Fréttablaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 68
gun@frettabladid.is
Á tónleikum í Norðurljósum Hörpu
31. ágúst leika Erna Vala Arnardóttir
á píanó, Hjörtur Páll Eggertsson á
selló og Sólveig Vaka Eyþórsdóttir á
fiðlu. Öll voru þau ungir einleikarar
með Sinfó.
„Hjörtur opnar tónleikana með
sellósónötu eftir Abrahamsen, hann
verður einn með þetta magnaða verk
sem ég held að hafi aldrei verið flutt á
Íslandi áður. Enda er það frekar nýtt,
samið á árunum 1988-2000,“ segir
Erna Vala og heldur áfram. „Efnis-
skráin okkar spannar langt tímabil,
næst á eftir ætlum við Sólveig Vaka
að spila sónötu fyrir fiðlu og píanó
eftir Elgar sem er skrifuð 1918. Eftir
það spilum við tríó eftir Brahms og
það er skrifað á 19. öld, þannig að við
færum okkur aftar og aftar.
Verkin eiga það þó sameiginlegt að
rómantíkin svífur yfir þeim – en frá
mismunandi sjónarhornum, vegna
aldursmunarins. Í Brahmsverkinu
er allur tilfinningaskalinn, það er
frá hápunkti rómantíkurinnar og
í sónötu Elgars eimir eftir af henni.
Þó hún sé samin á óróleikatímum er
hún í hjartanu á því verki og Abra-
hamsen er nær okkur í nútímanum.
Við höfum ekki spilað saman sem
tríó áður, en við höfum fylgst að
lengi og kynnst í námi. Eigum það
líka sameiginlegt að hafa öll verið
„ungir einleikarar“ hjá Sinfóníunni
á sínum tíma.“
Tónleikarnir hefjast klukkan
klukkan 20. n
Verkin eiga það sameiginlegt að rómantíkin svífur yfir
Sólveig Vaka, Hjörtur Páll og Erna
Vala. MYND/ANTJE TAIGA JANDRIG
TÓNLIST
Sinfóníutónleikar
Flytjendur: GDRN, Bríet, JóiPé
& Króli, Logi Pedro, Cell7,
Reykjavíkurdætur, Joey Christ,
Flóni og Unnsteinn með
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Stjórnandi: Daníel Bjarnason.
Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 19. ágúst
Jónas Sen
Karlkyns sinfóníuhljóðfæraleik-
arar eru venjulega í kjólfötum.
Siðurinn mun vera frá Viktoríu-
tímabilinu, þegar þjónar klædd-
ust kjólfötum. Þá þótti við hæfi
að hljóðfæraleikarar væru í eins
fötum, þeir væru jú eins konar
þjónar. Dresskóði klassískra hljóð-
færaleikara er fyrir vikið mjög
staðlaður, og því vekur það ávallt
athygli ef einhver klassíkerinn stíg-
ur yfir þau mörk. Þetta á til dæmis
við um píanóleikarann Yuju Wang,
sem er ávallt afar sexí í klæðaburði.
Hún hefur þurft að verja fatastílinn
sinn með kjafti og klóm.
Klæðaburður söngvaranna á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands virkaði sömuleiðis nýstár-
legur, enda voru þeir úr poppgeir-
anum – þar sem allt má. JóiPé og
Króli voru á meðal þeirra, og sá síð-
arnefndi náði að brúa bilið á milli
hins hefðbundna og framsækna
með því að vera í kjólfatajakka og
heimatilbúnum stuttbuxum.
Á forsíðu tónleikaskrárinnar voru
líka myndir af mörgum söngvur-
unum, og þar voru f lestir þeirra í
kjólfötum, meira að segja rapparinn
Cell7, Ragna Kjartansdóttir. Hún var
það þó ekki á sjálfum tónleikunum.
Töfrakennd stemning
Dagskráin var skemmtileg. Fyrr-
nefnda dúóið, JóiPé og Króli, voru
fullir af krafti, ærslafengnir og háðs-
legir. Lögin þeirra, Í átt að tunglinu
og Geimvera, voru grípandi. Sömu
sögu er að segja um Cell7, sem söng
lagið City Lights með mögnuðum til-
þrifum. Reykjavíkurdætur, Bríet, Joey
Christ, GDRN og fleiri voru jafnframt
safarík. Ferskur andi var yfir öllu
saman, líf og gleði, sem var smitandi.
