Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 16
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áform eru uppi um að byggja hér
nokkrar strandeldisstöðvar til að ala
lax í sláturstærð og fyrirtæki sem
hafa verið með slíka starfsemi eru að
undirbúa stækkun. Ef þau áform sem
nú eru á hugmynda- og undirbún-
ingsstigi verða að veruleika gætu
strandeldisstöðvarnar hér framleitt í
framtíðinni tvöfalt það magn af laxi
sem reiknað er með að komi úr
sjókvíum við landið í ár. Fjárfestingin
hleypur á tugum milljóna og til gætu
orðið hátt í þúsund ný störf. Þetta er í
takti við þróunina erlendis. Norskir
fiskeldismenn og fjárfestar eru með
afar mikil áform um laxeldi á landi,
bæði í heimalandinu og nær stórum
mörkuðum, í Bandaríkjunum, Asíu
og Evrópu.
Þröngt er orðið um sjókvíar í
norsku fjörðunum og dýrt að kaupa
ný leyfi. Fyrirtæki sem vilja stunda
landeldi þurfa hins vegar lítið að
greiða fyrir leyfin og kostnaður við
lóðirnar jafnast ekki á við eldisleyfi í
sjó.
Við þetta bætist að matfiskeldi í
kerum á landi hefur minni áhrif á um-
hverfið en eldi í sjókvíum. Úrgang-
urinn er síaður frá og getur nýst
áfram og minni hætta er á hags-
munaárekstrum við veiðiréttareig-
endur og veiðimenn vegna erfða-
blöndunar laxastofna.
Margfalt meiri fjárfestingarkostn-
aður er í eldi á landi en í sjó. Það bil
þarf að vera hægt að brúa með betri
framleiðni í landstöðvunum vegna
betri stýringar á umhverfi fisksins og
hærra verði fyrir afurðirnar.
Fjárfestar með opið veski
Sá mikli áhugi sem er á landeldi í
heiminum leiðir til þess að ráðgjaf-
arfyrirtæki hafa ekki undan að
hækka spár sínar um hvað mikið
verði framleitt í landstöðvum eftir tíu
eða tuttugu ár. Ný skýrsla sem
norskir fjölmiðlar sögðu nýlega frá
gerir ráð fyrir að laxeldi í sjókvíum
muni halda áfram að vaxa á næstu ár-
um en landstöðvarnar skili nærri því
helmingi af þeirri framleiðslu sem er í
heiminum í dag. Það þýðir 2-2,5 millj-
ónir tonna. Þótt enn séu þetta aðeins
plön, í flestum tilvikum, hefur komið í
ljós að fjárfestar trúa á landeldi því
nokkur fyrirtæki hafa náð að fjár-
magna uppbyggingu á Merkur-
markaði norsku kauphallarinnar á
þessu ári og sérstaklega því síðasta
og í sumum tilvikum hefur áskrift
numið margföldu því fjármagni sem
ætlunin var að safna. Áformin skipta
tugum en ljóst virðist að aðeins hluti
þeirra kemst á framkvæmdastig.
Í fararbroddi er fyrirtækið Atlantic
Sapphire sem er að byggja sig upp í
Miami í Bandaríkjanum en er einnig
með tilraunastöð í Danmörku. Þrátt
fyrir mikla byrjunarörðugleika í
tæknimálum er stöðin byrjuð að
framleiða lax. Um helmingur hrogn-
anna kemur frá Íslandi, framleidd af
Bencmark Genetics (áður Stofnfiski).
Raunar er hrognaframleiðandinn
stór leikandi á þessu sviði, selur
hrogn til landstöðva um allan heim.
Býr þar að einstakri sjúkdómastöðu
fiskeldis hér á landi.
Féllu með braki og brestum
Erfiðleikarnir eru ekki síst tengdir
því að nota þarf RAS-tækni til end-
urnýtingar á vatni og hún virðist afar
viðkvæm þegar verið er að margfalda
framleiðslu í matfiskeldi. Framleið-
endur tæknibúnaðar standa þétt við
bak stóru erlendu stöðvanna, enda
miklir hagsmunir fyrir þá í húfi, og
þeir munu sjá til þess að þessi vanda-
mál verði leyst. Það er aðeins spurn-
ing um tíma. Því má skjóta hér inn,
að fyrirtækin sem eru að undirbúa
matfiskeldi á landi munu nota mun
einfaldari og ódýrari tækni því nóg er
af vatni og ekki þörf á jafn mikilli
endurnýtingu og víða annars staðar
þar sem ekki eru eins góðar aðstæður
frá náttúrunnar hendi.
Tilgangurinn með því að vera með
framleiðslu nálægt stórum mörk-
uðum er að draga úr kostnaði við
flutning afurðanna frá Noregi og
halda þar með kolefnisfótspori fram-
leiðslunnar í lágmarki. Íslensku fyrir-
tækin hafa aðgang að endurnýtan-
legri orku á samkeppnishæfu verði
og það vegur upp kolefnisfótspor
flutninganna auk þess sem þau eru að
færa sig úr flutningum með flugi yfir
á skip og það léttir mjög fótsporið.
Ekki er úr vegi að rifja hér upp
aðra fiskeldisbylgjuna á Íslandi. Hún
grundvallaðist ekki síst á byggingu
stórra landeldisstöðva, á Reykjanesi,
í Fljótum og Öxarfirði, á árunum
1984 til 1988. Sú bylgja stóð stutt því
stöðvarnar urðu flestar gjaldþrota
um 1990. Starfsmenn glímdu við
ýmsa byrjunarörðugleika og sjúk-
dómurinn kýlaveikibróðir herjaði á
fiskinn. Þá lokuðust mikilvægir
markaðir fyrir íslensk seiði á Írlandi
og í Noregi. Það fór hins vegar með
stöðvarnar að rekstrarkostnaður
varð meiri en reiknað hafði verið með
en verð á afurðunum lækkaði.
