Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Þrátt fyrir heimsfaraldurinn,efnahagsþrengingar og
fjöldatakmarkanir, gætir ný-
breytni í ýmsum
greinum, sem eru
ónæmari en aðrar
fyrir slíkum að-
ferðum. Þannig má
lesa um það á vef
Viðskiptablaðsins,
vb.is, að Jóhannes
Stefánsson, fyrrum
framkvæmdastjóri
Samherja í Namibíu, hafi stofnað
félagasamtökin Félag uppljóstr-
ara.
- - -
Jóhannes ljóstraði, sem kunnugter, upp um starfshætti sína í
Namibíu við Helga Seljan og fé-
laga í sjónvarpsþættinum Kveik,
sem hefur haft nokkur eftirmál,
bæði innanhúss í Efstaleiti og víð-
ar í samfélaginu. Meðal annars
þau að Jóhannes segir að eitrað
hafi verið fyrir sér og hefur
gengist fyrir fjársöfnun af þeim
sökum.
- - -
Það er því vafalaust um nóg aðræða á fundum Félags upp-
ljóstrara og gæti örugglega orðið
glatt á hjalla hjá Jóhannesi, litla
Landsímamanninum og Sigga
hakkara við að samræma hags-
munagæslu sína.
- - -
Þetta er athyglisverð frétt, enþó bregst Viðskiptablaðinu
bogalistin að þessu sinni og missir
af stóru fréttinni í málinu. Því
þegar farið er inn á vef fyrir-
tækjaskrár kemur á daginn að
þar vantar upplýsingar um „raun-
verulega eigendur“ félagsins!
- - -
Ekki er að efa að Gagnsæi,samtök áhugafólks um glært
samfélag, taki á því hneyksli puk-
urs og leyndarhyggju af viðeig-
andi hörku.
Jóhannes
Stefánsson
Leyndarhyggja
uppljóstrara
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Umferðin á hringveginum jókst stór-
lega í seinasta mánuði frá sama mán-
uði í fyrra eða um nærri 23 prósent. Í
mars í fyrra drógu kórónuveiru-
faraldurinn og sóttvarnaaðgerðir
mjög mikið úr umferð á þjóðvegum
landsins en í seinasta mánuði hafði
átt sér stað veruleg breyting á um-
ferðinni frá sama mánuði í fyrra
samkvæmt upplýsingum úr teljurum
Vegagerðarinnar.
Fram kemur í umfjöllun Vega-
gerðarinnar að þessi aukning sé í
takt við þá aukningu sem varð í mars
á höfuðborgarsvæðinu. Reyndist
umferðin á hringveginum í seinasta
mánuði sú þriðja mesta frá upphafi
mælinga. „Umferð jókst í öllum
landsvæðum en mest á Norðurlandi
eða um 34,6% en minnst um teljara-
snið á Suðurlandi eða um 16,8%,“
segir í umfjölluninni.
46,3% meiri á Holtavörðuheiði
Umferðin jókst mikið á öllum taln-
ingarstöðum á hringveginum að
tveimur undanskildum. Mest jókst
umferðin um Holtavörðuheiði eða
um 46,3% Á fyrstu þremur mánuð-
um ársins hefur umferðin aukist um
7% frá sama tímabili á síðasta ári.
Mest um Norðurland eða um 12,8%
en á Suðurlandi mælist 2,1% sam-
dráttur frá áramótum.
Stóraukin umferð á hringveginum
- Umferð ökutækja var sú þriðja mesta
frá upphafi mælinga í marsmánuði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Biskupsbrekka Umferðin yfir
Holtavörðuheiði jókst um 46,3%.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Þeir sem aka á nagladekkjum þurfa
ekki að búast við því að verða sekt-
aðir á næstu dögum þó að frá og með
deginum í dag, 15. apríl, sé óheimilt
að nota nagladekk. Guðbrandur Sig-
urðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu, staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið. Segir hann að í reglu-
gerð um þetta sé reiknað með mati á
akstursaðstæðum hverju sinni og hér
á landi sé allra veðra von. Þar spili
inn í að horft sé til suðvesturhorns
landsins alls í þessu tilliti. Því sé stað-
an jafnan skoðuð fyrstu vikuna í maí
og í kjölfarið auglýst hvenær búast
megi við því að ökumenn á nöglum
verði sektaðir. Sektir við slíkum brot-
um nema 20 þúsund krónum á hvert
dekk.
Í svari ríkislögreglustjóra við fyrir-
spurn Samgöngufélagsins sem sent
var fjölmiðlum segir að lögregluemb-
ætti hafi með sér samráð vegna þessa
þar eð suðvesturhorn landsins sé orð-
ið eitt atvinnusvæði. Engar verklags-
reglur hafi verið gefnar út vegna
þessara ákvarðana og yfirlit hafi ekki
verið haldið um tímasetningar síð-
ustu ár. Enn fremur segir að ríkislög-
reglustjóri geri ekki athugasemdir
við það verklag sem haft er um beit-
ingu sekta við notkun nagladekkja.
Þá kemur fram í svarinu að allir
lögreglu- og þjónustubílar embættis
lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi
verið á nöglum frá því í nóvember síð-
astliðnum. Sama gildi um alla bíla rík-
islögreglustjóra og hluta bíla lög-
reglustjórans á Vesturlandi en ekki
liggi fyrir upplýsingar frá öðrum lög-
regluembættum.
Sekta ekki vegna
nagladekkja í apríl
- Skoða stöðuna í
byrjun maí - Lög-
reglan sjálf á nöglum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dekkjaskipti Margir skipta yfir á
sumardekkin þessa dagana.
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15