Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 80
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Flokkarnir hafa nú raðað á fram-
boðslista sína álitlegu fólki. Allir
gera sér dælt við ellilífeyrisþega,
jaðar hópa og fræga fólkið til að
leggja áherslu á yfirdrifið frjáls-
lyndi. En hvar standa hetjur Íslend-
ingasagna og Sturlungu?
Grettir Ásmundsson var maður
einkaframtaksins, enda lynti
honum ekki við nokkurn mann.
Hann hefði setið á lista Miðflokks-
ins á Norðurlandi og jafnframt
handrukkað fyrir formanninn.
Umhverfissinninn Gunnar á Hlíðar-
enda hefði fylgt VG og farið í fram-
boð fyrir flokkinn. Hann hefði verið
rekinn af listanum vegna orðróms
um heimilisofbeldi.
Glæsimennið Sturla Sighvatsson
var þekktur fyrir að veðja á rangan
hest, svo að hann hefði endað í
Viðreisn. Hallgerður langbrók
og Guðrún Ósvífursdóttir hefðu
komið á fót nýju kvennaframboði,
langþreyttar á yfirgangi kalla.
Samfylking og Miðflokkur hefðu
árangurslaust reynt að fá þær sem
skrautfjaðrir neðarlega á lista sína.
Gissur Þorvaldsson bar kápuna
ávallt á báðum öxlum og treysti
engum. Hann hefði farið í framboð
fyrir Framsóknarflokkinn á Suður-
landi. Hinn siðblindi Kolbeinn ungi
Arnórsson hefði komist til áhrifa í
Samfylkingunni. Hann hefði makað
krókinn sem lögmaður beggja
vegna borðsins og því alltaf hrósað
sigri. Skáldið Sturla Þórðarson hefði
gengið í lið með Pírötum. Óskiljan-
leg stefnuskrá flokksins hefði fallið
honum vel í geð. Stóreignamaður-
inn Snorri Sturluson hefði fylgt
Sósíalistum að máli, enda henti-
stefnumaður sem hugsaði einungis
um eigin hag. Egill Skallagrímsson
hefði kosið Sjálfstæðisflokkinn.
Hann hefði dásamað einkafram-
takið og jafnframt blóðmjólkað
styrkjakerfið til landbúnaðar og
listamanna. Bergþóra á Bergþórs-
hvoli var svo stjórnsöm að hún
hefði gengið í Flokk fólksins.
Þetta fólk hefði hleypt lífi og fjöri
í ótrúlega leiðinlega kosningabar-
áttu, enda glæsilegra og ákveðnara
en núverandi frambjóðendur. n
Kosningar í nándNestistími!
©
Inter IKEA System
s B.V. 2021
IKEA á Íslandi fagnar 40 ára afmæli og við dreifum gleðinni frá 26. ágúst til 19. september.
Dagskráin er fjölbreytt og í takt við hugmyndafræði IKEA; fyrir sem flesta!
Kíktu á afmælisdagskrána á IKEA.is.
Afmælisterta
195,-
Afmæliskjötbollur 595,-
Tvær grænkerabollur
fylgja með.
Sýndu okkur hvernig þú kemur
IKEA vörum fyrir á þínu heimili
á Instagram eða Facebook með
myllumerkinu #IKEAheima.
S M N
4 Á
Ný afmælistilboð vikulega
á meðan afmælisgleðinni
stendur!
TILLSAMMANS
þurrefnablanda 375,-
Risaeðluratleikur fyrir
krakka.
Vertu á forsíðunni! Taktu
mynd af þér með gamlan
vörulista að þínu vali sem
bakgrunn.
Vinsælustu mjúkdýrin
okkar lifna við á
Instagram story.
Frír frostpinni fylgir
öllum réttum á
barnamatseðli.
Verslun opin 11-20 – IKEA.is
IKEA Bakarí, Sænska matarhornið og IKEA Bistro opið 11-20
Dalvegi, Kópavogi
LÆGSTA
VERÐIÐ
Gran Canaria
frá 16.350 kr.