Fréttablaðið - 28.08.2021, Page 60
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Inga Benediktsdóttir
Barðavogi 32, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 18. ágúst
á Hjúkrunarheimilinu Mörk.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 30. ágúst kl. 14.
Streymt verður frá útförinni á slóðinni
https://youtu.be/1yDewm1bRDA
Garðar Sigurðsson
Benedikt Garðarsson Elín K. Helgadóttir
Helga Garðarsdóttir Nis Albrechtsen
Ingibjörg Garðarsdóttir Róbert Hlöðversson
Jóhanna Garðarsdóttir Jakob R. Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Innilegar þakkir fyrir samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Guðrúnar Ingibjargar
Kristmannsdóttur
frá Brekkuholti, Stokkseyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Fossheima fyrir góða umönnun.
Þorgerður Guðfinnsdóttir
Kristmann Guðfinnsson Katrín Guðmundsdóttir
Oddgeir Kristmannsson Björk Stefánsdóttir
Guðríður Guðfinnsdóttir Sigurður Guðjónsson
Guðrún Guðfinnsdóttir Guðmundur Guðlaugsson
og fjölskyldur.
Hjartkær eiginmaður minn
og okkar ástkæri,
Ingólfur Páll Steinsson
fv. auglýsingastjóri
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
í Hafnarfirði 25. ágúst. Jarðarförin fer
fram fimmtudaginn 2. september kl. 13
frá Hafnarfjarðarkirkju.
Erna Fríða Berg
Þórunn Ingólfsdóttir
Kristín Ingólfsdóttir Einar Sigurðsson
Pálmi Ingólfsson
Sigurrós Sverrisdóttir Sigurjón Ingólfsson
Lillý Sverrisdóttir
Björn Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ferðabók Jóns Eggerts og Sig-
fúsar, heitir nýútkomin kilja með
Íslandskortinu á hálfri bókar-
kápu. Þar sést glöggt sú gönguleið
sem Jón Eggert þræddi meðfram
ströndum landsins árin 2005 og 6.
gun@frettabladid.is
„Strandvegahringurinn sem ég gekk á
tveimur sumrum til styrktar Krabba-
meinsfélaginu var 3.446 kílómetrar.
Þjóðvegirnir sem lágu næst ströndinni
voru um þúsund kílómetrum lengri en
tveir hringir á þjóðvegi 1. Ég veit ekki
til að nokkur annar hafi gengið þá leið,“
segir Jón Eggert Guðmundsson tölv-
unar-og líffræðingur. Hann og bílstjóri
hans, Sigfús Austfjörð, sem lést árið
2012, skrifuðu bók saman á leiðinni og
tóku myndir. Nú er efnið aðgengilegt
því Ferðabók Jóns Eggerts og Sigfúsar
er komin út í kilju. „Ég er að láta gamlan
draum rætast,“ segir göngugarpurinn,
sem gefur bókina út sjálfur og lætur 500
krónur af hverju seldu eintaki renna til
Krabbameinsfélagsins.
Fór með fern skópör
„Eftir að hafa notað sumarfríið 2005 í að
ganga úr Hafnarfirði um suðurströndina
austur á land ákvað ég að loka hringnum
árið eftir. Notaði veturinn til að panta
gistingar, sækja um frí í vinnu og fara
æfingagöngur um helgar úr Hafnarfirði
í Grafarvog að heimsækja ömmu á Eir
– og til baka,“ lýsir Jón Eggert. „Tók svo
afganginn af landinu sumarið á eftir. En
það er búið að bæta við hringinn síðan, á
þessum tíma voru Héðinsfjarðargöngin
til dæmis ekki komin svo ég fór yfir Lág-
heiðina niður í Fljótin. Allt var mér nýtt
á leiðinni og ég man alla staðina. Bundna
slitlagið náði yfir um helming veganna
og ég held ég hafi gengið upp fern pör af
skóm!“
Vinnur að heimsmeti
Strandvegagangan varð Jóni Egg-
erti hvati
til frekari
afreka. Eftir
labbið um
Ísland hjól-
aði ha n n
þver t y f ir
Bandaríkin
og líka upp
a u s t u r -
strönd þeirra
og Kanada,
frá Flórída til
Nova Scotia.
„Ég hjólaði
líka strand-
ve g a h r i ng -
inn 2016 og
tók þátt í sóló-
keppni WOWa-
ir á upphafsári hennar. Svo hef ég gert
tilraun til heimsmets í lengstu þríþraut
í heimi, fyrir Guinness. Þá byrjaði ég á
að hlaupa 1.700 kílómetra, hjólaði svo
6.000 kílómetra og synti tæpa 300 kíló-
metra, allt á sjö mánuðum. Var með
vídeóvél á mér allan tímann og gögnin
sem ég safnaði voru heimsmet í sjálfu
sér. En eftir að hafa fengið þessa löngu
kvikmynd breytti Guinness reglunum
og bað mig að klippa myndina niður í
ákveðna búta. Það er verkefni mitt núna.
Þegar þeir bútar hafa verið skoðaðir fæ
ég vonandi heimsmetið staðfest.“ n
Allt var mér nýtt á leiðinni
„Ég er að láta gamlan draum rætast,“ segir Jón um útgáfu bókar um strandgönguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ferðabókin sem er nýkomin út.
Svo hef ég gert tilraun til
heimsmets í lengstu
þríþraut í heimi, fyrir
Guinness. Þá byrjaði ég á
að hlaupa 1.700 kíló-
metra, hjólaði svo 6.000
kílómetra og synti tæpa
300 kílómetra.
gun@frettabladid.is
Skátar munu fagna 100 ára
afmæli fyrsta útivistarskála
á Íslandi á morgun, sunnu-
dag, klukkan 13 við Árbæjar-
safn. Þar býður borgarstjór-
inn gesti velkomna og forseti
Íslands flytur ávarp. Það voru
skátar í Væringjum í Reykja-
vík sem reistu skálann upp-
haf lega við Lækjarbotna,
austan Reykjavíkur, undir
leiðsögn trésmiða. Árið 1962
var hann fluttur á Árbæjar-
safnið þar sem hann er enn
og ber aldurinn vel. n
Hundrað ára skátaskáli
28 Tímamót 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 28. ágúst 2021 LAUGARDAGUR