Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 43
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá
Menntasjóði námsmanna geta sótt um styrk til jöfnunar á
námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem
stunda nám fjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og
fjölskyldu sinni vegna náms og greiða leigu).
• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá
lögheimili fjarri skóla).
Opnað er fyrir umsóknir 1. september 2021.
Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skil-
ríkjum á “Mitt Lán” sem aðgengilegt er í gegnum heimasíðu
okkar www.menntasjodur.is eða island.is. Nemendur og
aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um
styrkinn á vef Menntasjóðsins.
Menntasjóður námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Jöfnunarstyrkur
til náms
Umsóknarfrestur á haustönn
2021 er til 15. október n.k.
Námsleyfi grunnskólakennara
og skólastjórnenda
skólaárið 2022–2023
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum um náms-
leyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið
2022–2023. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við úthlutun
verði sett í forgang nám sem tengist:
• stafrænni umbreytingu náms- og kennsluhátta
• lýðræði í skólastarfi
• fjölbreyttum kennsluháttum og nýsköpun
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi
á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga,
www.samband.is. Umsóknir á öðru formi verða ekki teknar
gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar
upplýsingar að koma fram í umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2021.
Umsækjandi sem æskir námsleyfis skal að lágmarki full-
nægja eftirfarandi skilyrðum, sbr. reglur um Námsleyfasjóð:
a) Hafa, þegar sótt er um námsleyfi, gegnt starfi í 10 ár
samtals við kennslu, ráðgjöf eða stjórnun í grunn
skóla á Íslandi, í eigi minna en hálfu starfi, og verið samfellt í starfi sl. fjögur ár, enda hafi verið greitt fyrir umsækjanda í sjóðinn.
b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags eða aðila sem stofnað er til með samstarfi sveitarfélaga og taka laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna grunnskólans.
c) Ljúka á námstímanum 60 ECTS eininga háskólanámi, eða jafngildu háskólanámi, miðað við 1/1 námsleyfi, og skal námið miða að því að nýtast viðkomandi í því
starfi sem hann er ráðinn til að sinna.
Með umsókn þarf að berast staðfesting sveitarfélags/
skólastjóra, eða eftir atvikum rekstraraðila skóla, um að
skilyrðum a) og b) liðar hér að ofan sé uppfyllt á þar til gerðu
eyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Reglur um Námsleyfasjóð og viðmiðunarreglur um laun í náms-
leyfi er að finna á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga
og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér þær.
Við mat á umsóknum er haft til hliðsjónar hversu vel hún er
rökstudd, hversu skýr markmið hennar eru, hvernig námið
nýtist umsækjanda í núverandi starfi og stofnuninni sem
hann vinnur hjá eða skólakerfinu í heild.
Stefnt er að því að svarbréf berist umsækjendum eigi síðar
en um miðjan desember 2021.
Nánari upplýsingar veitir Klara E. Finnbogadóttir í síma 515 4900 eða í tölvupósti á klara.e.finnbogadottir@samband.is
Akraneskaupstaður auglýsir laust til umsóknar
spennandi og fjölbreytilegt starf skrifstofustjóra
á skrifstofu bæjarstjóra. Óskað er eftir metnaðarfullum
og framsýnum leiðtoga sem hefur mikið frumkvæði og
drifkraft til að þróa áfram stafræna stjórnsýslu hjá
kaupstaðnum og efla þjónustu við íbúa.
Býr öflugur leiðtogi í þér?
Skrifstofustjóri gegnir forystuhlutverki í þjónustu- og stafrænni þróun,
atvinnuuppbyggingu, ferða- og markaðsmálum ásamt menningar- og
safnamálum. Skrifstofa bæjarstjóra er ný eining sem stofnuð var um síðustu
áramót. Undir skrifstofuna falla einnig mannauðsmál og verkefnastofa.
Hlutverk skrifstofunnar er að ná betri samþættingu málaflokka ásamt því að
auka og bæta innri og ytri þjónustu Akraneskaupstaðar, auka skilvirkni í
rekstri sveitarfélagsins með upplýsingatækni, skýrari verkferlum, stjórnun
og öflugu starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2021.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá ásamt
greinargerð þar sem fram koma ástæður
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi til starfsins. Vakin er athygli
á því að starfið hentar öllum kynjum.
Nánari
upplýsingar um
helstu verkefni
og ábyrgð ásamt
menntunar- og
hæfnisstörfum
má finna hér
Býr öflugur
leiðtogi í þér?
Þú ert ráðin/n!
FAST
Ráðningar
Uppáhaldssetningin okkar hjá FAST ráðningum
www.fastradningar.is
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 28. ágúst 2021