Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 vestan við Þorlákshöfn. FISK er þeg- ar með bleikjueldi á Hólum í Hjaltadal og í landeldisstöð í Þorláks- höfn, Náttúru fiskirækt. Ekki er ljóst um áform FISK í þessum efnum. Þreifingar hafa verið um sölu stöðv- arinnar en ekkert fæst staðfest um stöðu þess máls. Þá eru fjársterkir menn úr fjár- málaheimi og hátækniþjónustu, inn- lendir og erlendir, að ræða við for- ráðamenn sveitarfélagsins um fjórðu nýju lóðina, jafnvel mun vestar á Laxabraut en hinar. Fjárfestarnir eru að kanna hagkvæmni slíkrar fjár- festingar. Mikil stærðarhagkvæmni er í fisk- eldi, eins og sést á þeim stóru verk- efnum sem eru í undirbúningi erlend- is. Telur Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, að allir þeir aðilar sem hyggjast byggja upp í Þorlákshöfn stefni að 10-20 þúsund tonna fram- leiðslu á ári, þótt stöðvarnar verði ef til vill byggðar upp í áföngum. Verðmæti margra MAX-þotna Strandeldið kallar á miklar fjár- festingar. Elliði segir að hver 20 þús- und tonna stöð gæti kostað um átta milljarða, auk fjögurra milljarða króna seiðastöðvar. Verðmæti líf- massa upp á 13 þúsund tonn gæti verið um átta milljarðar. Nefnir hann til samanburðar að aðeins lífmassinn sé svipuð fjárfesting og í tveimur Bo- eing 737 Max-þotum. Heildarfjárfest- ing í einni stöð gæti samkvæmt þessu verið 15-20 milljarðar króna og 50 til 60 milljarðar samtals ef reistar verða þrjár slíkar stöðvar. Uppbyggingin hefði mikil áhrif á sveitarfélagið. Þannig myndi fram- leiðsla á 60 þúsund tonnum af laxi á ári skapa um 600 störf, ef miðað er við forsendur erlendis frá, auk ótal- inna afleiddra starfa. „Eins og gefur að skilja þurfum við hjá hinu opinbera að taka nýsköpun sem þessari alvarlega og ég furða mig stundum á því að ríkið stígi ekki fastar fram til að skapa fiskeldi já- kvætt og uppbyggilegt umhverfi. Þar þarf sérstaklega að horfa til orku- verðs, skilvirkni eftirlitskerfisins, uppbyggingu vöruhafnar og ýmislegs fleira,“ segir Elliði. Stærstir í landeldi Samherji fiskeldi hefur verið í landeldi í allmörg ár og gengið „þokkalega“, að því er haft var eftir Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra í viðtali í Fréttablaðinu á dögunum. Fyrirtækið hefur fram undir þetta verið stærst í strandeldi á laxi í heim- inum þótt framleiðslan hafi ekki verið nema um 1.200-1.500 tonn á ári og bleikja verið aðalafurðin úr landeld- inu. Fyrirtækið hefur verið að stækka strandeldisstöð sína á Stað í Grindavík og undirbýr nú að auka framleiðslugetuna úr þrjú þúsund tonnum í tólf þúsund tonn og taka þar inn lax. Þá er fyrirtækið að at- huga möguleika á því að hefja eldi í skálum sem Norðurál byggði við Helguvík en aldrei voru teknir til ál- framleiðslu vegna deilna um orku- verð. Ef það er rétt sem fram hefur komið að stefnt sé að slátrun á 20 tonnum af laxi á dag úr Helguvík- urstöðinni er verið að ræða um 5-10 þúsund tonna ársframleiðslu. Matorka er með framleiðslu í stöð- inni á Húsatóftum við Grindavík og er að undirbúa stækkun. Þá fram- leiðir Stolt Sea Farm senegalflúru í landeldisstöð við Reykjanesvirkjun. Til viðbótar þessu má nefna að stóru seiðastöðvarnar í Þorlákshöfn, Tálknafirði og Kelduhverfi/Öxarfirði eru í raun landstöðvar. Sú þróun er í gangi að nýta heita vatnið og aðstöð- una á landi til að framleiða stærri fisk og setja hann út í sjókvíar á síðasta aldursskeiðinu til að draga úr áhættu við sjókvíaeldið. Ef lax sem slátrað er upp úr sjókví hefur verið settur út um hálft kíló að þyngd hefur hann verið í eldi á landi í talsvert meira en helming af líftíma sínum frá hrogni talið. Morgunblaðið/Eggert Laxabraut Vestan við seiðastöð Laxa í Þorlákshöfn er frátekið mikið svæði fyrir laxeldið, langt meðfram ströndinni. „Við trúum því að við getum fram- leitt frábærar afurðir sem eru eftir- sóknarverðar á markaði. Við trúum því að markaðurinn muni stækka, að það verði áfram til fólk sem er tilbúið að greiða meira fyrir fisk sem framleiddur er á þennan hátt,“ segir Jón Kjartan Jónsson, fram- kvæmdastjóri Samherja fiskeldis, þegar hann er spurður um for- sendur þess að fyrirtækið er að auka framleiðslu í landeldi. Samherji rekur fiskeldi, allt frá klaki til matfisks, í stöðvum í Öxar- firði, á Reykjanesi og í Ölfusi