Morgunblaðið - 04.03.2021, Page 76
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
TAX
FREE
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24%
virðisaukaskatt af þessari sölu. Verðlækkunin
19,36% er alfarið á kostnað ILVA
4. - 8. MARS
*Gildir ekki um vörur á áður
niðursettu verði. Gildir á meðan
birgðir endast.
AF ÖLLUM
VÖRUM*
Skáldkonurnar
Kristín Steins-
dóttir og Benný
Sif koma í heim-
sókn á Borgar-
bókasafnið í Sól-
heimum í dag kl.
17.30, lesa upp úr
nýjustu verkum
sínum og ræða
við bókmenntafræðinginn og leikkonuna Maríönnu Clöru
Lúthersdóttur. Kristín á langan og farsælan rithöfundar-
feril að baki og hefur einnig skrifað leikrit og í nýjustu
bók sinni, Yfir bænum heima, snýr hún aftur til Seyðis-
fjarðar þar sem hún fæddist og ólst upp. Hansdætur er
önnur skáldsaga Bennýjar Sifjar sem hlaut nýrækt-
arstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2018 fyrir
fyrri skáldsögu sína, Grímu. Benný hefur einnig skrifað
barnabækurnar Jólasveinarannsóknin og Álfarann-
sóknin. Sóttvarnareglum verður fylgt í bókasafninu og er
aðgangur að viðburðinum ókeypis.
Skáldkonur lesa upp úr verkum
sínum og ræða við Maríönnu Clöru
FIMMTUDAGUR 4. MARS 63. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Óvíst er hvort þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg
Guðmundsson verða með íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu þegar liðið mætir Þýskalandi, Armeníu og Liecht-
enstein í undankeppni HM 2022 sem hefst í lok mars.
Þetta staðfesti Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu, í Dagmálum, nýjum
frétta- og dægurmálaþætti Morgunblaðsins, í gær. Ísland
mætir Þýskalandi í fyrsta leik sínum í J-riðli undan-
keppninnar hinn 25. mars í Duisburg en strangar sótt-
varnareglur gilda í Evrópu vegna kórónuveirunnar. »64
Mikil óvissa í kringum íslenska
karlalandsliðið fyrir marsleikina
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Starfið í lögreglunni er sennilega
hvergi fjölbreyttara en í afskekktri
byggð úti á landi. Hér er maður
einn á vaktinni og þarf að geta sinnt
öllum verkefnum sem upp koma.
Verið í senn sérsveitarmaður og
sálusorgari, við umferðareftirlit og
að vísa fólki til vegar. Nálægðin við
íbúana er mikil, samfélag þar sem
undirstaðan er landbúnaður og sjáv-
arútvegur,“ segir Guðmundur Fylk-
isson lögreglumaður.
Stórt varðsvæði
Um þessar mundir stendur Guð-
mundur vaktina sem lögreglumaður
á Þórshöfn á Langanesi; á varð-
svæði sem nær frá Jökulsá á Fjöll-
um, yfir Núpasveit, Melrakkasléttu,
Þistilfjörð og suður á Sandvíkur-
heiði. Á þessum slóðum eru þétt-
býlisstaðirnir Kópasker, Raufarhöfn
og Þórshöfn, fjarlægðir miklar og
byggðin gisin. Eigi að síður þurfa
samfélagslegir innviðir að vera til
staðar; verslun, bensínstöð, skólar,
vegagerð, læknar og fleira slíkt og
svo auðvitað lögregluvakt.
„Að ég kæmi til starfa hér var
nánast tilviljun. Ég er frá Ísafirði,
byrjaði í löggunni þar árið 1985 og
var þar lengi,“ segir Guðmundur og
heldur áfram: „Ég fór til starfa á
höfuðborgarsvæðinu og hef verið í
ýmsum hlutverkum þar, auk þess að
hafa verið afleysingamaður á ýms-
um stöðum: svo sem á Selfossi og
Egilsstöðum. Þó ég hafi flækst víða
um landið átti ég alltaf eftir að
heimsækja norðausturhornið, hvað
þá starfa þar. Það var svo sumarið
2017 sem ég nefndi við félaga mína í
lögreglunni á Norðurlandi eystra að
ef vantaði mann í afleysingar mætti
hafa mig í huga. Ég var tekinn á
orðinu; var kominn á svæðið fjórum
dögum síðar og er núna í mínu
sjötta úthaldi hér. Er þá gjarnan
hér í tvær til þrjár vikur og verð það
nú.“
Skaðræðisskepnur
Ísbjörn var felldur í Þistilfirði
snemma árs 2010. Í ljósi þess að
birnir hafa nokkrum sinnum birst á
norðanverðu landinu á síðustu árum
er gát höfð gagnvart því að bangsar
birtist; slíkar skaðræðisskepnur
þykja þeir vera og vekja ugg í allra
brjósti.
„Ég segist gjarnan vera á ís-
bjarnavaktinni hér á Þórshöfn; í
þessu stórbrotna en hrjóstruga um-
hverfi hér í norðrinu. Ég hef heillast
af þessu svæði en þó ekki síður
mannlífinu hér.“
Minn staður
Guðmundur Fylkisson er í föstu
starfi sem aðalvarðstjóri hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Á
þeim vettvangi er hlutverk hans að
hafa uppi á týndum börnum sem
hugsanlega eru í neyslu eða í haldi
manna. Starfið hefur vakið athygli
víða, þykir þarft en er slítandi.
„Að koma börnum í vanda til að-
stoðar er mjög gefandi starf og
áhugavert. Því er ágætt að geta
stundum kúplað sig út, farið í önnur
mál um um stundarsakir og safnað
sér saman til nýrra verkefna. Þórs-
höfn er minn staður,“ segir Guð-
mundur Fylkisson að síðustu.
Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson
Sjálfa Einn á vaktinni og þarf að geta sinnt öllum verkefnum, segir Guðmundur Fylkisson um starf sitt á Þórshöfn.
Einn á ísbjarnavakt
Fjölbreytt verkefni lögreglumannsins á Langanesi