Morgunblaðið - 15.04.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Undanfarna daga hefur verið fallegt vorveður á
höfuðborgarsvæðinu. Hafflöturinn í gömlu höfn-
inni við slippinn í Reykjavík var spegilsléttur í
gær. Veðurspár benda hins vegar til vætutíðar
næstu daga og einna helst að veðrið verði skap-
legt norðaustanlands um helgina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vorblíða í
Reykjavíkurhöfn
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er mjög undarleg aðgerð og virðist
ekki gerð í samráði við neinn,“ segir Dagný
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuhússins í
Urðarhvarfi.
Dagný furðar sig á áformum Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra sem
Morgunblaðið hefur greint frá. Ráðherra
kynnti á dögunum breytingu á reglugerð um
endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu
sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem
starfa án samnings við Sjúkratryggingar Ís-
lands. Felur breytingin meðal annars í sér
að þeir læknar sem rukka aukakostnað sam-
kvæmt gjaldskrá muni ekki njóta kostn-
aðarþátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Eins
og komið hefur fram í blaðinu telja læknar
að hæpin lagastoð sé fyrir áformuðum
breytingum.
Undarlegt að stoppa allt kerfið
„Það er verið að stilla okkur upp við
vegg,“ segir Dagný sem lýsir Orkuhúsinu
sem rótgrónu fyrirtæki; það hefur verið rek-
ið í 23 ár og hefur um 50 starfsmenn í vinnu.
„Hér er framkvæmdur stærstur hluti allra
bæklunaraðgerða á landinu. Við fáum 20
þúsund heimsóknir ár hvert og gerum fimm
þúsund aðgerðir. Þessi starfsemi er háð því
að samið sé við lækna og það er ótækt að
menn geti ekki einfaldlega sest niður og náð
samningum. Mér finnst undarlegt að stoppa
eigi allt kerfið sem gengið hefur eins og
smurð vél í ár og áratugi,“ segir hún.
Framkvæmdastjórinn bætir við að allt
verði gert til að sjúklingar fái þá þjónustu
sem þeir þurfi á að halda. Ekki sé mikil
sanngirni í því að ráðherra ætli að stöðva
greiðslur til lækna þótt læknastöðin rukki
gjöld til að mæta launahækkunum og geng-
isbreytingum síðustu ára.
„Þetta bitnar á þeim sem síst skyldi.
Sjúklingar hafa vissulega sinn tryggingarétt
en að ætla að gera þeim erfitt fyrir að sækja
hann með þessum hætti sem boðað hefur
verið er mjög skrítið.“
„Bitnar á þeim sem síst skyldi“
- Framkvæmdastjóri Orkuhússins furðar sig á áformum um að læknar sem rukka komugjöld muni
ekki njóta kostnaðarþátttöku SÍ - Þúsundir aðgerða settar í óvissu og fyrirtækinu stillt upp við vegg
Morgunblaðið/Eggert
Orkuhúsið Framkvæmdastjórinn telur ótækt
að SÍ geti ekki náð samningum við lækna.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Ríkisendurskoðun gagnrýnir Sam-
göngustofu fyrir að hafa hvorki svipt
WOW air flugrekstrarleyfi né aftur-
kallað það tímabundið þótt henni hafi
mátt vera ljóst að félagið uppfyllti
tæplega þær fjárhagskröfur sem
gerðar eru í löggjöf.
Kemur þetta fram í skýrslu Rík-
isendurskoðunar um fall Wow air sem
unnin var að ósk umhverfis- og sam-
göngunefndar Alþingis.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir Sam-
göngustofu og samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið fyrir seinagang í
málinu og telur að sérstakt eftirlit
með flugfélaginu hefði átt að hefjast í
maí 2018 en Samgöngustofa gerði
ekki úttekt á fjárhag félagsins fyrr en
í september sama ár.
Þá er talið umhugsunarvert að
Samgöngustofa hafi í einhverjum til-
fellum haft viðskiptalega hagsmuni
WOW air að leiðarljósi í ákvörðunar-
töku, fram yfir þau viðmið og sjón-
armið sem gilda um eftirlit og aðhald.
Reglugerð Evrópuþingsins og -ráðs-
ins kveður á um skyldu stofnunarinn-
ar til að grípa til ráðstafana eins og
sviptingar flugrekstrarleyfis, geti fé-
lagið ekki staðið við fjárhagslegar
skuldbindingar sínar.
Greip stofnunin ekki til þeirra ráða
þar sem hún taldi áætlanir um fjár-
hagslega endurskipulagningu raun-
hæfar og að veiting tímabundins leyf-
is gæti haft skaðleg áhrif á möguleika
félagsins til að fjármagna sig. Ríkis-
endurskoðun gefur lítið fyrir þau rök
og telur að Samgöngustofu hafi borið
að beita þeim úrræðum sem kveðið er
á um í lögum og reglum:
„Veiting tímabundins leyfis meðan
á fjárhagslegri endurskipulagningu
stendur hefur þann ótvíræða kost að
vera gagnsætt, formlegt ferli með
upphaf og endi í stað þess að vera
óformlegt og ótímabundið eins og
raunin var með WOW air hf.,“ segir í
skýrslunni.
Samgöngustofa ekki brugðist
rétt við erfiðleikum WOW air
- Svört skýrsla Ríkisendurskoðunar - Gagnrýnir seinagang
Morgunblaðið/Hari
Flugfélag Ríkisendurskoðun gefur
lítið fyrir rök Samgöngustofu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur að undanförnu stöðvað kanna-
bisræktanir á fjórum stöðum í um-
dæminu og lagt hald á mikið magn
kannabisefna, eða vel á annað
hundrað kíló, en það er mat lögreglu
að í öllum tilvikunum hafi efnin verið
ætluð til sölu og dreifingar.
Um var að ræða umfangsmiklar
ræktanir í bæði iðnaðar- og íbúðar-
húsnæði, m.a. í sérútbúnu rými, og
þótti búnaðurinn eftir því. Nokkrir
hafa verið handteknir í þessum að-
gerðum lögreglunnar og einn úr-
skurðaður í gæsluvarðhald, en rann-
sókn málanna miðar vel. Á einum
staðnum var enn fremur lagt hald á
tæplega eitt kíló af ætluðu amfeta-
míni, að því er lögreglan greinir frá.
Stöðvar
ræktanir
Morgunblaðið/Kristinn
Kannabis Ræktanir voru á fjórum
stöðum í umdæmi lögreglunnar.
- Á annað hundrað
kíló kannabisefna
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
slí
ku
.A
th
.a
ð
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
f
án
fy
rir
v
yr
irv
arar
a.
Frá kr.
219.890
60+
meðGunnari Svanlaugs
Tenerife
22. september í 21 nótt eða 29. september í 14 nætur