og vinnslu í Sandgerði. Fyrirtækið er stærsti framleiðandi bleikju í heim- inum og er einnig með laxeldi í strandeldisstöð í Öxarfirði. Sam- herji hefur verið að auka fram- leiðslu í bleikjustöðinni á Stað á Reykjanesi og hefur áform um að margfalda framleiðslugetuna. Einn- ig er fyrirtækið að ljúka undirbún- ingi ákvörðunar um hvort bygg- ingar Norðuráls við Helguvík verða teknar undir eldi. Jón Kjartan segir að áhugi sé á að ala lax í þessum stöðvum en tek- ur fram að ekki sé áformað að draga úr framleiðslu á bleikju. Vegur uppbyggingar fyrstu stóru landeldisstöðvanna í heiminum hefur verið þyrnum stráður. Jón Kjartan segir að það komi ekki á óvart. Það þurfi fyrst og fremst þekkingu til að ala fisk og framleiða góðar afurðir. Það taki tíma að byggja upp þekkingu og fjárfesta í nýrri tækni. Þeir sem nú séu að hefja þessa vegferð fari hratt yfir. „Ég tel að með þeim fjármunum sem nú er varið til landeldis í heim- inum muni þekkingunni fleygja fram og við munum öll verða betri,“ segir Jón Kjartan. Spurður um samkeppnishæfni íslenskra strandeldisstöðva gagn- vart stöðvum í öðrum löndum, sumum á stórum mörkuðum, segir Jón Kjartan að samkeppnishæfnin felist í vatnsgæðum á Íslandi, minni kostnaði við fjárfestingar og mark- miðið sé að rekstrarkostnaður eld- isins verði svipaður. Hann reiknar með að flutningur með skipum auk- ist á kostnað flugsins. Við það muni flutningskostnaður minnka til muna og draga úr þeirri hindrun. Markaðurinn mun stækka SAMHERJI FISKELDI HYGGUR Á AUKNINGU Í LAXELDI Morgunblaðið/Skapti Heimurinn Bleikja og lax frá Samherja fara á verðmætustu markaði. Jón Kjart- an Jónsson stýrir fiskeldinu. „Okkur langaði að koma upp verk- efni sem væri umhverfisvænt og virkur þátttakandi í hringrásar- hagkerfinu. Við vorum heillaðir af hugmyndum um mótun fiskeldis í framtíðinni þar sem við hefðum góða stjórn á öllu því sem við er- um að gera,“ segir Ingólfur Snorrason um upphaflegar hug- myndir þeirra bræðra, Haraldar og hans, um byggingu laxeldis á landi. Þeir stofnuðu Landeldi ehf. á sín- um tíma og hafa fengið fleiri fjár- festa til liðs við sig og nú er fyrir- tækið komið með seiðastöð á Öxnalæk fulla af fiski og fram- kvæmdir hafnar á lóð fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Fóðurleifar og saur fiskanna sem síað er úr eldisvökvanum við endurnýtingu og frárennsli verður leitt í tank til niðurbrots. Ingólfur segir að verið sé að huga að ýms- um hugmyndum við nýtingu á seyrunni. Þá sé verið að skoða ým- is hliðarverkefni. Hann er til dæm- is spenntur fyrir að nota eldis- vökvann til ræktunar matjurta þegar hann hefur lokið hlutverki sínu í fiskeldinu, eins og farið er að gera í Bandaríkjunum undir heitinu aquaponics, eða samrækt- un. Landeldi hefur fengið 18 hektara lóð í Þorlákshöfn. Þar er ætlunin að koma upp aðstöðu til allt að 20 til 22 þúsund tonna framleiðslu á laxi á ári. Þar verður fjöldi eldis- kera af mismunandi stærðum, að- staða til slátrunar og möguleiki á uppbyggingu seiðastöðvar. Byggt verður upp í áföngum. Í þeim áfanga sem nú er unnið að verður aðstaða til eldis á um sex þúsund tonnum af laxi en fyrirtækið hefur fengið staðfest deiliskipulag og umhverfismat fyrir þann áfanga. Þetta kostar mikla fjárfestingu. Halldór Ólafur Halldórsson stjórn- arformaður segir að búið sé að leggja tæpar 300 milljónir í verk- efnið. Áætlað er að byrjunaráfang- inn kosti um 38 milljónir evra sem svarar til nærri sex milljarða kr. en fullbyggð muni stöðin kosta yfir 100 milljónir evra. Undirbúnings- fasinn er fjármagnaður út þetta ár og verið er að undirbúa fjár- mögnun fyrsta áfanga í heild. Stjórnendur félagsins verða í sinni vinnu varir við þann mikla áhuga sem er á landeldi á laxi, samkvæmt þeirra áformum. „Spáð er 20% fjölgun mannkyns á þessum áratug og prótínþörf heimsins vex í samræmi við það. Eldi á laxi er umhverfisvæn leið til að framleiða prótín. Landeldi í stórum skala er ný lausn í þeim efnum,“ segir Halldór Ólafur. helgi@mbl.is Virkir þátttakendur í hringrásarhagkerfinu ATHUGA MÖGULEIKA Á AÐ NOTA ELDISVÖKVANN TIL AÐ RÆKTA MATJURTIR Morgunblaðið/Eggert Stofnandi Ingólfur Snorrason hugsar um umhverfismál við uppbygginguna. Uppbygging strandeldis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.