Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2021, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 28.08.2021, Qupperneq 34
Upplýsingafulltrúi Umhverfis- og auðlindaráðuneytið leitar eftir einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, frumkvæði og góðri samskiptafærni til að sinna fjölbreyttu og krefjandi starfi upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. Upplýsingafulltrúi hefur m.a. umsjón með miðlun upplýsinga af starfi ráðuneytisins, samskiptum við fjölmiðla, vef, samfélagsmiðlum og fræðslu- og kynningarstarfi. Upplýsingafulltrúi heyrir undir skrifstofu ráðuneytisstjóra. Í ráðuneytinu er öflugur og samhentur hópur starfsmanna sem starfar á sex skrifstofum. Undir ráðuneytið heyra umfangsmikil samfélagsleg verkefni svo sem á sviði loftslags- og umhverfismála, náttúruverndar og náttúruvár. Ráðuneytið leggur áherslu á góða liðsheild og góðan starfsanda. Ráðuneytið er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi og jafnlaunavottun. Meginverkefni: • Ábyrgð á upplýsingamiðlun ráðuneytisins • Umsjón með samskiptum og miðlun til fjölmiðla og skipulagi fjölmiðlaviðburða • Umsjón með vef og samfélagsmiðlum ráðuneytisins • Umsjón með fræðslu- og kynningarstarfi ráðuneytisins • Umsjón með innri vef ráðuneytisins • Þátttaka í ýmsum verkefnum og starfshópum innan og utan ráðuneytisins sem undir starfið heyra • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi Hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistaragráða er æskileg • Marktæk reynsla á sviði upplýsinga- og kynningarmála • Reynsla af störfum við fjölmiðla er kostur • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og geta til að mynda tengslanet • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa undir álagi • Góð tölvuþekking. Kunnátta í power point, infogram og vefumsjónarforritum er kostur • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur • Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli Umsóknarfrestur er til og með 6. september nk. Sótt er um starfið á Starfatorgi – starfatorg.is Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri (sigridur.arnardottir@uar.is) eða í síma 545-8600. Læknisstaða á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands SÉRFRÆÐILÆKNIR Í ALMENNUM LYFLÆKNINGUM Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í almennum lyflækningum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina. Staðan veitist frá 1. október 2021 eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð • Þjónusta við heilsugæslu og göngudeild umdæmissjúkrahússins í Neskaupstað • Þátttaka í vaktþjónustu • Þátttaka í kennslu læknanema og deildarlækna • Þátttaka í þverfaglegri samvinnu og teymisvinnu HSA • Sérfræðingur í lyflækningum myndar ásamt skurðlækni, svæfingalækni og deildarlækni öflugt teymi lækna við sjúkrahúsið og heilsugæsluna. Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT-tæki, ómtæki, speglanatækjum og rannsóknarstofu. Farandsérfræðingar í ýmsum greinum heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræðiþjónustu í nærumhverfinu. Hæfniskröfur • Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2021 Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/umsoknir/ til HSA, framkvæmdastjóra mannauðs , Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbak- snotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. Nánari upplýsingar veita Jón H. H. Sen, forstöðulæknir, s. 840-4144 og 4701450, jon.sen@hsa.is Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, petur.heimisson@hsa.is Guðjón Hauksson, forstjóri, s. 470-3050, gudjon.hauksson@hsa.is Emil Sigurjónsson framkvæmdastjóri mannauðs, s. 470 3053 og 895 2488, netf. emil.sigurjonsson@hsa.is . Fjarðabyggð er ákjósanlegur kostur jafnt í starfi og leik: Samfélagið Í Neskaupstað er sterkt skólasamfélag: leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og verkmenntaskó- li. Næsti menntaskóli er á Egilsstöðum. Vegaleng- dir eru að jafnaði stuttar og fólk því fljótt í förum milli staða, hvort sem um er að ræða t.d. skóla eða þjónustu af ýmsum toga. Íbúarnir eru samheldnir og samfélagið líflegt. Íbúafjöldi er um 1400 manns. Íþróttir Íþróttalífið á svæðinu er fjölbreytt og ýmis- legt í boði, svo sem sjósport, fjallgöngur, fótbolti, blak, sund, hestamennska, skíði, golf og karate. Oddskarð er skíðasvæði í fjöllunum milli Norðfjarðar og Es- kifjarðar. Það er rómað fyrir náttúrufegurð og góðan aðbúnað. Mjög góður 9 holu golfvöllur er í Norðfirði. Samgöngur Ný Norðfjarðargöng hafa gjörbylt samgöngum í Fjarðabyggð. Egilsstaðaflugvöllur er í aðeins tæplega klukkustundar akstursfjarlægð. Náttúrufegurð Náttúra Austurlands er í senn mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt með að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og náttúruunnendur eru óvíða betur í sveit settir en einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn vilja lóna á fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar. Áhugafólk um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til sjós og lands og allir eru þeir nærtækari en menn gæti að óreyndu grunað. Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað starfrækir blandaða lyf- og handlækningadeild, hjúkrunardeild, fæðingardeild og endurhæfingardeild ásamt stoðdeildum, sem og heilsugæslu fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði. Auk lyflæknis starfa svæfinga- læknir, skurðlæknir og deildarlæknir á FSN. Þjónustusvæði sjúkrahússins nær frá Bakkafirði til Djúpavogs, svæðis sem telur um 11.000 íbúa. Flugvöllur fyrir sjúkraflug er í Neskaupstað. Megin- hlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjónustu, samanber lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, og það er hlekkur í þjónustukeðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum: heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru auk FSN sjö heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar 11 talsins. HSA byggir þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.