Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 30

Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 30
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Terta var með síðdegiskaffinu á vöru- bílastöðinni Þrótti í Reykjavík á föstudag síðustu viku í tilefni af því að 90 ár voru liðin frá stofnun félagsins sem að stöðinni stendur. Að samtök og fyrirtæki nái slíkum árafjölda er ekki sjálfgefið en sú er raunin í félagi vörubílstjóra og starfsemin þrótt- mikil. Um 70 bílstjórar stærri bíla, sem gerðir eru út til malarflutninga og annarra slíkra verkefna, eru í fé- laginu og á stöðinni sem er við Sæv- arhöfða í Reykjavík. Er á þriggja hektara lóð, þar sem bæði er aðstaða fyrir bíla félagsmanna og geymslu- pláss fyrir jarðveg, sem seldur er til viðskiptavina. Líflegar umræður „Vorið er komið og verkefnastaðan góð. Mínir menn hafa nóg að snúast þessa dagana,“ segir Stefán Gestsson framkvæmdastjóri Þróttar. Hann tók við starfinu í byrjun árs 2019, en hann hefur lengi haft tengsl við vörubíl- stjóra og verktakastarfsemi. Þekkir því vel til þessa samfélags manna, sem vinna langan vinnudag, eru út- sjónarsamir í verkum og viðgerðum og hafa gjarnan sterkar skoðanir á málefnum. „Umræðurnar hér á kaffistofu Þróttar eru oft afar líflegar. Menn blanda sér í leikinn af lífi og sál, enda er útgerð á vörubíl lífsstíll fremur en starf,“ segir Stefán og hlær. Kreppan vofði yfir Alls 66 bílstjórar stóðu að stofnun Þróttar, en félagið var fyrst deild inn- an Dagsbrúnar. Verkefni félagsins fyrstu árin voru að tryggja mönnum sanngjarnt gjald fyrir vinnu sína og almenn félagsleg réttindi. Sú barátta er endalaus, en stöðu mála árið 1938 er lýst svo: „Þótt þessum áfanga væri náð var lífsbaráttan hörð hjá bílstjórastétt- inni. Vofa atvinnuleysis og kreppu vofði yfir þjóðinni og þótt stjórn deildarinnar gerði á hverjum tíma allt … til að deila jafnt þeirri litlu vinnu sem fyrir hendi var,“ segir í sögu Þróttar, bókinni Maður og bíll sem Ingólfur Jónsson frá Prestbakka skráði. Svæðaskipting á vinnumarkaði, samningar við verkkaupa, sanngjarnt kaupgjald og fleira slíkt eru áberandi efnisatriði í sögu félagsins samkvæmt bókinni. Þegar vel árar hefjast fram- kvæmdir við gatnagerð og húsbygg- ingar og nóg er að gera. Vinna fyrir sveitarfélög, Vegagerðina og verk- taka hefur alltaf skipt miklu fyrir Þróttarmenn, sem í dag sækja efni í námur í Vatnsskarð við Krýsuvík- urveg, Lambafell í Þrengslum og Hólabrú í vestanverðu Akrafjalli. Framarlega í virðiskeðjunni „Vörubílstjórar eru framarlega í virðiskeðjunni, og allra áhrifa í efna- hagslífinu, á hvorn veginn sem er, gætir fljótt hér,“ segir Stefán. Fyrstu starfsárin var starfsemi Þróttar við Reykjavíkurhöfn, en var síðan flutt á Rauðarárstíg og var lengi þar sem nú er port lögreglu- stöðvarinnar við Hlemm. Frá því um 1970 var Þróttur með aðsetur á horni Borgartúns og Kringlumýrarbrautar og frá 1997 við Sævarhöfða. Vegna áforma um íbúðabyggð á Ártúns- höfða er þó líklegt að innan tíu ára flytjist starfsemin annað og þá er, segir Stefán, einkum horft á Gufunes eða Hólmsheiði. Eignir félagsins við Sævarhöfða eru í eigu einkahluta- félags bílstjóra, en Þróttur starfar samkvæmt skipulagi frjálsra fé- lagasamtaka. Til hliðar er öflugur sjúkra- og styrktarsjóður. Bílstjórarnir eru vinir mínir Margir bílstjórar hafa verið í Þrótti í áratugi. Verkefnin ráðast alltaf að nokkru af því hvernig bílar þeirra eru, sumir eru í malarflutningum, en aðrir til dæmis með krana eða krabba á bílunum sem hentar vel í tiltekin verkefni. Alls voru bílstjórar á stöð- inni um 250 um 1980 en þegar verk- efni og bílar breyttust var tekið fyrir inngöngu nýrra félagsmanna um skeið. Í dag eru teknir tveir til fimm nýir félagsmenn í Þrótt árlega. Inn- tökuskilyrði eru að eiga vörubíl, vera með meirapróf og að leyfisbréf ýmis séu í lagi. „Hér er aldrei dauð stund,“ segir Þóra Skúladóttir, skrifstofustjóri hjá Þrótti síðan 1981. Hennar er að deila verkefnum á bílstjóra, svara við- skiptavinum, skrifa út reikninga og svo mætti áfram telja. „Ég fann mig fljótt í þessu starfsumhverfi. Hef eignast vörubílstjórana sem vini og í raun er þetta eins og fjölskylda mín.