Fréttablaðið - 28.08.2021, Side 38

Fréttablaðið - 28.08.2021, Side 38
Grensásvegi 11 108 Reykjavík Sími 588-9090 | eignamidlun.is LEITUM AÐ METNAÐAR- FULLUM EINSTAKLINGI Í SKJALAGERÐ HJÁ EIGNAMIÐLUN Vegna aukinna umsvifa leitum við að metnaðarfullum einstaklingi til að slást í hóp öflugra starfsmanna hjá Eignamiðlun. Við erum elsta starfandi fasteignasala á Íslandi og erum í stöðugri þróun í breytilegu og krefjandi umhverfi á fasteignamarkaðinum. Við leitum að löggiltum fasteignasala sem er metnaðarfullur, vandvirkur og góður í mannlegum samskiptum. Viðkomandi mun eingöngu starfa í skjalagerð og þarf að geta sinnt öllu er varðar skjalagerð í fasteignasölu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur Ingi Guðlaugsson, gudlaugur@eignamidlun.is Umsóknir skal senda á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og hvetjum við alla sem telja sig búa yfir þeirri getu og færni sem leitast er eftir til að sækja um starfið. Menntun og hæfniskröfur • Löggiltur fasteignasali • Skipulagshæfni • Góð færni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð tölvufærni • Góð íslensku- og enskukunnátta UPPLÝSINGAFULLTRÚI HEILSUGÆSLU HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Umsjón með fjölmiðlasamskiptum stofnunar, svör við fyrirspurnum fjölmiðla og gerð fréttatilkynninga. Þátttaka í miðlun upplýsinga á ytri vef stofnunar, umsjón með samfélagsmiðlum og gerð kynningarefnis, ásamt stefnumótun. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ Laust er til umsóknar starf upplýsingafulltrúa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Starfið er tímabundið til eins árs með möguleika á framtíðarráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi. Um er að ræða nýtt starf og því um spennandi tækifæri að ræða til að þróa það og móta. Starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, HH, er mjög víðtæk og fjölbreytt. HH rekur fimmtán heilsugæslustöðvar ásamt mörgum sérþjónustum. Jafnframt sinnir HH sýnatökum og bólusetningum vegna COVID-19. Fjöldi starfsmanna er um 1000 sem hefur aukist ört undanfarin ár. VIRÐING - SAMVINNA - FAGMENNSKA Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 06.09.2021. Nánari upplýsingar veitir Elín Eiríksdóttir - elin.eiriksdottir@heilsugaeslan.is - 513 5000 Sjá nánar á www.starfatorg.is og á www.heilsugaeslan.is undir laus störf kopavogur.is Kópavogsbær auglýsir laus störf forstöðumanns Gerðarsafns og sérfræðings í innkaupadeild Kópavogsbæjar. Forstöðumaður Gerðarsafns heyrir undir for- stöðumann menningarmála hjá Kópavogsbæ. Ráðið er í starfið til fimm ára í senn. Forstöðu- maður mótar hlutverk og listræna stefnu Gerðarsafns og ber meðal annars ábyrgð á sýninga- og viðburðahaldi, rekstri safnsins, safn- verslunar og veitingasölu, á safneign Gerðar- safns og öðrum listaverkum í eigu Kópavogs- bæjar. Forstöðumaður sinnir samstarfi við aðrar menningarstofnanir bæjarfélagsins og sambæri- legar stofnanir annars staðar. Sérfræðingur innkaupadeildar heyrir undir deildarstjóra innkaupadeildar og starfar með stjórnendum á öllum sviðum Kópavogsbæjar. Sérfræðingur í innkaupadeild hefur umsjón með vörustjórnunarkerfi og samningum og sér um daglega þjónustu, kynningu og fræðslu við svið og stofnanir. Innkaupadeild heyrir undir fjármála- svið sem hefur yfirumsjón með fjármálastjórn Kópavogs og veitir stjórnendum upplýsingar, stuðning og aðhald. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um störfin og sækja um á heimasíðu bæjarins kopavogur.is Laus störf hjá Kópavogsbæ Fyrirtæki ársins 2021 hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.