Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Að undanförnu hef-
ur gervigreind verið
áberandi í umræðunni
og eru deildar skoð-
anir um gildi hennar.
Gervigreindin kom
fyrst fram um miðja
síðustu öld en þó var
aðferðafræðin og
nálgunin komin fram
mun fyrr. Stærðfræð-
ingar og vísindamenn
höfðu áður lagt fram kenningar og
aðferðafræði sem gervigreindin
byggist meðal annars á og fram-
sæknir listamenn fóru fljótlega að
nýta sér þessar nýju aðferðir í list-
sköpun sinni.
Það var ekkert nýtt að tónskáld
nýttu sér stærðfræði og reikni-
formúlur við tónsköpun. Arnold
Schönberg, Alban Berg og Anton
Weber hönnuðu og þróuðu tón-
smíðakerfi (seríalisma) sem
byggðist á einföldum reiknijöfnum
sem má tengja við gervigreind.
Mozart nýtti ýmsa talnatækni og
„glundroða“ (randomness) við sína
tónsköpun, m.a. í tónlistarleik síns
tíma sem gekk undir nafninu Wür-
felspiel/Dice music, Bach beitti
hlutfallareikningi í mörgum af sín-
um þekktustu verkum, Iannis
Xeankis beitti líkindafræði og
Markov-keðjum við tónsmíðar og í
dag hika listamenn ekki við að
nýta sér nýja tækni til fjöl-
breyttrar listsköpunar.
Gervigreind birtist víða í sam-
félaginu og eru útgáfurnar mjög
ólíkar, allt frá einföldum kerfum
til fjölþættra kerfa sem skila nið-
urstöðum sem oft er ómögulegt að
greina hvort hafi ver-
ið fengnar með aðstoð
gervigreindar eða
hefðbundnari aðferð-
um.
Þótt útfærslur
gervigreindar séu
margar er hægt að
benda á tvo af helstu
þáttum hennar sem
eru „greinandinn“
(analyzer/machine le-
arning) og „gerand-
inn“ (creation/
generative/process).
Greinandinn greinir þætti sem
tengjast viðkomandi viðfangsefni
niður í smæstu einingar en ger-
andinn býr til afurð annaðhvort út
frá gefnum forsendum eða nið-
urstöðum frá greinanda. T.d. eru
andlits- og fingrafaraskannar í
snjallsímum dæmi um greinanda
og sjálfkeyrandi ökutæki á plán-
etunni Mars dæmi um geranda.
Sú gervigreindargerð sem mest
er notuð í listsköpun byggist oft á
hvorutveggja. Greinandinn nemur
og greinir það efni sem listamað-
urinn setur inn í kerfið en þá tek-
ur gerandinn við og skapar lista-
verk út frá forsendum
listamannsins. Með þekkingu lista-
mannsins á kerfinu hefur hann
fullkomna stjórn á því og getur
þar með stýrt útkomunni í smáat-
riðum. Með þessu opnast óteljandi
möguleikar fyrir listamanninn á að
rannsaka og gera tilraunir með
listrænar hugmyndir sínar í þeim
tilgangi að skapa hið „fullkomna“
listaverk ásamt því að skerpa á
sínum persónulega listræna stíl.
Þessi nýja tækni opnar jafn-
framt ótal leiðir fyrir nýja og öfl-
uga kennsluhætti. Það tekur t.d.
þróað tónsmíðakerfi örfáar sek-
úndur að greina og semja tónefni
út frá gefnum forsendum nemanda
sem gerir honum í kjölfarið fært
að læra tónfræði, aðferðafræði,
formfræði og tónlistarsögu með
auðveldum hætti og á örskömmum
tíma.
Með þessari tækni gefst nem-
andanum einnig færi á að hraða
sínu námi til muna ásamt því að
auka fjölbreytni, frumleika og
gæði námsins en síðast en ekki
síst gefur þetta honum færi á að
vinna meira með sína listrænu sýn
og styrkja sinn persónulega stíl
við listsköpun. Slík kerfi henta
einnig vel til fjarkennslu þar sem
öll samskipti nemanda og kennara
fara fram í gegnum gervigreind-
arkerfið – sem að sjálfsögðu er á
stafrænu formi. Auk styttri náms-
tíma mun kostnaður nemandans
og menntakerfisins í heild minnka
stórlega.
