Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 34
Upplýsingafulltrúi
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið leitar eftir einstaklingi sem býr yfir
drifkrafti, frumkvæði og góðri samskiptafærni til að sinna fjölbreyttu
og krefjandi starfi upplýsingafulltrúa ráðuneytisins.
Upplýsingafulltrúi hefur m.a. umsjón með miðlun upplýsinga af starfi
ráðuneytisins, samskiptum við fjölmiðla, vef, samfélagsmiðlum og
fræðslu- og kynningarstarfi. Upplýsingafulltrúi heyrir undir skrifstofu
ráðuneytisstjóra.
Í ráðuneytinu er öflugur og samhentur hópur starfsmanna sem starfar á sex
skrifstofum. Undir ráðuneytið heyra umfangsmikil samfélagsleg verkefni
svo sem á sviði loftslags- og umhverfismála, náttúruverndar og náttúruvár.
Ráðuneytið leggur áherslu á góða liðsheild og góðan starfsanda. Ráðuneytið
er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi og jafnlaunavottun.
Meginverkefni:
• Ábyrgð á upplýsingamiðlun ráðuneytisins
• Umsjón með samskiptum og miðlun til fjölmiðla og skipulagi
fjölmiðlaviðburða
• Umsjón með vef og samfélagsmiðlum ráðuneytisins
• Umsjón með fræðslu- og kynningarstarfi ráðuneytisins
• Umsjón með innri vef ráðuneytisins
• Þátttaka í ýmsum verkefnum og starfshópum innan og utan
ráðuneytisins sem undir starfið heyra
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistaragráða er æskileg
• Marktæk reynsla á sviði upplýsinga- og kynningarmála
• Reynsla af störfum við fjölmiðla er kostur
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum og geta til að mynda tengslanet
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa undir álagi
• Góð tölvuþekking. Kunnátta í power point, infogram og vefumsjónarforritum
er kostur
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli
Umsóknarfrestur er til og með 6. september nk. Sótt er um starfið á Starfatorgi – starfatorg.is
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri
(sigridur.arnardottir@uar.is) eða í síma 545-8600.
Læknisstaða á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands
SÉRFRÆÐILÆKNIR Í ALMENNUM LYFLÆKNINGUM
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í almennum lyflækningum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað.
Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina. Staðan veitist frá 1. október 2021 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þjónusta við heilsugæslu og göngudeild umdæmissjúkrahússins í Neskaupstað
• Þátttaka í vaktþjónustu
• Þátttaka í kennslu læknanema og deildarlækna
• Þátttaka í þverfaglegri samvinnu og teymisvinnu HSA
• Sérfræðingur í lyflækningum myndar ásamt skurðlækni, svæfingalækni og deildarlækni öflugt teymi lækna við sjúkrahúsið og
heilsugæsluna. Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT-tæki, ómtæki, speglanatækjum og rannsóknarstofu. Farandsérfræðingar í
ýmsum greinum heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræðiþjónustu í nærumhverfinu.
Hæfniskröfur
• Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum
Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2021
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/umsoknir/ til
HSA, framkvæmdastjóra mannauðs , Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám,
starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á
innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbak-
snotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
Nánari upplýsingar veita Jón H. H. Sen, forstöðulæknir, s. 840-4144 og 4701450, jon.sen@hsa.is Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri
lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, petur.heimisson@hsa.is Guðjón Hauksson, forstjóri, s. 470-3050, gudjon.hauksson@hsa.is
Emil Sigurjónsson framkvæmdastjóri mannauðs, s. 470 3053 og 895 2488, netf. emil.sigurjonsson@hsa.is .
Fjarðabyggð er ákjósanlegur kostur
jafnt í starfi og leik:
Samfélagið Í Neskaupstað er sterkt skólasamfélag:
leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og verkmenntaskó-
li. Næsti menntaskóli er á Egilsstöðum. Vegaleng-
dir eru að jafnaði stuttar og fólk því fljótt í förum
milli staða, hvort sem um er að ræða t.d. skóla eða
þjónustu af ýmsum toga. Íbúarnir eru samheldnir og
samfélagið líflegt. Íbúafjöldi er um 1400 manns.
Íþróttir Íþróttalífið á svæðinu er fjölbreytt og ýmis-
legt í boði, svo sem sjósport, fjallgöngur, fótbolti, blak,
sund, hestamennska, skíði, golf og karate. Oddskarð
er skíðasvæði í fjöllunum milli Norðfjarðar og Es-
kifjarðar. Það er rómað fyrir náttúrufegurð og góðan
aðbúnað. Mjög góður 9 holu golfvöllur er í Norðfirði.
Samgöngur Ný Norðfjarðargöng hafa gjörbylt
samgöngum í Fjarðabyggð. Egilsstaðaflugvöllur er í
aðeins tæplega klukkustundar akstursfjarlægð.
Náttúrufegurð Náttúra Austurlands er í senn
mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt með
að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og
náttúruunnendur eru óvíða betur í sveit settir en
einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn vilja lóna á
fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar.
Áhugafólk um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til
sjós og lands og allir eru þeir nærtækari en menn
gæti að óreyndu grunað.
Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað starfrækir
blandaða lyf- og handlækningadeild, hjúkrunardeild, fæðingardeild
og endurhæfingardeild ásamt stoðdeildum, sem og heilsugæslu
fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði. Auk lyflæknis starfa svæfinga-
læknir, skurðlæknir og deildarlæknir á FSN. Þjónustusvæði
sjúkrahússins nær frá Bakkafirði til Djúpavogs, svæðis sem telur
um 11.000 íbúa. Flugvöllur fyrir sjúkraflug er í Neskaupstað. Megin-
hlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjónustu,
samanber lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, og það er hlekkur í
þjónustukeðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum: heilsugæslu-,
hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru auk FSN sjö
heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar 11 talsins. HSA byggir
þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.