Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 47
VIÐ BYGGJUM
SAMFÉLÖG
VERKÍS veitir trausta ráðgjöf sem styður
við uppbyggingu sjálfbærra samfélaga.
Við höfum mikla þekkingu á sviði
vistvænnar hönnunar og erum leiðandi
á heimsvísu þegar kemur að grænni
orkuvinnslu og nýtingu jarðvarma.
Við byggjum upp sjálfbær samfélög víða
um heim með því að hafa sjálfbærni alltaf
í huga við ákvarðanatöku – allt frá fyrstu
hugmynd til förgunar.
Sérfræðingar
Vegna aukinna verkefna erum við að leita eftir öflugu og góðu fólki í hópinn
okkar. Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum með góða samskipta- og
skipulagshæfileika sem sýna metnað, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
VERKEFNASTJÓRI Á SVIÐI VEITNA OG OFANVATNSLAUSNA
Starfið felur í sér verkefnastjórn verkefna á sviði byggðatækni með áherslu á vatns-
og fráveituhönnun, s.s. lagnahönnun, hönnun veitumannvirkja, samræmingarhönnun
veitustofnanna, ræsahönnun og hönnun blágrænna ofanvatnslausna.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í umhverfisverkfræði, byggingarverkfræði/-tæknifræði eða
vélaverkfræði/-tæknifræði
• Reynsla á sviði verkefnastjórnunar
• Reynsla á sviði veituhönnunar er æskileg
• Reynsla í notkun helstu teikni- og hönnunarforrita, s.s. AutoCAD og
Civil 3D er æskileg
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli
HÖNNUÐUR VEGA, GATNA OG STÍGA
Starfið felur í sér verkefni tengd hönnun samgöngumannvirkja, s.s. vega,
gatna, göngu- og hjólastíga.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í samgönguverkfræði eða byggingarverkfræði/-tæknifræði
• Reynsla í notkun helstu teikni- og hönnunarforrita, s.s. AutoCAD,
Civil 3D og Nova Point
• Þekking á íslenskum og norskum reglum, stöðlum og handbókum er kostur
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli
LAGNA- OG LOFTRÆSIHÖNNUÐUR
Starfið felur í sér hönnun lagna og loftræsikerfa í margskonar byggingum s.s.
skólabyggingum, íþróttahúsum, flugstöðvarbyggingum, íbúðarhúsnæði,
virkjunum og iðnaðarhúsnæði.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í vélaverkfræði/-tæknifræði eða byggingarverkfræði/-tæknifræði
• Minnst fimm ára starfsreynsla við hönnun lagna- og loftræsikerfa
• Þekking á BIM aðferðafræðinni og notkun líkana við hönnun er kostur
• Reynsla í notkun hönnunar- og teikniforritsins Revit MEP er kostur
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli
EFTIRLIT MEÐ FRAMKVÆMDUM
Starfið felur í sér eftirlit með fjölbreyttum framkvæmdaverkefnum
s.s. húsbyggingum, samgöngumannvirkjum og veitum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í byggingarverkfræði/-tæknifræði eða byggingafræði
• Reynsla af framkvæmdaeftirliti
• Reynsla af stjórnun verkefna er æskileg
• Gott vald á íslensku
Nánari upplýsingar veita:
Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Áslaug Ósk Alfreðsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is
Umsóknarfrestur er til og með 21 júní. Sótt er um á umsokn.verkis.is