Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 25

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 25
' t Núverandi stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Fremri röð, talið frá vinstri: Karl Bjarnason, Ólafur Björnsson, form., Arngrímur Kristjánsson, varaform. og Eyjólfur Jónsson. Aftari röð: Magnús Eggertsson, Helgi Þorláksson, Guðjón B. Baldvinsson og Maríus Helgason. — A myndina vantar Baldur Möller. — (Ljósm.: Ólafur K. Magnússon). son, Karl Lárusson, Stefán Árnason, Magðalena Guðjónsdóttir. Laga- og skipulagsnefnd: Árni Þórðarson, Þór- hallur Pálsson, Baldur Möller, Júlíus Björnsson, Andrés G. Þormar, Hannes Björnsson, Guttormur Sigurbj örnsson. Hér verða ekki raktar umræður á þingfundum, sem stóðu alls 5 daga, en samþykktir þingsins eru allar birtar hér aftan við frásögnina af þinghald- inu. Þess skal næst getið, að á öðrum degi kaus þingið sjö manna nefnd, er ganga skyldi á fund ríkisstjórnarinnar-til viðræðna um launamál op- inberra starfsmanna. Nefndin gaf þinginu skýrslu um viðræðufundinn tveim dögum síðar, og er í fundargerð komizt þannig að orði þar um: „Framsögu hafði Maríus Helgason. Kvað hann forsætisráðherra hafa lýst yfir því, að ríkisstjórn- in hefði hug á að hraða endurskoðun launalag- anna, svo að hægt yrði að afgreiða þau á því þingi, er nú situr“. — í nefndinni áttu sæti þess- ir menn: Ólafur Björnsson, Arngrímur Krist- jánsson, Guðjón B. Baldvinsson, Helgi Þorláks- son, Jakob Jónsson, Valborg Bentsdóttir og Maríus Helgason, sem var tilnefndur formaður nefndarinnar. I stjórn bandalagsins næstu tvö ár hlutu kosn- ingu þessir menn: Formaður: Ólafur Björnsson próf. (endurkjörinn með 66 atkv., sr. Jakob Jóns- son hlaut 30 atkv.). Varaformaður: Arngrímur Kristjánsson skólastjóri (hlaut endurkosningu með 53 atkv., Guðjón B. Baldvinsson fékk 28 atkv.). Meðstjórnendur: Maríus Helgason sím- ritari (73 atkv.), Baldur Möller stjórnarráðsfulltr. (60 atkv.), Guðjón B. Baldvinsson deildarstjóri (59 atkv.), Magnús Eggertsson lögregluþjónn (59 atkv.), Karl Bjarnason varaslökkviliðsstjóri (57 atkv.), Eyjólfur Jónsson lögfræðingur (56 atkv.) og Helgi Þorláksson kennari (50 atkv.). Vara- stjórn: Sr. Jakob Jónsson, Júlíus Björnsson full- trúi, Karl Halldórsson tollvörður og Sigurður Ingason póstmaður. Endurskoðendur voru endurkjörnir: Andrés G. Þormar gjaldkeri og Björn L. Jónsson veður- fræðingur, — og til vara Lárus Sigurbjörnsson skjalavörður. Samþykkt var að hækka úr kr. 15,00 í kr. 20,00 árgjaldið til B.S.R.B. af hverjum félags- manni bandalagsfélaganna. ÁSGARÐUR 23

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.