaslóðum Sunnefu, í fyrra. Árni
Friðriksson skrifaði verkið í sam-
starfi við leikhópinn og Margrét
Kristín, sem gengur einnig undir
listamannsnafninu Fabúla, sá um
tónlist og hljóðmynd.
Líka sögur annarra kvenna
„Við hópurinn erum búin að vera
á kafi í þessu, með einhverjum
hléum, frá því í febrúar og hand-
ritið þróaðist í vinnunni,“ segir Þór
um leiksýninguna sem er þriðja
sýning Svipa.
–Þekktir þú þessa sögu vel áður
en þú fórst að leikstýra sýningunni?
„Nei, ég get ekki sagt það, ég
þekkti hana alls ekki vel. Ég vissi
eitthvað um stóradóm og vissi
náttúrlega að kerfið hefði orðið
miklu harðneskjulegra og strangara
eftir siðaskipti og að konum hefði
verið drekkt, vissi af Gálgaklettum
og svo framvegis. Þessa sögu
þekkti ég ekki beint og enga af
þessum sögum og við tökum fyrir í
þessu verki ekki aðeins sögu Sunn-
efu heldur drepum við líka á sögur
annarra kvenna sem var drekkt.“
Sunnefa var dæmd árið 1739 fyr-
ir sifjaspell eða blóðskömm, eins og
það hét í þá tíð, dæmd fyrir að
eignast barn með bróður sínum
sem var aðeins 14 ára. Þór segir að
tveimur árum seinna hafi Sunnefa
eignast annað barn og í raun verið
þvinguð til að kenna það líka bróð-
ur sínum. Barnið fæddist þegar
Sunnefa var í vörslu sýslumannsins
Hans Wium og segir Kári að Sun-
nefa hafi orðið fræg fyrir að rísa
upp á Þinvöllum og lýsa því yfir að
sýslumaðurinn væri faðir barnsins.
„Þannig varð þetta eitt lengsta
réttarfarsmál sögunnar á þessum
tíma, var að þvælast í kerfinu í 17
ár,“ segir Þór.
„Yfirvaldið skrifar söguna“
„Þetta er rosalega áhugavert
tímabil úti um allan heim. Rosaleg-
ur púrítanismi í gangi og ofbeldi,“
segir Þór en á Vísindavefnum segir
að ætla megi að frá lokum 16. aldar
fram á fyrstu ár 18. aldar hafi allt
að hundrað einstaklingar verið líf-
látnir, bæði karlar og konur, hér á
landi. Algengustu dauðadómarnir
voru annars vegar fyrir svokölluð
dulsmál, þ.e. þegar fæðingu barns
var leynt og það borið út eða látið
deyja, og hins vegar blóðskömm
sem í dag væri kallað sifjaspell.
Tugum kvenna var drekkt.
Þór segir engu hafa skipt hvort
konum hafi verið nauðgað á þessum
tíma. „Yfirvaldið skrifar söguna,“
segir hann.
Gloppur í heimildum
–En hvernig er þessi saga sett á
svið?
„Þetta er í rauninni sett þannig á
svið að þetta eru tvær leikkonur,
tvær konur í dag að rannsaka þetta
mál, að lesa sér til um það. Þær
fatta hversu ótrúlega miklar glopp-
ur eru í heimildum. Það er til dæm-
is ekki vitað hvernig Sunnefa dó,
hvort henni var drekkt eða hvort
hún dó úr vosbúð í haldi sýslu-
manns. Heimildirnar benda frekar
til þess að hún hafi dáið úr vosbúð í
haldi hans en svo er til hylur fyrir
austan sem heitir Sunnefuhylur.
Þannig að hviksögurnar voru þær
að hann hefði drekkt henni þar,“
segir Þór. Konurnar tvær reyni að
finna þá sögu sem er líklegust og
leiki þá sögu, önnur fari í hlutverk
Sunnefu og hin í öll hin hlutverkin.
Frekari upplýsingar um sýn-
inguna og um miðasölu má finna á
vef Tjarnarbíós, tjarnarbio.is.
Hvað varð um Sunnefu?
Tvíleikurinn Sunnefa frumsýndur í Tjarnarbíói í kvöld Sunnefa var fátæk stúlka sem var í tví-
gang dæmd til drekkingar á 18. öld Tvær leikkonur rannsaka sögu Sunnefu og færa hana á svið
Sunnefa Leikkonurnar Tinna Sverrisdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir kafa ofan í sögu Sunnefu.
Þór Tulinius
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2021
Sýningin Augnsamband verður
opnuð í Borgarbókasafninu í
Spönginni í dag kl. 17 og verður
hún opin á afgreiðslutíma safnsins
frá 4. mars til 15. apríl. Á henni má
sjá verk eftir Önnu Gunnlaugs-
dóttur, andlitsmyndir málaðar á
striga og pappír og segir í tilkynn-
ingu að Anna fjalli í verkum sínum
um sjálfsskoðun og speglun á sam-
mannlegu eðli.
„Andlitsmyndir hennar eru flest-
ar unnar á fordæmalausum tímum
heimsfaraldurs, hún nálgast ásjónu
faraldursins í gegnum andlit, mál-
uð á striga og pappír. Myndirnar
vísa í viðbrögð okkar við áreiti um-
hverfisins í breyttri samfélagsmynd
á tímum veirunnar. Einangrun,
kvíði og óöryggi ráða ferðinni, en
þar ríkir líka ákveðinn friður í ein-
faldari dagskipan,“ segir í tilkynn-
ingu og að á rúmlega 40 ára listferli
hafi sjálfsmynd konunnar verið
meginumfjöllunarefni Önnu.
Augnsamband í Borgarbókasafninu
Andlitsmynd Eitt af verkum Önnu á
sýningunni á Borgarbókasafni í Spönginni.
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími8:00-16:30
Veitingamenn athugið!
Við sérhæfum okkur í þjónustu fyrir veitingahús
www.borgarsogusafn.is
Sjó
min
jas
afn
ið í
Rey
kja
vík
frá
bæ
rum
Lan
dná
ms
sýn
ing
in
safnE
itt
Árb
æja
rsa
fn
Ljó
sm
ynd
asa
fn R
eyk
jav
íku
r
á fi
mm
Við
ey
stö
ðu
m