Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Síða 38

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Síða 38
6. gr. Hver sá, er stöðu ráðstafar, getur sett starfsmanni erindisbréf, enda skal að jafnaði setja starfsmanni slík fyrirmæli, ef hann óskar þess, hvort sem það varðar starf hans almennt eða einstaka grein þess eða greinar. III. KAFLI Um lausn úr stöðu. 7. gr. Það stjórnvald, er veitir stöðu, veitir og lausn frá henni um stundarsakir. Forstjóri starfsgreinar getur þó veitt starfsmanni í þeirri grein lausn um stundar- sakir, þótt hann hafi ekki veitt þá stöðu, ef bið þykir hættuleg, en tilkynna skal þá þeim, er stöðu veitir, tafarlaust þá ráðstöfun með skýringu á málavöxtum, enda tekur hann fullnaðarákvörðun um lausnarveit- inguna. Rétt er að veita manni lausn um stundarsakir, ef hann hefur sýnt í starfi sínu óstundvísi eða aðra van- rækslu, óhlýðni við löglegt boð eða bann yfirmanns síns, vankunnáttu eða óvandvirkni í starfi sínu, hefur verið ölvaður að starfi eða framkoma hans eða athafnir í því eða utan þess þykir að öðru leyti ósæmileg, óhæfi- leg eða ósamrýmanleg því starfi. Þó skal veita starfs- manni áminningu og gefa honum kost á að bæta ráð sitt, áður en honum er veitt lausn um stundarsakir samkvæmt þessari málsgrein. Nú hefur starfsmaður fjárreiður eða bókhald með höndum, og má þá veita honum lausn um stundarsakir án áminningar, ef ætla má eða víst þykir, að óreiða sé á bókhaldi eða fjárreiðum, bú hans tekið til gjald- þrotaskipta eða hann leitar nauðasamninga. Sama er, ef starfsmaður er grunaður eða sannur orðinn að hátt- semi, er varða kynni sviptingu réttinda samkvæmt 68. gr. almennra hegningarlaga, eða heilsu hans er svo farið, að eigi þyki gerlegt að láta hann gegna starfa lengur. Lausn um stundarsakir skal jafnan vera skrifleg með tilgreindum ástæðum. 8. gr. Nú hefur starfsmanni ríkisins verið veitt lausn um stundarsakir fyrir meintar misfellur 1 starfi, og skal þá þegar mál hans rannsakað af kunnáttumönnum eða fyrir dómi að hætti opinberra mála, ef ástæða þykir til, svo að upplýst verði, hvort rétt er að veita hon- um lausn að fullu eða láta hann aftur taka við starfi sínu. Úrslit um stöðuna skulu ráðin strax og lokaniður- stöður rannsóknar eru kunnar. 9. gr. Meðan lausn um stundarsakir stendur, nýtur starfs- maður hálfra fastra launa þeirra, sem stöðu hans fylgja- Embættishúsnæði og jarðnæði, ef um er að ræða, heldur hann, enda komi þau fríðindi til reikn- ings samkvæmt mati í þeim launum, er hann fær. Nú fellur niður lausn um stundarsakir, og skal starfs- maður þá fá greiddan þann helming hinna föstu launa, er hann hefur verið sviptur. Nú tekur sá, sem lausn hefur fengið um stundar- sakir, aftur við starfa sínum og skal þá líta svo á um starfsaldur sem hann hefði gegnt starfanum óslitið. 