“ Vorið er komið og verkefnastaðan góð - Þróttur í 90 ár - Vörubílaútgerðin er lífsstíll en ekki starf - Vegavinna og langur vinnudagur - 70 bílstjórar eru í félaginu í dag - Næg verkefni - Stöðin víkur af Sævarhöfða fyrir íbúðabyggð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vörubílar Verkefnin sem félagsmenn í Þrótti sinna eru fjölbreytt og því eru bílarnir hver með sinn búnað og tækni. Ljósmyndir/Úr einkasafni Sagan Floti Þróttarbíla í þá gömlu daga þegar stöðin var við Rauðarárstíg. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samstarfsfólk Stefán og Þóra. 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is Þín útivist - þín ánægja HELLA Sundpoki Kr. 2.590.- STEINAR Coolmax göngusokkar Kr. 1.490.- GOLA Barna regnjakki Kr. 5.990.- GOLA Barna regnbuxur Kr. 4.990.- FJÖRÐUR Hanskar með gripi Kr. 2.990.- DÖGG Regnkápa Kr. 11.990.- BRIM Regnkápa Kr. 8.990.- VALUR hettupeysa Kr. 9.990.- ARIEL Angora ullarsokkar Kr. 1.298.- SALEWA MS Dropline GTX Kr. 29.990.- VIÐAR Ullarhúfa Kr. 3.990.- Sverrir Jónsson í Varmadal í Mos- fellsbæ hefur átt aðild að Þrótti frá 1964, lengst allra núverandi fé- lagsmanna. Samkvæmt reglum Þróttar, sem var öðru fremur Reykjavíkurfélag, var fyrr á tíð alltaf gert ráð fyrir að menn úr ná- grannabyggðum gætu verið í félag- inu, svo sem Mosfellingar. „Ég keypti bíl, borgaði inntökugjald í Þrótt og byrjaði síðan útgerð á Ford árgerð 1956,“ segir Sverrir. Verkefnin fyrir vörubílstjóra segir hann strax í upphafi ferils síns hafa verið ærin og fjölbreytt. Sjálfur hafi hann mikið verið í vinnu fyrir Vegagerðina, svo sem á Mosfellsheiði, Hvalfirði og víðar. Einnig hafi alltaf verið talsverð vinna fyrir sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu. Í dag, í apríl 2021, sé nóg að gera vegna breikk- unar Kjalarnesvegar. „Hér áður fengu vörubílstjórar alltaf talsverða vinnu hjá Eimskip, meðal annars flutninga úr Reykja- víkurhöfn suður á Keflavík- urflugvöll fyrir Varnarliðið. Slík verkefni voru borguð alveg upp í topp,“ segir Sverrir. „Einhverju sinni fór ég frá Hafnarhúsinu með átta tonn af bjórflöskum suður á flugvöll en var ekki með réttu farmskjölin. Af því leiddi talsvert ströggl við tollarana á flugvell- inum, sem þó leystist að lokum. Meðan á þófinu stóð velti ég þó fyr- ir mér hvort ekki væri rétt að snúa við og fara heim með bjórinn. Ef svo hefði verið ætti ég sennilega enn birgðir, slíkt var magnið, segir Sverrir og að lokum: „Núna er ég á Man; nýlegum bíl með 500 hestöfl. Þetta er tólfti vörubílinn sem ég á og einkanúm- erið er G-77. Ég endurnýja ekki bíl- inn eftir þennan, 57 ár í bransanum er orðinn dágóður tími.“ Sverrir í Varmadal á vörubílnum í 57 ár - Varnarliðið borgaði allt upp í topp Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þróttari Nóg að gera nú við vega- vinnu á Kjalarnesi, segir Sverrir. Á 90. starfsári Þróttar var fyrsta konantekin í hóp vörubíl- stjóra sem félagið mynda. Sú er Indiana Svala Ólafsdóttir, 25 ára, sem tók meirapróf bílstjóra fyrir fjórum árum. Kom þá fljót- lega inn í útgerðina sem faðir hennar, Ólafur Þór Erlingsson, er með. Þau starfa saman í dag, bæði fullgildir Þróttarar. Staðan í jafnréttismálum hjá Þrótti er því sú að á móti 70 körlum er ein kona, sem framkvæmda- stjórinn væntir að fjölgi senn. „Tveggja ára fór ég að sitja í bílnum hjá pabba. Áhuginn á vörubílstjórum vaknaði því snemma og hefur fylgt mér all- ar götur síðan. Ég velti aldrei fyrir mér hvort bílstjórastarfið væri eitthvað sérstaklega fyrir karla frekar en konur,“ segir In- diana, sem er förðunarfræð- ingur að mennt - en finnur sig betur í öðrum störfum. „Í mínu tilviki kom nánast af sjálfu sér að ég yrði vörubíl- stjóri og við pabbi erum sitt á hvað á Benzunum tveimur,“ segir Indiana. „Annar þeirra bíla er með dráttarvagni og hinn með sleðapalli, þar sem hægt er að draga upp gáma og fleira slíkt. Með tveimur bílum verða verkefnin fjölbreytt og síðustu daga hef ég mikið verið í því að sækja jarðveg úr námum og flytja hingað á Þróttarsvæðið.“ Fyrsta konan INDIANA Í ÞRÓTTI Bílstjóri Indiana situr undir stýri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.