Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 76
Allir elska Frikka Dór Í gær var frumsýndur söngleikur- inn Hlið við hlið sem byggður er á lögum Frikka Dórs. Hugmyndin kom til Höskuldar Þórs á tón- leikum með Frikka fyrir nokkrum árum. Hann fékk Berglindi Öldu með sér í verkið. Fékk Helen Hunt í hlaðvarpið Anna Rósa ákvað að hrinda af stað verkefni þar sem hún fær listafólk til að tengjast og miðla þekkingu sinni. Í kringum verkefnið stofnaði hún hlaðvarp og í það kom Óskars- verðlaunaleikkonan Helen Hunt. Sveitastörfin heilluðu Áhrifavaldarnir Sunneva Einars og Jóhanna Helga eru stjórnendur þáttarins #Samstarf sem sýndur er á Stöð 2+. Þar ganga þær í ýmis störf, en sveitastörfin heilluðu þær sérstaklega. Miklu meira en bara ást Sigurbjartur Sturla og Ebba Katrín fara með aðalhlutverkin í Rómeó og Júlíu í Þjóðleikhúsinu. Þau segj- ast vona að verkið skapi umræðu um þá einangrun og vanlíðan sem ungt fólk hefur þurft að upplifa í faraldrinum. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is n Lífið í vikunni 22.08.21 28.08.21 Styður við bakið á þér! Sealy er annar stærsti dýnuframleiðandi í heimi og hefur verið starfandi í 140 ár. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Amerískir dagar Sealy WASHINGTON heilsurúm með classic botni Virkilega vönduð dýna og hentar fólki á öllum aldri. Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu tvöföldu pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri og þægilegri yfir- dýnu Gormakerfinu er skipt upp eftir svæðum þannig að það er með meiri stuðning þar sem við erum þyngri eins og öxlum og mjöðmum. Lítil sem engin hreyfing finnst milli rekkjunauta. Yfirdýnan (topperinn) er samsett úr fjórum lögum og þar á meðal er gel lag (gel infused memory foam) sem lagast algjör- lega að líkamanum og heldur honum í réttri stellingu alla nóttina. Áklæðið utan um dýnuna er silki og bómullarblanda sem andar einstaklega vel sem og gefur extra mýkt. Millistíf dýna. Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. 20% AFSLÁTTUR Amerískir DAGAR Sealy Washington fæst í eftirtöldum stæðum: 160/180/200 x 200 og 192 x 203 cm Verðdæmi 160 x 200 cm m/Classic botni og löppum Fullt verð: 269.900 kr. AD tilboð: 215.920 kr. Brynhildur Oddsdóttir er fjöl- hæf þegar kemur að tónlist. Hún hefur spilað víðs vegar um heiminn en er sérstaklega minnisstætt þegar hún sá að gítarinn hennar var brotinn rétt fyrir gigg. steingerdur@frettabladid.is Brynhildur Oddsdóttir er söngkona, gítarleikari og tónlistarkennari. Hún fer fyrir hljómsveitinni Beebee and the bluebirds. „Tónlist hefur alltaf skipað stór- an sess í lífi mínu og ég elska að geta tjáð mig í gegnum tónlist. Ég hef líka fengið góðan stuðning frá fjölskyldunni í gegnum tíðina sem hefur verið mér ómetanlegt.“ Brynhildur byrjaði snemma í tón- listinni. „Ég fór í fiðlunám þegar ég var átta ára gömul, og var í því alveg fram á unglingsaldur. Svo ákvað ég að fara líka í söngnám. Ég kláraði svo tónsmíðanám í Listaháskól- anum, djasssöng í FÍH og er að taka lokapróf í rafgítarnámi þar í haust,“ segir Brynhildur. Hana hafði lengi dreymt um að spila á rafmagnsgítar. „Síðan kaupi ég mér fyrsta raf- magnsgítarinn árið 2009, eftir að hafa verið aðeins að dunda við að spila á kassagítar. Stuttu eftir það, árið 2010, stofnaði ég hljómsveitina Beebee and the bluebirds, í tilefni af Blúshátíð sama ár. Nafnið er sam- bland af Beebee, sem ég hef verið kölluð af og til í gegnum tíðina, og bluebirds sem er smá skírskotun í blúsinn. Við höfum spilað á hinum ýmsu viðburðum og tónlistarhátíð- um á Íslandi og erlendis,“ segir hún. Hún lýsir tónlistinni á þann máta að hún sé sambland af blús, djassi, „soul“ og rokki. „Ég sem lög sem mér f innst skemmtilegt að spila og yfirleitt set ég inn allavega eitt gítarsóló og hljómborðssóló. Svona svo við getum fengið aðeins meiri útrás og farið á flug.“ Hljómsveitin hefur ferðast vítt og breitt um heiminn. „Við höfum lent í ýmsu í gegnum tíðina en ein eftirminnilegasta minning mín gerðist í Chicago fyrir nokkrum árum. Þá var ég á leiðinni þangað að spila á tónleikum fyrir Iceland Nat- urally. Ég var bara að spila ein með rafmagnsgítarinn.“ Tónleikarnir voru sama dag og átti Brynhildur að spila á viðburði fyrir fjölmiðla og f leiri sem kynn- ingu fyrir Ísland á efstu hæð ann- arrar hæstu byggingar Chicago. „Þegar ég mætti á hótelið og ætlaði að fara að stilla gítarinn, þá opna ég töskuna og fíni hvíti Gib- son-gítarinn minn er brotinn. Það var klukkutími í gigg og ég horfi á hálsbrotinn gítarinn, strengirnir úti um allt og ég á leiðinni að spila. Ekki nóg með það að mig vantaði gítar, þá var ekki auðvelt að horfa á eina hljóðfærið sitt á þeim tíma í algjörri rúst,“ útskýrir hún. Sem betur fer voru stjórnendur viðburðarins vel í stakk búnir og fengu leigðan svartan Gibson sem bjargaði ferðinni að sögn Bryn- hildar. „Þegar ég kom heim fékk ég skila- boð frá Gunnari Erni Sigurðssyni gítarsmið, sem sagðist geta lagað gítarinn fyrir mig. Ég fékk hann til baka eins og ekkert hefði gerst. Ein- hver sagði við mig að að þetta væri málið með Gibson-gítara, þeir eru annaðhvort búnir að hálsbrotna eða eiga það eftir,“ segir Brynhildur. Beebee and the bluebirds gaf út á dögunum lagið Mama knows best, sem Brynhildur segir vera mjög fönkskotið. „Við erum á fullu að bóka gigg fyrir haustið og verðum með tón- leika á Græna hattinum og Máli og menningu í október. Svo erum við að vinna í tveimur nýjum lögum í hljóðverinu og plönum að gefa út plötu snemma á næsta ári.“ n Tónlist hefur alltaf skipað stóran sess í lífi mínu Beebee and the bluebirds spilar á Græna hattinum og í Máli og menningu í október. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Einhver sagði við mig að þetta væri málið með Gibson-gítara, þeir eru annaðhvort búnir að hálsbrotna eða eiga það eftir. 44 Lífið 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.