Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 37
Starf endurmenntunarstjóra HÍ er laust til umsóknar
Endurmenntun Háskóla Íslands hefur verið starfrækt síðan 1983 og er í fararbroddi í endur- og símenntun á Íslandi. Markmiðið
er að efla hæfni og þekkingu fólks í leik og starfi með fjölbreyttu námsframboði. Stefna okkar er að vera ávallt eftirsóknarverðasti
valkosturinn til símenntunar. Við stundum öflugt þróunarstarf í samtali við samfélagið sem skilar sér í spennandi nýjungum
í námsframboði. Við leggjum áherslu á að innihald og framsetning námskeiða, námskeiðshalds og þjónusta uppfylli þarfir
samfélagsins og skili ánægðum nemendum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Endurmenntunarstjóri starfar í umboði stjórnar og ber
ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og sér um daglega starf-
semi hennar. Hann sinnir stefnumótun stofnunarinnar og
er ábyrgur fyrir áætlanagerð, fjármálum, starfsmanna-
málum, markaðsmálum, námsframboði og þróun nám-
skeiða. Endurmenntunarstjóri ber ábyrgð á því að fylgja
settri stefnu og ná markmiðum með m.a. vali á við eigandi
skipulagi og starfsháttum. Hann ber jafnframt ábyrgð
á að tryggja tengsl, samskipti og samstarf við aðrar
starfseiningar Háskóla Íslands.
Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á
mennta- og fræðslumálum.
Hæfniskröfur
· Háskólagráða sem nýtist í starfi
· Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, fullorðinsfræðslu
eða önnur sambærileg menntun æskileg
· Reynsla af stjórnun og stefnumótun
· Þekking á íslensku atvinnu- og menningarlífi
· Sjálfstæði, góð skipulagshæfni og frumkvæði
· Leiðtogahæfni og samskiptafærni
· Góð íslensku- og enskukunnátta,
bæði í ræðu og rituðu máli
· Reynsla af störfum í háskólaumhverfi
og/eða í opinberri stjórnsýslu er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall
er 100%. Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af
jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um
ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá, bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað
umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess, staðfest afrit
af prófskírteinum og upplýsingar um umsagnaraðila.
Umsóknarfrestur er til og með 13.09.2021
Sótt er um á vef Háskóla Íslands eða á starfatorg.is.
Nánari upplýsingar veita: Róbert H. Haraldsson, robhar@hi.is,
og Ragnhildur Ísaksdóttir, ragnhildurisaks@hi.is.
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík, +354 525 4000, www.hi.is
ENDURMENNTUNARSTJÓRI HÍ