Morgunblaðið - 15.04.2021, Page 62

Morgunblaðið - 15.04.2021, Page 62
Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Listaverk endurspegla alltaf lista- manninn með einhverjum hætti. Ég hefði ekki gert svona verk fyrir tíu árum af því ég er ekki sama manneskja og ég var þá. Það er gott ef maður getur leyft sér að sleppa tökunum og skjóta sífellt út nýju brumi,“ segir Þórdís Claes- sen, en myndlistarsýning hennar Djöfulgangur og heiðríkja stendur nú yfir á Mokka kaffihúsi við Skólavörðustíg. „Mokka er einstakur staður og mér finnst mikill heiður að fá að sýna hér aftur, en ég hélt sýningu hér síðast fyrir tíu árum. Hún var töluvert öðruvísi, en þá var ég ný- flutt heim frá New York þar sem ég hafði búið í tvö ár. Mér finnst gott að finna að ég þróast og breytist, að ég þen út boxið mitt,“ segir Þórdís og bætir við að nafnið Djöfulgangur og heiðríkja hafi hún valið af því hún vildi hafa eitthvert bit í því. „Þessi tvö orð eru skemmtilegar andstæður. Orðið djöfulgangur er samt jákvætt orð, felur í sér fyrir- ferð og brambolt, það er líflegt, en heiðríkja stendur fyrir eitthvað rólegra.“ Myndirnar níu sem eru á sýning- unni eru afar litríkar og segir Þór- dís þær allar vera ljósmyndir og teikningar sem hún hafi sett sam- an. „Ég kýs að nota mitt eigið efni. Ég teikna ýmist með tölvupenna beint í tölvuna eða með bleki og vatnslitum á pappír og skanna inn. Niðurstaðan endar alltaf á skján- um hjá mér og ég prenta hana á striga. Ég mála ekki á strigann með pensli. Ég vil með þessari sýn- ingu leiðrétta þann misskilning að grafískir hönnuðir geti ekki haldið myndlistarsýningu,“ segir Þórdís, sem er starfandi grafískur hönn- uður. „Þegar grafískur hönnuður sem vinnur við tölvur setur upp mynd- listarsýningu, þá spyr sumt fólk: Getur þú ekki bara prentað verkin út endalaust? Mitt svar er að ég set mér þá reglu að búa aðeins til eitt eintak af hverri mynd, til að gera það sérstakt. Ég prenta í mesti lagi tvö eintök, ef einhver grenjar nógu mikið í mér,“ segir Þórdís og hlær. Vissulega gallsúr samsetning Verkin á sýningunni eru afar ólík en þó kemur sama persónan fyrir á tveimur myndum; dr. Spock úr Star Trek-sjónvarpsþáttunum. Á annarri myndinni er hann í hlut- verki íslensks veðurfræðings við veðurkort af Íslandi en á hinni er hann rokkstjarna. „Mér finnst Spock bæði töff og heillandi. Hann segir svo margt vitsmunalegt, hann er rödd skyn- seminnar í ólgusjó vitleysunnar. Mér finnst hann sætur og skemmtilegur, þess vegna setti ég þetta saman, en ég hef verið að horfa á Star Trek-sjónvarps- seríurnar frá sjöunda áratugnum. Ég heillast bæði af mynd- og hljóð- heimi þess tíma, sem hægt er að tengja við popplist; þetta frum- stæða þegar tæknibrellurnar voru ekki orðnar eins flottar og þær eru í dag. Þetta er allt svo heimilislegt. Ég hef líka gaman af íslenskri nostalgíu, ég man eftir veður- fréttum þegar kassinn var á pedal og snerist og veðurfræðingar voru með prik. Þessi samsetning hjá mér á Spock og veðurfréttum er vissulega gallsúr, en mér finnst hún skemmtileg. Ég setti Spock í leðurjakka, en ég stíla inn á að í hverri mynd sé eitthvað sem fólk kannast við og það skynji húm- orinn á bak við.“ Þórdís segist hafa tekið mynd- irnar af Spock sem skjámyndir úr þáttunum. „Aðaláskorunin er að setja þetta saman svo það virki. Ég bý til per- sónu sem er ekki til nema á sjón- varpsskjá og set hana í nýtt sam- hengi. Þetta er mín samsetning. Á hinni myndinni af honum, sem heitir Spock í Reykjavík og vísar til heimildarmyndarinnar Rokk í Reykjavík, er skrokkurinn hans af ljósmynd sem ég tók á tónleikum á Airwaves fyrir fimmtán árum. Þetta er einhver æðislegur gæi, forsprakki í einhverju rokkbandi, en húðflúrin eru uppspuni frá mér. Á bringuna hef ég flúrað merki Star Trek, og á upphandlegginn setti ég apann Óla, tuskudýr sem er í uppáhaldi í minni fjölskyldu. Mér fannst mjög fyndið að smella því á svalan rokkara.“ Prumpandi einhyrningur Eitt af verkum Þórdísar sýnir samsetta mynd af Jesú Kristi og guðinum Shiva úr hindúisma. „Ég vann þetta verk úr ljósmynd sem ég tók af höggmynd af Jesú eftir Bertel Thorvaldsen í Frúar- kirkjunni í Kaupmannahöfn, okkar manni í Danmörku. Ég bætti sex höndum á Jesú af því mér finnst gaman að krosstengja trúarbrögð og má út einhver mörk. Þarna eru líka reiðhjól og ég kalla þessa mynd Hjólagoð eða á ensku His Bikeness. Kannski er þetta vernd- ari hjólreiðafólks,“ segir Þórdís, sem ekki vill taka sig of hátíðlega. Önnur mynd vekur athygli; glimmerskreytt mynd með ein- hyrningi sem prumpar stjörnum. „Ég hef aldrei gert svona bleika barnafantasíumynd áður en mig langaði til að hanna morgunkorns- pakka sem börn væru brjáluð í. Ég hef alltaf heillast af klisjukenndri neyslumenningu og það kallast auðvitað á við mínar æskuminn- ingar og þessa amerísku menningu sem er búin til fyrir börn til að gera þau tjúlluð. Ég er að reyna að vera eins dísæt og væmin og ég mögulega kemst upp með í þessu verki.“ Á mynd sem heitir Súpa hússins er m.a. að finna merki Pönksafns Íslands, Gretti sterka, risakött og fígúrur sem Þórdís lánaði hljóm- sveitinni Langa Sela og Skugg- unum á sínum tíma til að hafa á plötualbúmi. Á annarri mynd eru áþekkar tónlistarfígúrur, en sjálf er Þórdís tónlistarkona, hún spilar bæði á trommur og bassa. Aðalmyndin á sýningunni er andlitsmynd af systur Þórdísar, skjótandi af tveimur skamm- byssum. „Þetta er Sigga litla systir mín, hún er orðin 26 ára dásamleg stelpa. Bróðir minn tók ljósmynd af henni sem ég vann alveg í klessu, ég fékk skotleyfi til að gera hvað sem ég vildi. Mér fannst mjög gaman að breyta systur minni í James Bond-geimgellu sem er brjáluð að leita að einhverjum Pétri, enda ber myndin heitið Hvar er Pétur?“ Djöfulgangur og heiðríkja - Þórdís Claessen tekur sig ekki of há- tíðlega eins og sjá má á sýningu hennar xxx Dr. Spock Hér spáir sá mikli höfðingi í veðrið, á einu af verkum Þórdísar. Hvar er Pétur? Verk Þórdísar af systur hennar, geimgellunni. Listamaður Þórdís Claessen við verkið Hjólagoð eða á ensku His Bikeness. 62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.