Þarna voru töfrar, svo mikið var víst.
Hljómsveitin var órafmögnuð, en
útsetningarnar voru allar eftir Vikt-
or Orra Árnason, nema hugsanlega
forleikurinn (Overture úr Dancer
in the Dark) eftir Björk Guðmunds-
dóttur. Og þó, sú hljómsveitarradd-
setning sem ég þekki er bara fyrir
strengi, pákur og horn, en hér var
leikið á f leiri hljóðfæri. Í öllu falli
var útkoman stórbrotin og glæsileg.
Útsetningarnar á öllum lög-
unum voru smekklegar og ætíð í
góðu jafnvægi, áreynslulausar og
hnitmiðaðar. Það að klæða svona
músík í hljómsveitarbúning er
engin smáræðis vinna, en Viktor
Orri hefur greinilega unnið hana af
fagmennsku.
Daníel Bjarnason stjórnaði og
gerði það vel. Leikur hljómsveitar-
innar var samtaka og nákvæmur,
fyrir bragðið voru flest lögin flott.
Efnisskráin var líka skemmtilega
fjölbreytt og varla er hægt að hugsa
sér að nokkrum hafi leiðst. n
NIÐURSTAÐA: Frísklegir tón-
leikar, afar vel heppnaðir.
Geimvera á
Sinfóníutónleikum
Daníel Bjarna-
son stjórnaði og
gerði það vel og
GDRN og fleiri
sungu á safa-
ríkan hátt, segir í
dómnum.
MYND/AÐSEND
Svavar Guðnason | Róska | Alfreð Flóki
Fjársterkir aðilar eru að leita að listaverkum
eftir framangreinda listamenn.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Hansen
í síma 8450450. - fold@myndlist.is
Fold uppboðshús ehf. Rauðarárstíg 12-14.
Styrkir
Reykjavíkurborgar
Reykjavík City grants
Granty Miasta Reykjavík
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2017. Meðal
markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og
einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og Þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur
og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna
málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningamála
Á www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli.
Einnig er þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari Upplýsingar um áherslur borgarinnar
í einstökum málaflokkum. Umsóknarfrestur er til 12:00 á hádegi 3. október nk.
English
The city of Reykjavíkis currently accepting grant applications for the 2017 fiscal year. The goal
of the grants is to strengthen and create cooperation with NGO´s businesses and individuals
in constructive activities and services. In accordance with the city´s policies and priorties.
Grants will be awarded for projects in the following fields:
• social and welfare affairs
• education and leisure
• sports and youth
• human rights
• culture
To apply go to: www.reykjavik.is/styrkir Also available on the website is information on grant
rules and regulations and information about the city´s priorities in the various area of
interest. The application deadline is at 12:00 pm on October 3rd.
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má
senda á netfangið: styrkir@reykjavik.is
More information: styrkir@reykjavik.is
Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is
Reykjavíkurborg
www.reykjavik.is
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2022.
Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga
um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.
Styrkir eru veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• enningarmála
Vakin er athygli á því að við afgreiðslu styrkumsókna er horft sérstaklega til þess hversu vel umsóknir falli að
mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og markmiðum að innleiðingu á kynjaðri starfs og fjárhagsáætlun.
Á reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli.
Einnig er þar að finna reglur u styrkveitingar og nánari upplýsingar borgarinnar í einstökum málaflokkum.
Umsóknarfrestur er frá 1. september 2021 til klukkan 12.00 1. október 2021.
The City of Reykjavík is currently accepting grant applications for the 2022 fisical year.
The goal of the grants is to strengthen and create cooperation with NGO´s, businesses and
individuals in constructive activities and services in accordance with the city‘s policies and priorities.
Gr ts will be awarded for projects in th following fields:
• social and welfare affairs
• education and leisure
• sports and youth
• human rights
• culture
Be advised that applications are reviewed with regard to the city‘s human rights plicy and gendered budgeting.
T pply got t : www.reykjavik.is/styrkir
Also available on the website is information about the city‘s priorities in the various areas of interest.
The application window will be open form September 1st 2021 until 12:00 pm on October 1st 2021.
Frekari upplýsingar: https://reykjavik.is/styrkir
More information: https://reykjavik.is/styrkir
Więcej informacji: https://reykjavik.is/styrkir
36 Menning 28. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 28. ágúst 2021 LAUGARDAGUR