Stöð Íslandslax sem Samband ís-
lenskra samvinnufélaga byggði upp á
Stað við Grindavík og norskir fjár-
festar komu inn í sem tæplega helm-
ingseigendur, var stærsta landeldis-
stöð heims á þeim tíma. Hún féll með
braki og brestum síðla árs 1989. Ís-
lenskir athafnamenn og erlendir fjár-
festar voru eigendur annarra stöðva,
oft með heimafólki.
Afdrif stöðvanna voru mismun-
andi. Kröfuhafar leigðu sumar út en
rekstur stöðvaðist alveg í öðrum. Eigi
að síður hafa þessar stöðvar nýst
fiskeldinu vel, meira að segja í fjórðu
bylgju fiskeldis á Íslandi sem nú
stendur yfir. Fiskiker úr stöðvum
sem voru rifnar eru notuð við fiskeldi
víða um land. Þá hefur bleikja verið
alin í nokkrum af gömlu strandeld-
isstöðvunum og jafnvel lax. Samherji
fiskeldi eignast einmitt nokkrar af
þessum stöðvum, meðal annars stöð
Íslandslax, Silfurstjörnuna í Öxarfirði
og stöð Lindalax á Vatnsleysu, og
hefur verið með myndarlegt fiskeldi í
þessum stöðvum í nærri tuttugu ár.
Þá er stöð Ísþórs í Þorlákshöfn öfl-
ugasta seiðastöð landsins. Vissulega
hafa nýir eigendur þurft að uppfæra
stöðvarnar og stækka en samt má
segja að gömlu strandeldisstöðvarnar
séu ein af grunnstoðum fiskeldisins í
dag.
Þorlákshöfn er miðjan
Til þess að setja upp strandeldis-
stöð þarf mikið land og aðgang að
miklu vatni, bæði ferskvatni og sjó
eða sjóblönduðu vatni. Þess vegna er
Þorlákshöfn að verða miðja strand-
eldis á Íslandi. Þar er þegar grunnur
í stórum seiðastöðvum og einnig mat-
fiskeldi. Nú hefur sveitarfélagið Ölfus
skipulagt land fyrir laxeldið við
ströndina vestan við Þorlákshöfn og
kallar Laxabraut. Hefur nokkrum
lóðum verið úthlutað. Af nýjum að-
ilum er Landeldi ehf. lengst komið.
Fyrirtækið er komið á fullt í seiða-
framleiðslu í stöð sem keypt var á
Öxnalæk í Ölfusi og framkvæmdir
eru að hefjast á 18 hektara lóð sem
félagið hefur tryggt sér í Þorláks-
höfn.
Fiskeldi Ölfuss hefur fengið aðra
lóð. Að því fyrirtæki standa meðal
annars menn úr fiskeldisgreininni.
Sjávarútvegsfyrirtækið FISK Sea-
food, dótturfélag Kaupfélags Skag-
firðinga, er með þriðju nýju lóðina
Strandeldi að ná sér á strik á ný
- Mikil áform um uppbyggingu landeldis í Noregi og víða um heim - Fjárfestar sprikla en fiskurinn
lítið farinn að synda - Mikil áform hér um stækkun og nýjar stöðvar á teikniborðinu í Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Eggert
Landeldi Í Þorlákshöfn eru tvær stórar seiðastöðvar og þar eru í undirbúningi nokkrar strandeldisstöðvar sem framleiða munu þúsundir tonna af laxi.
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
„Það eru ævintýralega mikil tæki-
færi í þessu þótt vissulega séu
þetta enn fuglar í skógi en ekki
hendi. Hér er um sanna nýsköpun
að ræða. Við erum að nýta lítið
nýtta auðlind, jarðsjóinn og kalda
vatnið í Þor-
lákshöfn, til
nýrrar verð-
mætasköpunar.
Við erum hvergi
nálægt flösku-
hálsum í auð-
lindanýtingunni
og getum haldið
áfram að vaxa
töluvert mikið,“
segir Elliði Vign-
isson, bæjarstjóri í sveitarfélaginu
Ölfusi, um möguleika Þorláks-
hafnar í uppbyggingu strandeldis.
Hann segir að þótt verið sé að
úthluta nokkrum lóðum sé enn
töluvert svigrúm, bæði fyrir seiða-
og matfisksstöðvar.
Segir Elliði að heimurinn kalli á
Bæjarstjórinn lítur til Noregs og
telur að þróunin hér verði sú sama.
„Fiskeldi getur skilað mun meiri
útflutningsverðmætum í framtíð-
inni, jafnvel meiri en veiðar á villt-
um fiski gera. Ekki er ólíklegt að í
nánustu framtíð líti fólk á villtan
fisk sem villibráð, eins og hreindýr,
megnið af afurðunum komi úr kví-
um og kerum,“ segir Elliði.
meiri matvæli og mikill vöxtur lax-
eldis á landi og í sjó sé fram und-
an. „Í þessu erum við hér að
byggja á styrkleikum okkar. Við
kunnum vel allt sem snýr að fiski
og liggjum vel að helstu mörk-
uðum með útflutningshöfninni.
Það verða til mörg tækifæri og
störf við uppbyggingu fiskeld-
isins.“
Ævintýralega mikil tækifæri liggja í fiskeldi
ELLIÐI VIGNISSON BÆJARSTJÓRI SEGIR AÐ MIKILL VÖXTUR SÉ FRAM UNDAN
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorlákshöfn Strandeldisstöðvarnar munu raða sér á ströndina vestan bæjarins.
Elliði Vignisson
5 SJÁ SÍÐU 18
Uppbygging strandeldis