Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 6
H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði til verkefna sem tengjast tilgangi sjóðsins. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Að þessu sinni verður verður lögð áhersla á að styðja verkefni sem stuðla að virkni og félagslegri þátttöku. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á: www.rannis.is/sjodir/aesku-ithrotta/aeskulydssjodur/. Vakin er athygli á að skila þarf inn umsóknum fyrir kl.15.00 föstudaginn 15. október. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 699 2522. Umsóknarfrestur er 15. október 2021 Æskulýðs- sjóður thorgrimur@frettabladid.isSELTJARNARNES Birkir Kristján Guð-mundsson segir að honum hafi verið meinað að starfa við kvöldinnlit til eldri borgara í félagsþjónustu Sel- tjarnarnesbæjar vegna þess að hann vill ekki fara í bólusetningu við Covid-19. „Ég er búinn að vera að vinna í tómstundastarfinu í sumar og var fenginn í félagsþjónustuna vegna þess að þau vildu ekki missa mig og sáu hvað ég var góður með fólkinu. Ég vann í einn dag og átti að fara að vinna um kvöldið þegar ég fékk símtal um að það væri ekki hægt að hafa mig í vinnu,“ segir Birkir. Hann var ekki búinn að skrifa undir ráðningar samning. Birkir Kristján hefur sterkar skoð- anir á bólusetningum og langar hann alls ekki að láta bólusetja sig. „Ég hef rætt mínar skoðanir á kaffistofunni, eins og á öllum vinnustöðum. Það eru fleiri sem eru óbólusettir en það er ekki hægt að reka þá,“ segir hann. „Það er verið að mismuna mér fyrir að vilja ekki fara í þessa meðferð.“ Birkir myndi ekki vilja láta bólu- setja sig til að fá vinnuna. „Ég hef ekki áhuga á að taka þátt í þessari tilraun. Mér finnst vera brotið á mannrétt- indum mínum með þessu.“ Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjöl- skyldusviðs bæjarins, segir að engir ráðningarsamningar hafi verið gerðir og engum í heimaþjónustu hafi verið sagt upp að undanförnu. „Okkur er ljóst að við getum ekki skikkað starfsfólk í bólusetningu, en eins og staðan er í dag stendur það ekki til af okkar hálfu að senda óbólusett starfsfólk inn á heimili fólks,“ segir Baldur. „Þarna er um viðkvæman hóp að ræða, sem við höfum lagt áherslu á að vernda. Mikil áhersla hefur verið lögð á að bólusetja starfsfólk sem sinnir þessari þjónustu og var það sett í forgang á sínum tíma. Við teljum því að það myndi skjóta skökku við að setja óbólusetta í þetta hlut- verk.“ ■ Stendur ekki til að senda óbólusetta heim til eldra fólks á Seltjarnarnesi Mér finnst vera brotið á mannréttindum mínum með þessu. Birkir Kristján Guðmundsson. Matvælastofnun rannsakar dýraníð eftir að ábendingar bárust um mann sem birti myndband af sér að pynta og drepa skógarþröst á Insta- gram. ingunnlara@frettabladid.is SAMFÉLAG Íslenskur karlmaður á fertugsaldri deildi myndbandi af sér að stinga skógarþröst ítrekað með hníf á Instagram. Myndband- ið birtist á „story“ hjá manninum síðastliðinn laugardag, þann 21. ágúst, en slík myndbönd hverfa af miðlinum eftir sólarhring. Fréttablaðið hefur myndbandið undir höndum. Konráð Konráðs- son, héraðsdýralæknir Suðvestur- umdæmis, staðfestir að Matvæla- stofnun hafi borist ábending um málið og er það nú til rannsóknar. Af myndbandinu að dæma var maðurinn ekki að reyna að lina þjáningar fuglsins. Þvert á móti brosir hann og gantast með athæfið við fylgjendur sína. Ítrekað hefur verið reynt að ná í manninn, sem býr í Mosfellsbæ, en án árangurs. Athugið að eftirfarandi lýsingar gætu vakið óhug. Í byrjun myndbandsins má sjá skógarþröst hoppa um á stofu- gólfi. Tveir kettir fylgjast áhuga- samir með honum en þeir hafa að líkindum komið með hann inn á heimili mannsins. Fuglinn virðist vængbrotinn. Annar kötturinn slær til fuglsins með loppunni og hoppar þá fuglinn yfir herbergið. Maðurinn snýr þá myndavélinni að sér, sýnir stóran hníf og segir: „Geggjað fallegur fugl sem við fengum í matinn.