Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 25
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 28. ágúst 2021
Yara Birkeland er rafknúið og sjálf-
siglandi skip.
sandragudrun@frettabladid.is
Vöruflutningaskip án áhafnar sem
losar engan koltvísýring verður
sjósett í árslok. Það er rafknúna
flutningaskipið Yara Birkeland
sem mun sigla sína fyrstu ferð
milli tveggja norskra borga. Fylgst
verður með skipinu frá þremur
gagnaeftirlitsstöðvum á landi
þegar það ferðast á milli borganna
tveggja. Þetta rafknúna gámaskip
er hannað til að draga úr losun í
skipaflutningum en þeir standa
nú fyrir á milli 2,5 til 3 prósentum
af losun gróðurhúsalofttegunda á
heimsvísu. Skipið var hannað árið
2017 og getur flutt 103 gáma á allt
að 13 hnúta hraða.
Upphaflega var áætlað að Yara
Birkland færi í jómfrúarferð sína
árið 2020 en heimsfaraldurinn
seinkaði þeim áætlunum. Yara
International sem smíðar skipið
segir að smíðin hafi farið fram
samkvæmt áætlum með smávægi-
legum töfum en hennir hafi fylgt
óvissuþættir og áskoranir líkt og
algengt er með nýsköpunarverk-
efni.
Fyrsta rafknúna gámaskipið
Yara Birkeland er ekki fyrsta skipið
sem siglir án áhafnar en árið 2018
sigldi sjálfsiglandi ferja sínu fyrstu
ferð frá Finnlandi. Skipið er aftur
á móti fyrsta gámaskipið sem er
eingöngu knúið rafmagni að sögn
framleiðendanna. n
Mannlaust og
umhverfisvænt
vöruflutningaskip
Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is
KOMIN
AFTUR!
Rannsóknarteymi SagaNatura samanstendur af fjórum öflugum vísindamönnum, Steinþóri Sigurðssyni, PhD, Snæfríði Arnardóttur, MSc, Páli Arnari Hauks-
syni, MSc og Lilju Kjalarsdóttur, PhD. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
AstaSkin lausn á algengu húðvandamáli
Rannsóknarteymi SagaNatura hefur staðið í ströngu síðastliðið ár við rannsóknir á virkni
AstaSkin gegn algengu húðvandamáli sem kallast „chicken skin“, eða KP (Keratosis pilaris),
og hrjáir um þriðjung mannkyns. 2