Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Selena undirfataverslun
Aðhaldssundbolir fyrir sumarið
Vefverslun www.selena.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Um 17 þúsund sinnum hefur verið minnst á
eldgosið í og við Fagradalsfjall og Ísland í
erlendum miðlum frá því gosið hófst að
kvöldi föstudagsins 19. mars. Athyglin sem
gosið fékk var eðlilega mest fyrstu viku
gossins, en nokkuð hratt hefur dregið úr
umfjöllunum um eldsumbrotin. Fyrstu þrjá
daga eldgossins birtust yfir sjö þúsund um-
fjallanir erlendis, sem tengdust gosinu og
Íslandi.
Dansandi fólk og eldamennska
Íslandsstofa er með vöktun á erlendri
umfjöllun um eldgosið og í gær hafði um 17
þúsund sinnum verið minnst á gosið í er-
lendum miðlum. Þar af höfðu yfir 1.900 um-
fjallanir birst í stórum alþjóðlegum miðlum
og eldgosið verið í fyrirsögn í yfir 700 miðl-
um.
Mest hefur umfjöllunin verið í Bandaríkj-
unum eða 39%, þar á eftir koma Þýskaland
með 8% og Bretland með 7%. Mikið af stór-
brotnu myndefni hefur birst í erlendum
fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum sem vak-
ið hefur athygli á eldgosinu og þá um leið á
Íslandi.
Samkvæmt upplýsingum frá Kristjönu
Rós Guðjohnsen, fagstjóra almannatengsla
hjá Íslandsstofu, hefur umfjöllunin í heild-
ina verið hófstillt og líkleg til að skapa frek-
ar áhuga á eldgosinu og Íslandi heldur en
ótta. Aðeins hafi borið á umfjöllun um
hegðun þeirra sem heimsækja gosið, en
ekki endilega á neikvæðan hátt. Í því sam-
bandi nefnir hún dansandi fólk á gossvæð-
inu og af fólki að elda mat á hrauninu.
Í tengslum við eldgosið sem hófst á St.
Vincent í Karíbahafi 9. apríl hafi Ísland
einnig verið nefnt án þess að viðkomandi
umfjöllun hafi verið um Ísland að öðru
leyti. Þetta hafi eflaust haft áhrif á fjölda
umfjallana um síðustu helgi.
Markaðsstarf og bólusetningar
Kristjana Rós segir að ferðatengdar
leitarfyrirspurnir að Íslandi á Google sýni
aukinn leitaráhuga gagnvart Íslandi, sér-
staklega frá Bandaríkjunum. Hins vegar sé
ómögulegt að segja að hve miklu leyti megi
rekja þann áhuga beint til umfjöllunar um
gosið.
Nánast á sama tíma hafi verið tilkynnt
um opnun Íslands gagnvart bólusettum frá
löndum utan Schengen, auk þess sem
markaðsaðgerðir hafa staðið yfir í Banda-
ríkjunum á vegum Íslandsstofu. Þá hafi
flugfélögin Icelandair, Delta og United
Airlines öll tilkynnt beint flug til Íslands í
sumar með tilheyrandi markaðsaðgerðum.
17 þúsund sinnum
fjallað um eldgosið
og Ísland erlendis
- Hófstillt umfjöllun um gosið við Fagradalsfjall
- Aukinn leitaráhugi á Íslandi erlendis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldur úr iðrum jarðar Umbrotin við Fagradalsfjall hafa vakið athygli víða um heim.
ELDGOS Á REYKJANESSKAGA