“ Myndavélinni er þá snúið aftur að köttunum sem halda áfram að hringsóla og stríða fuglinum. Maðurinn mundar hnífinn og kettirnir forða sér áður en hann slær til fuglsins. Á sekúndu 29 stingur maðurinn fuglinn, eða öllu heldur heggur til hans með hnífn- um. Fuglinn virðist ekki deyja strax og má heyra hann skrækja örlítið og kippast til. Maðurinn heggur fimm sinnum til viðbótar í hausinn og hálsinn á fuglinum og er öll atburðarrásin er yfirstaðin á sekúndu 44. Liggur þá fuglinn hreyfingarlaus og má sjá blóð og fjaðrir á víð og dreif um gólfið. „Úbbs,“ segir þá maðurinn í hæðnistón og sýnir blóðugan hníf- inn og brosir. Hann mundar hníf inn fyrir framan andlitið á sér og segir á ensku við myndavélina: „Nammi namm, uppáhaldið mitt. Ferskt blóð. Uppáhaldið mitt.“ ■ Dýraníð sýnt í beinni á Instagram Maðurinn birti dýraníðið í sögu sinni á sam- félagsmiðlinum Instagram um síðustu helgi. Það hefur verið tilkynnt til Mat- vælastofnunar sem hefur málið til rannsóknar. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY arib@frettabladid.is kristinnpall@frettabladid.is SAMFÉLAG Yfir 96 prósent Íslend- inga notuðu netið til að horfa á myndbönd eða lesa fréttir á þriggja mánaða kafla á síðasta ári. Um er að ræða hæsta hlutfall í Evrópu og tuttugu prósentum yfir meðaltali, samkvæmt tölum evrópsku hag- stofunnar Eurostat. Ekki var tekin saman tölfræði á síðasta ári um notkun vegna tónlistarhlustunar en Ísland leiddi þann flokk árið 2019 með 85 prósentum. Þegar kemur að áhorfi er Ísland með naumt forskot á Kýpur og Hol- land þar sem 95 prósent þjóðanna nýttu internetið til áhorfs á síðasta ári. Sama hlutfall, 96 prósent Íslend- inga, notar internetið til að lesa fréttir eða tímarit, en meðaltalið í Evrópu þegar kemur að fréttalestri á netinu er 75 prósent. Í tölvuleikjanotkun voru Íslend- ingar í sjötta sæti á eftir Hollandi, Danmörku, Möltu, Svíþjóð og Finnlandi, en 43 prósent Íslendinga notuðu netið til einhvers konar leikjaspilunar á síðasta ári, meðaltal Evrópulanda er 34 prósent. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá Embætti landlæknis, segir ekki hægt að gefa út viðmið eða ráðleggingar um hversu miklum tíma er hollt að verja á netinu, þar sem engar rann- sóknir liggja fyrir um það. Mestu máli skipti hvernig verið sé að nota netið. Í dag er netið notað meðal annars til vinnu og kennslu, svo eru til uppbyggilegir tölvuleikir sem geta haft jákvæð áhrif. „Við þurfum að huga að því að hreyfa okkur, hitta fólk, borða vel og sofa vel og því mikilvægt að netið eða tölvuleikir komi ekki í veg fyrir það,“ segir Dóra. „Ef við skoðum söguna, þá var varað við bókum, sjónvarpi og myndbandstækjum, við þurfum að læra að lifa með öllum nýjum tækni- nýjungum á uppbyggilegan hátt.“ ■ Ísland leiddi Evrópu í netáhorfi og netfréttalestri í fyrra Íslendingar elska allt á netinu. Ný lög veita Matvælastofnun rýmri heimild Skógarþröstur er friðaður samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Ef fugl er særður og augljóst að meiðslin séu banvæn er heimilt að deyða hann sam- kvæmt lögum. Dýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti og eftir því sem unnt er án þess að önnur dýr verði þess vör. Forðast skal að valda dýrum óþarfa þjáningum eða hræðslu. Með nýjum lögum um velferð dýra fékk Matvælastofnun rýmri heimildir til beitingar þvingana og stjórnvaldssekta í dýravelferðar- málum. Stjórnvaldssektum getur verið beitt óháð því hvort brot eru framin af ásetningi eða gáleysi. Guðni Bergsson, formaður KSÍ. benediktboas@frettabladid.is KNATTSPYRNA „Mig minnti að þetta brot hefði verið of beldis- brot og ekki af kynferðislegum toga,“ sagði Guðni Bergsson for- maður KSÍ um sögu ungrar konu sem steig fram í fréttum RÚV í gær og greindi frá kæru sem hún lagði fram á hendur landsliðsmanni í knattspyrnu. Konan lýsti hvernig hún varð fyrir ofbeldi og grófri kynferðislegri áreitni af hálfu landsliðsmannsins. Bréfaskriftum föður hennar til KSÍ, hvernig KSÍ bauð henni miskabætur og þagnarskyldusamning sem hún hafnaði. Guðni kom í Kastljós á fimmtu- dag og sagði þar að mál væru sett í ákveðið ferli komi inn kvörtun um leikmenn. Aðspurður um hvort slík mál hefðu komið inn á borð til KSÍ svaraði Guðni; „Ekki, ekki í raun og veru með formlegum hætti.“ Leikmaðurinn bað konuna afsök- unar og greiddi henni miskabætur. „KSÍ veit af of beldinu og velur að vera með gerendur of beldis innan sinna raða,“ sagði konan í fréttum RÚV í gær. ■ Guðni mundi ekki eftir árás landsliðsmanns 6 Fréttir 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.