Gervigreind er sívaxandi þáttur
í nútímasamfélagi, hvort sem er á
sviði vísinda, tækni eða menning-
ar. Meðal þeirra atriða sem nauð-
synlegt er að taka tillit til við fag-
legt mat á gervigreind eru gæði og
áreiðanleiki við notkun. Það er því
nauðsynlegt að hanna mælikvarða
sem gefur til kynna gæði, getu og
umfang sérhvers gervigreind-
arkerfis. Með því væri hægt að
leggja mat á viðkomandi gervi-
greind með nýjum fjölþættum
mælikvarða sem hugsanlega mætti
kalla gervigreindarvísitölu en hún
sýndi dýpt, færni og öryggi kerf-
isins. Slíkur mælikvarði er einnig
nauðsynlegur út frá þeirri þróun
sem er í gangi því gervigreind í
dag er aðeins forspil að framtíð og
verður í framtíðinni aðeins eining í
stærra og flóknara greindarkerfi.
Frá því gervigreindin leit fyrst
dagsins ljós hafa margar bölsýnis-
spár komið fram. Þær þekktustu
eru frá upphafi þessarar aldar
þegar nokkrir af frumkvöðlum vís-
inda og tækni spáðu því að gervi-
greindin myndi í framtíðinni taka
yfir alla stjórn á jarðríki og að lok-
um tortíma öllu jarðlífi. Það sem
er merkilegt við þessar framtíð-
arspár er að aldrei var gert ráð
fyrir að gervigreindin gæti tekið
yfir alla stjórn á jarðríki og bjarg-
að heiminum frá tortímingu né að
mannkynið næði að þróa með sér
hæfni og færni til að nýta þessa
nýju tækni til að búa til betri heim
með fjölbreyttara, þægilegra og
betra lífi en áður hefur þekkst –
eins og raunin hefur verið með
flestar tækninýjungar.
Það er þó alltaf hugsanlegt að
„svarthöfðar framtíðarinnar“ nái
að nýta sér þessa tækni til slæmra
verka en það hefur aldrei þurft
gervigreind né sérstaka greind til
þess hingað til.
Gervigreind og glundroði
Eftir Kjartan
Ólafsson » Gervigreind er sívax-
andi þáttur í nútíma-
samfélagi, hvort sem er
á sviði vísinda, tækni
eða menningar.
Kjartan Ólafsson
Höfundur er tónskáld og höfundur
gervigreindarforritsins Calmus og
hefur starfað sem prófessor og
stundakennari við Listaháskóla Ís-
lands og Háskóla Íslands og sem ges-
taprófessor við erlenda háskóla.
Hann rekur einnig sprotafyrirtækið
ErkiTónlist sf.
kjartan.olafsson@calmus.is
Síðan Sovjetið féll og kaupfélögin til
sömu tíðar hafa vinstri menn verið
hálfmunaðarlausir og ekki að ná átt-
um. Helst hafa þeir snúið sér að því
að tína upp plast og stunda hjólreiðar.
Holl útivist er auðvitað jákvæð en
meðan vinstrið er úti að hjóla er ný-
frjálshyggjan orðin hið daglega
sakramenti og fáir til andmæla.
Nógu margir eru þó flokkarnir
sem leiða vilja okkur til grænna lífs,
en landsmenn fáir og smáir á heims-
ins mælikvarða. Evrópa m.a.s. er lítil
til afreka á þessu sviði miðað við stóru
löndin í Asíu með alla milljarðana þar
og fjölgandi.
Við ættum að hætta þessari plastt-
ínslu, sem ekkert munar um, en snúa
okkur heldur að því að flytja út hug-
sjónir íslenskra stjórnmálaflokka
Ef Xi í Kína myndi kynnast hug-
sjónum VG í umhverfis- og auðlinda-
málum og og Indverjar t.d. tækju sér
Samfó og Dag til fyrirmyndar í fækk-
un einkabíla eða Malasar kræktu sér
í fyrrverandi fískiráðherra frá Við-
reisn, þá færu hjólin að snúast í rétta
átt og upp risi ný jörð og græn.
Sunnlendingur.
Rusl Nóg er til af plasti í heiminum.
Velvakandi Svarað í síma 569-
1100 frá kl. 10-12.
Veröld ný
og græn