Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Page 24
Launamálið.
Þegar eftir síðasta bandalagsþing skipaði stjórn
bandalagsins 3 manna nefnd úr sínum hópi til
þess að vinna að framgangi þeirra krafna í
launamálum, er þingið hafði gert, safna gögnum
til rökstuðnings kröfunum o. s. frv. En vegna
þeirrar miklu óvissu, sem þá ríkti í kaupgjalds-
málum vegna verkfalls þess er þá skall á, taldi
stjórn 'bandalagsins rétt að ibíða úrslita verk-
fallsins. Þegar eftir að þau voru kunn, kallaði
stjórn bandalagsins saman fund fulltrúa frá
bandalagsfélögunum svo sem fyrir hafði verið
lagt í samþykkt þingsins um launamál. A þeim
fundi var skipuð 7 manna nefnd, er í áttu sæti
formenn 6 stærstu bandalagsfélaganna auk for-
manns bandalagsins, er vinna skyldi að launa-
og kjaramálunum við ríkisstjórn og Alþingi.
Nefndin hélt allmarga fundi og átti um málið
viðræður við ríkisstjórnina. Urslit málsins urðu
þau, að ríkisstjórnin lagði fram frumvarp til
laga, er heimiluðu samskonar kjarabætur opin-
berum starfsmönnum til handa og verkalýðs-
félögin höfðu náð með desembersamkomulaginu.
Var frá því skýrt á fulltrúafundi er nefndin
kallaði saman um það bil er Alþingi lauk og
jafnframt gerð grein fyrir rökum þeim er nefnd-
in taldi að því faníga, að eftir atvikum mætti
sætta sig við þetta sem bráðabirgðalausn launa-
málsins. Hitt kom að sjálfsögðu fram í viðræðum
þeim, er nefndin átti við ríkisstjómina, að auð-
vitað væri hér um allsendis ófullnægjandi lausn
á launamálinu að ræða til frambúðar, og var
lögð á það rík áherzla, að undirbúningi og af-
greiðslu nýrra launalaga yrði hraðað, svo fremi
ríkisvaldið treystist eigi til að veita opinberum
starfsmönnum fullan samningsrétt.
Krafan um nefndarskipun til endurskoðunar
launalaganna var borin fram í áðurnefndum við-
tölum við formenn stjórnarflokkanna, og lofuðu
þeir um það mál fyrirgreiðslu sinni. Það dróst
fram í aprílmánuð 1954 að milliþinganefnd sú í
launamálum, er bandalagið skipaði, skilaði end-
anlegu áliti, en þegar er það lá fyrir, sneri banda-
lagsstjórn sér til ríkisstjórnarinnar og óskaði
eftir því að nefndin yrði skipuð.
M. a. vegna fjarveru fjármálaráðherra frá
störfum dróst nefndarskipunin þó fram í sept.
s. 1. Tók nefndin þá til starfa, skipuð eftirtöld-
um mönnum. Af faálfu ríkisstjórnarinnar þeim
Gunnl. Briem og Sigtryggi Klemenzsyni skrif-
stofustjórum, en af hálfu bandalagsins þeim
Arngrími Kristjánssyni, Guðjóni B. Baldvins-
syni og Olafi Björnssyni. Ritari nefndarinnar er
Kristján Thorlacius, stjórnarráðsfulltrúi. í ráði
mun að bæta enn í nefndina tveim mönnum af
hálfu ríkisstjórnarinnar, þó að enn hafi eigi verið
22 ÁSGARÐUR
frá því gengið. Störf nefndarinnar hafa til þessa
einkum verið fólgin í söfnun gagna er leggja
mætti til ákvörðunar launastiga og skiptingu í
launaflokka samkvæmt væntanlegum launalög-
um. Fulltrúar bandalagsins hafa jafnframt ósk-
að eftir því að teknar yrði til meðferðar nú þegar
kröfur um bráðabirgðalausn launamálsins fyrir
árið 1955.
Skipulagsmál.
I upphafi kjörtímabils síns skipaði stjórn
bandalagsins 3 menn úr sínum hópi, þá Arn-
grím Kristjánsson, Guðjón B. Baldvinsson og
Magnús Eggertsson, til þess að undirbúa tillögur
um breytingar á lögum bandalagsins og skipu-
lagi. Mun nefndin leggja niðurstöður sínar fyrir
þetta þing.
Skrifstofan.
Skrifstofa bandalagsins hefur verið rekin með
svipuðu sniði og áður. Nokkuð hefur verið leitað
til hennar frá bandalagsfélögunum og auk þess
kemur vitanlega til kasta skrifstofunnar um ýms
framkvæmdaatriði í flestum málum, sem sam-
bandsstjórn fær til meðferðar. Ekki er unnt að
tilgreina hvert einstakt mál, sem til meðferðar
hefur komið, en þau voru allmörg á kjörtímabil-
inu.
í nefndir þingsms voru kosnir þessir fulltrúar:
Nefndanefnd: Andrés G. Þormar, Þórður
Þórðarson, Bjarni Halldórssoon, Matthías Guð-
mundsson, Guðjón Guðmundsson, Pálmi Jósefs-
son, Stefán Arnason.
Fjárhagsnefnd: Jón Tómasson, Karl Á. Torfa-
son, Bjarni Halldórsson, Sigurður Olason, Filippus
Gunnlaugsson.
Launamálanefnd: Helgi Þorláksson, Þórður
Þórðarson, Karl Helgason, Stefán Júlíusson, Guð-
mundur Snorrason, Ágúst Bjarnason, Valborg
Bentsdóttir, Ján Kárason, Jón Símonarson.
Dýrtíðarmálanefnd: Guðjón B. Baldvinsson,
Karl Halldórsson, Sigurbjörn Þorkelsson, Kristján
Gunnarsson, Jón Þórðarson, Halldóra Eggerts-
dóttir, Ingvar Brynjólfsson.
Ferðakostnaðarnefnd: Ólafur Guðmundsson,
Örn Pétursson, Þórarinn Fjeldsted.
Dagskrárnefnd: Björn L. Jónsson, Maríus
Helgason, Þorvaldur Árnason.
Allsherjarnefnd: Karl Bjarnason, Karl Vil-
hjálmsson, Eyjólfur Jónsson, Eggert Einarsson,
Jónas Jósteinsson.
Menningarmálanefnd: Einar Magnússon, Sigur-
jón Árnason, Hjörtur Kristmundsson, Sigríður
Eiríksdóttir, Baldur Pálmason.
Starfskjaranefnd: Steindór Björnsson, Þor-
steinn Egilson, Gestur Ólafsson, Sigurður Inga-