Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 60
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Inga Benediktsdóttir Barðavogi 32, Reykjavík, lést miðvikudaginn 18. ágúst á Hjúkrunarheimilinu Mörk. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 30. ágúst kl. 14. Streymt verður frá útförinni á slóðinni https://youtu.be/1yDewm1bRDA Garðar Sigurðsson Benedikt Garðarsson Elín K. Helgadóttir Helga Garðarsdóttir Nis Albrechtsen Ingibjörg Garðarsdóttir Róbert Hlöðversson Jóhanna Garðarsdóttir Jakob R. Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Guðrúnar Ingibjargar Kristmannsdóttur frá Brekkuholti, Stokkseyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Fossheima fyrir góða umönnun. Þorgerður Guðfinnsdóttir Kristmann Guðfinnsson Katrín Guðmundsdóttir Oddgeir Kristmannsson Björk Stefánsdóttir Guðríður Guðfinnsdóttir Sigurður Guðjónsson Guðrún Guðfinnsdóttir Guðmundur Guðlaugsson og fjölskyldur. Hjartkær eiginmaður minn og okkar ástkæri, Ingólfur Páll Steinsson fv. auglýsingastjóri lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði 25. ágúst. Jarðarförin fer fram fimmtudaginn 2. september kl. 13 frá Hafnarfjarðarkirkju. Erna Fríða Berg Þórunn Ingólfsdóttir Kristín Ingólfsdóttir Einar Sigurðsson Pálmi Ingólfsson Sigurrós Sverrisdóttir Sigurjón Ingólfsson Lillý Sverrisdóttir Björn Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn. Ferðabók Jóns Eggerts og Sig- fúsar, heitir nýútkomin kilja með Íslandskortinu á hálfri bókar- kápu. Þar sést glöggt sú gönguleið sem Jón Eggert þræddi meðfram ströndum landsins árin 2005 og 6. gun@frettabladid.is „Strandvegahringurinn sem ég gekk á tveimur sumrum til styrktar Krabba- meinsfélaginu var 3.446 kílómetrar. Þjóðvegirnir sem lágu næst ströndinni voru um þúsund kílómetrum lengri en tveir hringir á þjóðvegi 1. Ég veit ekki til að nokkur annar hafi gengið þá leið,“ segir Jón Eggert Guðmundsson tölv- unar-og líffræðingur. Hann og bílstjóri hans, Sigfús Austfjörð, sem lést árið 2012, skrifuðu bók saman á leiðinni og tóku myndir. Nú er efnið  aðgengilegt því Ferðabók Jóns Eggerts og Sigfúsar er komin út í kilju. „Ég er að láta gamlan draum rætast,“ segir göngugarpurinn, sem gefur bókina út sjálfur og lætur 500 krónur af hverju seldu eintaki renna til Krabbameinsfélagsins. Fór með fern skópör „Eftir að hafa notað sumarfríið 2005 í að ganga úr Hafnarfirði um suðurströndina austur á land ákvað ég að loka hringnum árið eftir. Notaði veturinn til að panta gistingar, sækja um frí í vinnu og fara æfingagöngur um helgar úr Hafnarfirði í Grafarvog að heimsækja ömmu á Eir – og til baka,“ lýsir Jón Eggert. „Tók svo afganginn af landinu sumarið á eftir. En það er búið að bæta við hringinn síðan, á þessum tíma voru Héðinsfjarðargöngin til dæmis ekki komin svo ég fór yfir Lág- heiðina niður í Fljótin. Allt var mér nýtt á leiðinni og ég man alla staðina. Bundna slitlagið náði yfir um helming veganna og ég held ég hafi gengið upp fern pör af skóm!“ Vinnur að heimsmeti Strandvegagangan varð Jóni Egg- erti hvati til frekari afreka. Eftir labbið um Ísland hjól- aði  ha n n þver t y f ir Bandaríkin og líka upp a u s t u r - strönd þeirra og Kanada, frá Flórída til Nova Scotia. „Ég hjólaði líka strand- ve g a h r i ng - inn 2016 og tók þátt í sóló- keppni WOWa- ir á upphafsári hennar. Svo hef ég gert tilraun til heimsmets í lengstu þríþraut í heimi, fyrir Guinness. Þá byrjaði ég á að hlaupa 1.700 kílómetra, hjólaði svo 6.000 kílómetra og synti tæpa 300 kíló- metra, allt á sjö mánuðum. Var með vídeóvél á mér allan tímann og gögnin sem ég safnaði voru heimsmet í sjálfu sér. En eftir að hafa fengið þessa löngu kvikmynd breytti Guinness reglunum og bað mig að klippa myndina niður í ákveðna búta. Það er verkefni mitt núna. Þegar þeir bútar hafa verið skoðaðir fæ ég vonandi heimsmetið staðfest.“ n Allt var mér nýtt á leiðinni „Ég er að láta gamlan draum rætast,“ segir Jón um útgáfu bókar um strandgönguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ferðabókin sem er nýkomin út. Svo hef ég gert tilraun til heimsmets í lengstu þríþraut í heimi, fyrir Guinness. Þá byrjaði ég á að hlaupa 1.700 kíló- metra, hjólaði svo 6.000 kílómetra og synti tæpa 300 kílómetra. gun@frettabladid.is Skátar munu fagna 100 ára afmæli fyrsta útivistarskála á Íslandi á morgun, sunnu- dag, klukkan 13 við Árbæjar- safn. Þar býður borgarstjór- inn gesti velkomna og forseti Íslands flytur ávarp. Það voru skátar í Væringjum í Reykja- vík sem reistu skálann upp- haf lega  við Lækjarbotna, austan Reykjavíkur, undir leiðsögn trésmiða. Árið 1962 var hann fluttur á Árbæjar- safnið þar sem hann er enn og ber aldurinn vel. n Hundrað ára skátaskáli 28 Tímamót 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 28. ágúst 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.