10. gr. Hver sá, er skipar starfsmann í stöðu, veitir og lausn úr henni, nema öðruvísi sé sérstaklega fyrir mælt í lögum. Lausn skal veita skriflega og jafnan greindar orsakir, svo sem vegna umsóknar, heilsu- brests, tiltekinna ávirðinga o. s. frv. í lausnarbréfi skal jafnan kveðið á um það, frá hvaða degi starfsmaður skuli lausn taka og með hvaða kjörum, svo sem um eftirlaun, sé um þau að ræða, lífeyri, hvenær starfsmaðurinn skuli sleppa íbúð, jarð- næði o. s. frv., eftir því sem við á. 11. gr. Jafnan skal starfsmanni, sem víkja skal úr stöðu, veittur kostur á að tala máli sínu, áður en ákvörðun er tekin, ef þess er kostur. Rétt er þeim, er vikið er úr stöðu. að bera málið undir úrlausn dómstóla, enda fari rannsókn slíks máls að hætti opinberra mála. Stefna skal fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Nú er stöðumissir úrskurðaður óréttmætur, og fer þá um bætur til aðila eftir úrskurði dómstóla, nema hlutaðeigendur hafi komið sér saman um annað. Þegar bætur eru metnar, skal hafa til hliðsjónar ástæður starfsmanns, svo sem aldur og atvinnumöguleika, svo og fram komnar málsbætur stöðuveitanda. 12. gr. Starfsmanni skal víkja úr stöðu að fullu, ef hann hefur verið sviptur með fullnaðardómi rétti til að gegna stöðu þeirri. Nú hefur starfsmaður verið sviptur þeim rétti með dómi í héraði, og skal þá í þeim dómi kveða á um það, hvort það ákvæði skuli þegar koma til framkvæmdar eða fresta því, þar til ráðið verður, hvort honum skuli skjóta til æðra dóms, eða þar til úrlausn æðra dóms er fengin. 13. gr. Starfsmanni skal veita lausn, þegar hann er fullra 70 ára að aldri. Heimilt er þó starfsmanni að láta af störfum með rétti til eftirlauna og/eða lífeyris, hvenær sem er, eftir að hann er orðinn 65 ára, eða fyrr, ef hann hefur unnið sér þann rétt samkvæmt lögum. Ákvæði 1. mgr. þessarar greinar ná ekki til ráðherra og opinberra fulltrúa í þjónustu ríkisins, sem kosnir eru almennri kosningu. Ef embættismaður, sem hlotið hefur embætti sitt með almennri kosningu, fer frá samkvæmt ákvæðum þessarar greinar, skal honum heimilt að sækja um embættið af nýju. Hljóti hann kosningu, skal hann fá veitingu fyrir embættinu um 5 ár. Halda skulu gildi sínu sérákvæði þau um dómara, er um ræðir 1 lögum nr. 32 1. apríl 1948. 14. gr. Nú er staða lögð niður, og skal þá starfsmaður jafnan fá föst laun, er starfanum fylgdu, greidd 1 6 mánuði frá því að hann lét af starfi, ef hann hefur verið í þjónustu ríkisins skemur en 15 ár, en í 12 mánuði, eigi hann að baki lengri þjónustualdur, enda hafi hann þá ekki hafnað annarri sambærilegri stöðu á vegum ríkisins. Ef sama staða er aftur stofnuð innan 5 ára, á starfs- maður að öðru jöfnu rétt til hennar. Nú hefur maður verið leystur frá starfi vegna þeirra orsaka, sem um getur í grein þessari, eða annarra atvika, sem honum verður ekki sök á gefin, og skal hann þá í 5 næstu ár að öðru jöfnu sitja fyrir um starf í þjónustu ríkisins, er losna kann, ef hann sækir um það. Starfsaldur hans áður og eftir skal þá saman lagður og veitir þá sömu réttindi sem óslitin þjónusta. Nú tekur maður, er launagreiðslna nýtur samkvæmt 1. mgr., við starfi í þjónustu ríkisins, áður en liðinn er 6 eða 12 mánaða tíminn, og skulu þá launagreiðslur samkvæmt þessari grein falla niður, ef laun þau, er nýja starfinu fylgja, eru jöfn eða hærri en þau, er hann naut í fyrri stöðunni. Ef launin í nýju stöðunni eru lægri, skal greiða starfsmanni launamismuninn til loka 6 eða 12 mánaða tímabilsins. 15. gr. Nú vill starfsmaður beiðast lausnar, og skal hann þá gera það skriflega og með þriggja mánaða fyrirvara, nema ófyrirsjáanleg atvik hafi gert starfsmann ófæran 36 ÁSGARÐUR

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.