Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 54
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Komduað dansa
Samba Rúmba Mambó Jive
Cha Cha Cha Tjútt Salsa Tango
Vínarvals Enskur vals Quickstep Foxtrot
Skráning og upplýsingar á dansskoli.is/kara eða 553 6645
Skráðu þig
NÚNA!
Danskennarasamband Íslands
Faglærðir danskennarar
Síðumúli 30, 108 Reykjavík, dans@dansskoli.is
Börn, unglingar og fullorðnir, byrjendur og lengra komnir, barnadansar,
samkvæmisdansar, brúðarvals o.fl. Ýmis starfsmanna-, stéttar- og
sveitarfélög veita styrki vegna dansnámskeiða. Kennsla hefst 4. september.
Útvarpsmaðurinn Rúnar
Róbertsson fékk snemma
dellu fyrir tónlist. Hann
hefur unnið við útvarp nær
óslitið frá árinu 1993 og segir
tónlist Queen helst fá sig til
að brosa og gleyma öllum
áhyggjum.
Tónlist hefur ávallt skipað stóran
sess í lífi útvarpsmannsins Rúnars
Róbertssonar sem segist alla tíð
hafa hlustað mikið og pælt í tónlist.
Áhugi á tónlist kviknaði snemma
að hans sögn, en pabbi hans vann á
Keflavíkurflugvelli á unglingsárum
hans og gat fyrir vikið oft keypt
plötur sem voru ekki enn komnar
í sölu annars staðar á landinu. „Ég
át þetta upp og fékk smá dellu fyrir
græjum og tónlist. Eftir að ég fékk til
dæmis bílpróf var alltaf passað upp
á að bíllinn sem ég var á hverju sinni
væri með almennilegum græjum.
Dellan var slík að herbergið á
unglingsárunum skartaði sömu
hátölurum og voru á diskótekinu í
skólanum.“
Rúnar ólst upp í Keflavík og
Njarðvík en segist þó vera meiri
Njarðvíkingur í sér. „Ég er með
sveinspróf í rafvirkjun og hef unnið
við það í gegnum tíðina, en þó mest
á fyrri hluta starfsævinnar. Árið
1989 byrjaði ég að fikta í útvarpi en
það var skólaútvarpið Útvarp Bros.
Sú baktería náði mér alveg og hef ég
unnið við útvarp að mestu sleitu-
laust síðan 1993-4.“ Í dag stýrir hann
Morgunútvarpinu á Rás 2 ásamt
sérstaklega góðu fólki að hans sögn.
Queen kemur til sögunnar
Um tólf ára aldurinn kynnist hann
hljómsveitinni Queen sem hann
hefur alla tíð síðan hlustað mikið á.
„Það var tónleikaplatan Live killers
sem var eiginlega hlið mitt inn í
Með
melódíuna
í fyrirrúmi
„Dellan var slík að herbergið á unglingsárunum skartaði sömu hátölurum og voru á diskótekinu í skólanum,“ segir
útvarpsmaðurinn Rúnar Róbertsson, sem hér rifjar upp minningar tengdar tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
tónlistarheim Queen. Það er svo
mikill kraftur í spilamennskunni
þar sem ég heillaðist af. Annars er
ég eiginlega úti um allt í tónlist og
hlustaði jafnt á Queen, U2, Duran
Duran, Wham, AC/DC, Bítlana,
The Clash, Þey, Utangarðsmenn og
Egóið, Purrkinn og Tappa Tíkar-
rass á mínum mótunarárum. Ég er
hrifinn af melódísku rokki og þess
á milli er það melódískt popp sem
nær mér. Ætli góð melódía sé ekki
það sem skiptir mig mestu máli í
tónlist.“
Eins og fleiri hefur Rúnar þurft
að fresta tónleikum vegna heims-
faraldursins „Ég er til dæmis búinn
að bíða í tvö ár eftir að komast til
Berlínar til að sjá Queen + Adam
Lambert. Þeim tónleikum hefur
verið frestað í tvígang vegna Covid
en eru fyrirhugaðir næsta sumar.
Ég sá þá í London fyrir nokkrum
árum og ætla aftur. Þá er líklegt
að ég skelli mér á tónleika með U2
og Depeche Mode þegar þeir túra
aftur.“
Rúnar svarar hér nokkrum
spurningum um tónlist og minn-
ingar tengdar þeim.
Hvaða lag minnir þig á frábæra
tónleika?
