Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 38
Grensásvegi 11 108 Reykjavík
Sími 588-9090 | eignamidlun.is
LEITUM AÐ METNAÐAR-
FULLUM EINSTAKLINGI
Í SKJALAGERÐ HJÁ
EIGNAMIÐLUN
Vegna aukinna umsvifa leitum við að metnaðarfullum einstaklingi til að slást í hóp öflugra
starfsmanna hjá Eignamiðlun. Við erum elsta starfandi fasteignasala á Íslandi og erum í
stöðugri þróun í breytilegu og krefjandi umhverfi á fasteignamarkaðinum.
Við leitum að löggiltum fasteignasala sem er metnaðarfullur, vandvirkur og góður í
mannlegum samskiptum. Viðkomandi mun eingöngu starfa í skjalagerð og þarf að geta
sinnt öllu er varðar skjalagerð í fasteignasölu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson,
gudlaugur@eignamidlun.is
Umsóknir skal senda á netfangið
gudlaugur@eignamidlun.is
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða
meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og hvetjum
við alla sem telja sig búa yfir þeirri getu og
færni sem leitast er eftir til að sækja um
starfið.
Menntun og hæfniskröfur
• Löggiltur fasteignasali
• Skipulagshæfni
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Góð tölvufærni
• Góð íslensku- og enskukunnátta
UPPLÝSINGAFULLTRÚI
HEILSUGÆSLU HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Umsjón með fjölmiðlasamskiptum stofnunar, svör við fyrirspurnum fjölmiðla og gerð fréttatilkynninga.
Þátttaka í miðlun upplýsinga á ytri vef stofnunar, umsjón með samfélagsmiðlum
og gerð kynningarefnis, ásamt stefnumótun.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Laust er til umsóknar starf upplýsingafulltrúa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Starfið er tímabundið til eins árs með möguleika á framtíðarráðningu. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf 1. október nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Um er að ræða nýtt starf og því um spennandi tækifæri að ræða til að þróa það og móta.
Starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, HH, er mjög víðtæk og fjölbreytt.
HH rekur fimmtán heilsugæslustöðvar ásamt mörgum sérþjónustum. Jafnframt sinnir HH sýnatökum
og bólusetningum vegna COVID-19. Fjöldi starfsmanna er um 1000 sem hefur aukist ört undanfarin ár.
VIRÐING - SAMVINNA - FAGMENNSKA
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 06.09.2021.
Nánari upplýsingar veitir Elín Eiríksdóttir - elin.eiriksdottir@heilsugaeslan.is - 513 5000
Sjá nánar á www.starfatorg.is og á www.heilsugaeslan.is undir laus störf
kopavogur.is
Kópavogsbær auglýsir laus störf
forstöðumanns Gerðarsafns og sérfræðings í
innkaupadeild Kópavogsbæjar.
Forstöðumaður Gerðarsafns heyrir undir for-
stöðumann menningarmála hjá Kópavogsbæ.
Ráðið er í starfið til fimm ára í senn. Forstöðu-
maður mótar hlutverk og listræna stefnu
Gerðarsafns og ber meðal annars ábyrgð á
sýninga- og viðburðahaldi, rekstri safnsins, safn-
verslunar og veitingasölu, á safneign Gerðar-
safns og öðrum listaverkum í eigu Kópavogs-
bæjar. Forstöðumaður sinnir samstarfi við aðrar
menningarstofnanir bæjarfélagsins og sambæri-
legar stofnanir annars staðar.
Sérfræðingur innkaupadeildar heyrir undir
deildarstjóra innkaupadeildar og starfar með
stjórnendum á öllum sviðum Kópavogsbæjar.
Sérfræðingur í innkaupadeild hefur umsjón með
vörustjórnunarkerfi og samningum og sér um
daglega þjónustu, kynningu og fræðslu við svið
og stofnanir. Innkaupadeild heyrir undir fjármála-
svið sem hefur yfirumsjón með fjármálastjórn
Kópavogs og veitir stjórnendum upplýsingar,
stuðning og aðhald.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um störfin og
sækja um á heimasíðu bæjarins kopavogur.is
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is