(Reach up for the) Sunrise með
Duran Duran. Einfaldlega vegna
þess að þegar ég sá þá í Las Vegas
árið 2001, þá nýkomna saman aftur
alla upprunalegu fimm meðlimina,
þá tóku þeir þetta lag. Þá var þetta
eitt af nýju lögunum þeirra og enn
í „demo“ búningi, það var ekki full-
unnið. Lagið breyttist töluvert eftir
það og maður heyrir vel hve munar
miklu að geta sett milljón dollara í
að taka upp plötu. Og það sem gerir
þetta enn merkilegra fyrir mig er
að ég á upptökuna af þessum tón-
leikum á geisladiski.
Hvaða plata tengist unglingsár-
unum?
The Game með Queen. Ég
hlustaði á hana oftar en nokkra
aðra á þessum tíma, nema kannski
hugsanlega Rio með Duran Duran.
Fyrsta platan sem ég keypti var
Spirits having flown með Bee Gees
sem er frábær plata ef ég man rétt.
Ég þarf að setja hana á við tækifæri.
Ég á enn sumar af gömlu vínylplöt-
unum mínum frá því í gamla daga.
Reyndar gaf ég safnið á sínum tíma
en hélt eftir gullmolunum auk þess
að eiga dágott safn af 12 tommum
sem yfirleitt innihéldu lengri
útgáfur af lögunum.
Hvaða lög minna á sveitaböll
unglingsáranna?
Sveitaböllin í Stapanum og í
KK-salnum í Keflavík voru helstu
sveitaböllin á mínum unglings-
árum. Ég man lítið eftir einhverjum
sérstökum sveitaballahljóm-
sveitum á þessum tíma. Sálin,
Sólin og Todmobile og þessi bönd
komu síðar. Einna helst koma upp
í hugann diskótekin í skólanum
og þegar maður heyrir sum „eitís“
lögin þá fer maður þangað í hug-
anum. Svo var það Grease-æðið á
meðan maður var í barnaskóla. Það
var skemmtilegt tímabil.
Hvaða lag fær þig til að hugsa um
ástina?
Það er æði misjafnt og fer eftir
tímabilum sjálfsagt. Tónlist George
Michael rifjar oft upp eitthvað tengt
ástinni.
Hvaða tónlist minnir á góða vini
og minningar tengdar þeim?
Mig langar að nefna tónlist
Bítlanna. Um miðbik níunda
áratugarins sökktum ég og góður
vinur minn okkur í tónlist þeirra.
Eiginlega uppgötvuðum við þá 20
árum eftir hátind þeirra. En það var
rosalega skemmtilegur tími sem ég
minnist með hlýju.
Tengist eitthvert lag sorglegum
atburðum í lífi þínu?
Tónlist Tom Jones og Engelbert
Humperdinck minna mig alltaf á
ömmu mína, ömmu Esther í Kefla-
vík. Þeir voru hennar uppáhald.
Svona ljúfsárar minningar.
Hvaða lag fær þig til að vilja
stökkva inn í tímavél og fara aftur í
tímann?
Ef ég heyri lag með Modern
Talking er ég strax kominn í bílinn
hjá æskuvini mínum sem hætti ekki
að láta mig hlusta á þá fyrr en ég
fattaði pakkann. Þó þessi lög hljómi
reyndar öll eins.
Hvers konar tónlist fær þig til að
brosa og gleyma öllum áhyggjum?
Tónlist æskuáranna og þá helst
tónlist Queen. Ég get endalaust
hlustað á Queen.
Í starfi þínu sem útvarpsmaður
hlýtur þú að hafa hitt fjölda tón-
listarmanna og -kvenna. Er eitthvert
lag sem fær þig til að rifja upp góða
minningu tengda slíkum fundi?
Það er helst tónlist Duran Duran
en ég hef tekið viðtöl við alla fimm
upphaflegu meðlimina og raunar
hitt þá nokkrum sinnum. Eitt sinn
fékk ég Simon Le Bon til þess að
taka upp kynningu á mér fyrir
þáttinn minn á Bylgjunni. Venju-
lega myndi maður eins og hann gera
það á móðurmáli sínu en ég fékk
þá flugu í höfuðið að fá hann til að
tala íslensku. Ég lét því Simon segja
á íslensku: Þú ert að hlusta á Rúnar
Róberts á Bylgjunni. Eini gallinn er
að hann hljómar ekkert líkt sjálfum
sér talandi íslensku! n
Duran Duran,
Queen, Modern
Talking og
Bítlarnir komu
við sögu á upp-
vaxtarárum
Rúnars Róberts-
sonar.
6 kynningarblað A L LT 28. ágúst 2021 LAUGARDAGUR